Morgunblaðið - 04.11.2006, Page 24
24 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
www.nowfoods.com
NNFA QUALITY
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
FORMAÐUR Sundfélagsins Óðins
þvertekur fyrir að önnur sjónarmið
en hagsmunir félagsins ráði því að
stjórn þess hafi andmælt fyrirhug-
aðri heilsuræktarbyggingu á svæð-
inu sunnan við Sundlaug Akureyr-
ar. Formaðurinn kannast við að
fjársterkir aðilar hafi lýst yfir
áhuga á að byggja 50 m sundlaug í
bænum, en segir það alls ekki
tengjast afstöðu Óðins.
Eigandi Vaxtarræktarinnar, Sig-
urður Gestsson, sem vill reisa
heilsuræktarhús á lóðinni milli
Íþróttahallarinnar og sundlaug-
arinnar, lýsti þeirri skoðun sinni í
Morgunblaðinu í fyrradag að and-
stæðingar heilsuræktarhússins
væru ekki málefnalegir, þeir ýktu
stærð hússins á teikningum af
svæðinu og ýjaði að því að sam-
keppnisaðilar stæðu að baki mót-
mælum gegn byggingunni.
„Það eru ekki samkeppnisaðilar
Sigurðar sem hafa mótmælt þessu
deiliskipulagi opinberlega; ég hef
hvergi séð það,“ segir Ásta Birg-
isdóttir, formaður Óðins, í samtali
við Morgunblaðið. Og hún leggur
áherslu á að mótmælin beinist ekki
gegn Sigurði persónulega eða fyr-
irtæki hans. Félagið mótmæli fyr-
irhugaðri byggingu einfaldlega
vegna þess að hún myndi koma
verulega niður á starfsemi Óðins
hvað varðar uppbyggingu, vöxt og
keppnishald, og félagið geri at-
hugasemdir við vinnubrögð starfs-
manna Akureyrarbæjar.
Málefnaleg og með góð rök
„Mér finnst það alveg ótrúlegt að
Sigurður skuli segja að við séum
ekki málefnaleg og ættum að
kynna okkur málið betur. Ég tel
okkur vera með fullt af góðum
gögnum og góð rök fyrir at-
hugasemdum okkar,“ sagði Ásta,
„og get ekki setið undir þeim ásök-
unum að ég sé að ljúga að fólki.“
Hún bendir t.d. á samstarfs-
samning Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar í núverandi bæjarstjórn
en sá meirihluti tók við völdum eft-
ir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.
Þar sé boðað að á kjörtímabilinu
verði hafinn undirbúningur að yf-
irbyggingu æfinga- og keppn-
islaugar við Sundlaug Akureyrar.
„Ég fór á fund Kristjáns Þórs Júl-
íussonar bæjarstjóra um miðjan
mars og lýsti áhyggjum af því sem
ég hafði heyrt að byggja ætti lík-
amsræktarhús á þessari lóð.
Hann sagði þá að þetta væri
ekkert sem ég þyrfti að hafa
áhyggjur af því fyrr eða síðar yrði
byggð 50 metra sundlaug á Ak-
ureyri og þá á þessu svæði, því þar
yrði það rekstrarlega hagkvæm-
ast.“
Málið er ekki í höfn
Hún gagnrýnir líka þau ummæli
Sigurðar Gestssonar að stærð fyr-
irhugaðs húss hafi verið ýkt í gögn-
um sem Óðinn hafi sent frá sér.
„Við erum gagnrýnd fyrir rangar
upplýsingar, en hvernig getur það
gengið upp ef efri hæð hússins er
1.000 fermetrar en sú neðri virkar
stærri samkvæmt frumdrögum, að
húsið verði ekki stærra en 2.000
fermetrar?“
Hún andmælir þeirri skoðun Sig-
urðar að málið sé í höfn. Heimild
að undirbúningi byggingarinnar sé
veitt með fyrirvara um samþykkt
deiliskipulags- og byggingaryf-
irvalda fyrir framkvæmdunum.
„Málið er nú í farvegi, deiliskipu-
lagið hefur verið auglýst og allir
sem vilja hafa sex vikna frest til
þess að gera athugasemdir við
deiluskipulagið. Sá frestur rennur
út 29. nóvember.“
Hún segir að skv. rammasamn-
ingi Akureyrarbæjar og Vaxt-
arræktarinnar frá því í maí skuli
hæð hússins ekki verða meiri en
sex metrar miðað við gólfkóta
sundlaugarbyggingarinnar, eins og
það er orðað, en í auglýstu deili-
skipulagi sé sú hæð 7 metrar. Þá
segir hún húsið nái út fyrir um-
ræddan byggingarreit, miðað við
frumdrög frá arkitekt.
Ásta segir að verði af byggingu
heilsuræktarhússins skerði það
mjög möguleika á frekari uppbygg-
ingu fyrir sundíþróttina og skerði
t.d. mjög pláss til keppnishalds þar
sem ekki verði pláss fyrir áhorf-
endur við núverandi keppnislaug.
Hagsmunir
Óðins ráða för
Formaður sundfélagsins segir athugasemdir við
fyrirhugaða byggingu ekki beinast gegn Vaxtar-
ræktinni eða eiganda hennar heldur yfirvöldum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hús eða ekki? Það er á græna svæðinu sunnan við sundlaugina sem Vaxtarræktin vill reisa hið umdeilda hús.
Í HNOTSKURN
»Forsvarsmenn Sund-félagsins Óðins telja að
fyrirhuguð bygging skerði
mjög möguleika á frekari upp-
byggingu sundíþróttarinnar.
»Fjársterkir aðilar hafasýnt áhuga á að byggja 50
m sundlaug í bænum en for-
maður Óðins segir at-
hugasemdir félagsins ekki
tengjast því á nokkurn hátt.
BÆJARRÁÐ Akur-
eyrar vill ekki falla
frá ákvörðun um úr-
sögn úr Sorpeyðingu
Eyjafjarðar bs. Ráðið
lýsir sig hins vegar
tilbúið að fresta gild-
istöku úrsagnarinnar
um allt að þrjá mán-
uði meðan unnið er
að endurskipulagn-
ingu á rekstri mála-
flokksins og sam-
starfi sveitarfélaga
við Eyjafjörð um
hann. Akureyri
ákvað í sumar að
segja sig úr byggðasamlaginu og
vinna að framtíð sorpmála á eigin
vegum. Í mörg ár hefur
verið reynt að finna lausn
á vandanum án árangurs.
Á fundi bæjarráðs á
fimmtudaginn voru lögð
fram erindi sveitar-
stjórna Hörgárbyggðar,
Eyjafjarðarsveitar og
Grýtubakkahrepps varð-
andi úrsögnina og fagn-
aði Gerður Jónsdóttir,
fulltrúi Framsóknar-
flokksins, ákvörðun bæj-
arráðs. „Ég tel að ein-
ungis með samvinnu
allra sveitarfélaganna á
svæðinu náist besti ár-
angur í sorpeyðingarmálum,“ segir
Gerður Jónsdóttir.
Akureyri frestar úr-
sögn úr Sorpeyðingu
Fjallað um erindi nágrannasveitarfélaga
FULLTRÚAR tveggja flokkanna í
minnihluta bæjarstjórnar Akureyr-
ar gagnrýna þá ákvörðun meirihlut-
ans að selja hlut bæjarins í Lands-
virkjun.
Akureyrarbær og Reykjavíkur-
borg seldu ríkinu hluti sína í fyrir-
tækinu í vikunni. Bæjarstjóri skrif-
aði þá undir söluna í vikunni, með
fyrirvara um samþykki bæjarstjórn-
ar, og fær Akureyrarbær um 3,3
milljarða króna fyrir sinn 5,472%
hlut í fyrirtækinu. Reykjavíkurborg
átti 44,25%.
Liður í einkavæðingu
Málið var til umfjöllunar í bæjar-
ráði á fimmtudaginn og lýstu þeir sig
andsnúnir sölunni Baldvin H. Sig-
urðsson, fulltrúi Vinstri grænna, og
Oddur Helgi Halldórsson, Lista
fólksins.
„Mótmæli sölu 5,5% hluta Akur-
eyrarbæjar í Landsvirkjun, sem lið í
einkavæðingaráformi Sjálfstæðis-
flokksins og vara við að orkureikn-
ingar almennings muni hækka á
næstu árum vegna þessa, einnig er
verðið of lágt og má ætla að söluverð
Landsvirkjunar sé í reynd 70–100
milljarðar kr. og mun það koma í ljós
fljótlega eftir söluna þannig að bæj-
arbúar sem eru eigendur að hluta
Akureyrar munu tapa milljörðum á
sölunni,“ segir í bókun Baldvins.
Oddur Helgi lét bóka að bæjar-
fulltrúar L-lista, lista fólksins, hefðu
frá upphafi verið á móti sölu eign-
arhluta Akureyrar í Landsvirkjun,
einir bæjarfulltrúa á síðasta kjör-
tímabili. „Töldum m.a. verðið of lágt.
Enn er ég staðfastlega á móti þess-
ari sölu og finnst það dapur kafli í
sögu Akureyrar sem verið er að
skrifa með sölunni,“ segir í bókun
Odds.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, segist gera ráð
fyrir, að það fé, sem Akureyrarbær
fengi út úr sölunni, yrði nýtt til að
greiða lífeyrisskuldbindingar bæjar-
sjóðs en þær hljóðuðu upp á um 3,5
milljarða.
Meira en Kristján reiknaði með
Kristján Þór er ánægður með
samninginn. „Ég er mjög sáttur við
þetta verð án þess að ég ætli að upp-
lýsa með hvaða markmið ég lagði út í
þessar viðræður. Sú fjárhæð sem
skattgreiðendur á Akureyri fá fyrir
þennan hlut, sem var inni í Laxár-
virkjun sem var lögð inn í Lands-
virkjun, er töluvert hærri fjárhæð en
ég hafði gert mér í hugarlund að
kæmi út úr þessum viðræðum,“
sagði hann í Morgunblaðinu í vik-
unni. Landsvirkjun verður að fullu
eign ríkisins frá 1. janúar nk.
Mótfallnir sölunni
VG og L-listinn gagnrýna sölu á Landsvirkjun. „Dapur kafli
í sögu Akureyrar sem verið er að skrifa með sölunni.“
EITT hundrað ára skólahaldi í
Hrísey verður fagnað með skólahá-
tíð í eyjunni á morgun, sunnudag,
kl. 16 og verður þá fjöldi gamalla
bóka og annarra muna til sýnis.
Fyrstu heimildir um skólahald í
Hrísey er um heimiliskennslu en
formleg kennsla hófst haustið 1906.
Félagi slökkviliðsmanna á Akureyri
barst í vikunni 100 þúsund króna
styrkur frá tryggingafélaginu Verði
fyrir vel unnin störf við björgun
mannslífa í eldsvoða á Fjólugötu 18
í apríl. Fjárhæðin rennur í mennt-
unar- og styrktarsjóð félagsins.
Listamaðurinn Curver Thorodd-
sen verður með um helgina í Gallerí
Boxi. Þar frumsýnir hann verkið Án
titils en „í því berar listamaðurinn
meðvitundarlausan líkama sinn en
hefur lítið gefið upp um verkið ann-
að en að það sé áhorfandans að upp-
lifa það frá sínum eigin forsendum“,
eins og segir í tilkynningu. Sýn-
inginu lýkur kl. 17 á morgun.
Hanna Hlíf Bjarnadóttir opnar í
dag kl. 14 sýninguna Puntustykki á
Café Karólínu. Verkið er um stöðu
og sögu kvenna fyrr og nú.
Danssmiðjan verður með nám-
skeið í líkamsræktinni Bjargi um
helgi. Jói og Thea kenna swing og
salsa fyrir pör, og línudans fyrir
byrjendur og lengra komna.
Fimm mánuðir eru síðan útvarps-
stöðin Voice 98,7 hóf útsendingar og
í tilkynningu frá stöðinni segir að
skv. síðustu skoðanakönnun Capa-
cent – Gallup hlusti 71% í aldurs-
hópi 16–24 ára á stöðina í hverri
viku.
Njáll Sigurðsson heldur í dag kl.
13 erindi á Amtsbókasafninu sem
hann kallar Svipmyndir úr sögu
hljóðritunar, með áherslu á norð-
lensk hljóðrit. Fyrirlesturinn er
haldinn í tengslum við sýninguna
Frá vaxhólkum til geisladiska, sem
stendur yfir í safninu.
100 ára skóla-
hald í Hrísey