Morgunblaðið - 16.11.2006, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 19
MENNING
Eftir Guðjón Guðmundsson
gugu@mbl.is
GUNNAR Þórðarson tónskáld hef-
ur lagt til fjórtán lög á nýja hljóm-
plötu tenórsöngvarans Óskars Pét-
urssonar, Ástarsól, sem nýlega er
komin út. „Þetta eru níu ný lög og
fimm eldri en textarnir eru eftir
ýmsa höfunda,“ segir Gunnar. „Nýju
lögin samdi ég í sumar,“ en auk þess
að leggja til lögin útsetur Gunnar
plötuna, leikur á gítar og stjórnar
flutningnum.
Elsta lagið á plötunni er Bláu aug-
un þín, en á henni er líka að finna lög
eins og Vetrarsól, í bland við þau
nýju.
„Ég vona að ég sé ekki mikið að
endurtaka mig. Ég útset lögin fyrir
sex manna grunnsveit og svo er
þarna níu manna strengjasveit, horn
og flauta og tveir kórar, þ.e. Him-
nódía og Karlakórinn Heimir.
Hljómurinn er því nokkuð stór. Það
var einstaklega gaman að vinna að
þessu verkefni og óhætt að segja að
Óskar hefur mikla rödd,“ segir
Gunnar.
Þessa dagana er Gunnar að fylgja
diskinum eftir með tónleikum vítt og
breitt. Næstkomandi föstudags- og
laugardagskvöld verða útgáfu-
tónleikar á Akureyri og líklegt er að
tónleikar verði í Borgarleikhúsinu
17. desember næstkomandi. Þetta
verða heilmiklir tónleikar, líklega
með báðum kórunum og strengja-
sveitinni.
Ennfremur er að koma út á næst-
unni Brynjólfsmessa, þar sem kveð-
ur við annan tón í tónsmíðum Gunn-
ars, sem hefur á síðustu árum snúið
sér í ríkari mæli að klassískum tón-
smíðum.
Gunnar semur
fyrir Óskar
Morgunblaðið/Ómar
Tónskáldið Frá æfingum á Brynjólfsmessu fyrr á þessu ári.
KVIKMYNDIN
Börn, í leikstjórn
Ragnars Braga-
sonar og í fram-
leiðslu Vest-
urports, verður
sýnd í Há-
skólabíói dagana
17., 18. og 19.
þessa mánaðar,
klukkan 20 og 22,
með íslenskum texta. Að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
Vesturporti vill leikhópurinn með
þessu móti koma til móts við heyr-
naskerta áhorfendur sem kunna að
hafa áhuga á að sjá myndina.
Börn er sjálfstæður hluti tvíleiks
um samskipti foreldra og barna.
Hún var frumsýnd á Íslandi 14.
september síðastliðinn, en ráðgert
er að frumsýna seinni hluts tvíleiks-
ins, Foreldrar, áður en árið er liðið.
Myndin er tilnefnd til átta Eddu-
verðlauna í ár, m.a. sem kvikmynd
ársins, fyrir besta handritið, og
bestu tónlistina. Þá er Ragnar
Bragason tilnefndur sem leikstjóri
ársins auk þess sem Gísli Örn
Garðarsson, Nína Dögg Filupp-
usdóttir og Ólafur Örn Ólafsson
hljóta öll tilnefningu sem leikarar
ársins.
Gagnrýnandi Morgunblaðsins gaf
myndinni fjórar stjörnur.
Börn með
íslenskum
texta
Ragnar Bragason
DAGUR íslenskrar tungu er í dag.
Af þeim sökum verður mikið um að
vera á bókasöfnum landsins þar sem
bókum um íslenskt mál verður sér-
staklega stillt upp. Ársafn Borg-
arbókasafns heldur daginn auk þess
hátíðlegan með óvenjulegum hætti.
Starfsmenn safnsins munu lesa ljóð
eftir ýmsa höfunda í kallkerfi Bónus-
verslunarinnar að Hraunbæ 121
milli klukkan 12-13 og aftur klukkan
16-17. Auk þess munu gestir Ársafn
koma með tillögur að fallegasta ís-
lenska orðinu. Það orð sem hlýtur
flestar tilnefningar mun svo verða
notað af starfsmönnum safnsins í
tíma og ótíma.
Bókagjöf til fjögurra ára barna
Borgarbókasafn Reykjavíkur,
Bókasafn Mosfellsbæjar og Bóka-
safn Seltjarnarness, í samstarfi við
heilsugæslustöðvarnar og með styrk
frá MS, ætla að gefa börnum í þess-
um bæjarfélögum bók árið sem þau
verða fjögurra ára. Fyrstu bæk-
urnar verða afhentar í dag þegar
börn frá leikskólanum Dvergasteini
koma í aðalsafn Borgarbókasafnsins
í Grófarhúsi og taka við Stafrófs-
kveri eftir Sigrúnu og Þórarinn Eld-
járn.
Aðalmarkmið gjafarinnar er að
vekja áhuga barna á bókum strax frá
unga aldri.
Ljóð, bækur
og bókasöfn
♦♦♦