Morgunblaðið - 04.11.2006, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
NÝLEGA birtist fréttagrein í dag-
blaði með fréttum frá ríkisskattstjóra
þar sem hann er ósáttur við skil fyr-
irtækja til stofnunarinnar á ársupp-
gjöri fyrirtækja sem sagt var að væri
opinber gögn til birtingar og notk-
unar af hverjum sem hafa vill.
Er þarna um að ræða eina alvar-
legustu njósnastarfsemi sem þekkist
og verðugt verkefni fyrir opinbera
aðila að taka til vandlegrar yfirlegu
og endurbóta.
Það kvartar enginn undan því að
afhenda skattayfirvöldum þau gögn
er skatturinn þarf til að farið sé að
skattalögum. Að skattayfirvöld séu
sett í þá undarlegu aðstöðu að krefj-
ast gagna frá fyrirtækjum til þess að
afhenda samkeppnisaðilum eða fjár-
sterkum aðilum er óskiljanlegt.
Skattayfirvöld eru sett í aðstöðu
njósnara með valdboði fyrir fjár-
sterka aðila á markaði viðskipta sem
geta í ljósi upplýsinga er þeir fá frá
skattayfirvöldum kúgað eða yfirboðið
keppinautana og að lokum yfirtekið
fyrirtækin.
Sá grunur hefur læðst að mönnum
að ónefndur viðskiptajöfur sem er
orðinn eignaraðili að fjölda fyrirtækja
á Íslandi hafi náð tökum á fyr-
irtækjum í gegnum þær upplýsingar
sem liggja frammi sem opinber gögn
hjá ríkisskattstjóra. Á sama tíma og
þessi undarlegi framgangsmáti við-
gengst í íslensku viðskiptalífi kvarta
ráðamenn þjóðarinnar yfir fákeppni
og kenna öðrum um en sjálfum sér
hvernig komið er.
Í umræddri fréttagrein kom fram
að til standi að krefjast ákvæða í lög-
um þar sem ríkisskattstjóra verði
heimilað að refsa fyrirtækjum (þ.e.
eigendum þeirra) ef ekki verði staðið
betur skil á umræddum njósnagögn-
um en nú er.
Með þessari fréttagrein er upplýst
að íslenskt samfélag stefnir í hreinan
fasisma þar sem smælingjarnir verða
undir stöðugri áreitni af hálfu fégr-
áðugrar valdastéttar í landinu og
ráðamanna þjóðarinnar.
Er furðulegt hve kjörnir fulltrúar
þjóðarinnar láta leiða sig eins og
nautgripi í fjósið (Þjóðarleikhúsið við
Austurvöll) til mjólkunar án þess að
hugsa neitt um annað en að auka eig-
in hagsæld með hækkun launa að
ógleymdum eftirlaunum. Ekki virðist
vera um neina skýra hugsun hjá hin-
um almenna fulltrúa heldur skilyrð-
islaus hlýðni við ósvífni sem fram
kemur frá þeim er ráða ferðinni.
Tímabært er fyrir hinn almenna
þegn í landinu að rísa upp gegn því
einokunarafli sem unnið er leynt og
ljóst að fá í hendur alræðisvald eins
og það var verst á fyrri öldum. Fjár-
magnið á fáum höndum leiðir til blóð-
mjólkunar þegnanna.
Endurskoðandi tjáði undirrituðum
að umrætt ákvæði um njósnir um
þegnana, sem ríkisskattstjóra er falið
að framkvæma, komi frá herraþjóð-
inni erlendu. Ef satt er að slíkur
ósómi sé innleiddur í lög á Íslandi frá
nýlenduherrunum erlendu var til lít-
ils unnið að losa um konungsfjötrana
1944 þegar sjálfstæði þjóðarinnar er
selt fyrir fáeina skildinga sem renna í
vasa peningabraskaranna.
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON,
Rauðagerði 39, Reykjavík.
Ríkisskattstjóri og
uppgjör fyrirtækja
Frá Kristjáni Guðmundssyni:
NOKKUÐ hef-
ur borið á því
að lesendur
Morgunblaðsins
misskilji and-
stöðu Siðmennt-
ar, félags sið-
rænna
húmanisma, við
Vinaleið Þjóð-
kirkjunnar í op-
inberum skól-
um. Sem dæmi ritaði G. Heiðar
Guðnason grein í Morgunblaðið
sunnudaginn 29. október og gagn-
rýndi stefnu Siðmenntar harð-
lega. G. Heiðar segir m.a.: „Eig-
um við e.t.v. að banna Gullnu
regluna í skólunum vegna þess að
hún á rætur sínar í Biblíunni?“
Að minnsta kosti tvennt er at-
hugavert við þessa spurningu G.
Heiðars. Fyrst ber að nefna að
það er rangt hjá honum að Sið-
mennt sé á móti kennslu um sið-
fræði í skólum, eins og hann gef-
ur í skyn. Siðmennt hefur árum
saman hvatt skólayfirvöld til þess
að efla námsefni í siðfræði og
gagnrýnni hugsun. Ekkert er at-
hugavert við að kenna börnum
gullnu regluna eða annan siðferð-
isboðskap, enda hafa siðareglur
gildi óháð uppruna sínum. Þannig
skiptir ekki máli hver á að hafa
boðað gullnu regluna fyrst.
Gullna reglan væri ágæt hvort
sem það var Jesús eða Tóti trúð-
ur sem fann upp á henni fyrst. Þá
komum við að seinna atriðinu sem
ég vil gagnrýna við ofangreinda
spurningu G. Heiðars. Gullna
reglan á einmitt ekki rætur í
Biblíunni. Gullna reglan er byggð
á ævafornum boðskap og var boð-
uð löngu fyrir meintan tíma Jesú
hér á jörð. Sem dæmi má nefna
að Konfúsíus boðaði gullnu regl-
una mörg hundruð árum fyrir
meinta fæðingu Jesú. Dregur það
eitthvað úr gildi gullnu reglunnar
að Konfúsíus boðaði hana á undan
Jesú? Nei auðvitað ekki. Gott sið-
ferði er ekki takmarkað við
kristni og reyndar viljum við, sið-
rænir húmanistar, halda því fram
að bestu siðferðislegu ákvarð-
anirnar byggist fremur á aðferð-
um vísinda og heimspeki en á
trúarsetningum.
Siðmennt er ekki á móti sið-
ferðiskennslu í skólum og Sið-
mennt er alls ekki á móti því að
börn hafi aðgang að fagaðilum.
Prestar og djáknar eru ekki fag-
aðilar heldur fulltrúar trúar-
bragða. Siðmennt mótmælir ein-
ungis því að trúboð eða trúarleg
starfsemi fari fram í opinberum
skólum sem eiga að vera fyrir alla
og halda hlutleysi sínu hvað trú-
mál og stjórnmál varðar.
SIGURÐUR
HÓLM GUNNARSSON,
varaformaður Siðmenntar.
Siðmennt, gullna reglan og trúfrelsi
Frá Sigurði Hólm Gunnarssyni:
Sigurður Hólm
Gunnarsson
ÉG VIL lýsa yfir ánægju minni með
þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra
að hefja hvalveiðar en ekki með
tímasetninguna, þ.e. að hafin sé veiði
um vetur. Þetta hefði átt að gerast í
júlí eða ágúst. Ég held að hvalaskoð-
unarmaðurinn á Húsavík þurfi ekki
að óttast að veitt verði á sama stað
og hann er á ferð með sína gesti.
Þegar ég var á lúðuveiðum 100 mílur
suður af Reykjanesi sáum við til
hvalbáta álengdar en þá stóðu hval-
veiðar sem hæst. Sjávarútvegs-
ráðherra stendur ekki einn að þess-
ari ákvörðun heldur öll ríkisstjórnin
og líka Jónína Bjartmars hvort sem
hún sat hjá eða ekki. Þótt hún geri
mikið úr því í fjölmiðlum að hún hafi
ekki samþykkt þessar veiðar þá
verður hún að segja af sér ef hún vill
ekki eiga neinn hlut í þessu, svo ein-
falt er það, þótt þannig sé ekki
hundalógík framsóknar, heldur að
fara í felur. Ég hef oft verið sammála
Steingrími J. Sigfússyni í mörgu en
nú get ég ekki skilið hann. Ég hefði
haldið að hann myndi gleðjast yfir
aukinni atvinnu og útflutningi þegar
eyðileggingunni lýkur í kjördæminu
hans ef hún tekur þá nokkurn enda.
Okkur gengur illa að ná upp fiski-
stofnunum og mest er af smáfiski
enda veiðum við allt sem við náum í.
Við veiðum kúskel og hörpudisk,
rækju, humar, loðnu og síld þannig
að þorskurinn sveltur og er lítill og
horaður. Það er gert mikið úr mót-
mælum Breta en við höfum nú alda-
gamla reynslu af landhelgisstríði við
þá því það var 1901 sem þeir settu
Dönum úrslitakosti til að komast í ís-
lenska landhelgi, annaðhvort opnuðu
þeir Faxabugt og Breiðubugt svo
þeir gætu veitt flatfisk eða þeir
keyptu ekkert af fleski og eggjum af
þeim. Áður var landhelgin þrjár míl-
ur frá ystu nesjum hring í kring um
landið. Seinnitíma átökin um land-
helgina þarf vart að minna á. Þegar
Bretar komu hér í Bugtina til veiða
þá hirtu þeir aðeins flatfiskinn,
þorskinum hentu þeir í sjóinn og þá
voru hér menn sem stunduðu að ná í
þann fisk sem þeir köstuðu og var
það kallaður tröllafiskur. Á síðasta
ári varð hrun í sandsílastofninum
sem varð til þess að sjófuglinn
drapst í stórum stíl og krían sem lifir
mest á því felldi niður varp. Svona
erum við og allt sem hér er háð
sveiflum í náttúrunni. Steingrímur,
ég vona að þú verðir okkar ötulasti
talsmaður um hvalveiðar og að
bjarga fiskistofninum. Það hafa kom-
ið menn bæði í útvarp og sjónvarp og
stagast á því að hvalir borðuðu. Ég
vildi gjarnan að þessir menn komi í
sjónvarpið svo fólkið í landinum fái
að sjá þá sitja til borðs með hvölum.
Það myndi áreiðanlega gleðja marga
enda hefur enginn mér vitanlega séð
svoleiðis borðhald fyrr né síðar.
Veiðum hval í framtíðinni með gát.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Veiðum hval
Frá Guðmundi Bergssyni:
Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 • www.damask.is • Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16.
Jólatilboð
Handklæði
með merkingu
LAUGARDAGURINN 4. nóv-
ember er dagur alþjóðlegrar lofts-
lagsherferðar sem 48 lönd taka þátt
í í ár. Á Lækjartorgi frá kl. 13 og
fram eftir degi munu Íslandsvinir
standa fyrir myndasýningu sem
varpar ljósi á þátt Íslendinga í
þessu vandamáli. Með þessari her-
ferð eru lönd heims að sýna sam-
stöðu gegn þeim vanda sem lofts-
lagsbreytingar eru að valda jörðinni
og heiminum í heild og kalla á
markvissar aðgerðir frá stjórnvöld-
um.
Nicholas Stern hagfræðingur,
sem kynnti nýverið skýrslu sína um
loftslagsbreytingar fyrir bresku rík-
isstjórninni, heldur því fram að að-
gerðir myndu koma til með að kosta
u.þ.b. 1% heimsframleiðslunnar ár-
lega. Hann segir að minnka þyrfti
árlega losun gróðurhúsalofttegunda
um 25% fyrir árið 2050. Vís-
indamenn telja að bráðnun heims-
skautanna og jökla muni hins vegar
eiga sér stað mjög hratt á næstu ár-
um og því er brýn þörf á róttækum
aðgerðum nú þegar. Það er ekki
mikill tilkostnaður að áætla 1% af
heimsframleiðslunni í þetta málefni.
Hagvöxtur, peningar og gull munu
ekki skipta miklu máli þegar mögu-
leikar mannkyns til búsetu á jörð-
inni eru orðnir að engu.
Nauðsynlegt er að huga að raun-
verulegum breytingum og framþró-
un. Hitastig jarðar hækkar ár hvert
og innan fárra ára stefnir í óaft-
urkræfar breytingar sem setja
framtíð allra jarðarbúa alvarlega
annmarka. Nýjar lausnir eru til
staðar nú þegar og ríkisstjórnir
þurfa að styðja þær heilshugar,
hugmyndafræðilega og fjárhags-
lega.
Ísland getur haft mikið að segja í
baráttunni og aðgerðum til að snúa
við þeirri þróun sem jarðarbúar
standa frammi fyrir í loftslags-
málum á næstu árum. Ísland er ein
af ríkustu þjóðum heims og hefur
því svigrúm til þess að beina spjót-
um sínum að mikilvægum mál-
efnum, og hjálpað til með að skapa
aðstæður fyrir nýjum fram-
leiðsluháttum og breyttu neyslu-
mynstri. En til þess að það geti
gerst þurfa stjórnmálamenn, fyr-
irtæki og almenningur að taka
höndum saman og móta skýra
stefnu og raunhæf markmið.
Stóriðjustefna eins og viðhöfð er
á Íslandi er ekki ábyrgt framlag rík-
isstjórnar til áhrifa gegn hlýnun
jarðar. Þvert á móti ýtir slík stefna
undir stórlega aukningu á útblæstri
gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.
Vatns- og jarðvarmaorka Íslendinga
er hverfandi lítið framlag á heims-
mælikvarða og getur ekki talist
byltingarkennd leið til að minnka
gróðurhúsaáhrif í heiminum. Í stað
þess að Ísland stuðli að enn frekari
útblæstri með orkufrekasta og mest
mengandi iðnaði heims, áliðnaði,
ættu þeir að leggja áherslu á að
krefjast þess að framþróun í fram-
leiðsluháttum og önnur umhverf-
isvænni efni en ál verði notað í
framtíðinni. Einnig ætti að stuðla að
því að öll farartæki heims verði knú-
in af umhverfisvænni orkugjöfum
en olíu og bensíni.
Ríkisstjórnir, fyrirtæki og ein-
staklingar leika lykilhlutverk í átt
að breyttri þróun á næstu árum og
geta með breyttum áherslum náð
miklum árangri. Endurvinnsla,
breyttar neysluvenjur, auknar kröf-
ur um nýjar lausnir varðandi elds-
neyti og framleiðsluhætti vega
þungt á vogarskálunum.
Á alvirkjuðu Íslandi eru sam-
kvæmt rammaáætlun 30 terawatt-
stundir af orku nýtanlegar. Það er
hlutfallslega hverfandi lítið í sam-
anburði við önnur ríki og uppruni
orku hér (vatnsfall eða jarðvarmi)
gerir virkjun þeirra, til að knýja er-
lenda stóriðju ekki siðferðilega
ásættanlega. Sérstaklega verður
þar líka að líta til þess að til álfram-
leiðslu hér á landi þarf fyrst að
flytja súrál hingað til lands og þegar
úr því hefur verið unnið hér þarf svo
að flytja það aftur í annað land til að
vinna frekar úr því. Slíkt stuðlar
einungis að frekari mengun með
flutningum.
Hér á landi er stuðningur við
menntun og einkaframtak ein-
staklinga í byggðarlögum nauðsyn-
legur til að stuðla að aukinni hag-
sæld og styrkingu sveitarfélaga.
Andstaða við stóriðju þýðir ekki
andstaða við jákvæðan efnahag og
uppbyggingu landsbyggðarinnar.
Íslendingar eru færir um, þrátt fyr-
ir smæð þjóðarinnar, að vera leið-
andi afl í því mikla breytingarskeiði
sem framundan er fyrir alþjóða-
samfélagið.
Mikilvægt er að allir stjórn-
málaflokkar móti sér skýra stefnu í
umhverfismálum til að sporna við
eyðileggingu íslenskrar náttúru og
loftslagsbreytingum jarðar. Náttúr-
an og loftslagsmál jarðar er þver-
pólítískt málefni sem varðar okkur
öll.
Andrea Ólafsdóttir,
Arnar Steinn Friðbjarnarson,
Birgitta Jónsdóttir,
Bjarki Bragason,
Helena Stefánsdóttir,
Jason Slade,
María Kristín Jónsdóttir,
Íslandsvinir.
Íslandsvinir taka undir
með alþjóðasamfélaginu
Frá Andreu Ólafsdóttur, Arnari
Steini Friðbjarnarsyni, Birgittu
Jónsdóttur, Bjarka Bragasyni, Hel-
enu Stefánsdóttur, Jason Slade og
Maríu Kristínu Jónsdóttur:
Frá Töfrafossi, sem líklega er horfinn núna.