Morgunblaðið - 04.11.2006, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Laugardagur 4. 11. 2006
81. árg.
lesbók
ÍSLENSK BÓKMENNTASAGA
ÚTGÁFA FJÓRÐA OG FIMMTA BINDIS SÍÐUR TIL MARKS UM AÐ
RITUN SÖGUNNAR SÉ NÚ Á EINHVERN HÁTT LOKIÐ » 4-5
Það er erfitt fyrir mörg okkar að hugsa sér samfélag án listarinnar » 8
Morgunblaðið/Sverrir
Líkur Erlendi Ingvar E. Sigurðsson segir að sér hafi í upphafi leikferlisins þótt erfiðast af öllu að koma fram sem hann sjálfur: „Við Erlendur eru líkir að þessu leyti.“» 3
ÁÍslandi er losun gróðurhúsa-lofttegunda á mann orðinmeiri en í Evrópusambandinu.
Þetta kemur fram í grein Vésteins
Lúðvíkssonar í Lesbók í dag og hann
bætir við: „Þessum „árangri“ höfum
við ekki síst náð með mengandi stór-
ðju. Og verði af þeirri álvæðingu sem
að er stefnt á næstu árum getum við
hugsanlega stært okkur af því að
vera komin í mengunarflokk með
Bandaríkjunum sem nú eiga heims-
metið.“
Í ljósi þessa spyr Vésteinn í grein
sinni með hvers konar rökum Íslend-
ingar geti réttlætt mengandi stóriðju
í landi sínu.
Vésteinn segir að eigingjörn sjón-
armið Íslendinga í þessum efnum hafi
orðið pínlega ber á undanförnum ára-
tugum, ekki síst í ljósi þess að landið
er ekki í hópi fátækustu ríkja heims,
en rökin fyrir mengandi stóriðju hafi
einkum verið þau að það þyrfti að
renna fleiri stoðum undir einhæft
hagkerfi. Hann segir að þegar gefið
hafi verið leyfi fyrir álverksmiðju í
Straumsvík á sjöunda áratugnum
hafi þjóðin ekki vitað það sem hún
veit núna. Fyrir eða eftir Ríó-
ráðstefnuna 1992 höfum við hins veg-
ar vitað (eða átt að vita) að umhyggj-
an fyrir eigin efnahag nægði ekki sem
réttlæting fyrir frekari losun gróð-
urhúsalofttegunda. Samt hafi þetta
verið megináherslan í málflutningi
þeirra sem talað hafi fyrir aukinni
stóriðju. Vésteinn skoðar þessa af-
stöðu í siðfræðilegu ljósi. » 6
Eru Íslendingar eigingjarnir?
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Biblían á hundrað mínútum nefnist
bók sem bókafélagið Uglan hefur
gefið út. Eins og nafnið gefur til
kynna fer bókin yfir efni Biblíunnar í
texta sem tekur ekki nema rúman
einn og hálfan tíma í lestri.
„Loksins getur hin önnum kafna
manneskja gefið sér tíma til að lesa
sögur Biblíunnar á aðgengilegu máli
og á einu bretti,“ segir Þormóður
Dagsson í umfjöllun um bókina í
Lesbók í dag. Hann telur bókina
tímanna tákn. » 11
Biblían á
hlaupum
laugardagur 4. 11. 2006
íþróttir mbl.is
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
3,4%
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006
Sagan er ekki beinlínis með leik-
mönnum Tottenham þegar kemur að
viðureignum þeirra við meistaralið
Chelsea. Staðreyndin er sú að síðan
úrvalsdeildin var sett á laggirnar
fyrri fjórtán árum þá hefur Totten-
ham aldrei náð að vinna Chelsea.
Skiptir þá engu hvort liðin hafi mæst
á Stamford Bridge eða á White Hart
Lane eins og þau gera nú. Í síðustu
fjórum leikjum liðanna í norður-
London þá hefur Tottenham ekki
tekist að skora mark hjá Chelsea og
því er eftir nokkru að slægjast fyrir
leikmenn Tottenham að brjóta ísinn;
ekki bara að vinna heldur einnig að
skora mark, sem er nauðsyn til þess
að hægt sé að vinna leiki.
Þá verða liðin slétt tvö ár frá því að
Hollendingurinn Martin Jol tók við
stjórnartaumum hjá Tottenham af
Frakkanum Jacques Santini. Þetta
verður 75. leikur Tottenham undir
stjórn Jols og víst er að fátt myndi
gleðja hann og stuðningsmenn Tott-
enham meira en að af því tilefni tæk-
ist að vinna Chelsea í fyrsta sinn í 16
ár á White Hart Lane. Þá tryggði
Gary Lineker Tottenham sigur í við-
ureign á Stamford Bridge í leik lið-
anna í 1. deild eins og efsta deild var
nefnd í þá daga.
Hins vegar verður að segjast að
líkurnar eru ekki með Tottenham.
Chelsea er í öðru sæti deildarinnar
og hefur unnið sér inn meira en tvö-
falt fleiri stig á keppnistímabilinu en
Tottenham, eða 25 á móti 12. Þá hef-
ur Chelsea skorað 17 mörk á móti
sex frá Tottenham mönnum auk þess
sem liðið hefur aðeins fengið á sig
fimm mörk á sama tíma og net-
möskvar marka Tottenham hafa
þanist út tíu sinnum vegna marka
andstæðinganna.
Alls hefur Chelsea nú leikið 13
leiki í röð án þess að tapa og þá eru
öll mót sem liðið tekur þátt í um
þessar mundir tiltekin. Vinni
Chelsea á morgun verður það í
fimmtugasta sinn í sögunni sem það
hefur betur gegn Tottenham á
heimavelli þeirra síðarnefndu.
Er hagur West Ham að skána
Líkt og hjá Tottenham þá hefur
fátt gengið leikmönnum West Ham í
hag á þessu keppnistímabili. Miklar
vonir voru bundnar við liðið þegar
blásið var leiks í ágúst en þær vonir
hafa flestar brugðist til þessa. Sigur
á Blackburn, 2:1, kveikti ljóstýru í
augum stuðningsmanna „Hamr-
anna“ etir fimm tapleiki í röð.
Leikmönnum Arsenal gekk afar
illa að reka smiðshöggið á sóknir sín-
ar gegn CSKA Moskvu í Meistara-
deildinni á miðvikudaginn. Þeir
mæta eflaust eins grenjandi ljón til
leiks eftir að hafa hlaðið vopnabúr
sitt og stillt af byssur.
Emmanuel Adebayor kemur inn í
leikmannahóp Arsenal á nýjan leik
eftir að hafa jafnað sig á meiðslum en
annars er reiknað með að liðið verði
skipað líkt og í síðustu viðureignum.
Leikmenn Arsenal sluppu við öll
meiriháttar meiðsli í fyrrgreindum
leik við CSKA sem var ákveðin
huggun harmi gegn.
West Ham hefur ekki sögulegar
staðreyndir með sér í leikjum við
Arsenal fremur en leikmenn Totten-
ham gegn Chelsea. West Ham hefur
aðeins einu sinni lagt Arsenal í úr-
valsdeildinni. Það var á Highbury
fyrir sjö árum, 2:3, þar sem mark
Ítalans Pauolo Di Canio reið bagga-
muninn.
Reuters
Það var mark! Stijn Stijnen, markvörður Club Brugge, átti ekki möguleika á að verja skot frá Dimitar Berbatov, þegar Tottenham gerði góða ferð til
Belgíu sl. fimmtudag og vann sigur í UEFA-bikarkeppninni, 3:1. Hvað gera leikmenn Tottenham gegn Chelsea?
Barist verður á tvennum
vígstöðvum í Lundúnum
TVEIR Lundúnaslagir verða á dag-
skrá ensku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu á morgun. Flautað
verður til leiks klukkan hálf tvö í
þeim fyrri þegar leikmenn West
Ham og Arsenal hafa gengið út á
iðjagrænan Upton Park-leikvang-
inn. Tveimur og hálfum tíma síðar
taka lánlitlir leikmenn Tottenham á
móti meistaraliðið Chelsea sem
ekki hefur tapað í þrettán síðustu
viðureignum sínum, þegar leikir
þess á öllum vígstöðvum síðust vik-
urnar eru skoðaðir.
STUART
Pearce,
knatt-
spyrnustjóri
enska úr-
valsdeild-
arliðsins
Manchester
City, segir
að breyta
þurfi
reglum um
ráðningar
knatt-
spyrnustjóra
í þá átt að
aðeins verði
hægt að
skipta um
knatt-
spyrnustjóra á ákveðnum tímabili
á hverju ári, líkt og gengur og
gerist á leikmannamarkaðinum.
Aðeins er hægt að kaupa leik-
menn og selja á sumrin og síðan
opnast markaðurinn á ný í jan-
úar.
Pearce segir að sú umræða sem
eigi sér stað í fjölmiðlum allt
keppnistímabilið um hvaða knatt-
spyrnustjórar séu líklegastir til
þess að missa vinnuna sé farsa-
kennd.
Pearce hefur sjálfur mátt þola
mikla gagnrýni á undanförnum
vikum en hann nefnir einnig Alan
Pardew, knattspyrnustjóra West
Ham, og Iain Dowie, knatt-
spyrnustjóra Charlton. Gareth So-
uthgate hjá
Middlesbrough og Rafael Bení-
tez hjá Liverpool hafa einnig ver-
ið í umræðunni um væntanleg
stjóraskipti.
„Það eru 9 leikir búnir á
keppnistímabilinu og það getur
margt breyst hjá liðunum á næstu
vikum. Þessi umræða hefur auk-
ist með hverju tímabili sem líður
og að mínu mati er þetta fáránleg
þróun. Ef ég mætti ráða þá ætti
aðeins að vera hægt að ráða nýja
knattspyrnustjóra og segja upp
knattspyrnustjórum á sama tíma
og hægt er að kaupa og selja
leikmenn. Með þeim hætti gætum
við búið við sæmilegan starfsfrið
fram að þeim tíma sem hægt er
að gera breytingar. Ástandið eins
og það er í dag er ekki hollt fyrir
okkur sem störfum í þessu fagi
eða félögin sjálf,“ segir Pearce.
Pearce vill
„stjóra-
glugga“
Stuart Pearce
enski boltinn
20 ára afmæli Sir Alex Ferguson á Old Trafford » 4
ARSENALÆSKAN
ÆSKAN ER Í ÖNDVEGI Í HERBÚÐUM
ARSÉNE WENGER Í LUNDÚNUM >> 2
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 40/48
Staksteinar 8 Bréf 47
Veður 8 Kirkjustarf 49/50
Viðskipti 18/19 Minningar 51/57
Erlent 20/21 Skák 57
Menning 22, 62/68 Myndasögur 68
Akureyri 24 Dagbók 69/73
Suðurnes 26 Staður og stund 70
Árborg 26 Víkverji 72
Landið 27 Velvakandi 72
Daglegt líf 28/37 Bíó 70/73
Forystugrein 38 Ljósvakamiðlar 74
* * *
Innlent
Ríkissjóður hefur greitt rúma
eitt hundrað milljarða króna auka-
lega vegna lífeyrisskuldbindinga rík-
isstarfsmanna uppreiknað undan-
farin sjö ár. Samt sem áður vantar
tæpa 220 milljarða króna upp á að
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræð-
inga eigi fyrir skuldbindingum sín-
um og er svipað farið með aðra líf-
eyrissjóði opinberra starfsmanna á
sveitarstjórnarstigi. » 76
Það er ekki einhlítt að bílbelta-
öryggi fatlaðra sé tryggt í sér-
útbúnum almenningsvögnum sem
flytja fatlaða. Meginskyldan er að
festa hjólastólana sjálfa, en dæmi
eru um að farþegarnir hafi setið
lausir í stólum sínum og slasast við
að þeytast upp úr þeim við árekstur
eða ef hemlað er snögglega. » 14
Á mánudag verða teknar upp
hertar reglur varðandi handfar-
angur í öllum löndum EFTA og Evr-
ópubandalagsins. Vökvakennd efni í
handfarangri mega ekki vera í um-
búðum sem taka meira en 100 milli-
lítra. Skylt verður að setja allar
vökvaumbúðir í glæran poka með
plastrennilás. » 32
Viðskipti
Eftir að bandaríska líftæknifyr-
irtækið BioStratum hefur varið um
100 milljónum Bandaríkjadala í þró-
un á lyfinu Pyridorin hefur komið í
ljós að hægt er að kaupa virka efnið í
lyfinu á netinu.
Þetta hefur gert að verkum að
BioStratum á erfitt með að fjár-
magna þriðju fasa tilraunir eða loka-
tilraunirnar áður en hægt er að setja
lyfið á markað. » 18
Osta- og smjörsalan sf. hefur
ákveðið að vísa ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins frá 13. október til
áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Samkeppniseftirlitið komst að þeirri
niðurstöðu í úrskurði sínum að Osta-
og smjörsalan hefði brotið gegn
samkeppnislögum með því að mis-
muna viðskiptaaðilum með ólíkum
skilmálum í sams konar viðskiptum
með undanrennuduft. » 18
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„OKKAR fyrstu viðbrögð eru að það
sé varasamt að vera með alhæfingar
af þessu tagi, því auðvitað er ástand
fiskstofna í heiminum jafnmisjafnt
og stofnarnir eru margir. Eins virð-
ist gengið út frá því að enginn lær-
dómur verði dreginn af reynslu síð-
ustu áratuga og er það mikil
bölsýni,“ segir Jóhann Sigurjónsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar,
um niðurstöður rannsóknar sem
birtist í Science í gær. Var þar spáð
hruni fiskstofna heimsins innan 50
ára. „En hitt er rétt að á alheimsvísu
hefur fiskveiðistjórnun á undanförn-
um áratugum ekki verið nógu árang-
ursrík. Það helgast annars vegar af
því að ekki eru reknar nógu öflugar
eða góðar rannsóknir í mörgum
löndum og stjórn fiskveiða er á
brauðfótum víða. En við á Íslandi
höfum allar forsendur til þess að láta
þetta ekki gerast. Ég held að það sé
engin ástæða til að ætla að þetta
verði niðurstaðan eftir 50 ár á Ís-
landi, einfaldlega vegna þess að við
stundum rannsóknir og skilningur er
í samfélaginu á að veiðistjórnun mið-
ist við sjálfbærar veiðar. Einnig er
hreinleiki sjávar hér við land með
ágætum.“
En Jóhann segir að líta þurfi á
hlutina í stærra samhengi, mengun á
fjarlægum slóðum geti vel skilað sér
að Íslandsströndum. Eins er ljóst að
ofveiðar víða um heim ógna fisk-
stofnum þannig að ef ekki er vel á
málum haldið þá getur illa farið.
„Það er því mikið hagsmunamál fyrir
Íslendinga að þetta sé í lagi hér sem
annars staðar og því mikilvægt að ís-
lensk stjórnvöld stuðli að því að svo
verði.“
Jóhann segir ástand fiskstofna við
Ísland í meginatriðum viðunandi.
Hann telur þó brýnt verkefni fram
undan að styrkja þorskstofninn.
„En það steðja líka að okkur hætt-
ur sem eru ekki á okkar valdi, þ.e.
umhverfisaðstæður á hverjum tíma.
Þær hafa breyst mikið í tímans rás.
Á tímum slíkra breytinga er óvissan
meiri en ella og meiri þörf fyrir öfl-
ugt rannsóknarstarf.“
Höfum allar forsendur til
að láta þetta ekki gerast
Í HNOTSKURN
»Fjölbreytileiki í aldurs-samsetningu t.d. þorsks
við Ísland er mikilvægur.
Þung sókn í langan tíma geng-
ur á fjölbreytileika innan
stofna og því mikilvægt að
stilla veiðum í hóf.
»SjávarútvegsráðherraBretlands brást við
skýrslu um hnignun fiskstofna
í gær og útilokar bann við
þorskveiðum. Bretar hafi m.a.
brugðist við með því að setja
kvóta á veiðar.
Meiri þörf á öflugu rannsóknarstarfi, segir forstjóri Hafró
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, seldi í gær
fyrsta „neyðarkall“ Slysavarnafélagsins Landsbjargar
og hóf þar með fjáröflunarátak félagsins um land allt.
Meðlimir björgunarsveita félagsins munu selja „neyð-
arkallana“ um helgina til að fjármagna starfsemi sveit-
anna, en kallarnir eru plastfígúrur af björgunarsveit-
armönnum á lyklakippuhringum.
Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg í gærkvöldi hafði salan farið afar vel af
stað og þjóðin virtist taka sölufólkinu afskaplega vel.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forsetinn seldi „neyðarkallinn“
FERÐAMÁLARÁÐ telur brýnt að
fram fari fagleg og hlutlaus könnun á
því hvaða áhrif hvalveiðar hafa á
ímynd Íslands í augum umheimsins,
að því er samþykkt var á fundi ráðs-
ins í gær.
Einnig telur ráðið að hver sem
niðurstaða þeirrar könnunar kunni
að verða þá sé bæði hagkvæmt og
mikil þörf á að stórauka framlög til
landkynningar á Íslandi. Mælt er
með því að leggja um 300 milljónir
króna á ári í nokkur ár til markaðs-
starfs ferðaþjónustunnar.
Í þriðja lagi var bent á að við það
að hefja á ný hvalveiðar í atvinnu-
skyni þurfi að breyta lögum frá 1949
um hvalveiðar. Í þeim lagabreyting-
um sé rétt að taka tillit til þess að
nýjar atvinnugreinar hafa orðið til
frá því lögin voru sett, m.a. atvinnu-
greinar sem hafa hagsmuni af því að
sýna lifandi hvali. Það yrði að gera
ráð fyrir því í lögunum að hvort
tveggja fengi að njóta sín.
„Þannig erum við að tala um að
búa til friðuð svæði þar sem hvala-
skoðun gæti átt sér stað. Þetta var
niðurstaðan og algjör samstaða um
hana,“ sagði Einar Oddur Kristjáns-
son, formaður ferðamálaráðs. Einar
Oddur sagði að með fyrrnefndum at-
riðum sem ferðamálaráð samþykkti
hefði það verið að svara erindi sam-
gönguráðherra. Hann sendi ferða-
málaráði bréf og bað um tillögur um
hvernig bregðast ætti við áhrifum
hvalveiða.
Landkynning
verði stóraukin
LÖGREGLAN í
Reykjavík lýsir
eftir 23 ára manni,
Kristófer Erni
Sigurðarsyni, sem
er til heimilis í
Logafold 141 í
Reykjavík.
Kristófer er um
185 cm á hæð með
stutt, skollitað
hár. Hann var
klæddur í bláar gallabuxur, ljósbláa
rúllukragapeysu, svartan teinóttan
jakka og svört kúrekastígvél.
Lögreglan í Reykjavík hefur leit-
að Kristófers frá því í byrjun vik-
unnar, en talið er líklegt að hann sé á
höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um ferðir Kristó-
fers eru beðnir um að hafa samband
við lögregluna í síma 444 1100.
Kristófer Örn
Sigurðarson
Lögreglan
leitar manns
- Mamma, mér er svo illt í tánum.
Nýju skórnir meiða mig.
- Það er ekki að undra, þú hefur
sett skóna á vitlausa fætur.
- Já, en ég er bara með þessa fætur.
Einn
góður…
laugardagur
4. 11. 2006
börn
FÓLK EÐA FÍGÚRUR
FINNIÐ ÚT HVAÐA PERSÓNUR ERU Á TEIKNIMYNDUM Í
GETRAUN VIKUNNAR. NÚ REYNIR Á MYNDVÍSI >> 2
„Svo kemur kannski dreki,“ segir Sigurveig. » 3
Senn líður að jólum. Snjórinn erkominn í fjallstoppana og sum
staðar teygir hann sig niður hlíðar. Í
sumum búðum er farið að selja jóla-
vörur.
Barnablaðið efnir til samkeppni
um:
bestu jólasöguna,
bestu jólamyndina og
besta jólaljóðið.
Í verðlaun er bókin Jólaleg jól eft-
ir Sigrúnu Eldjárn.
Sendið okkur sögur, myndir og
ljóð. Ef þið eigið skemmtilegt jóla-
föndur sem þið viljið deila með öðr-
um sendið það með.
sag@mbl.is
Barnablaðið- jólasamkeppni
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
Samkeppni –
jólaglaðningur
Morgunblaðið/Sverrir
Handahlaup Sigurveig Steinunn Helgadóttir lærði að fara á handahlaupum í djassballet en hún byrjaði að æfa í haust í World Class í Spönginni. Stelpunum finnst gaman í djassballet.
laugardagur 4. 11. 2006
íþróttir mbl.isíþróttir
Aron Kristjánsson tekur fram skóna hjá Skjern >> 2
Á FERÐ OG FLUGI
ÞRÍR ÍSLENSKIR KÖRFUKNATTLEIKSDÓMARAR HAFA
FENGIÐ MÖRG VERKEFNI Í EVRÓPULEIKJUM >> 4
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvað skal gera? Finnur Jónsson,. leikmaður Skallagríms, ákveðinn á svip. Níels Dungal er til varnar og Gísli dómari Pálsson fylgist vel með öllu.
SAMUEL
Eto’o, lands-
liðsmaður
Kamerún og
miðherji
Barcelona,
deilir á leik
Eiðs Smára
Guðjohnsen í
viðtali við
ítalska blaðið
Gazzetta
dello Sport,
þar sem hann
segir að Eið-
ur Smári
þurfi að ná
tökum á að
leika sem miðherji og hann sé
ekki nægilega sterkur til að reka
smiðshöggið á sóknir.
Eto’o, sem verður frá keppni
vegna meiðsla á hné fram í febr-
úar, segir í viðtalinu að ef Eiður
Smári hefði nýtt tækifæri sín í
leiknum gegn Real Madrid á San-
tiago Bernabeu á dögunum, hefði
Barcelona unnið 4:2, en ekki tap-
að leiknum.
„Guðjohnsen horfði á Lionel
Messi í staðinn fyrir að horfa á
markið eins og allir miðherjar
gera,“ sagði Eto’o um marktæki-
færið sem Eiður Smári fékk eftir
sendingu frá Messi.
Eto’o er einnig í sviðsljósinu í
viðtali á www.worldfootball-
ers.com, þar sem hann segir að
Úkraínumaðurinn Andriy Shevc-
henko hafi gert mistök þegar
hann fór frá AC Milan til Chelsea,
þar sem hann hefur átt í erf-
iðleikum með að finna leiðina að
markinu. Eto’o segir að Chelsea
leiki það mikla varnarknatt-
spyrnu að tveir miðherjar eigi í
vandræðum.
Eto’o
gagnrýnir
Eið Smára
Samuel Eto’o
ALÞJÓÐA Ólympíunefndin hefur
tilkynnt að mun fleiri lyfjapróf
verði tekin af keppendum á Ólymp-
íuleikunum í Peking í Kína árið
2008 heldur en voru tekin á leik-
unum í Aþenu í Grikklandi fyrir
tveimur árum. Fjórðungsaukning
verður á prófunum en alls verða
þau 4.500 talsins og svo mörg hafa
þau aldrei verið gerð áður.
Þessi aukning er sambærileg við
fjölgun lyfjaprófa sem varð á Ól-
ympíuleikunum í Aþenu.
4.500 lyfja-
próf í Peking
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„Herra Magnússyni er full alvara og
hann vill endilega fá tækifæri til að
sýna forráðamönnum félagsins það,
en hingað til hafa þeir verið í viðræð-
um við annan kaupsýslumann og á
meðan hefur lítið gerst í okkar mál-
um,“ segir Lee.
Hann sagði að nú væru nokkrar
vikur síðan Eggert gerði tilboð í fé-
lagið. „Hann hefur rætt við forráða-
menn félagsins þannig að það er all-
tént í áttina, en nú er svo komið að
hann vill komast á næsta stig í samn-
ingaferlinu. Herra Magnússon hefur
mikinn hug á að koma málinu á hreyf-
ingu á nýjan leik og að eitthvað fari að
gerast, en forráðmenn West Ham
virðast hafa tekið þann pól í hæðina
að láta hann bíða á meðan þeir ræða
við annan fjárfesti sem sýnt hefur fé-
laginu áhuga.
Það er í rauninni allur gangur á því
hvernig svona mál ganga fyrir sig, en
forráðamenn West Ham hafa ekki út-
lokað neitt og herra Magnússon von-
ast til að skriður komist á málið sem
fyrst. Eins og staðan er núna er samt
hvorki hægt að vera vongóður né von-
lítill um að hann fái tækifæri til að
ræða málin enn frekar við West Ham.
Okkur þykir málið hafa tekið óþarf-
lega langan tíma, en við því er í sjálfu
sér ekkert að gera,“ sagði Mike Lee.
Eggert vill koma West
Ham-málinu á hreyfingu
„OKKUR er farið að lengja dálítið
eftir því að komast yfir á næsta stig
í málinu, það er að segja að fá að-
gang að bókhaldi félagsins. Þetta
hefur allt tekið langan tíma, óþarf-
lega langan tíma þykir mér,“ segir
Mike Lee, sem unnið hefur með
Eggerti Magnússyni, formanni
Knattspyrnusambands Íslands, og
félögum að því að festa kaup á
enska úrvalsdeildarliðinu West
Ham.