Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 43

Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 43
þangað til styttan var eins og ný. Ég gat alltaf leitað til þín, sama hvert vandamálið var og einhvern veginn fannst þú alltaf töfralausnina eða sást jákvæðu hliðina á málinu. Að lokum vil ég þakka þér fyrir að vera bæði frábær afi og vinur, þú munt eiga stað í hjarta mínu að eilífu. María Kristinsdóttir. Afar eru mismunandi. Flestir eru samt stoltir af barnabörnunum og dekra þau alveg út í eitt. Sumir afar eru strangir og ekkert mjög nánir barnabörnum sínum. Ég þekki annað mun betra. Afi minn var einstakur. Ef ég hugsa um hvað ég man frá barnæsku þá man ég mest eftir hon- um. Enda bjó hann í húsinu okkar, á hæðinni fyrir neðan okkur. Afi Stefán, hvar get ég byrjað. Hann mun lifa með mér alla tíð. Hann var ekki eins og hver annar afi fyrir mér heldur svo miklu meira en það. Við áttum vel saman vegna áhuga okkar beggja á dýrum og náttúrunni. Hann sá t.d. um alla hamstrana mína sem voru allnokkrir. Samt man ég langmest eftir því þegar ég gat komið heim eftir skóla hvenær sem var og fengið mjólkurkex með ískaldri mjólk og horft á Nilla Hólmgeirsson með honum. Jólin með afa þar sem hann las fyr- ir okkur utan á pakkana. Kvöldin með honum þar sem við horfðum saman á Önnu í Grænuhlíð og hann lifði sig inn í atburðarásina með mér eru minningar sem fylgja mér um ókomna tíð. Það er ómetanlegt að hafa fengið að búa í sama húsi afi og geta skoppað niður á náttfötunum til hans um helgar. Ég er líka sannfærð um að það hefur þroskað mig mjög mikið og að vera svona mikið með honum. Afar eru mjög mismunandi en ég er viss um að ég fékk eina bestu útgáfu sem til er. Guð geymi hann alla tíð. Ásdís Elín Jónsdóttir. Tíminn flýgur. Mér finnst ólýsan- lega stutt síðan ég var lítil og sat í fanginu á afa. Við fjölskyldan bjuggum lengi vel í sama húsi og hann og leið því varla sá dagur sem við hittumst ekki. Heim- sóknir til afa voru því ófáar og tók hann alltaf fagnandi á móti mér, nán- ast hvenær sem var. Það vantaði ekki góðmennskuna þegar afi átti í hlut. Hann stjanaði svoleiðis við okkur barnabörnin og við kunnum svo sannarlega vel við það. Við afi náðum alltaf vel saman. Eft- ir því sem tíminn leið þróaðist sam- bandið okkar á milli. Gelgjan kom þarna einhverstaðar inn í en afi hagg- aðist aldrei. Hann var alltaf þessi trausta manngerð með báða fætur á jörðinni. Það var aldrei neinn asi á honum afa, hann gerði hlutina bara á sínum hraða. Þrátt fyrir að vera jarð- bundinn hafði hann alltaf sterkar skoðanir og var einstaklega skemmtilegt að tala við hann. Afi var líka mjög fróður og voru samræðurn- ar við hann gjarnan einstaklega fræðandi. Ég efaðist aldrei um væntumþykju afa. Hann var ekki maður mikilla orða en sýndi væntumþykju sína fyrst og fremst í verki. Það var ósjaldan sem hann kallaði í mig til þess að færa mér eitthvað. Þá var það oft eitthvað sem hann hafði valið af kostgæfni og alltaf þótti mér jafn vænt um það. Elsku afi Stefán. Það eru ekki allir jafn heppnir og ég að hafa átt svona yndislegan afa. Mér þykir óendan- lega vænt um þig og ég mun alltaf geyma stað fyrir þig í hjarta mínu. Bryndís Dagmar Jónsdóttir. Aldur er afstæður. Aldur í árum er eitt og aldur í sálum oft allt annar. Lítil manneskja og stór, ung sál og gömul geta hæglega náð saman og orðið ævarandi vinir – alveg inn að beini, eins og ekkert sé sjálfsagðara. Afi Stefán var besti vinur Stefáns Matthíasar, Ásdísar Elínar og Bryn- dísar Dagmarar, barna Jóns Kr., son- ar Stefáns og Ásu dóttur minnar, sem alla tíð bjuggu saman í hreiðri á sitt- hvorri hæðinni á Hagamelnum. Afar kært var með þeim feðgum og inn í það stóra faðmlag var Ásu minni og börnunum boðið af hjartans ein- lægni. Þau lifðu þannig samtvinnuðu lífi jafnt á tyllidögum sem hversdags og afi Stefán varð fastur póll í tilveru þeirra. Litla fólkið stóð vart út úr hnefa þegar það fór að príla til afa. Þangað var margt að sækja, óendanlega að- dáun og ást auk endalausrar þolin- mæði í leikjum og spjalli. Afi átti líka svo margt gamalla muna til að skoða og alltaf sætindi til að stinga upp í litla munna. Leikgleði afa Stefáns og áhugi á að deila kjörum með fjölskyldunni var endalaus þá loksins hann réð tíma sínum og gat leikið sér að vild að loknum löngum vinnudegi. Þær voru ekki margar bæjarferð- irnar sem hún Ása mín fór án afa. Hann hafði svo gaman af að rísla sér í búðum á efri árum, óvenjulegt, en Stefán var safnari og hafði áhuga á mörgu. Stefán afi var alvörugefinn maður að eðlisfari en stutt í galsann. Ása mín gleymdi sér eitt sinn við spjall á grænu ljósi. Afi beið smá- stund en sagði svo sallarólegur: „Ljósið verður nú varla öllu grænna en þetta Ása mín.“ Hinn 7. nóvember sl. fór afi Stefán yfir í betri heim, á skærgrænu ljósi. Á iðjagrænum völlum himnaríkis hefur honum verið fagnað sem aufúsugesti af herskara engla sem gæta barna Guðs bæði á himni og jörðu. Ég þakka Stefáni fallega viðkynn- ingu en sér í lagi þakka ég ást hans og umhyggju fyrir litlu fjölskyldunni þeirra Jóns og Ásu. Blessuð sé minn- ing Stefáns Hannessonar. Elín G. Ólafsdóttir og fjöl- skyldan úr Efstasundi 40. Föðurbróðir minn, Stefán Hannes- son, fyrrverandi verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, fæddist í Reykja- vík 22. apríl 1923. Hann lést á öldr- unardeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss að Landakoti 7. nóvember sl. Fundum okkar Stefáns bar fyrst saman árið 1958 þegar ég fór til sumardvalar að Stóru-Tjörn- um í Ljósavatnsskarði. Stefán hafði átt heimili að Stóru-Tjörnum allt frá bernsku en flutti heimili sitt síðar til Reykjavíkur þar sem hann var bú- settur ásamt fjölskyldu sinni um langt árabil. Næstu fjögur sumrin kynntist ég frænda mínum vel auk ábúenda á Stóru-Tjörnum og var sú reynsla mér afar þroskandi og ánægjuleg. Milli okkar urðu vináttu- bönd sem haldist hafa alla tíð. Ég gerði mér fljótlega grein fyrir mannkostum Stefáns, dugnaði hans og atorku en hann var með afbrigð- um verklaginn, úrræðagóður og ósér- hlífinn. Hann hafði umtalsverðan rekstur með höndum í Þingeyjar- sýslu, annaðist mjólkurflutninga, vélaviðgerðir og hverskyns önnur verkefni sem honum voru falin í sveitinni. Hann naut virðingar og trausts samstarfsmanna sinna hvort sem var við störf í Þingeyjarsýslu eða í Reykjavík eftir að hann flutti til borgarinnar. Mér eru sérstaklega minnisverðar veiðiferðir okkar frændanna en í Ljósavatni og tjörnunum þar í kring er ágæt veiði silungs og laxa. Stefán var mikill áhugamaður um stangveiði og kenndi mér reyndar flesta þætti sem varða þá iðju en auk þess voru lögð net í tjarnirnar til silungsveiða. Síðustu árin átti Stefán við heilsu- brest að stríða. Veikindi hans ágerð- ust og lífsgæði skertust en hann tók veikindum sínum af stöku æðruleysi. Ég er þakklátur frænda mínum fyrir ánægjulegar samvistir ekki aðeins á yngri árum heldur ekki síður fyrir vináttu okkar á undanförnum mán- uðum. Fjölskyldu Stefáns, ættingjum og vinum færi ég hugheilar samúðar- kveðjur. Hannes Pétursson. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 43 þú upp handboltatíma ykkar mömmu og varð þér líka tíðrætt um þegar þið báðar áttuð börn með dags millibili. Þú þitt fyrsta, Sigurð á Akranesi og mamma sitt þriðja, Sólveigu í Reykjavík, daginn áður. Kæra Malla, hver á núna að halda liðinu saman og baka fyrir jólin fyrir ömmu og Sigrúnu? Ömmu, sem mikið hefur mátt þola og horfir nú á eftir öðru barni sínu kveðja þetta líf. Þú sofnaðir síðan svefninum langa á meðan við vorum á leiðinni heim á sunnudeginum. Bogi, Siggi, Maggi og fjölskyldur, við sendum ykkur okkar dýpstu sam- úð og megi æðri máttarvöld vera með ykkur og hjálpa ykkur yfir þessa erf- iðu tíma. Elsku amma, kæri pabbi, Else og föðursystkini, við erum með ykkur í huganum og sendum ykkur allan þann styrk sem okkur er mögulegur. Elín, Magnús, Sólveig og Björg. „Ég geri alltaf 15 sinnum þegar sjúkraþjálfarinn segir mér að gera 10 sinnum.“ Eitthvað á þessa leið sagði Malla við okkur þegar hún var að lýsa endurhæfingunni á Grensási fyrir u.þ.b. ári síðan. Okkur finnst þetta lýsa Möllu betur en mörg orð. Hún var alltaf tilbúin að gera miklu meira en til var ætlast. Dugnaður og kraft- ur eru fyrstu lýsingarorðin sem koma upp í hugann þegar við hugsum um Möllu. Hún æfði á sínum yngri árum handbolta og varð þá m.a. Íslands- meistari með Val. Það er auðvelt að sjá hana fyrir sér sem góðan hand- boltamann með þessa eiginleika. Dugnaður og kraftur einkenndu hana alla tíð. Við í fjölskyldu Sigga B. og Ninnu nutum þess oft, því oftar en ekki var Malla drifkrafturinn í að skipuleggja ýmsar uppákomur í fjöl- skyldunni. Það má segja að hún hafi tekið við forystuhlutverkinu í þeim efnum af Ninnu, móður okkar og tengdamóður, þegar hún féll frá fyrir nokkrum árum. Malla bjó reyndar yf- ir mörgum öðrum góðum kostum en krafti og dugnaði. Hún var hrein- skiptin og heiðarleg. Ef henni líkaði ekki eitthvað var hún órög við að láta það í ljósi. Maður vissi alltaf hvar maður hafði hana. Hún var einnig tilbúin að hrósa fyrir það sem vel var gert og oft var hún kát og skemmti- leg. Malla var trygglynd og um- hyggjusöm, hún gætti þess vel að enginn gleymdist. Þar kom gott minni hennar sér oft vel og mundi hún t.d. afmælisdaga allra í fjölskyld- unni. Hún ræktaði garðinn sinn af kostgæfni, bæði í óeiginlegri merk- ingu og eiginlegri. Malla og Bogi voru samhent hjón og líklega kom það hvergi betur fram en í fallegu görð- unum þeirra. Þeir eru lýsandi dæmi um natni og góðan hug. Fyrir u.þ.b. hálfu öðru ári síðan fór illvígur sjúkdómur að láta á sér kræla hjá Möllu, eftir að hafa legið niðri í nokkur ár. Þá hófst erfið barátta sem Malla háði af dugnaði og krafti. Lengi vel mátti ekki á milli sjá hvor myndi hafa betur. Það fór þó svo að sjúk- dómurinn náði yfirhöndinni. Þrátt fyrir að hafa orðið að láta í minni pok- ann er samt ekki hægt annað en líta á Möllu sem sigurvegara. Það var lær- dómsríkt að fylgjast með hvernig hún háði sína baráttu; hún bognaði sjald- an og brotnaði aldrei. Æðruleysið var aðdáunarvert og dugnaðurinn alltaf til staðar. Ávallt var hún tilbúin að gefa af sér og það hjálpaði öllum sem umgengust hana að takast á við erf- iðleikana sem fylgdu baráttunni. Það er erfitt að sætta sig við að Malla sé farin frá okkur, ef til vill er það alls ekki hægt. Missir Boga, Sigga, Magga og fjölskyldna þeirra er mikill og hugur okkar er hjá þeim. Öll syrgjum við Möllu. Í sorginni er þó hægt að sækja styrk í minninguna um góða konu, dugnað hennar, kraft og æðruleysi. Blessuð sé minning Möllu. Sigrún og Hörður. Kær vinkona er horfin til annarra heima, jákvæð, ákveðin, stjórnsöm, pólitísk, gamansöm og hláturmild en umfram allt góð vinkona okkar. Við kynntumst á gömlu dönsunum, mikið dansað og mikið gaman á þeim árum. Margar voru ferðirnar sem við fórum innanlands sem utan en London var okkar uppáhald og nutum við allra þessara ferða. Oft borðuðum við sam- an, meðal annars á sunnudögum eftir kóræfingar okkar góðu eiginmanna. Áttum við þá gleðistundir og hlust- uðum á tónlist kóra og kvartetta. Við þökkum vinkonu okkar öll þau frábæru 45 ár sem við höfum gengið saman í gleði og sorg. Boga vini okk- ar og allri fjölskyldunni biðjum við blessunar. Anna Jóna og Lárus. Þó útþráin lokki mig landinu frá æ lengra og lengra út í geim og margt þurfi að kanna og mikið að sjá mig langar að síðustu heim Já, landið mitt fagra með dali og fjöll og fjölskrúðugt litaval með heiðbláan himinn og fannhvíta mjöll og fossinn í hamranna sal. (H.T.) Nú í dag kveðjum við vinkonu okk- ar, hana Möllu. Það er mikið lán að eiga góða vini. Vinátta okkar, sex í hóp, hefur staðið um þrjá áratugi og með hverju ári orðið sterkari. Við töluðum oft um að vináttu þyrfti að rækta og Malla var drifkrafturinn í hópnum. Hún var hvetjandi, stjórnsöm og gefandi kona og hafði allt sitt á hreinu. Margar minningar sækja á hugann þegar litið er um öxl. Við minnumst ferðalaganna með eldri skátum frá Akranesi, bæði inn- anlands og erlendis. Við sex fórum svo saman í ferðalög, fórum í sumarbústað yfir helgi eða sátum og spjölluðum heima í stofu. Þegar við hittumst eða töluðum sam- an í síma, eftir að hún var orðin veik, vildi hún miklu frekar tala um hvern- ig okkur liði en að tala um sína líðan. Þau Bogi og Malla voru samhent hjón, og áttu yndislegt heimili og fjöl- skyldu. Barnabörnin voru hennar eft- irlæti og voru þau umvafin hlýju og elsku. Það hefur verið mikil gjöf að eiga þau Boga og Möllu að vinum. Við minnumst Möllu með söknuði og hlýju og vottum Boga og fjölskyld- unni allri einlæga samúð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem.) Kristrún og Þjóðbjörn, Björg og Helgi. Í dag er sorgardagur hjá okkur vinum og vandamönnum hennar Möllu. Við höfðum beðið og vonað að það sem byrjaði með smá bletti á hendi, myndi ekki enda lífsgöngu hennar. Sá sem öllu ræður, hefur ákveðið og því fáum við ekki haggað. Við getum aðeins þakkað þau for- réttindi að hafa kynnst henni og tekið þátt í hennar jarðvist.Við hjónin eign- uðumst vináttu Möllu og Boga ung að árum og þar hefur aldrei borið skugga á. Það var nánast ekki talað um annað þeirra, nema bæði væru nefnd, Malla hans Boga eða Bogi hennar Möllu. Upp í hugann streyma endalausar minningar um ferðalög innanlands og utan, heimsóknir og allra handa samveru. Það var alltaf líf og fjör, mikið rætt og þvargað um allt milli himins og jarðar. Þar var hún hrókur alls fagnaðar, baráttuglöð; skotklár, skemmtileg og stálheiðar- leg. Ef eitthvað bjátaði á hjá manni þá fann maður alltaf fyrir umhyggju hennar og vináttu. Viðhorf Möllu til þess alvarlega sjúkdóms sem herjaði á hana og af- greiðsla hennar á þeim tíma sem henni var gefinn til loka, var með þeim hætti að maður fann til smæðar gagnvart ótrúlegu æðruleysi hennar og baráttuanda. Ekki stóð Malla ein og óstudd í baráttunni, það var aðdá- unarvert hvernig Bogi stóð sem klett- ur í þessum þrengingum. Fólk sem endar lífsgönguna með þvílíkri reisn sem Malla, tapar ekki fyrir dauðan- um, það færir sig á milli tilverustiga. Það verður syrgjandi ættingjum von- andi ljós í myrkrinu að hafa verið það sem þessi hugdjarfa hetja elskaði mest af öllu. Bogi minn, við biðjum al- mættið að hugga og styrkja þig og þitt fólk, þið hafið misst mikið, en vonandi munu minningar um ein- staka kostakonu hjálpa til. Við sökn- um hennar með ykkur af heilum hug. Þórður og Silja. Samt er í samfylgd sumra manna andblær friðar án yfirlætis, áhrif góðvildar, inntak hamingju þeim er njóta nær. (Guðmundur Böðvarsson.) Andlát manna ber að með ýmsum hætti. Oft er ungt fólk hrifið burtu skyndilega að því er virðist án tilefn- is, í annan tíma hefur dauðinn lengri aðdraganda og þá telur maður dauð- ann jafnvel líkn fyrir þann sem kveð- ur eftir langa baráttu við erfiðan sjúkdóm. Samt er það svo að þegar kallið kemur, kemur upp í huga okkar sem eftir stöndum, ólýsanlegt tóm og mikill söknuður. Minningar leita á hugann. Samveran með kærum vini og félaga öðlast nýja merkingu. Söknuðurinn og tómið sem verður breytist í þakklæti fyrir lífið sem hann lifði með okkur, ástúðina, vin- áttuna og hlýjuna sem hann sýndi okkur. Þegar kvödd er elskuleg kona og félagi, þá verður okkur ljóst , að í samfylgd hennar var gott að vera. Hún bar með sér góðvild sem var inn- tak hamingju, þeim er nutu samvista við hana. Vinkona okkar átti að baki langt og strangt stríð við þann óvin sem engu eirir, karbbameinið. Það þarf mikið þrek og mikinn sálarstyrk til þess að þola þá raun og halda áfram að þjóna landi sínu og lífinu sem áður. Slíkt þrek sýndi hún Malla. En í þessu stranga stríði var afl sem gerði það mögulegt, að kannski yrði sigur unn- inn. Þetta afl var vonin. Vonin, sem gefur þrek og þor, þrátt fyrir allt, að horfa til framtíðar, í þeirri trú og von að „á bak við skýin er himinninn blár“. En líf og dauði hildi heyja. Og nú er stríðinu stranga lokið. En Malla barðist ekki ein. Við hlið hennar hef- ur staðið elskulegur eiginmaður hennar, hann Bogi, eins og óbifanleg- ur klettur. Hið liðna líf hvers manns mótast af minningum um atburði og samferða- menn sem við höfum kynnst á lífsleið- inni og bundist tryggðaböndum. Hið liðna líður um hugskotið, sjaldnast sem samfella, oftar sem brot minn- inga þar sem skiptast á skin og skúr- ir. Nú þegar við kveðjum kæra vin- konu og félaga, hana Möllu, hrannast upp minningar, fullar af gleði og ógleymanlegum samverustundum. Hver endurminning er svo hlý og ylj- ar hjartanu, þegar söknuður og mikil eftirsjá ríkja í huganum. Okkur verð- ur ljóst: Að minningin helst í hvíld og kyrrð, sem krans yfir leiði vafinn. Hún verður ei andans augum byrgð hún er yfir dauðann hafinn. (Einar Benediktsson) Kæri vinur og félagi, Bogi, sem nú kveður elskaða eiginkonu þína, eftir góða og farsæla samleið á lífsins vegi, þér og ástvinahópnum öllum, sendum við hlýjar vinakveðjur og einlæga samúð. Friður guðs og blessun veri með ykkur öllum, kæri vinur. Elsku- lega vinkonu og yndislegan félaga kveðjum við með þökk fyrir liðnar stundir. – Sofðu rótt, gefi þér Guð sinn frið – Góða nótt. Hallbera og Ríkharður  Fleiri minningargreinar um Mar- ólínu Arnheiði Magnúsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Vinkon- urnar úr meistaraflokki Vals og Gísli Jóna og fjölskylda. Afi Stefán var vinur minn og betri vin er ekki hægt að hugsa sér. Ég vil kveðja hann með þessari bæn og bið þess að allir góðir englar vaki yfir honum og verndi alla tíð. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Ég elska þig afi minn. Þinn vinur Stefán Matthías Jónsson. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.