Morgunblaðið - 04.11.2006, Side 42
42 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÉG VIL beita mér fyrir því að Ís-
land verði í forystu í lífrænni fram-
leiðslu. Lífrænar aðferðir byggjast á
því að framleiða há-
gæða afurðir þar sem
verndun lífríkis, vel-
ferð búfjár og heilsu-
far neytenda er haft að
leiðarljósi.
Íslensk stjórnvöld
hafa unnið að setningu
viðeigandi lagareglna
um framleiðslu, merk-
ingar og eftirlit með
lífrænni framleiðslu,
fyrst með setningu
laga og reglugerðar
1994–1995, og nú síð-
ast með því að innleiða
reglugerð ESB. Þau hafa hinsvegar
ekki gert framkvæmdaáætlun eða
markað stefnu um þróun og upp-
byggingu lífrænnar framleiðslu og
engin markmið hafa verið sett þar
að lútandi, ólíkt því sem stjórnvöld
flestra ríkja Vestur Evrópu hafa
gert.
Lífræn framleiðsla lýtur eftirliti
faggiltra vottunaraðila, allt frá
ræktun afurða til loka pökkunar
þeirra í neytendaumbúðir. Á þann
hátt er framleiðsluferill
vöru tryggur og komið
er í veg fyrir villandi
merkingar og mark-
aðssetningu.
Fjármagn til líf-
rænnar framleiðslu hér
á landi hefur verið tak-
markað og ekki full-
nýtt af hálfu bænda,
þannig að þar virðist
vanta upplýsingar og
hvatningu. Skilgreina
þarf nánar í hverju líf-
ræn aðlögun í fram-
leiðslu felst og gera
þarf ráð fyrir þremur til fimm árum
í aðlögunartíma. Auka þarf fræðslu
og rannsóknir um lífrænar aðferðir
á Íslandi í menntakerfi landsins.
Fjölmargar atvinnugreinar geta
hagnýtt sér lífrænar og sjálfbærar
aðferðir til sóknar í byggða- og
markaðsþróun, þar með talin ýmsar
sjávarnytjar, margvíslegur iðnaður,
matreiðsla, umhverfisvernd og heil-
brigðisþjónusta. Þá styðja neyt-
endasamtök og starfsmenn í mat-
vælagreinum lífræna þróun.
Lífræn framleiðsla hefur jafn-
framt jákvæð áhrif á samfélög dreif-
býlishéraða. Hún skapar atvinnu,
leiðir til sparnaðar í ýmsum rekstr-
arþáttum, eykur áhuga á fram-
leiðslu og þjónustu sem í boði er á
svæðinu og umfram allt bætir
ímynd viðkomandi svæðis í augum
ferðamanna, fjárfesta og mögulegra
íbúa.
Lífræn framleiðsla styrkir holl-
ustu íslenskra afurða og bætir
ímynd Íslands.
Ísland í forystu -
lífræn framleiðsla
Steinunn Guðnadóttir fjallar
um lífræna framleiðslu
» Lífræn framleiðslastyrkir hollustu ís-
lenskra afurða og bætir
ímynd Íslands.
Steinunn Guðnadóttir
Höfundur er íþróttakennari og fyrr-
verandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og
gefur kost á sér í 6. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Suðvest-
urkjördæmi.
TENGLAR
..............................................
www.steinunn.is
AF HVERJU að nefna þetta
tvennt í sömu andrá? Í glæsileik
undanfarinna ára, þar sem allt
virðist metið eftir árangri sem
mælist í tölum eða vegtyllum, hefur
umræðan um stöðu
kvenna einkennst af
áhuga á frama og vel-
gengni menntaðra
kvenna. Fjölga konum
í forstjórastöðum, í
stjórnum fyrirtækja, á
Alþingi og í sveit-
arstjórnum. Ekki ætla
ég að draga úr mik-
ilvægi þessa og vert
að minna á að það eru
yfirleitt konur sem
breyta aðstæðum
kvenna og berjast fyr-
ir réttindum þeim til
handa. Nægir að nefna nýleg dæmi
úr stjórnartíð kvenna hjá Reykja-
víkurborg. Verulega dró úr kyn-
bundnum launamun í stjórnartíð
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur,
líklega svo að hvergi er hann
minni, og síðan hífði Steinunn Val-
dís, nánast með handafli, upp laun
láglaunakvenna. Þeirri ákvörðun
var illa tekið og spáðu menn hroða-
legum kollsteypum í efnahagslífinu.
Jafnvel heil stórvirkjun, álver og
yfirboð á íbúðalánum voru smá-
munir í samanburði við þessi
ósköp.
En aftur að efninu. Þrátt fyrir
nauðsyn þess að styrkja og fjölga
konum í efri lögum samfélagsins
má ekki gleyma að stærsti hluti ís-
lenskra kvenna fyllir tekjulægstu
launahópana og einstæðar mæður
eru enn stærsti fátæki
hópur landsins. Konur
mega enn sæta kyn-
bundnum launamun,
sem ekkert minnkar
þegar á heildina er lit-
ið, þrátt fyrir fögur
orð og fyrirheit. Það
er jafnréttis-, mann-
réttinda- og kvenfrels-
ismál að beina ljósinu
stöðugt að þessum
konum í því augnamiði
að leiðrétta kúrsinn.
Ekki má gleyma að
kjör og aðstæður
kvenna ráða oft úrslitum í lífi
barna, bæði í efnahagslegu tilliti og
ekki síður andlega.
En því nefni ég láglaunakonur
og menntakonur, sem sumar eru
reyndar láglaunakonur líka, í sömu
andrá? Vegna þess að það á ekki
að líta á þetta sem ósættanlegar
andstæður. Þarna eru gagnkvæmir
hagsmunir. Margar menntakonur
búa yfir gríðarlegri þekkingu, oft
vannýttri, um kjör og aðstæður
kvenna á Íslandi og víðar. Kynja-
fræði er nú kennd í Háskóla Ís-
lands og að því starfi koma margar
merkar mennta- og fræðikonur.
Líklega er uppsöfnuð þekking
þeirra og rannsóknir ein mesta
auðlind íslenskra kvenna. Í þennan
gnægtabrunn geta allar konur, fé-
lög þeirra og samtök sótt og nýtt
þá þekkingu, upplýsingar og til-
lögur til lausna sem þar eru sam-
ankomnar.
Það er mikilvægt að konur, hvar
sem þær standa, nýti þessa þekk-
ingarauðlind og krefjist þess að
hún sé betur nýtt. Til dæmis með
því að fjölmiðlar sýni starfi kynja-
fræðinnar meiri áhuga og sæki
þangað þekkingu og upplýsingar
þegar málefni kvenna eru til um-
fjöllunar.
Rannsóknir, upplýsingar, þekk-
ing og tillögur til úrbóta og lausna
eru sterkt tæki í réttindabaráttu
kvenna. Tæki sem ber að nýta
gegn óréttlæti og mannréttinda-
brotum, hvort sem um er að ræða
launamisrétti kynbundið eða af rót-
grónu vanmati á hefðbundnum
kvennastörfum – ofbeldi, stöðuveit-
ingar, yfirgang og hvers konar van-
mat. Nýtum þau tæki sem við höf-
um öllum konum til góða og þar
með samfélaginu öllu.
Láglaunakonur –
menntakonur
Þórhildur Þorleifsdóttir fjallar
um réttindabaráttu kvenna
»Rannsóknir, upplýs-ingar, þekking og
tillögur til úrbóta og
lausna eru sterkt tæki í
réttindabaráttu kvenna.
Þórhildur Þorleifsdóttir
Höfundur er leikstjóri og býður sig
fram í 6.–8. sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
LÁDEYÐAN sem ríkt hefur í
stjórnmálum undanfarinn áratug
liggur einna helst í því að stjórn-
málamenn virðast al-
mennt ekki þora að
segja skoðanir sínar.
Þeir liggja fremur á
þeim. Hér hefur því
ekki ríkt lifandi þing-
ræði heldur fáræði
tveggja manna – for-
ystumanna tvíflokks-
ins.
Það að kjörnir
fulltrúar þjóðarinnar
standi ekki á mein-
ingu sinni, standi
ekki við stefnumið og
hugsjónir, sem þeir
boðuðu kjósendum
sínum í prófkjörum
og kosningum, er
hneisa. Þannig hafa
þingmenn ríkisstjórn-
arinnar beygt sig
undir ægivald for-
manna sinna í hverju
málinu á fætur öðru.
Sér í lagi var áber-
andi hversu frjáls-
hyggjumenn Sjálf-
stæðisflokksins þögðu um
sannfæringu sína í fjölmiðlafárinu.
Kannski á þetta ekki að koma
mönnum á óvart. Stundum er eins
og Sjálfstæðisflokkurinn hegði sér
fremur sem trúarsöfnuður en
stjórnmálaflokkur. Flokksholl-
ustan ríkir ofar sannfæringu og
hugsjónum. Slagorðið hljóðar upp
á samstöðu samstöðunnar vegna. Í
reynd þýðir þetta samstöðu
valdanna vegna.
Þrælsóttinn
Eitt skýrasta dæmið um þræl-
sóttann í flokknum kristallaðist í
Fréttablaðinu föstudaginn 27.
október sl. Þar voru lagðar fyrir
frambjóðendur flokksins í próf-
kjörinu í Reykjavík nokkrar
spurningar. Þegar spurt var hvort
stuðningur íslenskra stjórnvalda
(Davíðs og Halldórs) við innrásina
í Írak hefði verið mistök, voru all-
ir hinir trygglyndu menn og konur
á einu máli: Nei. Og flestir segja
að innrásin hafi verið rétt miðað
við þær upplýsingar og forsendur
sem lágu fyrir á þeim tíma.
Það er yfirklór sem stenst ekki
dóm staðreyndanna. Skortur á
upplýsingum hafði ekkert með
málið að gera. Meirihluti þjóða al-
þjóðasamfélagsins hafði rökstudda
ástæðu til að rengja áróður
Bandaríkjamanna og vildi einfald-
lega að eftirlitsaðilar Sameinuðu
þjóðanna fengju þann
tíma sem þeir þurftu
til þess að leiða hið
sanna í ljós. Þeim var
synjað um það og inn-
rásin var hafin á
fölskum forsendum.
En það, sem stýrði
ákvörðun tvímenning-
anna í ríkisstjórn Ís-
lands, var fyrst og
fremst vonin um að
halda í bandaríska
herinn sem umbun
fyrir fylgispekt Ís-
lands á alþjóðavett-
vangi.
Ekki einasta var
innrásin mistök, sem
stofnað hefur öryggi
okkar og heims-
friðnum almennt í
stórhættu, heldur
braut hún klárlega í
bága við alþjóðalög.
Illugi Jökulsson
gerði þetta að umtals-
efni í Blaðinu sl. helgi
og segist þora að hengja sig upp á
það að einhverjir frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins tali þvert um
hug sinn í þessu máli.
Ég er viss um að hann heldur
höfðinu þótt hann hafi lagt það
undir. Sér í lagi í ljósi þess að 70
til 80 prósent Íslendinga eru
þeirrar skoðunar að ákvörðunin
hafi verið mistök á meðan 100 pró-
sent frambjóðenda í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins eru á annarri
skoðun.
Endurreisn
stjórnmálanna
Íslenskt stjórnarfar, þótt kennt
sé við lýðræði, hefur að und-
anförnu einkennst af því að einn
flokksforingi hefur drottnað yfir
öðrum kjarklitlum og sannfæring-
arsnauðum stjórnmálamönnum
með hugann fullan af hetjudraum-
um en hjartað lamað af ótta. End-
urreisn lýðræðislegra stjórnmála á
Íslandi er löngu tímabær. Kjós-
endur eiga það skilið.
Trúarsöfnuður eða
stjórnmálaflokkur?
Glúmur Baldvinsson
fjallar um stjórnmál
Glúmur
Baldvinsson
»Endurreisnlýðræð-
islegra stjórn-
mála á Íslandi
er löngu tíma-
bær. Kjósendur
eiga það skilið.
Höfundur er alþjóðastjórnmálafræð-
ingur og sækist eftir 5. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
VIÐ lifum í heimi sem er fullur af
óreglu og það er hluti af mannlegu
hugarstarfi að búa til reglu úr óreglu.
Fordómar eru til dæmis leið til að
búa til reglu, flokka og gera lífið ein-
faldara. Það er auðveldara að skynja
hreina liti en litatóna. Þegar við
heyrum af atburðum eins og nauðg-
unum þá leitum við or-
saka og reynum að búa
til reglu úr óreglu.
Það er mismunandi
eftir fólki hvaða orsakir
það nefnir. Sumir segja
óheppni, stúlkan var á
röngum stað á röngum
tíma. Aðrir segja hún
hefði ekki átt að hegða
sér á þennan hátt. Hún
hefði átt að vera var-
kárari. Einstaklingur
sem skýrir nauðganir
út frá einhverju í fórn-
arlambinu er ekki að
gera það af mannvonsku heldur af
hræðslu. Ef einstaklingurinn nær að
skýra atburðinn með einhverju sem
fórnarlambið gerði þá telur hann að
hann geti frekar forðað sér eða sín-
um frá því að vera nauðgað. Konur
sem segja hún hefði ekki átt að klæð-
ast svona stuttu pilsi reyna að klæð-
ast síðum pilsum eða buxum. Karl-
menn sem trúa hinu sama banna
dætrum sínum að fara út í mínipilsi.
Konur sem segja hún hefði ekki átt
að labba ein heim, reyna að fá fylgd.
Þetta er eins og áður sagði tilhneig-
ing til að búa til reglu úr óreglu.
Skoðum aðeins þetta með að fá fylgd
það er t.d ekkert sem segir að það sé
endilega betra þar sem einungis 11%
nauðgana eru af hendi ókunnugra. Í
hinum tilfellunum þekkir þolandinn
gerandann og gerandinn gæti t.d
hafa fylgt þolandanum heim. Sumir
vilja líka meina að kynæsandi klæðn-
aður gefi ýmislegt í skyn og geti leitt
til nauðgunar. En hvað er kyn-
æsandi? Það sem einum finnst æs-
andi þykir öðrum ekkert spes. Sum-
um finnst til dæmis
rúllukragabolir kyn-
æsandi. Er stúlka í
rúllukragabol þá að
bjóða upp á nauðgun
með því að klæða sig á
þann hátt. Auðvitað
ekki. Niðurstaðan hlýt-
ur því alltaf að vera sú
að það er ekki hægt að
skýra nauðganir með
einhverju sem kemur
frá fórnarlambinu. Það
segir enginn viltu
nauðga mér og það
reynir engin/n að verða
fyrir nauðgun. Nauðgun er hræðilegt
brot á rétti einstaklingsins sem fyrir
henni verður. Hún er eitthvað sem
því miður átti sér stað vegna ofbeld-
ishneigðar þess sem hana framdi.
Þolandinn var bara á röngum stað á
röngum tíma. Það er ekki hægt að
kenna fórnarlambinu um eða koma
með alhæfingar sem einungis munu
síðar ala á sektarkennd þeirra. Það
er hinsvegar ýmislegt annað hægt að
gera, herða refsingar, auka lög-
gæslu, samþykkja misneyting-
arfrumvarpið, fá þolendur til að
kæra, fá þolendur til að leita sér
hjálpar eða segja til ef maður býr yf-
ir einhverri vitneskju um annað
hvort þolanda eða geranda. Það er
líka hægt að koma ábendingum á
framfæri ef mann grunar eitthvað.
Staldra við ef manni sýnist eitthvað
vafasamt vera að eiga sér stað. Taktu
þátt!
Gastu nú ekki reynt að …
Ösp Árnadóttir fjallar
um ofbeldishneigð »Niðurstaðan hlýturþví alltaf að vera sú
að það er ekki hægt að
skýra nauðganir með
einhverju sem kemur
frá fórnarlambinu.
Ösp Árnadóttir
Höfundur er með BA próf í sálfræði
og stýrir átakinu ,,Nóvember gegn
nauðgunum“.
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 577 2000