Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 4

Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is STJÓRN Háskólans á Bifröst mun ekkert aðhafast vegna kæru á hendur Runólfi Ágústssyni rektor fyrir meint brot á siða- reglum skólans, en kæran barst í bréfum til stjórnar skólans á mánudag. Rektor voru sýnd gögnin og boðaði hann til fundar með nemendum í gær, vegna meintrar óánægju sem verið hefur með störf hans að undan- förnu. Í atkvæðagreiðslu lýstu 70% yfir stuðningi við rektor en 27% lýstu vantrausti. Nafnlaus kæra sem útilokað er að taka alvarlega Formaður nemendafélagsins gagnrýnir harðlega hvernig staðið var að atkvæða- greiðslunni. Að sögn Guðjóns Auðunssonar, formanns háskólastjórnar, var umrædd kæra nafnlaus og því telur hann útilokað að taka ásak- anirnar alvarlega. „Með slíka hluti, sem geta komið úr öllum áttum, gerir maður auðvitað ekkert,“ sagði hann. Fram kom í bréfunum að þau yrðu send siðanefnd Háskólans á Bif- röst með beiðni um að þau yrðu tekin fyrir þar, að sögn hans, og sagðist Guðjón ekki vita hvaða afgreiðslu erindið fengi hjá siða- nefndinni. Núverandi ráðningarsamningur rektors gildir til júlí 2008. Ekki eru fyrir hendi tíma- mörk fyrir ráðningartíma rektors í sam- þykktum stjórnar skólans. Gilda í meginat- riðum sömu reglur að þessu leyti eins og við rekstur hvers annars fyrirtækis, að sögn Guðjóns, með því að stjórn ákveður ráðning- artíma rektors. Runólfur hefur verið rektor í sjö ár og hafði áður ráðningarsamning til júlí 2007. Á fundi stjórnar snemma í haust var samningurinn framlengdur um eitt ár. „Það sem réð þeirri ákvörðun var sú sameig- inlega sýn rektors og stjórnar að þarna ætti eftir að vinna ákveðin verk sem við vildum að hann kláraði,“ sagði Guðjón. „Ég held að Runólfur hafi aldrei séð sig í ævistarfi sem rektor á Bifröst og það var sameiginlegur vilji og skilningur okkar að við vildum tíma- binda þennan samning í þetta eina ár í við- bót.“ „Ég veit vel að Runólfur er umdeildur“ – Er þér kunnugt um að það hafi verið óánægja með störf Runólfs og hegðun? „Ég veit vel að Runólfur er umdeildur og er í umdeildu starfi,“ svarar Guðjón. „Hann stýrir menntastofnun uppi í Borgarfirði sem er á fleygiferð í sinni þróun og auðvitað eru skiptar skoðanir uppi um það hversu hratt á að fara og í hvaða átt. Runólfur er frum- kvöðull og vegna þess var hann líka ráðinn. Hann fer hratt yfir og rekst stundum á mann og annan og þeir sem verða fyrir hon- um kveinka sér líklega en Runólfur er ráð- inn til þessa starfs vegna hæfileika sinna og dugnaðar.“ – Vegna þeirrar óánægju sem talað hefur verið um í fjölmiðlum í dag – nýtur Runólfur fulls trausts stjórnar? „Runólfur hefur notið fulls trausts stjórn- ar. Nú hefur ekki verið haldinn stjórnar- fundur í dag, sérstaklega út af þessu máli, en ég get sagt að Runólfur nýtur míns fyllsta trausts,“ segir Guðjón. Stjórn skólans gerir ekkert Í HNOTSKURN »Runólfur Ágústsson, rektor Há-skólans á Bifröst, nýtur fyllsta trausts formanns stjórnar skólans, Guðjóns Auðunssonar. » Í atkvæðagreiðslu á fundi nem-enda og rektors í gær lýstu 70% yfir stuðningi við rektor en 27% lýstu vantrausti. Formaður nemendafélags- ins hefur gagnrýnt harðlega hvernig staðið var að atkvæðagreiðslunni og telur umrædda könnun ekki mark- tæka. Stjórnarformaður Háskólans á Bifröst um kærur fyrir meint brot rektors á siðareglum RUNÓLFUR Ágústsson, rektor Háskólans á Bif- röst, vildi í gærkvöldi ekki tjá sig um málið, en sagðist hafa mætt á um- ræddan fund, gert grein fyrir sínum málum og lagt fram spurningu og beiðni um traust. Sagði hann að á fundinn hefði mætt á þriðja hundrað manns. „70% þeirra sem greiddu atkvæði lýstu yfir stuðningi við mín störf og ég met það mikils,“ sagði hann. Bryndís Ósk Jónsdóttir, formaður nem- endafélags Háskólans á Bifröst, sagði hins- vegar að atkvæðagreiðslan hefði verið óviðunandi. Hún hefði farið þannig fram að „ómerktum hvítum blöðum var dreift með- al þeirra sem sátu fundinn og voru þeir beðnir að lýsa trausti eða vantrausti á rekt- or. Hvergi kom fram hversu margir greiddu atkvæði eða hversu margir voru á fundinum eða annað,“ sagði hún. Rektor metur stuðninginn mikils Runólfur Ágústsson LÖGREGLAN í Reykjavík hafði í nógu að snúast vegna tónleika sem haldnir voru í austurbæ borgarinnar á þriðjudagskvöld. Ungmenni voru stór hluti tónleikagesta og bar mikið á ölvun meðal þeirra. Nokkuð var um slagsmál meðal fólksins en mest- megnis þurfti að hafa afskipti af sex- tán og sautján ára unglingum. Í nokkrum tilvikum var haft samband við foreldra ungmenna og þeir látnir sækja börn sín. Lögregla þurfti auk þess að stöðva för þriggja öku- manna. Tveir þeirra höfðu ekki náð 17 ára aldri og því ekki með réttindi til aksturs auk þess sem stúlka á átj- ánda ári var handtekin eftir árekstur tveggja bíla en hún ók annarri bif- reiðinni undir áhrifum áfengis. Rekstraraðilar Austurbæjar sendu frá sér tilkynningu í gær og áréttuðu að tónleikarnir hefðu ekki farið fram í Austurbæ. Stefna húss- ins væri að stuðla að fjölskylduvæn- um atburðum. Ófriður af ungmennum á tónleikum „AÐ GEFNU tilefni gerir stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna þá kröfu til Árna Johnsen sem hugs- anlegs þingmanns Sjálfstæðisflokks- ins að hann sýni auðmýkt þegar hann ræðir um þau brot sem hann var sakfelldur fyrir í starfi sínu sem þingmaður. Háttsemi sú sem Árni var dæmdur fyrir var ekki „tæknileg mistök“ heldur alvarleg og mjög ámælisverð afbrot,“ segir meðal annars í ályktun stjórnar Sambands ungra sjálfstæðismanna. Ennfremur segir: „Þátttakendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hafa nú veitt Árna Johnsen annað tækifæri til að sýna að hann geti staðið undir því trausti sem kjósendur sýna kjörnum fulltrú- um. Fyrsta skrefið í að endurvinna traust flokksmanna og almennings í landinu er að iðrast fyrri mistaka af einlægni og koma fram af auðmýkt og virðingu. Ef Árni Johnsen tekur sæti á Al- þingi munu fjölmiðlar og aðrir fylgj- ast vandlega með störfum hans þar. Ætla má að embættisstörf hans verði í meira mæli undir smásjánni en gildir um aðra þingmenn. Standi Árni Johnsen undir þeim auknu kröfum sem til hans verða gerðar hefur hann nýtt tækifærið og lagt grunninn að því að endurheimta það traust sem hann glataði við áður- nefnd afbrot.“ Árni Johnsen sagði aðspurður um þessa ályktun SUS að hann hefði ekkert við hana að athuga. „Það þarf enginn að efast um iðrun mína vegna þeirra mistaka sem ég hef gert og ég hef reyndar marglýst því yfir á undanförnum árum bæði í ræðu og riti. Ég vek hins vegar athygli á því að störf mín fyrir byggingar- nefnd Þjóðleik- hússins komu á engan hátt þing- mennsku við,“ sagði Árni Johnsen. Andri Óttarsson, framkvæmda- stjóri Sjálfstæðisflokksins, sagði, að- spurður hvort eitthvað hefði verið um úrsagnir úr Sjálfstæðisflokknum vegna ummæla Árna Johnsen í frétt- um í fyrrakvöld, að hann vildi ekki láta hafa neitt eftir sér. SUS vill að Árni Johnsen sýni auðmýkt Það þarf enginn að efast um iðrun mína segir Árni Johnsen Árni Johnsen VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri starfaði daglangt með Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að kynna sér starf- semina sem stjórnarformaður SHS. Klæddist hann búningi sjúkraflutn- ingamanns og fór í þrjú útköll á sjúkrabílum, æfði sig á tækjabúnaði liðsins og ræddi við starfsmenn og stjórnendur. „Mér fannst mjög ánægjulegt að kynnast starfinu og því ágæta fólki sem starfar við þetta,“ sagði Vil- hjálmur. „Eftir daginn veit ég mun betur en áður í hverju starfsemin felst og það var mjög skemmtilegt að geta varið tímanum með starfs- mönnum og sjá hvernig mannlífið í Reykjavík kemur þeim fyrir sjónir. Þeir eru gríðarlega vel þjálfaðir og ég er sannfærður um að við erum með sjúkraflutninga- og slökkvilið á heimsmælikvarða.“ Að sögn Jóns Viðars Matthías- sonar slökkviliðsstjóra hafa borgarstjórnar- og sveitarstjórnar- menn á höfuðborgarsvæðinu sýnt SHS mikinn áhuga og skilning enda leggi þeir áherslu á öryggi fólks. „Eigum lið á heimsmælikvarða“ Morgunblaðið/Júlíus

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.