Morgunblaðið - 16.11.2006, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Bréf 40
Staksteinar 8 Minningar 41/48
Veður 8 Brids 49
Úr verinu 14 Menning 52/55
Erlent 16/17 Myndasögur 56
Menning 18/21 Leikhús 54
Höfuðborgin 22 Dægradvöl 57
Akureyri 22 Staður og stund 58
Landið 23 Bíó 58/59
Austurland 23 Víkverji 60
Daglegt líf 24/31 Velvakandi 60
Forystugrein 32 Stjörnuspá 61
Umræðan 34/40 Ljósvakamiðlar 58
* * *
Innlent
Fjárframlög frá lögaðilum til
stjórnmálaflokka og einstaklinga í
prófkjörum mega að hámarki vera
300 þúsund krónur og sama máli
gegnir um framlög frá einstakling-
um. Framlög lögaðila verða birting-
arskyld en ekki frá einstaklingum.
Þetta er, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, meðal þess sem
kemur fram í tillögum nefndar
þeirrar sem nú vinnur að gerð frum-
varps um lagalega umgjörð stjórn-
málastarfsemi á Íslandi.
» forsíða
Stefnt er að skráningu Icelandair
Group á Aðallista Kauphallar Ís-
lands fljótlega eftir næstu mán-
aðamót. Skráningarlýsing fyrir
félagið verður birt á fréttavef Kaup-
hallar Íslands næstkomandi mið-
vikudag. Síðar í þessum mánuði
verður auglýst útboð þar sem til sölu
verða um 18,5% af heildarhlutafé
Icelandair Group, og verður almenn-
ingi gefinn kostur á að taka þátt í
því. Verðið í útboðinu verður hið
sama og fjárfestar og stjórnendur
fyrirtækisins hafa greitt í þeim
viðskiptum sem þegar hafa farið
fram með hlutabréf félagsins.
» baksíða
Að mati Atla Gíslasonar hrl. olli
Umhverfisstofnun ólögmætum
spjöllum á Hrafntinnuskeri með því
að veita leyfi til að taka þaðan 50
tonn af hrafntinnu. Leyfisveitingin
varði refsingu samkvæmt náttúru-
verndarlögum, verði ekki bætt úr
skemmdunum þegar í stað. Þá hafi
bæði UST og Línuhönnun hf. brotið
alvarlega gegn lögum um umhverf-
ismat. » 6
Allt var galtómt í frystigeymslum
Náttúrufræðistofnunar Íslands þeg-
ar forstjóri NÍ var viðstaddur fyrstu
inngöngu fulltrúa KB banka í húsa-
kynni frystihólfaleigunnar í Gnoðar-
vogi nú í vikubyrjun. Lásasmiður
var fenginn til að opna og þegar
starfsmenn NÍ fóru inn, staðfestu
þeir að ekkert væri þar eftir af mun-
um stofnunarinnar. Fyrri eigendur
geymslunnar stóðu ekki við loforð
um að koma lyklum til KB banka,
hins nýja eiganda, að sögn starfs-
manns bankans. Skipt var um lás á
geymslunni í heimsókninni. » 6
Erlent
Minnst tveir Palestínumenn
særðust er ísraelskar orrustuþotur
skutu tveimur flugskeytum á flótta-
mannabúðir í norðurhluta Gaza í
gærkvöldi. Árásin kom í kjölfar
þess, að Ehud Olmert, forsætisráð-
herra Ísraels, fyrirskipaði Amir
Peretz varnarmálaráðherra að halda
áfram aðgerðum á Gaza. » forsíða
Bandaríski hermaðurinn James
Barker játaði í gær að hafa nauðgað
14 ára íraskri stúlku og tekið þátt í
að myrða fjölskyldu hennar.
» forsíða
STERLING, norræna lággjalda-
flugfélagið, sem er í eigu FL Group,
fékk í gærmorgun hótun um að
sprengja væri í vél félagsins, sem var
að fara í loftið frá Amsterdam til
Óslóar, með 99 farþega um borð.
Almar Örn Hilmarsson, forstjóri
Sterling, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að við öryggisleit á farþegum
og nákvæma sprengjuleit í vélinni
hefði komið á daginn að um gabb var
að ræða.
Vélin sem um ræðir er 149 sæta
Boeing 737-700.
„Okkur barst sprengjuhótun,
nafnlaus, inn á símaverið okkar í
Noregi um kl. 9 í morgun, þar sem
greint var frá því að um borð í vél
okkar, sem var að fara í loftið frá
Amsterdam til Óslóar, væri mann-
eskja með sprengju, sem hygðist
sprengja vélina í loft upp eftir flug-
tak, sem var áætlað kl. 9.35,“ sagði
Almar Örn.
Hann sagði að um leið og þessi
hótun barst hefði verið gripið til við-
eigandi ráðstafana; haft hefði verið
samband við lögregluyfirvöld á flug-
vellinum í Amsterdam, flugvallar-
yfirvöld, landamæraeftirlit og áhöfn
vélarinnar; allir farþegar verið flutt-
ir frá borði og þeir farið á nýjan leik í
gegnum öryggiseftirlit, auk þess
sem sérstök sprengjuleit, með til-
heyrandi búnaði og sérstökum leit-
arhundum hefði verið gerð í allri vél-
inni.
„Þegar gengið hafði verið úr
skugga um að hér var um sprengju-
gabb að ræða, sem betur fer, þá
flaug vélin áleiðis til Óslóar með 95
farþega, en fjórir farþegar hættu við
flugferðina. Vélin fór frá Amsterdam
um hálftólf, þannig að henni seinkaði
um tæpa tvo tíma,“ sagði Almar Örn.
Hann sagði að vissulega væru
svona hringingar bæði hvimleiðar,
óþægilegar og kostnaðarsamar. En
að sjálfsögðu væri ekki um neitt ann-
að að ræða en taka hótanir sem þess-
ar alvarlega og gæta fyllsta öryggis.
Það væru ákveðin óþægindi sem
svona löguðu fylgdu, bæði fyrir far-
þega og félagið, en við því væri ein-
faldlega lítið hægt að segja.
Sprengjuhótun hjá
flugfélaginu Sterling
99 farþegar voru um
borð en um gabb
reyndist vera að ræða
Morgunblaðið/Jim Smart
Gabb Almar Örn Hilmarsson, forstjóri Sterling, segir að eftir öryggisleit á
farþegum og sprengjuleit í vélinni hafi komið í ljós að hótunin var gabb.
ALVARLEGUM umferðarslysum
hefur fjölgað um tæp 44% fyrstu níu
mánuði ársins samanborið við sama
tíma í fyrra, samkvæmt tölum Um-
ferðarstofu sem heldur utan um
skráningu slysa. Umferðarstofa seg-
ir nauðsynlegt að bregðast við með
sértækum aðgerðum.
Á fyrstu níu mánuðum ársins urðu
102 alvarleg slys og í þeim slösuðust
alls 120 manns. Til samanburðar má
geta þess að í fyrra varð 71 alvarlegt
slys fyrstu 9 mánuði ársins en sam-
tals 107 allt árið í fyrra. Þrjú algeng-
ustu slysin frá janúar til loka sept-
ember í ár voru fall af bifhjóli, ekið út
af vinstra megin og ekið út af hægra
megin.
Í fjárlögum næsta árs gera stjórn-
völd ráð fyrir að verja 10,4 milljörð-
um króna í vegaframkvæmdir en á
þessu ári voru 5,9 milljarðar settir í
sama málaflokk. Það er því um tæp-
lega 76% aukna fjárveitingu að ræða
til vegaframkvæmda en þá eru ekki
meðtaldir samtals 6,2 milljarðar sem
veittir verða í vegaþjónustu og við-
hald. Miklar vonir eru bundnar við
að úrbætur á stofnvegakerfinu í ná-
grenni Reykjavíkur, þ.e. á Suður-
landsvegi og Vesturlandsvegi, verði
til þess fallnar að snúa þessari
óheillaþróun í rétta átt og draga úr
umferðarslysum auk þess sem fagn-
að er fyrirhugaðri breytingu á um-
ferðarlögum, s.s. hækkun sekta og
harðari viðurlögum við umferðar-
lagabrotum.
Alvarlegum slys-
um hefur fjölgað
43,6% fleiri umferðarslys hafa orðið í
ár en á sama tíma á síðasta ári
Í HNOTSKURN
»Alls hafa orðið 23 banaslysþar sem 25 létust í umferð-
inni það sem af er ári.
»Á 3. ársfjórðungi voru bana-slysin 11 þar sem 13 létu lífið.
Þar af voru sex banaslys í ágúst
þar sem átta létu lífið. Í fyrra lét-
ust samtals 19 manns í umferðar-
slysum á Íslandi.
ERFITT hefur verið um sjósókn
undanfarnar vikur vegna ótíðar og
er margur sjómaðurinn orðinn
langþreyttur á umhleypingunum.
Bátum á sjó fjölgaði þó frá því
sem verið hefur undanfarið.
Samkvæmt upplýsingum
vaktstöðvar siglinga í gærkvöldi
voru rúmlega 180 bátar á sjó í
gær en fæstir hafa þeir farið niður
í um hundrað. Þá hefur einnig oft
verið ótíð á miðum allt í kringum
landið.
Spáð er nokkuð betra veðri
næstu dagana en þó verður víða
ansi hvasst á miðum. Þannig var
spáð stormi á suðvesturmiðum í
gærkvöldi.
Fleiri bátar á sjó en
undanfarnar vikur
VALDIMAR L.
Friðriksson, þing-
maður Samfylk-
ingarinnar,
hyggst á sunnu-
dag gefa út yfir-
lýsingu um póli-
tíska framtíð sína.
Hann hafnaði í 14.
sæti í prófkjöri
Samfylkingarinn-
ar í Suðvestur-
kjördæmi og er þar með langt frá
öruggu þingsæti. „Ég ligg undir feldi
og tek ákvörðun á sunnudag,“ segir
hann við Morgunblaðið. Valdimar
sagði í Útvarpi Sögu í gærmorgun að
reykvísk þingmannsefni hefðu raðað
sér í efri sæti í prófkjörinu með að-
stoð peningamanna. Kvaðst hann
hafa eytt rúmlega 800 þúsund kr. úr
eigin vasa í prófkjörinu. Peningar
virðist hafa áhrif á það hve langt
frambjóðendur ná í prófkjörum.
Valdimar
undir feldi
Valdimar L.
Friðriksson
NÝ tillaga að deiliskipulagi Slippa–
Ellingsenreits er nú til kynningar
hjá skipulags- og byggingarsviði
Reykjavíkurborgar. Samkvæmt
henni mun Alliance-húsið víkja.
Ellingsenreitur og Slippareitur
frá fyrri skipulagstillögu hafa nú
verið sameinaðir í einn reit, Slippa-
og Ellingsenreit. Afmarkast deili-
skipulagssvæðið af nýrri Mýrar-
götu til suðurs, Grandagarði til
vesturs, hafnarbakka til norðurs og
Tryggvagötu til austurs.
Á reitnum er gert ráð fyrir allt
að 319 almennum íbúðum. Einnig
vistvænu atvinnuhúsnæði á hafnar-
bakka fyrir skrifstofur og þjónustu,
sjóminjasafni í BÚR-húsinu, lítilli
smábátahöfn og aðstöðu fyrir
hvalaskoðunarskip með móttöku
fyrir farþega. | 22
Slippsvæðið
skipulagt
♦♦♦