Morgunblaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning TÓMAS R. Einarsson hefur varið síðustu ár- um í að rannsaka latíntónlist og hefur nú gefið út þrjár plötur með slíku efni. Sú nýjasta kemur út á laugardaginn, kallast Romm Tomm Tomm, og er allt efni á henni frum- samið. Platan var tekin upp bæði hér á landi og á Kúbu og verður útgáfunni fagnað með viðamiklum tónleikum á Nasa, laugardaginn 30. september, og eru þeir í tengslum við við Jazzhátíð Reykjavíkur. Auk þess verða aðrir útgáfutónleikar (með Kúbönum og Íslend- ingum) á Casa de la Música í Havana, 17. nóv- ember. Suðræna sveiflan mun þá rata alla leið til Moskvuborgar um miðjan næsta mánuð, en þá mun Tómas leika efnið ásamt kvintett í helsta djassklúbbi borgarinnar, Le Club. Þrenna „Þetta er þriðja latínplatan,“ segir Tómas R. „Eða latíndjassplatan ef svo má segja. Ég byrjaði á Kúbönsku árið 2002, með Íslend- ingum. Árið eftir kom svo Havana út, gerð í samnefndri borg með kúbönskum tónlist- armönnum. Svo fannst mér við hæfi að enda þessa þrennu með því að blanda öllu saman. Ég og Samúel J. Samúelsson, básúnuleikari með meiru, fórum út til Havana í mars og vor- um þar á þriðju viku. Við tókum upp slatta af lögum í gamla EGREM-stúdíóinu, sem er elsta og þekktasta hljóðver borgarinnar. Svo komum við heim og tókum upp frekara efni með Íslendingum. Þeir spiluðu og inn á sum lögin sem við höfðum tekið upp í Havana. M.a. klóraði („scratch-aði“) Gísli Galdur Þor- steinsson yfir nokkra heiðarlega Kúbumenn! En svo fór ég aftur út til Havana í apríl og fékk nokkra félaga mína þar til að spila inn á nokkur af þeim lögum sem við höfðum tekið upp á Íslandi. Þannig að þetta er mikill sam- hræringur.“ Tómas segir að verkefni þetta hafi undið upp á sig óforvarandis. Aldrei hafi verið lagt upp með það að þetta yrði þrenna. „Ég var búinn að liggja yfir þessari tónlist í nokkur ár og það braust út á þennan hátt. Það var aðallega það að mér fannst svo gam- an að þessu, og eftir fyrstu plötuna var ég alls ekki búinn að tæma alla möguleikana fannst mér. Núna er ég hins vegar búinn að tæma mig, hvað þetta form á tónlistinni varðar a.m.k. Ég er engan veginn hættur í lat- íntónlistinni, en mun leita nýrra nálgana við hana. Ég er mikið beðinn um að spila þetta efni hérna heima en upp á að frumsemja efni á nýja plötu, þá yrði það í einhverjum öðrum anda. Maður á líka að hætta að gera hluti þegar maður er farinn að ná einhverju valdi á þeim. Þá er þetta ekki nógu ögrandi lengur. Nú þarf ég að ögra mér einhvern veginn öðruvísi.“ Latínplötur Tómasar hafa gengið vel, og hafa selst hvor um sig í um 3.000 eintökum, sem telst harla gott á íslenskan mælikvarða. Þá er töluvert spilað af plötunum á útvarps- stöðvum í Suður-Ameríku; Argentínu, Perú og Kólumbíu m.a. Orka Tómas segir, aðspurður um sérkenni þess- arar nýjustu plötu, að Romm Tomm Tomm sé á heildina litið sú kraftmesta. „Þannig er ekkert píanósóló á plötunni – sem er í fyrsta skipti á mínum ferli – en gít- ararnir fá mikið að njóta sín. Ómar Guð- jónsson leikur t.d. á tólf strengja gítar og raf- magnsgítar. Þannig að það ber á rokkslæðingi, sem hefur ekki verið einkenn- andi áður á mínum plötum. Hún er „ag- gressívari“ ef svo mætti segja.“ Aðrir Íslendingar sem á plötunni leika, fyr- ir utan þá sem þegar hafa verið nefndir, eru Kjartan Hákonarson, Óskar Guðjónsson, Matthías M.D. Hemstock og Pétur Grét- arsson. Tómas er spurður að því, hvernig hann sé að upplifa stemninguna í Havana, sem að margra mati er algerlega einstök. „Tónlistarlega er þetta mjög skemmtileg borg. Tónlistin og dansinn umlykur allt þarna, og er mjög stór hluti af daglegu lífi.“ Tómas segir að lokum að upptökur hafi gengið prýðilega, og hann sé afar sáttur við niðurstöðuna. „Í Havana æfðum við í stofunni hjá kvik- myndaleikstjóra sem var að mynda okkur og einnig tróðum við átta manna bandi inn í pínulitla herbergið okkar Samúels. Þetta nægði til að koma mönnum í gírinn. Hér heima gengu upptökurnar feykilega vel, þetta rann einhvern veginn átakalaust inn. Það myndaðist einhver einstök orka sem mér finnst vera að skila sér vel á þessari plötu.“ arnart@mbl.is Krafturinn frá Kúbu Morgunblaðið/Kristinn Kraftmesta platan „Nú þarf ég að ögra mér einhvern veginn öðruvísi,“ segir Tómas. Nýjasta platan úr smiðju Tómasar R. Einarssonar, Romm Tomm Tomm, kemur út í dag. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við hann um verkefnið sem vatt upp á sig. FARSI, harmleikur og dramatík eru til staðar í mynd Frears um vik- una sem gekk í garð eftir að Díana prinsessa fell frá í blóma lífsins og Tony Blair (Sheen) settist í for- ætisráðherrastólinn. Sögusviðið eru helstu stjórnstöðvar breska ríkisins; Buckingham Palace, Downing- stræti og hinn heittelskaði Bal- moral-kastali. Mögnuð leiktjöld ut- an um grafalvarlega atburðarás sem Peter Morgan gerir að bráðfyndinni háðsádeilu á bláa blóðið, múgsefjun, stjórnkænsku og lævísi og sækir innblástur úr Shakespeare og The Sun. Samkvæmt Morgan er stjórn- viskuna að finna hjá nýliðanum Blair, konungsfjölskyldan er búin að afskrifa Díönu og fráfall hennar er ekki inni á borðum hallarinnar. El- ísabet II. vill helst fá að vera í friði fyrir harmleiknum, þessum nýja og borubratta ráðherra sem er ð ónáða hana sínkt og heilagt. Tilfinningar lýðsins sem hún stjórnar skilur hún ver og virðist meira annt um hundana sína. Hvað tengslin við Díönu snertir, þarf Blair að minna hana á að hún er amma, þegar hon- um hefur tekist að koma vitinu fyrir hátignina. Morgan er sagður byggja hand- ritið á heimildum úr innstu röðum, en sannleiksgildið skiptir ekki mestu máli heldur hitt að þeim Fre- ars hefur tekist frábærlega að breyta atburðarásinni í kaldhæðn- islega sápuóperu. The Queen er einn óvæntasti gleðigjafi ársins, það úir og grúir af meinfyndnum til- svörum og spaugilega vandræða- legum uppákomum. Cromwell er borubrattur sem „Drottningarmað- urinn“, pirraður á sínu ævilanga, ábyrgðarlausa vappi, ca fjóra metra aftan við spúsu sína. Ríkisarfanum Karli, er lýst sem siðfáguðu dauðyfli og báðir eru þeir feðgar greinilega undir hælnum á hátigninni. Drottn- ingarmóðirin var viðkunnanlegasta manneskjan í fjölskyldunni og það er engin önnur en Sylvia Syms, sem leikur hana og meðhöndlar á réttum nótum. Sheen tekst vel upp sem Blair, nær röddinni svo unun er á að heyra og rullan er vel skrifuð en útlitið minnir meira á Rowan Atkinson en forsætisráðherrann. Það er dálítið spaugilegt og á sjálfsagt að vera það. En það er stólpakonan Mirren sem stelur The Queen með húð og hári, ótrúlegt hvað þessi undur heillandi leikkona, með sína vel þekktu og þokkafullu framkomu, getur búið til. Fyrir utan að vera nánast eins og Elísabet drottning í útliti, nær hún fasinu og limaburð- inum, frekar stirðbusalegu göngu- laginu og þeirri óspennandi „holln- ingu“ sem gjarnan einkennir þjóðhöfðingjann, einkum ef hún ber skuplu á höfði. Það kemur hins veg- ar ekki á óvart að Mirren gerir hana reista og tígulega og gefur henni ör- fá, ljúf augnablik, með krónhirt- inum, hundum sínum og við blóma- hafið utan við Buckinghamhöll. The Queen er frábær kvikmynd í flesta staði, meinfyndin skemmtun þar sem höfundunum og leik- urunum hefur tekist ætlunarverkið mjög ásættanlega; að gera skop að nánast afbrigðilegu ástandi og sam- félagslegum vanþroska fjölskyld- unnar í Buckinghamhöll og halda Díönu smekklega utan við myndina. En Mirren er þegar komin langt með að tryggja sér öll helstu leik- listarverðlaun ársins. Þjóð og hundar hennar hátignar Sæbjörn Valdimarsson KVIKMYNDIR RIFF: 2006: Tjarnarbíó – opn- unarmynd Leikstjóri: Stephen Frears. Aðalleikarar: Helen Mirren, Michael Sheen, James Cromwell, Sylvia Syms. 95 mín. England 2006. Drottningin – The Queen  Drottningin The Queen var opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar. HVERNIG er ástandið í borg í herkví, hvernig er hversdagslífið innan um brennandi hús, vegatálma, hrundar byggingar, hermenn, fanga, matarskort og aðra neyð, og snar- geggjaður óvinurinn rétt utan borg- armarkanna? Því er lýst á raunsæjan hátt í Blo- kada, rússneskri heimildarmynd sem klippt er saman úr gömlum myndskeiðum frá umsátrinu mikla um Leningrad. Höfundurinn, Loz- nitsa, lætur gömlu filmubútana tala sínu máli og þeir segja meira en nokkur orð. Það eina sem heyrist eru umhverfishljóð. Í 900 daga varðist Rauði herinn hetjulega sókn Þjóðverja og hefst myndin um haust á ógleymanlegu atriði þegar sovéskir hermenn reka stríðsfanga á undan sér í gegnum borgina, þeir stika skömmustulegir eftir götunum og íbúarnir fylgjast með hersingunni. Ung kona skyrpir í átt að óvininum sem hefur að öllum líkindum rænt hana því sem hún átti helgast. Síðar koma svipmyndir af Leningrad lamaðri í snjóalögum vetrarins, fallið fólk og helfrosið liggur á víð og dreif, borgararnir farnir að venjast slíku. Óvinurinn spýr linnulaust eldi og eimyrju, síð- an tekur að hlána og að lokum hefur þrautseigjan skilað sigri í höfn. Engra orða þörf KVIKMYNDIR RIFF: 2006: Tjarnarbíó Heimildarmynd. Leikstjóri: Sergei Loz- nitsa. 52 mín. Rússland 2006. Umsátur - Blokada  Sæbjörn Valdimarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.