Morgunblaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING FJÖRIÐ í Pakkhúsi post- ulanna heldur áfram nú um helgina. Í dag kl. 16:00 fer fram gjörningurinn Afríski kvenpresturinn hittir Shivu sem Ingibjörg Magnadóttir og Kristín Eiríksdóttir standa fyrir. Á morgun, sunnudag, kl. 15:00 er leiðsögn um sýninguna og kl. 16:00 sama dag verður Ásdís Sif Gunnarsdóttir með upptöku á framtíðarsápuó- peru en verkið hennar ber yfirskriftina Tribal TV (Future Crash II). Pakkhús postulanna eru inn- setningar og gjörningar eftir unga íslenska lista- menn sem fara fram í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Sýning Ýmislegt í Pakk- húsi postulanna PÓLSKA djasstríóið Jagodz- inski kemur fram á Ísafirði í kvöld. Tónleikarnir eru liður í Pólskri menningarhátíð sem nú stendur yfir í bænum. Djasstríó Jagodzinski sam- anstendur af þremur færum tónlistarmönnum, Andrzej Ja- godzinski píanóleikar og stofnanda bandsins, Ceslaw Bartkowski djass trommuleikara og Adam Ce- gielski kontrabassaleikara. Á tónleikunum kem- ur einnig fram Djasshópur nemenda Tónlistar- skólans í Bolungarvík. Tónleikarnir fara fram í Hömrum, sal tónlistarskólans á Ísafirði, og hefj- ast kl. 20:00. Djasstónleikar Jagodzinski tríóið djassar á Ísafirði AÐFARANÓTT sunnudags, eða í kvöld kl. 00:25 verður kvikmyndin Fjallið heilaga sýnd í Tjarnarbíó. Sýningin er ein af Miðnæturmyndum Al- þjóðlegu kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Fjallið heilaga er frá árinu 1973 og er eftir Alej- andro Jodorowsky. Myndin fjallar um glímu aðalpersón- unnar við þá byrði að vera jesú-fígúra. Hún heldur í för til fjallsins heilaga í leit að ódauðleikanum. Hver einasti myndrammi er uppfullur af ljóðrænum táknum og mun verkið án efa halda áhorfendum hugföngnum þó komið sé fram yfir miðnætti. Kvikmyndahátíð Miðnæturmynd í Tjarnarbíói Lundi LJÓSVAKALJÓÐ kallast stutt- myndahátíð sem sett verður í dag í Ráðhúsinu í Reykjavík. Með hátíð- inni er verið að endurvekja ákveðna hefð sem skapaðist fyrir um áratug þegar Stuttmyndadagar voru haldnir ár hvert. Sú hátíð var einn mesti vaxtarbroddurinn í íslenskri kvikmyndagerð og þar stigu fyrst fram á sviðið kvikmyndagerð- armenn á borð við Reyni Lyngdal, Grím Hákonarson, Róbert Douglas og Rúnar Rúnarsson. Steindór Grétar Jónsson og Rún- ar Ingi Einarsson standa að nýju hátíðinni. Þeir segja að hugmyndin að henni hafi kviknað í vor þegar þeir uppgötvuðu að enginn væri vettvangurinn fyrir unga stutt- myndagerðarmenn til að sýna sínar myndir og sjá aðrar. „Það er fullt af fólki að gera stuttmyndir á Íslandi í dag en eftir að Stuttmyndadagar lögðust af fyr- ir um fimm árum hefur ástandið verið bagalegt í því að koma þess- um myndum upp á yfirborðið.“ Segjast þeir félagar stefna að því að halda hátíðina á hverju ári, enda hafi Stuttmyndadagar sýnt að slíkt sé vel hægt og uppskeran ríkuleg fyrir íslenska kvikmyndagerð. „Okkur langar til að endurvekja álíka hátíð en hafa þó í senn fræðslugildið í huga þar sem ungir og áhugasamir fá tækifæri til að hitta eldri og reyndari kvikmynda- gerðarmenn.“ En hvaðan kemur nafnið? „Eins og við lítum á stuttmynd- ina þá skipar hún í eðli sínu sama sess innan kvikmyndalistarinnar og ljóðið innan bókmenntanna. Þaðan er nafnið komið.“ Hátíðin hefst á málþingi kl. 12.30 sem Ásgrímur Sverrisson, ritstjóri logs.is, mun stýra. Þar munu kvik- myndagerðarmennirnir Dagur Kári, Ragnar Bragason og Skúli Malmquist hjá Zik Zak sitja fyrir svörum og miðla af eigin reynslu. Að loknu málþinginu eða kl. 16 hefst svo sjálf stuttmyndakeppnin en af þeim 30 myndum sem hátíðin fékk sendar voru tólf valdar til að fara fyrir dómnefnd. Af þessum tólf myndum verða fimm til átta myndir sýndar og svo verða þrenn verðlaun veitt fyrir bestu stuttmyndina, bestu mynd að mati áhorfenda og áhugaverðustu myndina (hvatning- arverðlaun). „Það er mikill áhugi fyrir stutt- myndaforminu í dag og við tökum eftir mikilli grósku. Með aukinni tækni og ódýrari en áður hafa mun fleiri tök á að búa til stuttmyndir. Hins vegar vantar ennþá upp á að stuttmyndin sé metin að verðleikum sem alvörulistform. Það getur nefnilega oft verið erfitt að koma hlutum frá sér í knöppu formi, eins og blaðamenn og rithöfundar þekkja.“ Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á vöfflur og kaffi. Allir eru velkomnir. »Stuttmyndahátíðinni Ljós-vakaljóðum er ætlað að taka upp þráðinn þar sem Stuttmyndadagar skildu við hann fyrir um fimm árum. »Á hátíðinni verða sýndar5–8 nýjar stuttmyndir og að lokum veitir dómnefnd verðlaun í þremur flokkum. »Hátíðin hefst kl. 12.30 meðmálþingi en stutt- myndakeppnin sjálf hefst kl. 16. Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á kaffi og vöfflur. »Helstu samstarfsaðilar há-tíðarinnar eru Eymunds- son, Zik Zak filmworks, Reykjavíkurborg og Al- þjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík. Í HNOTSKURN Kvikmyndir | Stuttmyndahátíðin Ljósvakaljóð verður sett í dag í Ráðhúsinu Þar sem þeir litlu stækka DAGUR Kári Pétursson tekur þátt í málþingi sem hefst upp úr kl. 12.30 í Ráðhúsinu í dag. Dagur Kári gerði stuttmyndina Old Spice áður en hann sótti um inngöngu inn í Konunglega danska kvikmyndaháskólann. Mikið vatn runnið til sjávar ÚTVARPSSTÖÐIN BBC Worl Ser- vice hefur nú sett af stað keppni til að finna heimsins besta frumsamda tónlistarverk eft- ir unga lista- menn. Þátturinn kallast The Next Big Thing og er opin fyrir hljóm- sveitir og einleik- ara innan allra gerða af tónlist, svo lengi sem keppendur eru undir 18 ára og flytja sín eigin lög. Kynning á kepp- endum og verki þeirra verður leik- in á World Service út haustið, en sigurvegari verður kosinn af hlust- endum og sérfræðingum í tónlist- arheiminum í desember. „Við erum að leita að frábærri nýrri tónlist,“ segir framleiðandi þáttanna Ben Williams. Markmið keppninnar er að rétta hjálparhönd til ungra tónlistarmanna sem hafa ekki greiðan aðgang að tónlistar- iðnaðinum. „Það er ungt fólk alls staðar um heiminn sem hefur frá- bæra tónlistarhæfileika en margir eiga erfitt með að fá fyrsta tæki- færið til að koma sér áfram, og þar komum við inn í. Þetta er ný og spennandi leið í leit að hæfi- leikafólki.“ Keppnin verður rekin með hjálp tungumálaþjónustu BBC, sem þýðir að tónlistarmennirnir geta sent inn lög á sínu móðurmáli. Ungu hæfi- leikafólki alls staðar að úr heim- inum er frjálst að taka þátt í The Next Big Thing, þar á meðal Íslend- ingum. Þeir sem hafa áhuga ættu að senda eitt lag til BBC World Ser- vice fyrir 3. nóvember 2006. Geisla- diska og spólur á að senda til The Next Big Thing, Bush House, Lond- on. Lög á MP 3 formi er hægt að senda með tölvupósti til BBC á net- fanginu: thenextbigthing@bbc.co.uk. Fyrir unga tónlistar- menn Alþjóðleg tónlistar- keppni hjá BBC Verður þú stjarna? Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÞVÍ heyrist þó hvíslað að ein- hverjir muni komast af“ er yf- irskriftin á einkasýningu Þórdísar Aðalsteinsdóttur málara sem verð- ur opnuð á Kjarvalsstöðum í dag. „Ég sýni málverk, veggmálverk og tvö vídeóverk ásamt myndlýs- ingum úr Gamla testamentinu. Mín málverk fjalla mikið um mannlegt eðli og þess vegna tók ég biblíuverkin því þau eru forn vitnisburður um mannlegt eðli. Vídeóverkin eru um það sama, þau byggjast samt mikið á texta sem er meira blátt áfram en mynd- málið sem gefur frjálsari túlkun,“ segir Þórdís sem hefur, þrátt fyrir að vera aðeins 31 árs, getið sér góðs orðstírs í höfuðborg mynd- listarinnar, New York, þar sem hún hefur búið og starfað um nokkurt skeið. Í New York hefur hún tekið virkan þátt í sýning- arhaldi og um hana hefur verið fjallað í alþjóðlegum lista- tímaritum. „Ég er á grænni grein að mörgu leyti. Þetta er heilmikil vinna en það er stórkostlegt að fá að gera það sem manni þykir vænt um og hefur áhuga á,“ segir Þórdís sem stefnir að því að búa í New York áfram næstu árin. Þetta er stærsta einkasýning Þórdísar hér á landi en hún sýndi í fyrra í 101 Galleríi. Á þessari sýningu eru verk sem ná yfir nokkurra ára tímabil og gefa gott heildaryfirlit yfir stuttan en af- kastamikinn feril Þórdísar. En til að gera list hennar sem best skil hafa mörg lykilverk Þórdísar verið fengin að láni úr erlendum einka- söfnum og flutt hingað til lands. Auk þess er að finna á sýningunni ný verk sem Þórdís hefur ekki sýnt áður. Sýningin verður opnuð kl. 16 í dag á Kjarvalsstöðum og er uppi til 3. desember en þá fer hún til Nordatlantens Brygge í Kaup- mannahöfn. Myndlist | Þórdís Aðalsteinsdóttir málari opnar sýningu á Kjarvalsstöðum Heyrist hvíslað að einhverjir muni komast af Málari Þórdís Aðalsteinsdóttir hefur getið sér góðs orðstírs í New York. DAGSKRÁ: Laugardag 30. sept. HÁSKÓLABÍÓ Salur 1 Kl. 16.00 Whole New Thing Kl. 18.00 The Optimists Kl. 20.30 I Am Kl. 22.25 The Sun HÁSKÓLABÍÓ Salur 2 Kl. 18.00 A Time for Drunken Horses Kl. 20.00 Turtles Can Fly Kl. 22.15 Summer Palace HÁSKÓLABÍÓ Salur 3 Kl. 18.00 The Adjuster Kl. 20.00 Mezcal Kl. 22.00 Blockade HÁSKÓLABÍÓ Salur 4 Kl. 20.00 Mid Winter’s Night Dream TJARNARBÍÓ Kl. 12.08 East of Bucharest Kl. 16.00 Shortbus Kl. 18.00 Red Road Kl. 20.30 Before Flying Back Kl. 22.00 El Topo Kl. 00.25 Holy Mountain TENGLAR .............................................. www.filmfest.is Kvikmyndahátíð í Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.