Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 44

Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 44
44 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Eva Kristins-dóttir fæddist í Reykjavík 19. maí 1931. Hún lést á líknardeildinni í Landakoti hinn 6. nóvember síðastlið- inn. Eva var dóttir hjónanna Kristins Magnússonar stýri- manns og verk- stjóra, f. 2.11. 1895, d. 15.8. 1956, og Ágústu Kristófers- dóttur, f. 17.11. 1908, d. 6.7. 1998. Eva átti sex systkini og þau eru: Margrét, f. 26.3. 1930; Svala f. 28.12. 1934; Ásgeir, f. 3.9. 1939; Óli, f. 1.10. 1941, d. 20.7. 1997; Kristinn Magnús, f. 12.9. 1946; og Kristófer Már, f. 3.8. 1948. Hinn 10. mars 1956 giftist Eva Ólafi K. Magnússyni ljósmyndara, f. 12. mars 1926, d. 15. nóvember 1997. Foreldrar Ólafs voru Magn- ús Jóhannsson skipstjóri, f. 16.6. 1894, d. 27.2. 1928, og Kristín Hafliðadóttir húsmóðir, f. 9.10. 1896, d. 8.4. 1984. Eva og Ólafur eignuðust fimm börn. Þau eru: 1) Kristinn, f. 24.1. 1960, maki Lauf- ey Gissurardóttir, f. 2.5. 1962, börn: Andri Már, f. 21.4. 1981, Eva Margrét, f. 1.12. 1985, Gissur Ari, f. 11.2. 1993. 2) Berglind, f. 22.11. 1961, maki Dag Helge Iver- sen, f. 2.11. 1962, börn: Edda og Ylva, f. 2.2. 1997, Sindri, f. 15.3. 1999. 3) Anna Lóa, f. 1.11. 1964, börn: Kristinn Frans Stefánsson f. 25.12. 1987, Atli Dagur Stefánsson, f. 29.1. 1992. 4) Mar- grét Lind, f. 13.10. 1967, maki Jóhann Pétur Reyndal, f. 24.3. 1967, börn: Ólafur Alexander, f. 27.8. 1989, Tómas Gauti, f. 3.3. 1993, Daði Már, f. 2.7. 2001. 5) Magnús Sverrir, f. 12.3. 1970. Eva útskrifaðist úr Kvenna- skólanum í Reykjavík árið 1949. Hún nam við öldungadeild MH á árunum 1980–82 og útskrifaðist sem sjúkraliði úr Sjúkraliðaskóla Íslands árið 1983. Þá lauk Eva framhaldsnámi í umönnun aldr- aðra. Eva starfaði um árabil í prent- smiðju Morgunblaðsins en hóf síð- ar störf sem sjúkraliði á lýtalækn- ingadeild Landspítalans. Lengst af starfaði Eva við heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu og fram að veikindum sínum á þessu ári starfaði hún á dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund. Útför Evu verður gerð frá Kristskirkju í Landakoti í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Hún Eva var ótrúleg kona, það var sama hvenær ég kom til hennar í heimsókn á líknardeildina á Landa- koti og spurði hana hvernig hún hefði það? Svarið var alltaf ,,bara fínt“. Þvílíkt æðruleysi. Ég veit að Eva var ekki mikið fyrir hefðbundn- ar minningargreinar en ég ætla að leyfa mér að skrifa nokkur minning- arorð um hana. Þegar ég kom fyrst á heimili Evu og Óla fyrir 27 árum og hitti hana var mér það strax ljóst að þarna var kona með stórt hjarta og stóran faðm. Það var alltaf nóg pláss í hjarta hennar fyrir börnin sín, vini þeirra og ættingja. Á heimili Evu og Óla var alltaf mikið líf og fjör og þangað voru allir velkomnir. Heim- ilið var alltaf opið til að halda upp á gleðistundir með fjölskyldunni og vinum. Eva var trúnaðarvinur barna- barna sinna og þótti þeim gott að fara til ömmu Evu til að ræða málin og njóta samveru með henni. Mér er minnisstætt þegar Andri sonur minn var 12 ára gamall og við vorum á leið til Reykjavíkur frá Úlfljóts- vatni. Þá varð hann að fara beina leið út á Nes til ömmu Evu. Ekki vissi ég af hverju honum lægi svona á að fara til ömmu sinnar en síðar kom það í ljós að hann hafði orðið ástfanginn í fyrsta sinn og gat ekki beðið með að deila þessum tilfinn- ingum með ömmu sinni fyrstri allra. Ég kveð elsku Evu tengdamóður mína með miklum söknuði. Eva var einstök manneskja sem alltaf var hægt að leita til bæði í gleði og sorg. Hún var alltaf tilbúin að gefa sér tíma til að hlusta, gefa góð ráð og að- stoða. Eva var skemmtileg og mikill húmoristi hún var fljót að sjá björtu hliðarnar á lífinu. Hún hafði mikinn metnað fyrir hönd allra barna sinna og mikla trú á því sem þau tókum sér fyrir hendur. Hún var okkur öll- um svo hvetjandi, jákvæð og dugleg að hrósa. Eva var kona sem gott er að taka sér til fyrirmyndar í lífinu. Laufey Elísabet Gissurardóttir. Hæ, amma mín. Fyrir um 20 árum var ég fimm ára gamall og sótti leik- skóla í Vesturbæ Reykjavíkur. Ég var aldrei hrifinn af því að vera á leikskóla þar sem hæfileikar mínir í föndri, teikningu og leirun voru ekki upp á marga fiska og mér fannst satt best að segja hundleiðinlegt að þurfa að hanga þar. Einn daginn fékk ég nóg og ákvað ásamt tveimur félögum mínum að strjúka. Þegar kom að því að ákveða hver ætti að skjóta yfir okkur skjólshúsi ákvað ég að við skyldum fara til ömmu Evu. Við félagarnir náðum reyndar ekki að strjúka lengra en tíu metra en þá náðu fóstrurnar okkur og við þurftum að gjöra svo vel að skýra okkar mál. Ég man að ég svaraði að við ætluðum til ömmu Evu að horfa á He-Man-spólu eins og ekkert væri sjálfsagðara. Þetta er mín fyrsta minning um þegar þú varst eina manneskjan sem kom til greina að leita til. Ég á svo margar minningar sem eru svo líkar þessari, til dæmis þegar ég var ósáttur við eitthvað, hafði einhverjar fréttir að færa, vantaði hvatningu eða langaði einfaldlega í barbeque- kjúklinginn þinn og fá að njóta fé- lagsskapar þíns. Í þessum tilvikum þurfti ég að hitta þig eða tala við þig þótt þú værir í öðrum bæjarhluta, öðrum landshluta eða jafnvel öðru landi. Það skipti heldur ekki máli hvort maður var barn, unglingur eða fullorðinn, maður gat alltaf talað við þig um allt og ekkert. Þú gast sett þig inn í málið og í sameiningu kom- umst við að skynsamlegri niður- stöðu. Það var svo alltaf stutt í húm- orinn og gleðina því ef maður var eitthvað ósáttur þegar maður kom til þín var maður fljótur að gleyma því og byrjaður að hlæja með þér. Ekki má gleyma partíunum sem þú hélst þegar fjölskyldan kom sam- an og borðaði og allir töluðu hver of- an í annan og hlógu eins og vitleys- ingar. Vinir mínir skildu aldrei að það gæti verið svona gaman í boði hjá ömmu minni. Ég skýrði það fyrir þeim að þetta væru engin boð, þetta væru partí, bestu partíin í bænum. Þú kemur alltaf til með að vera vel geymd í hjarta mínu og ég á aldrei eftir að gleyma því sem þú gafst mér. Ég er svo þakklátur að þú hafir verið amma mín og að ég hafi fengið að eiga allar þessar yndislegu stund- ir með þér. Þitt fyrsta barnabarn, Andri Már Kristinsson. Ég held að það séu fáir sem geta státað af að eiga ömmu sem er jafn- mikill húmoristi og amma Eva var. Allar minningarnar mínar um ömmu eru tengdar hlátri og gleði því amma var alltaf hlæjandi eða segjandi brandara. Þegar ég var sjö ára fór- um við amma saman til Noregs að heimækja Berglindi frænku. Við flæktumst saman um alla Ósló frá morgni til kvölds, fengum okkur gott að borða og höfðum það nota- legt. Við vorum meira eins og tvær vinkonur saman í borgarferð heldur en amma og barnabarn. Hún setti sig aldrei á háan hest og kom alltaf fram við mann sem jafningja. Ég og amma vorum mjög seinar heim eitt kvöldið. Það munaði mjóu að Berg- lind hefði hringt á lögregluna því þetta var ekki líkt okkur að vera svona seinar. Berglind beið þá heima með tilbúinn mat en við vor- um búnar að fara út að borða á „Mamma Rosa“, sem var uppáhalds- staðurinn okkar. Amma var búin að segja að ég mætti ekki tala um að við hefðum farið út að borða því hana grunaði að Berglind væri með tilbúinn mat heima, sem reyndist rétt. Við komum því heim og þótt- umst vera sársvangar því sagan okkar var að við hefðum misst af lestinni, þess vegna værum við svona seinar. Amma hafði alltaf tíma til þess að setjast niður og ræða við mann um heima og geima. Seint mun ég gleyma öllum þeim góðu ráðum sem hún gaf mér. Amma Eva var trún- aðarvinur minn og í raun trúnaðar- vinur allra barnabarna sinna. Við gátum öll komið til hennar og sagt henni hvað okkur lá á hjarta. Það var svo gott að segja henni þau leyndarmál sem gat verið erfitt að segja mömmu og pabba og maður vissi alltaf að þau væru vel geymd hjá henni. Fyrir einu og hálfu ári fékk ég það verkefni í skólanum að ég ætti að skrifa um ömmu mína og afa. Ég skrifaði um ömmu Evu og afa Óla og gaf svo ömmu ritgerðina. Amma las hana og líkaði hún vel og sagði svo með sinni stríðnislegu rödd: „Eva mín, þú ert alltaf svo sniðug, bara búin að skrifa minning- argreinina áður en ég dey.“ Í dag er ég ánægð að amma fékk að lesa þessa ritgerð því þar gat ég sagt henni hversu yndisleg persóna hún var og hve stór hluti hún var af mínu lífi. Eva Margrét Kristinsdóttir. Nú er hún amma farin en allar minningar okkar um hana munu vera með okkur það sem eftir er. Amma var alveg einstök amma. Það var hægt tala um allt við hana og hún var okkar besti vinur þó svo að hún hafi 60 verið árum eldri en við. Við vorum alltaf velkomnir á heimili hennar hvenær sem var og fórum við oft eftir skóla til ömmu að fá okkur að borða og spjalla við hana. Ef það var ekki til neitt að borða þá fór hún strax með okkur út í búð og leyfði okkur að kaupa nán- ast allt sem við vildum. Ömmu þótti mjög vænt um okkur og gerði nán- ast allt fyrir okkur, en ef við hög- uðum okkur illa eða vorum með stæla við mömmu fengum við að heyra það frá ömmu og við vissum að hún hafði rétt fyrir sér og maður átti engin rök á móti henni. Amma var skemmtilegasta amma sem hægt er að hugsa sér, hún sagði brandara og hafði mikinn húmor. Þegar manni leið illa hughreysti Eva Kristinsdóttir Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is ✝ Elskuleg eiginkona mín, tengdadóttir, stjúpmóðir, amma og systir, ANNA HAUKSDÓTTIR, Ferjubakka 12, Reykjavík, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 17. nóvember kl. 13:00. Heimir Guðjónsson, Guðjón Þorleifsson, Halla Heimisdóttir, Hjalti Árnason, Sara Heimisdóttir, Ægir Ísleifsson, Sandra Heimisdóttir, Sævar Hólm Valdimarsson, Aldís, Alexandra, Brynja Hlíf og Skarphéðinn og systkini hinnar látnu. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN BJÖRGVIN ÞORVALDSSON málarameistari, dvalarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði, lést mánudaginn 13. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Elín Björnsdóttir. ✝ Ástkær sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, LEIFUR STEINARSSON, Hofteigi 14, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala Landakoti mánudag- inn 13. nóvember. Útför hans fer fram frá Laugarneskirkju mánudag- inn 20. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent minningarkort Heilaverndar, sími 588 9220. Ingibjörg Brynjólfsdóttir, Dagný Hildur Leifsdóttir, Þorvaldur Sigurjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, HULDA SVEINSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, lést á Hrafnistu þriðjudaginn 7. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Kristinn Jósepsson. ✝ Ástkær móðir okkar, INGIBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR frá Kambshóli, nú dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 14. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Pétur Óðinsson, Þorsteinn Vilhjálmsson, Hallfreður Vilhjálmsson, Hugrún Fanney Vilhjálmsdóttir, Jóhanna Sigríður Vilhjálmsdóttir. ✝ Ástvinur minn, faðir okkar og tengdafaðir, GUNNAR ÁRNI SVEINSSON frá Álafossi, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést á Landspítala í Fossvogi mánudaginn 13. nóv- ember. Ása Sæmundsdóttir, Halldóra Gunnarsdóttir, Eyjólfur Gunnarsson, Sveinn Gunnarsson, Logi Gunnarsson, Sigríður Bjarnadóttir, Sigríður Gunnarsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Jónas Gunnarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.