Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 33

Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 33 Þess var minnst í ár íSvíþjóð að 75 ár eruliðin frá einum hörmu-legasta atburði í sögu landsins. Her landsins var beitt gegn kröfugöngu í Ådalen 14. maí 1931. Biðu fimm manns bana, þar af ein ung stúlka er fylgdist með göngunni úr garð- inum heima hjá sér. Ítarlegar rannsóknir fóru fram á atburð- inum, sérstök nefnd fjallaði um málið og urðu um- ræður þrungnar ásökunum á hinu sænska þingi Riksdagen. Áköf leit var að þeim syndugu. Hvorki var hægt að rekja eitt né neitt til undurróð- ursstarfsemi kommúnista sem auðveldað hefði yfirvöldum rétt- lætingu á hvers vegna herinn hafði verið kallaður til. Óeirðir í Halmstad Þremur vikum áður en byssuskotunum var hleypt af í Ådalen urðu mikil læti í hafn- arbænum Halmstad á vest- urströnd Svíþjóðar. Þar hafði einn helsti atvinnurekandi bæj- arins, Gustav Hyléen, staðið gegn áformum verkalýðsfélags- ins um kauphækkun, en félagið var undir stjórn sósíal- demókrata. Hann var fullur ör- væntingar út af markaðs- örðugleikum heimskreppunnar og lækkaði tímakaupið um fimm aura og lögðu þá verkamenn niður vinnu, enda verkbann skollið á að þeirra mati. At- vinnurekandinn brá þá á það ráð í náinni samvinnu við sam- tök atvinnurekenda í Stokk- hólmi að fá sendan vinnufúsan vinnukraft til að sinna verk- efnum timburverksmiðjunnar. Eins og við var að búast urðu stimpingar og mikill æsingur í Halmstad. Verkfallsbrjótar voru ekki teknir mjúkum hönd- um. Lögreglan varð hvað eftir annað að grípa inn í deiluna og kalla á liðstyrk frá Gautaborg. Herbyssur voru hafðar tiltækar á laun en engar afspurnir voru um þær á þeim tíma og þar af leiðandi engar deilur. Helstu sögubækur í sænskum skólum sögðu lengi svo frá að rótin að æsingnum stafaði af kommúnistum á staðnum. Þeir hefðu ekki látið tækifærið líða sér úr greipum og reynt með undirróðri að ná fjöldafylgi í skjóli forystuhlutverks í vinnu- deilunni. Prófessor minn í sagnfræði við háskólann í Uppsölum, Sven A. Nilsson, var frá Halmstad og ritstýrði verki um sögu bæj- arins. Ég sinnti heimildavinnu árið 1980–1981 og leitaði uppi heimildir og heimildamenn í tengslum við Halmstadsslaginn 1931 og skrifaði ritgerð um at- burðinn. Þá birtist mynd gjörsamlega ólík þeirri sem sögubækur greindu frá. Upphaf deilunnar átti ekki upptök sín í undirróðri kommúnista. Gangur deilunnar var með öllu óháður skipulagi þeirra. Þeir áttuðu sig ekki á því hvað var að gerast né held- ur náðu að grípa inn í. Ég fann áður órannsakaða samtímafund- argerð (11. maí 1931) þar sem kommúnistar bóka í anda sjálfs- gagnrýni að þeir hafi sofið á verðinum og ekki náð að gera sér mat úr deilunni. Vonin um fjöldafylgi myndi enn láta bíða eftir sér. Slagurinn í Halmstad endaði með brottför „verkfallsbrjóta“ og sáttargjörð fyrir tilstilli sér- staks sáttasemjara. Tímakaupið hækkaði eilítið. Það voru ekki afkastamiklir utanbæj- arskrifstofumenn sem gengu í störf verkafólksins, sumpart peninganna vegna, sumpart vegna öfga í stjórnmálaviðhorfi á hægri væng. Lögreglan hafði gripið inn í átökin og reynt að eyða hópmyndun sem ógnað gæti lífi og eignum sam- borgara. Sósíal- demókratar í bæj- arstjórn lögðust gegn hinni áberandi notkun lögregl- unnar en fengu ekki við neitt ráðið. Ríðandi lög- reglumenn með kylfur á lofti voru í sjálfu sér kveikjan að frekari æsingi. Óttinn magnast Deilan í Halmstad var, þegar öllu er á botninn hvolft, áþreif- anleg kraftbirting kreppunnar miklu. Mikil hræðsla greip um sig meðal stjórnvalda um að kommúnistar stæðu að baki átökunum. Þó það ætti í engu við rök að styðjast öðlaðist sú sýn sjálfstætt líf. Á næsta átakastað, Ådalen, sem einnig var laus við stjórnkænsku kommúnista, var fullvopnaðri herdeild komið. Skotin riðu af og lýðræðisþróun Svíþjóðar beið hnekki. Enginn stjórn- málamaður eða stjórn- málaflokkur dirfðist framar að leggja til að vopnin töluðu í samskiptum við verkalýðshreyf- inguna. Vopnin voru kvödd. Nú eru sænskar sögubækur, m.a. eftir rannsókn okkar, með rétta frásögn um áhrifavalda í Halmstadsdeilunni. Íslensk lögregla og erlendur her Íslensk lögregla vildi ekki vera notuð í vinnudeilum og tókst að standa utan þeirra oft- ar en erlendu ríki með varn- arstarfsemi á Íslandi þótti sómi að. Bandarísk hernaðaryfirvöld vildu ekki grípa inn í skæru- hernaðinn við Reykjavíkurhöfn árið 1942 þó tillögur þess efnis innan setuliðsins væru bornar fram. Varfærni hefur reynst happadrjúg íslensku þjóðfélagi. Þau skemmdarverk sem framin voru gegn hakakrossfánanum á Akureyri og Siglufirði árin 1933 og 1934 hefur tíminn fyrirgefið og menn gengist síðar við; jafn- vel eilítið stoltir. Yfirdrifinni refsigleði samkvæmt lagabók- staf þess tíma var ekki hægt að beita. Gerendur töluðu ekki í síma um hvað þeir hefðu í hyggju né létu orð falla á röng- um stað. Aðgerðirnar voru í þeirra augum réttmætar þó ekki væru þær löglegar. Vettvangur sagnfræðinnar Er ekki kominn tími til að skoða bilið á milli orða og at- hafna kommúnista kreppuár- anna og sósíalista í kalda stríð- inu á opinn hátt? Hvílík gildra liggur ekki í því að ætla út frá orðayfirlýsingum einum að dæma um til hvers þær leiða. Ég taldi mig í fyrstu geta treyst erlendum fræðimönnum sem dæmdu út frá orðum al- þjóðasamtaka kommúnista hvernig þeir hefðu raunveru- lega hagað sér innan verkalýðs- félaga, sérstaklega með því að kljúfa þau. Dæmin reyndust óf- innanleg á Íslandi og leit í öðr- um löndum sýndi að hér var um goðsögn að ræða. Orð eru að vísu til alls fyrst. Sagnfræðinga er að sýna fram á dæmin um að orðin hafi reynst aflvaki hlut- anna. Orðræðuna undanfarnar vikur í Morgunblaðinu ber að túlka sem ákall um nánari fræðilegar rannsóknir með opnu skjalaaðgengi í anda lýð- ræðis. Taka þarf sérstakt tillit til persónuverndar hlutaðeig- enda, framhjá því skal ekki gengið og ríður mest á að hlut- aðeigendur, sem fylgst var með vegna ótta um að þeir væru meðhlauparar erlends ríkis. Þeir þurfa undanbragðalaust að fá að sjá gögnin um sig. Kvittir og goðsagnamyndun Horfumst í augu við hið liðna. Í Noregi var skipuð nefnd til að athuga hvernig hleranir og eft- irlit með pólitískum ein- staklingum og félagasamtökum hefðu verið framkvæmdar. Hverjar voru lagalegar for- sendur fyrir hinu leynilega eft- irliti? Í nefndina var m.a. valinn einstaklingur sem vökul augu ríkisins höfðu fylgst með á tímabili kalda stríðsins. Að- gengi var í framhaldi veitt þeim sem voru á skrá til að sjá „per- sónugögn“ um sig. „Lund- nefndin“ var skipuð 1. febrúar 1994. Hún hafði ekki það mark- mið að fella dóm um hið liðna, heldur að gera ljóst hvað hafði átt sér stað til að „eyða kvitti og goðsagnamyndun“ [fjerne spekulasjoner og mytedann- elser. (s.1122)]. Lagafrumvarpið sem Alþingi Íslendinga sam- þykkti 4. október 2006 hefur meira afmarkað hlutverk: „að gera tillögu um tilhögun á frjálsum aðgangi fræðimanna að þeim [opinberum gögnum um öryggismál]“. Norska nefndin fékk víðtækt umboð til að „rannsaka alla þætti hjá leynilögreglu [overvåk- ingstjeneste] og her er varða staðhæfingar um þátttöku þess- ara stofnana og fólks sem þeim var tengt í ólöglegu og óviðeig- andi eftirliti með norskum borgurum“. Það er umhugs- unarvert að rannsóknin leiddi í ljós virðingarleysi gagnvart anda laganna um eftirlit. Hægri – vinstri- skalinn á minna við Leynimakkið var ekki beint tengt skalanum hægri – vinstri, heldur má álykta sem svo að sá flokkur (eða flokkar) sem hélt um stjórnartaumanna hverju sinni hafi beitt verkfærum rík- isvaldsins því til varnar en jafn- vel líka í sína þágu. Það síðast- nefnda átti ekki að geta gerst. Norski verkamannaflokkurinn var áratugum saman við stjórn- völinn og fylgdist gaumgæfu- lega með kommúnistum með hlerunum og útsendurum. Við sjáum að ákveðin vatnaskil verða í Noregi árið 1949. Kalda stríðið jók á ótta þeirra sem fóru með ríkistjórnarvaldið. Þess vegna tel ég að það megi ekki „ákæra“ Sjálfstæðisflokk- inn sem hægri flokk fyrir að hafa sett af stað eftirlit með fólki sem talið var ganga erinda erlends ríkis og hafa einræði á stefnuskránni. Þetta gerðist í lýðræðisríkjum með sósíal- demókrata við stjórnvölinn sbr. Noreg og Svíþjóð. Hitt er aug- ljóst, að slíkt eftirlit gat verið misnotað í þágu eins stjórn- málaflokks á kostnað annars. Eftirlitið hefur innbyggðan veikleika, þ.e. eftirlitið verður taumlaust og lýðræðislegt að- hald hverfur smám saman án þess að aðilar viti af því sjálfir. 30. mars 1949 ollu straum- hvörfum í viðhorfi til öryggis- mála á Íslandi. Best fer að eyða „kvitti og goðsagnamyndun“ í íslenskri sögu með athugunum á fyrirliggjandi gögnum, sem von bráðar verða í lýðræð- islegum anda gerð aðgengileg. Það má taka undir með Birni Bjarnasyni að pólitíska umræð- an hafi oft snúist „upp í inn- antómt karp og slagorðaflaum eða ofsafengna NATO- og Bandaríkjaóvild“. Öryggismál virðast oft rædd af léttúð og er auðvelt að gera stöðu „litla“ Ís- lands í alþjóðasamfélagi hjákát- lega. Hvernig sem það er verð- ur að taka á viðkvæmum málum af festu. Skilaboð Þórs White- head með greinum sínum er að það lágu til þess gildar ástæður að ríkisvaldið hóf eftirlit með grunsamlegu fólki sem aðhyllt- ist byltingarkenningar og hafði æft vopnaburð. Það er vægi þessara þátta í raunveruleik- anum sem um er deilt. Það verður að koma í veg fyrir að umræðan verði í skotgrafastíl. Lund-nefndin hafði heimild til að kalla til sín alla þá er tal- ið var að gætu varpað ljósi á hleranir og eftirlit, jafnt ólögleg sem og heimiluð tilfelli. Munn- leg geymd reyndist drjúg upp- lýsingaveita og voru allir við- mælendur leystir undan trúnaðar- eða þagnarheitum. Engar fyrirætlanir voru um refsingu fyrir upplýst lagabrot. Markmiðið var að leiða sann- leikann í ljós til að skapa sátt um kafla í sögu þjóðar. Hvort sérstaka þingnefnd eða aðra trúverðuga nefnd ætti að setja á laggirnar á Íslandi skal hér látið liggja á milli hluta. Það er hafið yfir allan vafa að munn- lega geymd ber að nýta. Brennd gögn eru að eilífu horf- in en minni þátttakanda getur reynst drjúg heimild sem vert er að kanna. Heimildarýni þarf að iðka eins og í hverju öðru máli sem rannsakað er. Skundað af átakavelli Í mínum huga er eitt besta dæmið um hve byltingarkennt ofbeldi og vopnaskak var fjarri raunveruleika íslenskra forystu- manna kommúnista sagan þeg- ar Brynjólfur Bjarnason, for- maður Kommúnistaflokks Íslands, skundaði af átakavell- inum í Gúttóslagnum 9. nóv- ember 1932 til að mæta í kennslutíma í Kvennaskólanum í Reykjavík. Kennari felldi ekki niður kennslu – jafnvel þótt eft- irsótt bylting gæti tekist með valdi – hún var einfaldlega ekki á dagskrá með slíkum hætti. Í Gúttóslagnum var lögreglan beitt fantaskap og heyrði ég frásögn eins járniðnaðarmanns (Þorkels Guðmundssonar) af því hvernig hann varð vitni að því er lögreglumanni var lyft og kastað á oddhvassa girðingu. Járniðnaðarmaðurinn hafði ekki verið fylgismaður ofbeldis og mundi aldrei leggja slíku lið. Sem betur fer voru byssur víðs- fjarri og engu lífi fórnað. Slíkt dæmi sem Svíar þurfa að lifa við í minningunni um hina fimm látnu í Ådalen 14. maí 1931 höf- um við verið blessunarlega lausir við. Halmstad, Ådalen og Gúttó – Kvittir og goðsagnamyndun Eftir Stefán F. Hjartarson » Er ekki kominntími til að skoða bilið á milli orða og athafna kommúnista kreppuáranna og sósíalista í kalda stríðinu á opinn hátt? Stefán F. Hjartarson Höfundur er sagnfræðingur frá Uppsala-háskóla. amálum komi fyrr en nokkru erlendis. Þann- alað um að Ís- ftir Bandaríkj- á eftir Evrópu Hann segir þó eldur farinn að raðbönkum framkvæmda- og verðbréfa- ir að íslenskir á þeim málum hér á landi á verið að end- ðstafanir sem í hafi allt eftirlit erið aukið til ál fóru að koma rfsmenn bank- við að kanna hvort aukabúnaður af einhverju tagi sé settur á hraðbankana, og rétt að benda almenningi á að vera á varð- bergi ef eitthvað reynist athugavert við hraðbanka. Framleiðendur hraðbanka hafa leitað leiða til að koma í veg fyrir svindl af þessu tagi. Í dag hefur verið sett upp grænleit, gegnsæ hulsa framan á kortaraufar margra ís- lenskra hraðbanka sem gerir svindl- urum erfitt fyrir að setja lesara upp á þeim hraðbanka. Þetta er aðferð sem hefur verið mikið notuð erlendis, seg- ir Guðjón. Þar sem hulsan stendur út í loftið og er gegnsæ er afar erfitt að koma ólöglegum segulrandarlesara fyrir í hraðbankanum. Engir vírar eru inni í hulsunni, ólíkt gabbbúnaði sem er með afritunarbúnaði og getur því ekki verið gagnsær. Öryggi greiðslukorta, hvort sem er kredit- eða debetkorta, mun aukast til muna þegar öll greiðslukort verða farin að nota svokallaða örgjörva, litla tölvukubba á greiðslukortum sem koma í stað segulrandarinnar. Til þess að það verði þarf þó að und- irbúa verslanir þannig að posakerfin taki við slíkum kortum, og hraðbanka svo þeir lesi örgjörvana en ekki seg- ulrendur kortanna. Örgjörvakort öruggari Bergþóra hjá Kreditkorti segir lestur örgjörvakorta mun öruggari en lestur á segulrönd. Þegar er farið að gefa út kreditkort með bæði ör- gjörvum og segulröndum, en hér á landi hefur útgáfa debetkorta með þeirri tækni ekki hafist enn. Spurð hvort ekki sé hætta á því að glæpa- menn finni upp nýjar aðferðir til að bregðast við nýrri tækni segir Berg- þóra það vissulega hættu en enn sem komið er hafi þeim ekki tekist það og litlar líkur á að það verði alveg í bráð. Á næstu vikum verður farið að dreifa posabúnaði í verslanir sem not- ast við örgjörvana í stað segulrand- arinnar, en þar með verður þess kraf- ist að stimplað sé inn PIN-númer í stað undirskriftar, segir Sigmar Jónsson hjá Fjölgreiðslumiðlun. Fjölgreiðslumiðlun er fyrirtæki í eigu banka, greiðslukortafyrirtækja og Seðlabankans, og rekur og vottar all- an posabúnað, kassaafgreiðslukerfi og hraðbanka, og rekur miðlægt greiðslukerfi fyrir heimildir og færslur fyrir greiðslukort. „Þetta gerist hægt, þetta eru mikl- ar breytingar og við viljum ekki valda óþægindum fyrir söluaðila eða aðra. Þetta er búið að vera í margar vikur í prófunum. Það sama á við um hrað- bankana, þar byrjar þetta innan nokkurra vikna, það ferli er einnig í prófunum,“ segir Sigmar. Allt er það þó til lítils ef ekki verða settir örgjörvar á debetkort. Guðjón Rúnarsson hjá SBV segir að ör- gjörvavæðing kreditkorta sé langt komin og á næsta ári verði hafist handa við að skipta út debetkortum, með það markmið að skipta út öllum kortum fyrir árslok 2007. á kortið dlinu nnsláttur falinn Mikilvægt er að reyna að hindra að viðkomandi sjái til þegar PIN-númer er slegið inn í raðbanka enda mögulegt að myndavél fylgist með. rgunblaðið/Júlíus aðan búnað til Norrönu. dl fer þann- ði er komið önd og em notuð ort með tekið út fé. ekkt er- m í fyrsta di í ár. r hafa þeg- með því ærri hulsu a hrað- jótum erf- fyrir pa hluta af m þarf til Netið, en byrði bún- hraðbanka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.