Morgunblaðið - 04.11.2006, Side 62
|laugardagur|4. 11. 2006| mbl.is
Staðurstund
Söngvarinn Keith Reed ætlar
að syngja Vetrarferðina í minn-
ingu móður sinnar á tónleikum í
Fella- og Hólakirkju. »65
tónleikar
Geir Svansson rýnir í nýja
skáldsögu Eiríks Guðmunds-
sonar, sem ber titilinn Undir
himninum. »65
bækur
Rætt er við Víking Heiðar
Ólafsson sem vann hugi og
hjörtu áheyrenda á sinfóníutón-
leikum í fyrrakvöld. »64
fólk
Ragna Sigurðardóttir, myndlist-
argagnrýnandi Morgunblaðsins,
getur ekki orða bundist vegna
LHÍ-málsins svokallaða. »67
af listum
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
Bachmann bar sigur úr býtum í
leikritasamkeppni Borgarleik-
hússins og Spron. »66
leiklist
É
g er mjög ánægður með
að vera kominn, segir
Michael Druker um Ís-
landsheimsókn sína.
„Mig langar að kíkja
aðeins í leikhús, hitta fólk og skoða hið
rómaða næturlíf. Geturðu mælt með
einhverjum stað?“
Druker er einn af þessum mönnum
sem manni finnst maður hafa þekkt
lengi eftir að hafa skipst á nokkrum
orðum við hann. Hann er afslappaður
en á sama tíma á útopnu og það er oft
hlegið í viðtalinu – jafnan út af engu.
Í seinni tíð hefur Druker, sem er
lærður leikari, mestmegnis snúið sér
að leikritun og leikstjórn. Fyrsta leik-
ritið sem hann skrifaði, Svínastían, er
frá 1982 en síðan eru leikritin orðin
alls fimmtán talsins. Patrekur 1,5 er
tvímælalaust hans þekktasta verk.
Það hefur verið sviðsett í átján leik-
húsum víðs vegar á Norðurlöndum frá
því það var frumsýnt árið 1996 og eru
frekari landvinningar fram undan, þar
sem verið er að þýða verkið yfir á
þýsku og ensku. Þá hefjast tökur á
kvikmyndinni Patrekur 1,5 í Svíþjóð í
apríl á næsta ári.
Hommar ættleiða ungling
Söguflétta leikritsins er harla frum-
leg. Verkið fjallar um hommapar sem
á sér þá ósk heitasta að ættleiða barn.
Fyrir misskilning kemur fimmtán ára
afbrotaunglingur með manndráp á
bakinu inn á heimili þeirra í stað hins
eins og hálfs árs ungbarns sem þeir
áttu von á. Komman í 1,5 hefur skolast
til í skrifræðinu.
„Ég rakst á auglýsingu í sænsku
dagblaði sem hljóðaði eitthvað á þessa
leið: „Patrekur er fimmtán ára og ný-
útskrifaður af geðsjúkrahúsi. Hann
leitar eftir kærleiksríkri fjölskyldu til
að búa hjá. Patrekur er mjög árás-
argjarn og getur verið hættulegur en
vonast til að komast á heimili með
börnum.“ Þessi furðulega auglýsing
varð kveikjan að leikritinu.“
Fyrsta sýningin á uppsetningu
Þjóðleikhússins á Patreki 1,5 á
Smíðaverkstæðinu er í kvöld. Áður
hefur verkið verið sýnt víða um land í
framhaldsskólum við góðan orðstír.
Það þykir í senn bráðfyndið og um-
hugsunarvert og hafa umræður með
þátttöku leikaranna farið fram að
sýningum loknum. Druker hyggst
taka þátt í umræðunum að lokinni
sýningu laugardagsins.
„Mér finnst mjög gaman að taka
þátt í svona umræðum. Það koma
alltaf fram einhver sjónarmið sem
maður hafði ekki velt fyrir sér sjálfur
og það getur orðið manni innblástur
til nýrra verka.“
Þegar Druker er spurður hvort
Patrek 1,5 megi flokka sem sér-
staklega sænskt leikrit svarar hann:
„Mamma mín var rússnesk og faðir
minn pólskur þannig að þó ég sé bor-
inn og barnfæddur í Svíþjóð þá hefur
mér aldrei þótt ég vera neitt sér-
staklega sænskur. Auðvitað er eitt-
hvað sænskt í mér en mér hefur alltaf
fundist ég vera heldur utangarðs. Ég
held að það sé þema sem er að finna í
öllum leikritunum mínum.“
Liðtækur borðtennisleikari
„Já, ég er mjög góður í borð-
tennis,“ segir Druker án nokkurrar
uppgerðarhógværðar þegar hæfi-
leika hans á því sviði ber á góma. Til
að setja getu sína í samhengi nefnir
hann að fyrir tveimur vikum hafi
hann keppt á Sænska meist-
aramótinu í íþróttinni en tapað í átta
liða-úrslitum. „Fyrir þeim sem vann
svo mótið,“ áréttar hann. „Þegar ég
var ungur vann ég einu sinni Jan-Ove
Waldner,“ heldur hann áfram en
landi hans Waldner er margfaldur
heims- og ólympíumeistari í grein-
inni. „En það var þegar ég var ungur.
Í dag myndi ég ekki eiga séns í hann.“
„Ég tek spaðann með mér til Ís-
lands. Vonandi fæ ég einhvern til að
spila við mig,“ upplýsir hann og er
hér með auglýst eftir verðugum
keppinaut.
Utangarðs leikskáld og
borðtennisleikari
Ljósmynd/Eggert Jónsson
Lykilatriðið Komman í 1,5 hefur skolast til í skrifræðinu.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Leikskáldið Michael Druker, sem er lærður leikari, hefur í seinni tíð mest-
megnis snúið sér að leikritun og leikstjórn.
Fyrir utan að vera af-
bragðs leikskáld, kvik-
myndagerðarmaður og
uppistandari er Mich-
ael Druker einn af
bestu borðtennisleik-
urum Svíþjóðar. Flóki
Guðmundsson spjallaði
við hinn viðkunnanlega
og fjölhæfa Svía, en
hann kom til landsins í
gær til að vera við-
staddur sýningu á verki
sínu Patrekur 1,5 á
Smíðaverkstæði Þjóð-
leikhússins í kvöld.
floki@mbl.is
GESTIR þáttarins Orð skulu standa
í dag eru Anna Kristjánsdóttir vél-
fræðingur og Lísa Pálsdóttir dag-
skrárgerðarkona. Þær ásamt liðs-
stjórunum Hlín Agnarsdóttur og
Davíð Þór Jónssyni fást við þennan
fyrripart:
Næðingssamur nóvember
nístir inn að beini.
Fyrripartur síðustu viku var ort-
ur í tilefni prófkjörsvertíðar:
Viltu ekki, vinur minn,
velja mig á lista?
Sveinbjörn I. Baldvinsson botn-
aði svona:
Þú réttir mér svo reikninginn
og rukkar eftir fyrsta.
Davíð Þór greip til guð-
fræðilegra vísana:
Því hinn er myrkrahöfðinginn
með hersveit anti-krista.
Dofri Hermannsson orti í orða-
stað tveggja ólíkra frambjóðenda.
Hinn galvaski:
Á þingið skal ég æða inn
og upp í mönnum hrista.
Hinn auðmjúki:
Ég skal bóna bílinn þinn,
bjór þér gefa og tvista.
Og sem svar við því:
Til áhuga ég óðar finn,
elsku, viltu gista?
Hlustendur sendu að vanda fjöl-
marga botna. Þórhallur Hróðmars-
son orti m.a. þessa tvo:
Ég ætla mér á Alþing inn
og eftirlaun hið fyrsta.
Í karphúsið þá kemst ég inn
köngla gamla’ að hrista.
Sævar Sigbjarnarson átti þessa
tvo:
Ég verð eins og andskotinn,
ef ekki næ ég fyrsta.
Ef við leggjum kinn við kinn,
kem ég til að gista.
Guðveig Sigurðardóttir sendi
þennan:
Ég ávaxta skal aurinn þinn
og andstæðinginn hrista.
Auðunn Bragi Sveinsson m.a.:
Svo ég komist klakklaust inn,
kýs ég sætið fyrsta.
Jón Þórisson sendi þennan:
Stóla ég á stuðning þinn
og stofukommúnista.
Arnþór Helgason botnaði svo:
Því ég vil á þingið inn
og þjóðfélagið hrista.
Næðings-
samur
nóvember
Orð skulu standa
Hlustendur geta sent botna sína í
netfangið ord@ruv.is eða bréfleið-
is til Orð skulu standa, Rík-
isútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.