Morgunblaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 265. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
FANGI FYRIR FRIÐ
AUNG SAN SUU KYI ER ORÐIN AÐ TÁKNMYND
LÝÐRÆÐISBARÁTTU Í HEIMINUM >> LESBÓK
SARA KOLKA
ÍSLENSKUR FRÉTTA-
FRAMLEIÐANDI Í PARÍS
ER Í DRAUMASTARFINU >> 24
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
MIKIÐ er um að sjúkraliðar sem
starfa á heilbrigðisstofnunum verði
daglega fyrir ofbeldi frá sjúklingum.
Dæmi eru um að hnífum sé beitt. Of-
beldið er mest á bráðamóttökum og
lokuðum deildum en einskorðast þó
ekki við þær. Þá er einnig um kyn-
ferðislega áreitni að ræða en það á
sér stað á ýmsum deildum heilbrigð-
isstofnana. „Innanlærisstrokur eru
algengar eða hreinlega er gripið í
klofið á okkur,“ hefur Kristín Á.
Guðmundsdóttir, formaður Sjúkra-
liðafélags Íslands, eftir starfssystr-
um sínum. Viðvarandi mannekla ger-
ir erfitt að fást við ofbeldisfulla
sjúklinga. Ofbeldið færist sífellt í
aukana og helgast það m.a. af aukn-
um fjölda fíkniefnaneytenda sem
lagðir eru inn. „Sjúkraliðar hafa
verulegar áhyggjur af þessu aukna
ofbeldi og þeir hafa áhyggjur af því
að þó að ofbeldi sjúklinga sé viður-
kennt inni á stofnunum sé reynt að
draga úr umræðu um þetta mál op-
inberlega, kannski eðlilegt, því þarna
sé um sjúklinga að ræða en ekki heil-
brigða einstaklinga, og meðhöndla
þurfi þá með öðrum hætti en þá sem
beita ofbeldi utan sjúkrastofnana,“
segir Kristín. Besta tryggingin sé að
nægilegur mannafli sé til þess að fást
við ofbeldishneigða sjúklinga.
Ofbeldi gagnvart sjúkra-
liðum er daglegt brauð
Viðvarandi mannekla gerir erfitt að fást við ofbeldisfulla sjúklinga
Í HNOTSKURN
» Á félagsfundi sjúkraliða íReykjavík og nágrenni í vik-
unni var samþykkt ályktun þar sem
þess er krafist að kjör sjúkraliða og
vinnuumhverfi verði endurskoðað.
»Vilja sjúkraliðar að tekið veriðtillit til ofbeldis og annarra
þátta.
UM kvöldmatarleytið í gær var
Hálslón komið upp í 45 metra næst
Kárahnjúkastíflu. Lónið var þá einn
ferkílómetri að flatarmáli, en vatnið
mun þekja 57 ferkílómetra þegar
það hefur náð fullri stærð.
Að sögn Sigurðar Arnalds, tals-
manns Kárahnjúkavirkjunar, mun
vatnsborðið halda áfram að hækka
um nokkra metra daglega næstu
daga, en í vetur má gera ráð fyrir að
yfirborðið hækki aðeins um tvo
metra á mánuði. Sigurður Aðal-
steinsson á Vaðbrekku segir mun
minna í Jöklu við Brú en var þótt enn
hafi hún sinn jökulbrúna lit.
Fáir voru á ferli við Kárahnjúka í
gær, enda var veður vont og dimmt
yfir. Erlendir og innlendir ljósmynd-
arar og kvikmyndatökumenn kepptu
þó við tímann og skrásettu breyt-
inguna. Hinum megin við stífluna
gengu menn hins vegar í fyrsta sinn
þurrum fótum í Hafrahvammagljúfri
í hinum gamla farvegi Jöklu.Morgunblaðið/RAX
Síðasti nagl-
inn negldur
Hálslón komið
upp í 45 metra
Tbilisi. AP. | Spenna milli Georgíu
og Rússlands náði nýjum hæðum í
gær þegar Rússar svöruðu handtöku
fjögurra meintra njósnara í Tbilisi
fyrr í vikunni með því að hóta að
draga herlið sitt ekki á brott úr land-
inu fyrir árslok 2008 eins og að er
stefnt.
Stjórnvöld í Georgíu sökuðu í gær
stjórnvöld í Rússlandi um að færa
herlið sitt nær landamærum Georgíu
og sögðu að gert væri ráð fyrir að
rússneski flotinn á Svartahafi nálg-
aðist landið á næstu dögum. Vano
Merabishvili, innanríkisráðherra
Georgíu, ráðlagði Rússum að fara
hægt í sakirnar og sagði að fram-
koma þeirra væri óviðunandi og
óskiljanleg.
Samskipti Rússlands og Georgíu
hafa verið frekar stirð undanfarin ár
eða síðan Mikhail Saakashvili varð
forseti Georgíu í kjölfar „rósabylt-
ingarinnar“ 2003. Þá lofaði hann að
færa landið undan áhrifum Rúss-
lands, sameina aftur héruðin Abkas-
íu og Suður-Ossetíu Georgíu og
ganga í Atlantshafsbandalagið
(NATO) 2008. Georgía hefur vingast
við Vesturveldin, sem hefur valdið
reiði yfirvalda í Moskvu, og stjórn-
völd í Tbilisi hafa sakað Rússa um að
styðja aðskilnaðarsinna í Georgíu.
Á miðvikudag voru fimm rúss-
neskir herforingjar handteknir í
Georgíu og ákærðir fyrir njósnir.
Einum þeirra var sleppt í gær en
gæsluvarðhald hinna framlengt um
tvo mánuði. Eftir handtökurnar köll-
uðu Rússar sendiherra sinn í Tbilisi
heim, byrjað var að flytja embætt-
ismenn og fjölskyldur þeirra aftur til
Rússlands og hjá Sameinuðu þjóð-
unum mótmæltu Rússar framkomu
stjórnvalda í Georgíu.
Rússar hóta Georgíu
EKKERT varð af því að fimmta
skákin í einvígi þeirra Víktors
Kramníks og Veselins Topalovs
væri tefld í gær og raunar var þá
með öllu óvíst hvort einvíginu yrði
haldið áfram. Var ástæðan hörð
deila um „grunsamlega“ tíðar ferð-
ir Kramníks á klósettið í
hvíldarherbergi sínu meðan á skák-
unum hefur staðið.
Staðan í einvíginu í Elista, höf-
uðborg rússneska sjálfstjórnar-
lýðveldisins Kalmykíu, er 3–1 fyrir
Kramník en hann mætti ekki til
leiks í gær. Þá hafði áfrýjunarnefnd
ákveðið að banna notkun klósetta í
hvíldarherbergjum en á það vildi
Kramník ekki fallast. Kvaðst hann
reiðubúinn að tefla fimmtu skákina
nú í dag ef allt yrði sem áður var.
Annars væri hann hættur. | 19
Einvígið út
um þúfur?