Morgunblaðið - 04.11.2006, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Skráning stendur yfir
á jákvætt námskeið um
hjónaband og sambúð
Upplýsingar og skráning á
thorhallur.heimisson@kirkjan.is og í síma 891 7562
• Samskipti hjóna.
• Aðferðir til að styrkja hjónabandið.
• Orsakir sambúðarerfiðleika.
• Leiðir út úr vítahring deilna og átaka.
• Ástina, kynlífið, hamingjuna og börnin.
Á námskeiðunum er m.a. fjallað um:
7.500 þátttakendur frá upphafi
Leiðbeinandi á
námskeiðinu er
sr. Þórhallur Heimisson.
HRAFNKELL Sigurðsson
opnar í dag sýningu á nýjum
grafíkverkum í sýningarrým-
inu Suðsuðvestur.
Myndirnar, sem unnar eru
milliliðalaust með olíu á papp-
ír,
vísa meðvitað í karllega hefð
módernismans og „abstract
expressionismans“, að því er
segir í fréttatilkynningu. Sýn-
ingin stendur til 26. nóvember.
Suðsuðvestur er til húsa á Hafnargötu 22,
Reykjanesbæ. Opið: föstudaga frá kl. 16–18 og
um helgar frá kl. 14–17.30. Nánari upplýsingar
má finna á www.sudsudvestur.is.
Sýningaropnun
Meðvituð vísun
í karllega hefð
Hrafnkell
Sigurðsson
DAGURINN í dag er tileink-
aður tónskáldinu Johanni
Seabstian Bach í Akra-
neskirkju.
Friðrik Vignir Stefánsson,
orgelleikari og tónlistarkenn-
ari, leikur nokkur þekkt verk
eftir Bach á orgel og spjallar
við áheyrendur um orgelið og
möguleika þess. Í lok tón-
leikanna mun Friðrik bregða á
leik með verki eftir sprellarann P.D.Q. Bach.
Heiti tónleikanna er Bach fyrir börnin.
Aðgangur er ókeypis og eru foreldrar hvattir til
að koma með börnin á þessa tónleika, sem hefjast
klukkan 11.
Orgeltónleikar
Bach fyrir börnin
á Akranesi
J.S. Bach
ÞEIM Baggalútum nægir
ekki að halda úti vinsælli
heimasíðu né gefa út met-
söluplötu heldur ætla þeir
félagar einnig að flytja frétt-
ir með sínu nefi á Rás 2 á
laugardögum í vetur.
Fréttaauki Baggalúts er á
dagskrá Helgarútgáfu Rás-
ar 2 alla laugardaga stund-
víslega klukkan 11 og endurtekinn í þættinum
Broti úr degi á mánudögum klukkan hálftíu.
Þarna er á ferðinni „markviss, skilmerkileg og
heiðarleg umfjöllun um fréttir og málefni líðandi
stundar“, að því er segir í fréttatilkynningu um
málið.
Útvarpsþáttur
Fréttastofa
Baggalúts á Rás 2
Listahátíð ungs fólks, Ung-list, hefur verið árviss við-burður á haustdögum íReykjavík frá árinu 1992.
Listahátíðin stendur yfir í rúma viku
með fjölda þátttakenda sem koma
víða að en hátíðin hefur ávallt verið
starfrækt í tengslum við Hitt húsið,
menningar- og upplýsingamiðstöð
ungs fólks. Dagskráin í ár er fjöl-
breytt að vanda og mega gestir búast
við tónlist af öllum gerðum; dans,
fatahönnun, myndlist og gjörningum
svo fátt eitt sé nefnt.
Ása Hauksdóttir er deildarstjóri
menningarmála hjá Hinu húsinu og
hefur eins konar yfirumsjón með
Unglist.
Ný sýn kynnt til sögunnar
„Það sérstaka við Unglist er að á
hátíðinni er að finna ungt fólk sem er
á þessum þröskuldi, á leið þeirra að
verða fagmenn innan síns geira svo
að þarna sjáum við nýjabrumið. Ann-
að sem mér finnst mjög spennandi er
að sjá hvað Listaháskólanemarnir
eru að gera. Þaðan kemur alltaf eitt-
hvað óvænt og kynnir manni fyrri
nýrri sýn á listina, hvort sem það er í
myndlist eða leiklist.“
Þegar Ása lítur til baka á fyrri há-
tíðir segir hún að á hátíðinni hafi oft
fæðst frábærar hugmyndir sem enn
séu á sveimi. „Ég nefni til dæmis
þegar Curver Thoroddsen startaði
Sveimi í svarthvítu sem var í þrjú ár
fast inni á dagskrá Unglistar. Það
gekk út á að flytja lifandi tónlist yfir
þöglar svarthvítar kvikmyndir. Nú er
maður að sjá þetta gert út um allt.“
Ása segist líka hafa sannfærst um
það að þeir sem eru virkir á Unglist
séu listamenn framtíðarinnar og að
því leyti sé þetta ómetanlegt tæki-
færi fyrir samfélagið að geta séð
hvað unga fólkið er að gera, á öllum
sviðum, og hvað það mun koma til
með að gera í framtíðinni.
„Hátíðin verður líka stærri, fjöl-
breyttari og umfangsmeiri með
hverju árinu. Það er frábært að verða
vitni að því hvað ungt fólk er metn-
aðarfullt og hefur mikið fram að færa
á listasviðinu.“
Fjöllist | Unglist, listahátíð ungs fólks, hófst í gær og stendur til 11. nóvember
Nýjabrumið í allri sinni dýrð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjöllist Listahátíð unga fólksins, Unglist, er nú haldin í áttunda sinn. Á myndinni má sjá gjörninginn „The China
Man“ sem framkvæmdur var í Sundhöll Reykjavíkur í fyrra við mikla hrifningu áhorfenda.
MÁLVERKIÐ Nr. 5 eftir bandaríska
listmálarann Jackson Pollock var á
dögunum selt á uppboði fyrir 140
milljónir Bandaríkjadala. Mun þetta
vera hæsta verð sem fengist hefur
fyrir málverk en kaupandinn er tal-
inn vera David nokkur Martinez,
mexíkóskur fjármálajöfur, þótt enn
sé ekkert staðfest í þeim efnum.
Hér að neðan er listi yfir átta dýr-
ustu málverk listasögunnar:
1. Nr. 5 eftir Jackson Pollock.
Selt í einkasölu fyrir 140 milljónir
dala í október árið 2006.
2. Portrett af Adele Bloch-Bauer I
eftir Gustav Klimt. Selt í einka-
sölu fyrir 135 milljónir dala í júní
2006.
3. Garçon à la pipe eftir Pablo
Picasso. Selt í gegnum umboðssölu
Sotheby’s fyrir 104,1 milljón dala
árið 2004.
4. Dora Maar au Chat eftir Pablo
Picasso. Selt í gegnum umboðs-
sölu Sotheby’s fyrir 95 milljónir
dala árið 2006.
5. Portrett af Dr. Gachet eftir
Vincent van Gogh. Selt í gegnum
umboðssölu Christie’s fyrir 82,5
milljónir dala árið 1990.
6. Bal au moulin de la Galette, Mont-
martre eftir Pierre-Auguste
Renoir. Selt í gegnum Sotheby’s
fyrir 78 milljónir dala árið 1990.
7. Massacre of the Innocents eftir
Peter Paul Rubens. Selt í gegnum
umboðssölu Sotheby’s fyrir 76,7
milljónir dala árið 2002.
8. Portrait de l’artiste sans barbe
eftir Vincent van Gogh. Selt í
gegnum umboðssölu Christie’s
fyrir 65 milljónir dala árið 1998.
Málverkið
kostar
skildinginn
Nútíminn hefur vinn-
inginn yfir klassíkina
AP
Klimt Portrett af Adele Bloch-
Bauer I. Selt í einkasölu fyrir 135
milljónir dala í júní 2006.
UNGLIST hófst með pomp og prakt
í gær þegar myndlistarmaraþoninu
var hleypt af stokkunum í Hinu hús-
inu og fjöllistakvöldið Heyr, heyr
hamfarir hófst í Tjarnarbíói. Hér að
neðan eru taldir upp nokkrir valdir
viðburðir sem allir fara fram í Tjarn-
arbíói við Tjarnargötu 12 nema annað
sé sérstaklega tekið fram:
Laugardagur kl. 20
Pilsarokk og buxnapopp – Kjólacult
og kápuklassík – Tískusýning fata-
iðnnema í Iðnskólanum í Reykjavík.
Sunnudagur kl. 20
Sígildir seiðandi tónar. Ungt og upp-
rennandi listafólk úr tónlistarskólum
víðsvegar af höfuðborgarsvæðinu
leikur og syngur sígild verk frá ýms-
um tímabilum tónlistarsögunnar.
Miðvikudagur kl. 20
Hvað er betra en að dansa?
Dansarar sýna helstu stíla og stefnur
íslenskrar dansmenningar í dag.
Þátttakendur koma frá Íslenska
dansflokknum, Listaháskóla Íslands,
Listdansskóla Íslands, Dansrækt
JSB, Dansskóla Birnu Björns, Klass-
íska listdansskólanum, Kramhúsinu,
Árbæjarþreki og Strákaverkefni Íd.
Fimmtudagur kl. 20
Hitt Húsið – kjallari, Pósthússtræti
3–5. Opið hús, málun, stenslar, litir,
tónlist, myndlist, kennsla og fleira
fútt. Gestir og gangandi fá að spreyta
sig.
Föstudagur kl. 20
Framhaldsskólakeppni í leikhús-
sporti. Fimmta árið í röð munu fram-
haldsskólanemendur leika í spenn-
andi leikhússportkeppni á Íslandi.
Laugardagur kl. 16
Verðlaunaafhending fer fram í mynd-
listarmaraþoninu í Galleríi Tukt,
Hinu húsinu.
Laugardagur kl. 20
HIPsuðuROKKsull. Fram koma:
Lada sport, Bertel, Retro Stefson,
Sudden Weather Change, Hello Nor-
bert og Tonik.
Kápuklassík, buxnapopp
og hippsuðurokksull
Tónlist Ramses lék fyrir tónleika-
gesti í Tjarnarbíói á lokakvöldi
Unglistar í fyrra.
Á annan tug viðburða í boði á átta dögum á Unglist
Sjá dagskrána í heild sinni á
www.unglist.is. Ókeypis er á alla
viðburði hátíðarinnar.