Morgunblaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 11
„SNEMMA í morgun kom banda- rískt fluglið til Keflavíkurflug- vallar.“ Þannig var upphaf forsíðu- fréttar í aukablaði Morgunblaðsins, sem gefið var út mánudaginn 7. maí 1951 í tilefni af komu varnarliðsins til Íslands. Á forsíðu var einnig birt- ur varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna sem gerður var á grundvelli Norður-Atlantshafs- samningsins. Einnig var birt til- kynning sem ríkisstjórnin sendi frá sér skömmu eftir að bandarísku hermennirnir komu til landsins. Með varnarsamningnum sem undirritaður var 5. maí skuldbundu Bandaríkjamenn sig til að taka að sér varnir Íslands fyrir hönd Atl- antshafsbandalagsins (NATO). Fyrstu flugvélarnar sem hingað komu, með fyrsta hóp varnarliðs- manna og útbúnað þeirra, lentu í Keflavík árla morguns 7. maí. Þar voru á ferð Skymaster-flugvélar frá bandaríska flotanum og um borð voru um 280 manns, þar með taldir fulltrúar í herráði Bandaríkjanna með E.J. McGaw, hershöfðingja og yfirmann varnarliðsins, í broddi fylkingar. Á meðal þeirra sem tóku á móti fyrstu varnarliðsmönnunum á vellinum voru sendiherra Banda- ríkjanna á Íslandi og Hans G. And- ersen, sem var fulltrúi utanrík- isráðuneytisins. Alls komu 13 flugvélar með varn- arliðsmenn og búnað þeirra til landsins á fyrsta degi. Nánar var svo gerð grein fyrir komu varn- arliðsins í Morgunblaðinu 8. maí: „Um kl. 6 í gærmorgun kom flokk- ur bandarískra hermanna til Kefla- víkurflugvallarins. Stundu síðar var ritstjórnum Reykjavíkurblaðanna gert aðvart um að ríkisstjórnin hefði gefið út tilkynningu til birtingar í blöðunum um komu liðs þessa og varnarsamn- ing sem ríkisstjórnin hefur nýlega gert við Bandaríkjastjórn. Tilkynning þessi og samningur var birtur í aukaútgáfum dagblað- anna er komu út fyrir hádegi í gær. Hvorttveggja var lesið upp í morg- unútvarpinu kl. 8.30 í gærmorgun og síðar í hádegisútvarpi,“ sagði í forsíðufrétt Morgunblaðsins. Í ávarpi E.J. McGaw, yfirmanns varnarliðsins, sem birt var í fjöl- miðlum, sagði m.a.: „Jeg er hreykinn af því að þið Ís- lendingar eruð húsbændurnir, gest- gjafarnir og við erum gestir ykkar. Eins og þið getið sjeð eru í liði mínu flokkar úr þremur herþjón- ustugreinum Bandaríkjanna – land- her, flota og flugher. Við ætlum okkur að vera velkomnir gestir. Það mun tryggja okkur góð sam- skipti og leysa greiðlega úr vanda- málum, sem að okkur kunna að steðja sameiginlega,“ sagði McGaw, sem lauk ávarpinu með orðunum: „Ísland – Jeg heilsa þjer“. Forsíða aukablaðs Morgunblaðsins um komu varnarliðsins 7. maí 1951. „Ísland – Jeg heilsa þjer“ Í HNOTSKURN »Fyrstu varnarliðsmenn-irnir komu til Íslands í 13 flugvélum mánudaginn 7. maí árið 1951. »Um 280 manns voru ífyrsta hópnum sem kom til Keflavíkur og fóru hermenn- irnir strax að koma sér fyrir í bröggum og íbúðum á svæð- inu. » Í júlí 1951 kom svo stórtflutningaskip til Reykja- víkur með 3–4 þúsund tonn af byggingarefni til húsbygginga fyrir varnarliðsmenn og fluttu 50 vörubílar frá Þrótti efnið til Keflavíkur. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 11 FRÉTTIR HALLDÓR Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, var í gær kjörinn formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga undir lok 20. landsþings þess á Ak- ureyri. Fram fór kosning í embættið í fyrsta skipti og var hún æsispenn- andi; Halldór hlaut 68 atkvæði en Smári Geirsson, bæjarfulltrúi og fyrr- verandi forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð, 64 atkvæði. Halldór tekur við formennsku af Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni sem hættir eftir 16 ár á formannsstóli enda orð- inn borgarstjóri í Reykjavík. „Fyrstu viðbrögð mín eru þakkir fyrir traustið sem sveitarstjórnar- menn víðs vegar um land sýndu mér, og þakkir til Vilhjálms, fráfarandi for- manns, sem staðið hefur sig með því- líkum ágætum að það er ákveðið kvíðaefni að feta í fótspor svo öflugs manns,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið. Halldór segir það ekki hafa komið sér á óvart hve jöfn kosningin var. „Við Smári töluðum um að við gætum átt von á hverju sem er. Við sátum saman á meðan atkvæði voru talin og gengum reyndar hönd í hönd út úr salnum!“ sagði Halldór, en kjörnefnd tilkynnti þeim úrslitin áður en þau voru lesin upp fyrir þingheim. „Við töluðum líka um það í gríni að ef við yrðum hnífjafnir yrðum við að taka eina bændaglímu á sviðinu …“ Framundan eru mörg mikilvæg mál hjá sambandinu, að sögn nýkjör- ins formanns. Hann nefndi sérstak- lega samskipti ríkis og sveitarfélaga og tekjustofna sveitarfélaganna. „Það mál verður að taka föstum tökum, mikið hefur verið unnið í því en þarf enn að bæta. Svo þarf að huga vel að stöðu þeirra sveitarfélaga sem eiga hvað erfiðast í rekstri en ég kem ein- mitt frá þannig sveitarfélagi.“ Til umræðu kom á þinginu hug- mynd um að skipta Sambandi sveitar- félaga upp í tvö sambönd, þar sem annars vegar yrðu þau stóru en hins vegar þau litlu – og rökin eru fyrst og fremst þau hversu ólík sveitarfélögin eru. „Mér finnst það slæmur kostur og þetta kemur reyndar ekki til greina að mínu mati. Það er gríðar- lega mikilvægt að sveitarfélögin eigi einn málsvara, einmitt vegna þess hve þau eru ólík. Vilhjálmur, fráfarandi formaður, lagði áherslu á það að sem borgarstjóri myndi hann ekki styðja það að sambandinu yrði skipt í tvennt og myndi berjast fyrir því að það yrði óbreytt. Ég er ánægður með það,“ sagði Halldór. Smári Geirsson sagði, þegar hann ávarpaði þingheim eftir að úrslit höfðu verið tilkynnt, að kosning sem þessi gæti eflt sambandið, en þó skipti afskaplega miklu máli hvernig þeir sem töpuðu tækju úrslitunum. „Að þeir sem tapa láti ekki verða eftirmála og eigi gott samstarf við þá sem vinna. Ég hlakka til að setjast í stjórn sambandsins og hlakka til að vinna með Halldóri Halldórssyni, enda er hann verðugur formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga,“ sagði Smári Geirsson. Í lok þingsins var kjörið í nýja stjórn Sambands íslenskra sveitarfé- laga. Aðalmenn eru eftirtaldir, vara- menn þeirra innan sviga: Hanna Birna Kristjánsdóttir, Reykjavík (Gísli Marteinn Baldurs- son, Reykjavík), Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir, Reykjavík (Stefán Jón Haf- stein, Reykjavík), Árni Þór Sigurðsson, Reykjavík (Svandís Svavarsdóttir, Reykjavík), Ragnheið- ur Ríkharðsdóttir, Mosfellsbæ (Gunnar Einarsson, Garðabæ), Lúð- vík Geirsson, Hafnarfirði (Guðríður Arnardóttir, Kópavogi), Halldór Hall- dórsson, Ísafirði (Gunnar Sigurðsson, Akranesi), Elín R. Líndal, Húnaþingi vestra (Sveinbjörn Eyjólfsson, Borg- arbyggð), Kristján Þór Júlíusson, Ak- ureyri (Sigrún Björk Jakobsdóttir, Akureyri), Smári Geirsson, Fjarða- byggð (Sigrún Stefánsdóttir, Akur- eyri), Þorvaldur Guðmundsson, Ár- borg (Jón Hjartarson, Árborg), og Björk Guðjónsdóttir, Reykjanesbæ (Aldís Hafsteinsdóttir, Hveragerði). Halldór hafði betur í hnífjöfnu kjöri Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Til hamingju Halldór Halldórsson og Smári Geirsson sátu saman við borð þegar úrslitin voru tilkynnt og féllust í faðma þegar niðurstaðan lá fyrir. Smári Geirsson fékk 64 atkvæði en Halldór Hall- dórsson hlaut 68 Í HNOTSKURN »Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-son er hættur eftir 16 ár sem formaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. »Þetta var í fyrsta skiptisem kosning fer fram um embætti formanns. » Sjálfstæðismaðurinn Hall-dór að vestan hafði betur í baráttu við Samfylking- armanninn Smára að austan en munurinn var mjög lítill. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is GERT er ráð fyrir því að þingið, sem kemur saman að nýju á mánudag, verði stutt en snarpt. Líklegt er að prófkjör flokkanna og kosning- arnar framundan eigi eftir að setja svip sinn á þingstörfin með einum eða öðrum hætti. Upp- hlaup þingmanna í upphafi þingfunda og heitar umræður eiga væntanlega eftir að verða reglan fremur en undantekningin. Þannig reyna þing- menn m.a. að vekja athygli á sér og sínum áherslum. Að prófkjörum loknum munu flokk- arnir svo örugglega reyna að skerpa og draga fram málefnaáherslur sínar. Á kosningavetri verður aukinheldur forvitni- legt að fylgjast með því hvernig flokkunum gengur að vinna saman með tilliti til mögulegs stjórnarsamstarfs að kosningum loknum, t.d. hvernig stjórnarflokkarnir eiga eftir að starfa saman og hvernig stjórnarandstöðuflokkarnir munu starfa saman. Má í því sambandi minna á að formenn stjórnarandstöðuflokkanna lýstu því yfir í byrjun september að þeir hygðust stilla betur saman strengi sína í vetur. Þeir kváðust jafnframt sammála um að ef ríkis- stjórnarflokkarnir fengju ekki meirihluta í kosningunum yrði fyrsti kostur stjórnarand- stöðunnar að kanna samstarfsgrundvöll sinn. Frá því að þingi var frestað í vor hefur Hall- dór Ásgrímsson, fyrrverandi formaður Fram- sóknarflokksins, látið af forsætisráðherradómi og þingmennsku. Í kjölfarið urðu þónokkrar breytingar á ráðherraliðinu eins og kunnugt er. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók við forsætisráðuneytinu um miðjan júní sl. Á sama tíma komu þrír nýir ráðherrar frá Fram- sóknarflokknum inn í ríkisstjórnina, þau Jón Sigurðsson, nýr formaður Framsóknarflokks- ins, sem varð iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Magnús Stefánsson sem varð félagsmálaráð- herra og Jónína Bjartmarz sem varð umhverf- isráðherra. Jón Kristjánsson vék úr félagsmála- ráðuneytinu og Sigríður Anna Þórðardóttir vék úr umhverfisráðuneytinu. Þá má nefna að Sæ- unn Stefánsdóttir tók sæti Halldórs á þingi. Víst er að fylgst verður með því í vetur hvernig nýj- um ráðherrum gengur í nýju hlutverki. Geir H. Haarde forsætisráðherra mun flytja sína fyrstu stefnuræðu á þriðjudagskvöld og í kjölfarið verða umræður um hana. Eflaust verð- ur málefnatónn flokkanna sleginn í þeim um- ræðum. Áherslur flokkanna koma einnig m.a. fram í umræðum um fjárlög næsta árs, sem hefjast næsta fimmtudag. Flestum þeim sem blaðamaður ræddi við ber saman um að umræður um efnahagsmál eigi eftir að verða áberandi á þingi í vetur. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar nefna auk þess fleiri mál, sem þeim eru hugleikin. Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir t.d. að umhverfismál, varnar- mál og símahlerunarmál eigi eftir að verða áberandi í vetur. „Það eru óvenjumörg heit og pólitísk mál uppi, sem kallar auðvitað á það að þingið verði að sama skapi mjög heitt,“ segir hann. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Sam- fylkingarinnar, segir að sinn flokkur muni m.a. leggja áherslu á auðlindamál, menntamál og náttúruvernd. „Þá munum við fjalla um mat- arverð og leggja áherslu á að ná niður útgjöld- um heimilanna.“ Magnús Þór Hafsteinsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, seg- ir að sinn flokkur muni m.a. setja umhverfis- og byggðamál á oddinn í vetur. Kosningar setja svip sinn á Alþingi Búast má við stuttu en snörpu þingi og er líklegt að prófkjör hafi áhrif á þingstörf Morgunblaðið/Árni Torfason Kosningavetur Búast má við því að kosn- ingaveturinn verði líflegur á þingi. ÞINGSETNINGARATHÖFN hefst kl. 13.30 á mánudag með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Þar predikar sr. Dalla Þórðardóttir. Að henni lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir fylktu liði til þinghússins. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setur þingið og að því loknu tekur starfsald- ursforseti þingsins Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, við fund- arstjórn. Minnst verður látins fyrrverandi al- þingismanns og að því búnu stjórnar Jóhanna kjöri forseta þingsins. Þegar fundi verður framhaldið kl. 16 verða kosnir varaforsetar þingsins. Þá verður m.a. kosið í fastanefndir þingsins. Að síðustu verð- ur hlutað um sæti þingmanna. Þing hefst á mánudag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.