Morgunblaðið - 04.11.2006, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | „Við ætlum að safna peningum fyrir
Krabbameinsfélagið á Suðurlandi, til verkefnis
sem er tengt sjúkrahúsi Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands á Selfossi og gengur út á að inn-
rétta þar líknardeild með tækjabúnaði. Við
munum byrja á því að gefa aðgangseyri að öll-
um okkar leikjum í vetur og síðan ætlum við í
frekari fjáröflun svo sem að leyfa fólki að heita
á okkur í leikjum,“ sagði Brynjar Karl Sig-
urðsson, þjálfari í körfubolta hjá Körfubolta-
akademíu Fjölbrautaskóla Suðurlands sem er
á öðru starfsári sínu við skólann.
Hann sagði verkefnið með Krabbameins-
félaginu vera nýjung en Actavis sem er aðal
styrktaraðili körfuboltaliðs FSu hefði riðið á
vaðið með áheit á liðið og hvetur önnur fyrir-
tæki til að gera slíkt hið sama. „Þetta verkefni
mun standa yfir í allan vetur og við munum
reyna að virkja sem flesta, nemendafélagið og
fleiri því við viljum ná árangri í þessu alveg
eins og í körfunni,“ sagði Brynjar.
Þurfa að standa sig
Þrettán piltar eru í akademíunni á aldrinum
sextán til tuttugu ára og líkar þeim vel þó svo
veran þar reyni á ýmsa þætti. „Þetta er sam-
vinna milli skóla og íþróttanna. Við þurfum að
standa okkur í skólanum, mæta og standa okk-
ur vel í náminu svo okkur bjóðist þessi æfinga-
aðstaða. Við æfum tvisvar á dag, lyftum fyrri
part dags og spilum síðan mikið síðari hluta
dagsins. Þetta eru samtals ellefu æfingar á
viku en við reynum að eiga einn frídag í viku,“
sagði Alexander Dungal, fyrirliði liðs FSu í
körfubolta. „Æfingarnar eru inni í skólatöfl-
unni og við erum búnir með æfingarnar og
skólann klukkan 16 á daginn. Þá getum við
sinnt félagslífi og námi eftir það. Mér finnst
þetta alveg frábært. Þetta er mjög gaman og
þroskandi, maður tekst á við það að búa einn,
þvo, skúra, ryksuga og elda og það er ótrúlega
gaman. Selfoss hefur tekið okkur vel, það
koma margir á leikina hjá okkur og það er góð-
ur andi hérna. Krökkunum í FSu finnst við
vera liðið þeirra og á leikjum öskra allir:
Áfram FSu!
Mér finnst það viss forréttindi að fá að vera
hérna. Maður les um körfuboltamenn í NBA
að þeir þakka það árangri sínum að hafa verið í
svipuðum aðstæðum á sínum yngri árum og
við erum með hérna, að fá að spila við sér eldri
menn og þurfa að standa sig. Umgjörðin hérna
er mjög góð, hér er topp aðstaða í lyftingum og
við erum með nýtt íþróttahús, forgang í heima-
vist og í töflugerð vegna stundaskrárinnar.
Maður er einhvern veginn meira sérstakur
hérna en í félagsliði og þetta er svakalega
skemmtilegt. Karfan er ákveðinn heimur og
hugsun. Þetta er góður félagsskapur og maður
kynnist mörgum. Svo fær maður útrás og
tækifæri til að taka ábyrgð á einhverju því liðið
stendur og fellum með okkur og þetta er mjög
samstilltur hópur,“ sagði Alexander Dungal
fyrirliði.
Hafa brennandi áhuga
„Það er alveg saman hver kemur það leggja
sig allir fram. Nú hefur strax myndast hefð
varðandi æfingar og dugnað. Þetta er heil-
mikið áreiti fyrsta árið en strax á öðru ári fara
strákarnir að uppskera árangur erfiðisins,“
sagði Brynjar Karl. Akademían svínvirkar, en
markmiðið er að strákarnir bæti sig í íþrótt-
inni og í þroska. Áherslan er á að menn hafi
stjórn á sjálfum sér og séu virkir í hópnum.
Þeir tileinka sér ákveðin vinnubrögð og hugs-
un. Hér bragðar enginn áfengi og menn eru
einbeittir í að bæta sig og þurfa að leggja mik-
ið á sig til þess. Þetta hefur gengið vel og
strákarnir eru alveg tilbúnir að axla þá ábyrgð
sem þarf. Við viljum vera fyrirmyndir og mín
forréttindi eru að fá að vera með þessum
strákum við æfingar og keppni og sjá þá
blómstra svona vel og uppskera árangur erf-
iðis síns.
Það er alveg á hreinu að strákarnir þurfa að
hafa brennandi áhuga og metnað til að ná ár-
angri og þeir fá fleiri og stærri tækifæri eftir
að hafa verið hér í skólanum við nám, æfingar
og keppni. Það er yfirburðastaða að vera hér á
Íslandi og byggja upp afreksmenn í körfu-
bolta. Ég vil þjálfa metnaðarfulla stráka sem
hafa vilja til að vinna vel,“ sagði Brynjar Karl
Sigurðsson sem ásamt því að þjálfa strákana
starfrækir fyrirtæki sem selur hugbúnað er-
lendis fyrir körfuboltaþjálfun. „Við höfum ver-
ið að fá góð viðbrögð á hugbúnaðinn sem við
erum með og seljum hann til þjálfara og liða
um allan heim, meðal annars til Alþjóðakörfu-
boltasambandsins,“ sagði Brynjar Karl.
Gefa aðgangseyrinn til líknarmála
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Alltaf í boltanum Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari í körfubolta hjá FSu á Selfossi, og Alex-
ander Dungal, fyrirliði körfuboltaliðs FSu, leggja mikið á sig til að ná árangri.
Í HNOTSKURN
»Þrettán piltar eru í Körfuboltaaka-demíu Fjölbrautaskóla Suðurlands á
aldrinum sextán til tuttugu ára.
»Þeir æfa tvisvar á dag, lyfta fyrripart dags og spila mikið síðari hluta
dagsins. Æfingarnar eru samtals 11 á
viku og einn dagur frí.
» „Við þurfum að standa okkur í skól-anum, mæta og standa okkur vel í
náminu svo okkur bjóðist þessi æfinga-
aðstaða,“ segir Alexander Dungal.
Körfuboltastrákarnir í FSu
leggja mikið á sig til að ná
árangri í íþrótt sinni
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Keflavík | „Við notum veturinn í
undirbúning og fræðslustarf og svo
förum við á fullt í hreinsunina með
vorinu,“ segir Tómas J. Knútsson,
herforingi í umhverfissamtökunum
Bláa hernum. Samtökin hafa einkum
starfað að fræðslu um umhverfismál
á Suðurnesjum, og þá sérstaklega í
Reykjanesbæ, en nú á að taka til
hendinni á landinu öllu.
Hreinsunarverkefni Bláa hersins
nefnist „Hreinn ávinningur“. Tómas
segir unnið að stofnun öflugs um-
hverfissjóðs sem frjáls félagasamtök
geti sótt í til að standa undir kostnaði
við hreinsunarverkefni á sínum
heimaslóðum. Toyota á Íslandi hefur
gert styrktarsamning við Bláa her-
inn til þriggja ára til að hrinda þessu
verkefni af stað. Tómas segir að
fyrirtæki á viðkomandi stöðum leggi
einnig fram fjármagn til að standa
undir kostnaði við hreinsunina.
Fyrirmyndin í Reykjanesbæ
Tómas hefur hug á að byggja
þetta stóra átak á þeim grunni sem
lagður hefur verið í Reykjanesbæ og
nágrenni, að semja við íþróttafélög
og björgunarsveitir um að leggja
fram mannskap í hreinsunina gegn
því að fá styrki til starfsins. Síðan
mætir Tómas sjálfur á staðinn með
trukk samtakanna og tekur til hend-
inni við stærri verkefni.
Tómas hefur hug á því að fara í
alla skóla í viðkomandi sveitarfélög-
um til að fræða börnin og spjalla við
þau um umhverfismál, eins og hann
hefur gert í Reykjanesbæ, og hafa
jafnvel með sér einhver sjávardýr til
að sýna. „Það er mikilvægt að inn-
prenta næstu kynslóðum umhverfis-
vitund, það skilar sér í framtíðinni,“
segir Tómas.
„Það er ljóst að hér er mikið verk
að vinna og ég á von á því að það
verði biðlisti eftir að fá Bláa herinn í
heimsókn,“ segir Tómas. Hann segir
að allt of víða sé illa gengið um og
fólk skilji eftir ónýta bíla og járna-
rusl við hús sín, fyrirtæki og
sveitabæi. Þetta safnist upp og fólk
þurfi hvatningu og aðstoð til að losna
við þetta og koma þessu í endur-
vinnslu. „Svo er svona drasl víða úti í
náttúrunni. Þegar fólk kemur að lok-
uðum dyrum hjá móttökustöðvum
keyrir það næsta vegarslóða og
hendir draslinu. Það á auðvitað ekki
að sjást en það er spurning hvort
ekki þurfi að breyta endurvinnslu-
kerfinu, til dæmis með því að hafa
skilagjald á fleiri vörum svo þær skili
sér til endurvinnslu,“ segir Tómas.
Mikið verk að vinna
úti um allt landið
Ljósmynd/Tómas J. Knútsson
Hreinsun Hópur ungra golfáhugakrakka vann að hreinsun, ásamt for-
eldrum, við bryggjuna í Höfnum á vegum Bláa hersins.
Í HNOTSKURN
»Blái herinn er umhverfis-samtök nemenda úr Sport-
köfunarskóla Íslands. Nem-
endurnir hafa unnið að hreins-
un hafna og strandar og unnið
mikið með Reykjanesbæ.
»Blái herinn fékk umhverf-isverðlaun UMFÍ og Poka-
sjóðs á árinu 2005.
Reykjanesbær |
Söngleikurinn
Öskubuska sem
sýndur er Frum-
leikhúsinu virðist
hafa slegið í gegn.
Sýnt hefur verið
fyrir fullu húsi
fimm sinnum og
meira og minna
er uppselt á
næstu sýningar.
Útlit er fyrir að sýningar verði
margar, að sögn Guðnýjar Krist-
jánsdóttur leikstjóra.
Þrjár ungar konur standa fyrir
sýningunni í samvinnu við Leikfélag
Keflavíkur og leikstýra hópi 60 ung-
menna úr grunnskólum Reykjanes-
bæjar og Sandgerðis og Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja. „Við höfum allar
leikstýrt skólauppsetningum, hver í
sínum skóla. Við ákváðum að prófa
að sameina kraftana og fá krakka úr
öllum skólunum til að vinna saman
að verkefni. Þetta hefur gengið
framar björtustu vonum enda afar
hæfileikaríkir krakkar,“ segir
Guðný. Með henni eru Gunnhildur
Kjartansdóttir og Íris Halldórsdótt-
ir. Þær unnu leikgerðina upp úr
kvikmyndinni um Öskubusku og
bættu inn í sýninguna íslenskum og
erlendum dægurlögum. Nú er verið
að gefa út disk með tónlistinni.
Lærir margt nýtt
Guðný hefur tekið þátt í starfi
Leikfélags Keflavíkur frá unglings-
árum en þetta er fyrsta sýningin sem
hún leikstýrir utan veggja skólans.
„Þessi félagsskapur heltekur mann.
Það er svo gaman að leiknum og
maður lærir margt nýtt.“
Ljósmynd/Víkurfréttir
Öskubuska Sextíu nemendur úr grunnskólum og Fjölbrautaskóla Suður-
nesja taka þátt í söngleiknum Öskubusku í Frumleikhúsinu í Keflavík.
Margir hæfileikaríkir
krakkar koma saman
Guðný
Kristjánsdóttir