Morgunblaðið - 16.11.2006, Síða 47

Morgunblaðið - 16.11.2006, Síða 47
um varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að leigja íbúðina á neðri hæðinni hjá henni og Stefáni í nokkra vetur. Mér fannst nauðsynlegt að hitta þau á hverjum degi og þau fögnuðu mér alltaf þegar ég gerði mér ferð á efri hæðina. Ég hafði aðgang að bókunum þeirra, dagblöðunum, þvottavélinni og öllu því sem hugs- ast gat. Oft borðaði ég kvöldmatinn með þeim, horfði á sjónvarpið og ógleymanlegar eru stundir okkar Stefáns í eldhúsinu þar sem við sát- um og biðum eftir að fá leifarnar af kræsingum þegar Inga var með spila- eða bókmenntaklúbb. Inga var ekki langskólagengin en hámenntuð úr lífsins skóla, fróð- leiksfús og óþreytandi að afla sér þekkingar. Hún var hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. Ríkisútvarpið var í hávegum haft, fréttatímar og veðurfregnir fóru ekki fram hjá henni. Hún eyddi morgninum í blaðalestur og las þá öll dagblöðin sem í boði voru. Gjarnan strikaði hún undir það sem henni fannst gott og þess virði að ræða nánar um, einnig það sem henni þótti fáránlega vitlaust. Oft hringdi hún svo í ættingja og vini til að vekja athygli á efni dagblaðanna, las gjarnan það sem strikað hafði verið undir og leyndi ekki skoðun- um sínum enda mjög hreinskilin. Stundum var hún búin að ræða mál- in í heita pottinum í Laugardals- lauginni og sagði gjarnan fréttir af þeim umræðum. Sjaldan féll Ingu verk úr hendi en verkin hennar voru ekki alltaf hefð- bundin og hún hreyfði sig hratt. Hún var afar sjálfbjarga og gerði ótrúlegustu hluti ein þótt komin væri um sjötugt. Það er ákaflega auðvelt að sjá Ingu fyrir sér við hin ýmsu störf. Eitt sinn hafði hún áhyggjur af því að lækurinn væri að brjóta land innan við girðinguna hennar. Þá tók hún sér skóflu í hönd, gróf skurð, stíflaði lækinn og breytti farvegi hans. Þessar land- bætur skiluðu góðum árangri. Haustdag einn kom ég heim á Sunnuveg . Um leið og ég kom út úr bílnum bauð Inga góðan dag, en ég sá hana hvergi þótt ég skimaði í all- ar áttir. Þá var hún í vettvangsferð uppi á þaki á tveggja hæða húsinu, líklega að athuga ástand þaksins fyrir veturinn. Inga fór alltaf í sund snemma á morgnana og auðvitað þurfti hún að mæta á réttum tíma til að hitta „sitt fólk“ í laugunum. Hún vílaði ekki fyrir sér að moka sig niður á götu eftir snjóbyl nætur- innar. Ég dauðskammaðist mín fyr- ir hversu sjaldan mér tókst að verða á undan henni út að moka en henni fannst nú ekki ásæða til þess, ég þurfti ekki að fara eins snemma að heiman og hún. Eftir að Reykjavíkurdvöl minni lauk kom ég venjulega við hjá Ingu þegar ég átti leið í bæinn. Það var einstaklega gott að koma svangur til hennar, hún var svo fljót að finna eitthvað í svanginn fyrir mann og brauðið hjá henni var betra en ann- ars staðar. Hún var líka alltaf svo glöð að sjá mann og var ekkert að fást um þótt stansið væri stutt. Við í Eystra-Geldingaholti minn- umst Ingu frænku með virðingu og þökk fyrir allt sem hún kenndi okk- ur og áratuga umhyggjusemi. Árdís Jónsdóttir. Inga föðursystir mín og velgjörð- arkona er látin. Hún var stórbrotin manneskja og hafði rík áhrif á mig og sennilega flesta sem þekktu hana. Hún var næstelst barna ömmu og afa en pabbi var árinu eldri og systurnar Guðrún og Hrefna litlu yngri. Mig grunar að Inga hafi snemma reynt að vera ekki eftirbátur bróður síns, hvorki til orðs né æðis. Milli þeirra var sterkur þráður virðingar og vænt- umþykju þó þau gætu deilt hressi- lega um málefni. Þegar ég var í menntaskóla bjó ég hjá þeim Ingu og Stefáni á Sunnuveginum. Þar var mér ekki í kot vísað. Inga fóðraði mig á hollum og góðum mat og flutti fyrirlestra um næringar- og heilsufræði og pólitík. Ég var misupplögð að hlusta þá, en þessi erindi höfðu þau áhrif að ég hef nú endurflutt þau að hluta á mínu heimili. Stefán sagði mér sögur af lífi stráksins af Jökuldal sem fór suður í skóla og síðan út til Kaupmannahafnar. Þau hjónin áttu afar gott bókasafn enda víðlesin bæði og naut ég góðs af því. Heim- ilið var einfalt en glæsilegt, hverj- um hlut valinn staður af smekkvísi og vel öldum inniblómum sömuleið- is. En það voru ekki heimilisstörf sem heilluðu Ingu, hún vann þau hratt og vel og sneri sér síðan að öðru sem veitti henni meiri unun. Hún ræktaði garða og skóga, las Laxness og fleiri snillinga, sótti menningarviðburði og fyrirlestra og spilaði bridge. Árið 1969 hóf hún skógrækt í gilinu neðan bæjarins heima í Geld- ingaholti. Svæðið var girt undir stjórn og auðvitað með fullri þátt- töku Ingu og hefur sú girðing staðið betur en aðrar girðingar sem vitað er um í sjö sólkerfum. Gilbletturinn hlaut nafnið Bláland og smám sam- an varð það að ævintýralandi. Lítið hús var flutt á staðinn sem byggt var við eftir þörfum. Gilið var brú- að, pyttir grynnkaðir með stórgrýti, lagðir göngustígar og byggt verk- færahús. Á útmánuðum sáði hún birkifræjum og kom þeim fyrir í gluggunum á Sunnuveginum svo heimilið líktist gróðrarstöð. Fram- tíðarland þessara litlu lífvera var svo í Blálandi og í skóginum hennar við Kálfá, þar sem Inga nam land seinna eða hjá vinum sem fengu þau að gjöf. Þar vaxa þau enn, stór og stæðileg tré sem bera fóstru sinni fagurt vitni. Inga og Stefán undu sér vel í Blá- landi og voru þar mestan hluta hvers sumars og oft var dótturdótt- irin Inga Björg með þeim. Stefán sagði reyndar að Inga væri í „ak- korði“ í skóginum frá 7 á morgnana til 11 á kvöldin! Vafalítið hefur hún endað daginn á lestri góðrar bókar eða fræðirita. Hún hafði ekki ánægju af aðgerðarleysi. Mér líður ekki úr minni eitt atvik þegar ég var að lesa undir próf inni í stofu á Sunnuveginum í byrjun desember. Það var komin hláka eft- ir snjógang og krapi á götum. Þá byrjaði að leka í einu horni stof- unnar. Ég lét Ingu vita en áður en við varð litið var hún, þá komin yfir sextugt, komin upp á þak á þessu tveggja hæða húsi að kanna hvað olli lekanum. Þegar við fjölskyldan fluttum austur í Tröð mætti Inga með rafmagnsborvél og setti upp hillur í búrið. Þannig var Inga. Hún gat flest sjálf, hvort sem það var að laga þök, smíða brýr eða kofa, sauma föt, binda inn bækur, útbúa góða veislu eða rækta skóga. Allt af eldmóði og krafti en jafnframt af vandvirkni. Bláland og Geldingaholt voru henni kærari en aðrir staðir, þar liggja rætur okkar fólks, mann fram af manni. Þegar vindar blása um Hreppinn get ég áfram fundið skjól í skógunum sem hún ræktaði fyrir sig og framtíðina og hugsað með hlýju til einstakrar frænku sem ég á margt að þakka. Sigþrúður Jónsdóttir. Inga var ekta manneskja og öll- um eftirminnileg sem henni kynnt- ust. Hún kom til dyranna eins og hún var klædd. Ég kynntist Ingu nokkuð þegar systir mín gerðist tengdadóttir hennar fyrir 35 árum. Inga var grannvaxin og föl á litaraft með þykkt brúnt hár, mjög kvik í hreyfingum og oft ofursnögg að af- greiða málin. Hún var bæði fljót að tala og hugsa og stundum átti mað- ur fullt í fangi með að fylgjast með. Hvort sem verkefnin voru stór eða smá var allt lagt undir og aldrei deilt um að bestu gæði skyldu nást. Stærðar skógar voru ræktaðir sem bæði samanstóðu af trjám og vin- um, og fáir hafa líklega dýrkað og dáð tengdadóttur sína meira en hún gerði. Við stóra tengdafjölskyldan fórum heldur í engu varhluta af því. Inga fylgdist grannt með okkur öll- um, tók virkan þátt í okkar fjöl- skyldulífi í gleði og sorg, skaut skjólshúsi yfir sum okkar og fylgd- ist grannt með hverjum og einum. Hún varð einnig einstakur vinur foreldra okkar. Með þessum fátæklegu orðum þökkum við fjölskylda Mörtu sam- fylgdina við skemmtilega og mjög sérstaka manneskju og sendum okkar bestu hugsanir til fólksins hennar. Fyrir hönd fjölskyldunnar í Brekkugerði 4, Unnur. Ég ólst upp hjá Ingu og Stefáni á Sunnuveginum. Ég kom þegar ég var 7 ára og ég vildi eftir það hvergi annars staðar vera. Ég ólst upp við öryggi og að maður ætti að standa sig í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur. Elsku Inga, þú kenndir mér svo margt. Ég man þegar þú kenndir mér að lesa og við lásum saman Gagn og gaman. Þú kenndir mér ekki bara að lesa, heldur líka að lesa góðar bækur og njóta þess. Þegar þér fannst að ég læsi of mikið af stelpubókum 12 ára gömul þá fann ég Barn náttúrunnar og Sálminn um blómið á náttborðinu mínu. Þá bara las ég þær líka, svona allavega til að það væri alveg ljóst að ég læsi ekki bara stelpubækurnar. Ég man að þú varst alltaf úti í garði á Sunnuveginum og garðurinn skipti litum allt sumarið. Á vorin byrjuðu blómin að blómstra og þú valdir tegundir þannig að garðurinn var í blóma langt fram á haust. Þú kenndir mér fleira en að lesa, þú kenndi mér að njóta náttúrunnar og að rækta tré. Inga var frum- kvöðull í trjárækt, ræktaði birki upp af fræjum alla mína barnæsku. Við kölluðum trén hennar Ingub- irki. Ég sá oft um að vökva birkið í gluggunum sem var afar frekt á at- hygli og mátti alls ekki þorna. Stefán orti um birkið sem óx upp í stofugluggunum: Þið eruð sannlega orðin mörg með árunum gluggabörnin. Þið breytið með tímanum hrjósturhörg í hýra skóga sem gefa björg og verða gróðrinum vörnin. Eflaust mun þrotlaus elja og starf að endingu klæða landið. Samstillt átak er allt sem þarf úthald og bjartsýni þegið í arf hvar í stétt sem þið standið. Núna áratugum síðar eru þessi gluggabörn orðin að stórum trjám í Blálandi sem bæði skýla fyrir vindi og gleðja augað. Þú kenndir mér hvernig á að gróðursetja, gera holu á réttan hátt, nota passlega mikinn skít til áburðar, dreifa út rótunum, þjappa að plöntunni og setja síðan þökuna á hvolf við hliðina til skjóls. Mín tré eru að vísu ekki orðin mjög stór en ég veit að þau verða stór eins og þín. Þú kenndir mér líka að borða hollan mat. Þú eldaðir mjög góðan mat og vandaðir til innkaupa. Ég lærði að smjörlíki væri óhollt og að hvítur sykur væri bara spari. Ég lærði líka að súkkulaði væri ágætt í hófi og að dökkt suðusúkkulaði væri allra best. Við eigum það þér að þakka að við erum öll komin með aðsetur í sveitinni, Hrafnhildur, Siggi og ég. Þú sagðir svo oft síðustu ár að þú værir óskaplega ánægð með að vita af okkur öllum fyrir austan. Þú sagðir mér líka oft hvað þú værir ánægð með að ég kom til þín, og það er gagnkvæmt. Hafdís. Það eru veðrahljóð á glugga. Gluggabörnunum er samt rótt. Þau una hag sínum vel í hlýrri stofu og snúa sér á móti ylgeislum hækkandi sólar. Kjurr á sinni rót vaxa þau og dafna. Í fyllingu tímans eru þau svo gróðursett og færð út á berangur íslenskrar náttúru. Og verða þar tré sem standa af sér vetrarstormana, veita skjól og stöðva eyðinguna og þakka fyrir fóstrið allt. Inga frá Geldingaholti kom mörgum glugga- börnum til þroska með ódrepandi elju og bjartsýni ræktunarmanns- ins. Hún breytti örfoka mold í frjó- sama jörð. Okkur sem áttum því láni að fagna að kynnast þeim heiðurshjón- um Ingu og Stefáni býr þakklæti efst í huga fyrir ógleymanlega og dýrmæta samfylgd. Þau tóku okkur og börnum okkar af mikilli hlýju og umhyggju þegar leiðir okkar lágu fyrst saman austur í hreppum fyrir rúmum þremur áratugum. Stefán háttvís og prúður og Inga fljóthuga og verkmikil, bæði skemmtileg og höfðingjar heim að sækja. Og marg- ar birkiplönturnar sem hún ræktaði af fræi og kenndar voru við fóstru sína voru okkar færðar ásamt hvatningarorðum og hollráðum sem reyndust vel. Inga hafði mikla menntunarþrá. Hún var bráðgreind og slökkti fróð- leiksþorstann eftir því sem kostur var á með lestri góðra bóka og fjör- miklum samræðum. Smekkvís fag- urkeri og unnandi listar og lands. Hún hafði sterkar skoðanir á mönn- um og málefnum og ríka réttlæt- iskennd, orðheppin, hreinskiptin og svipmikil eins og hún átti kyn til. Síðustu árin haustaði að í lífi Ingu. Kraftarnir voru þverrandi og krydd tilverunnar dofnaði smátt og smátt. Hún varðveitti samt vel sjálfsvirðinguna sem auðkenndi hana frá upphafi. Hún hafði mikinn metnað fyrir öllu sínu fólki og var stolt af því að sjá drauma sína ræt- ast í börnum sínum og afkomend- um. Við biðjum Hrafnhildi, Sigurði og Hafdísi og fjölskyldum þeirra allrar blessunar. Eitt lítið frækorn geymt í grafarbeði það verður eik sem vex í himinsgleði. (Valdimar Briem) Bjarnheiður og Sigfinnur. Enn fækkar í okkar pottflokki í Sundlaugunum í Laugardal. Í þetta sinn kveður okkar góða vinkona Inga Ólafsdóttir frá Geldingahol0ti. Hún fyllti lengi okkar flokk með miklum ágætum og verður seint fundinn hennar jafningi til orðs og æðis. Enda hafði Indriði fyrir löngu hafið hana til varaforingjatignar, sem engum öðrum hefur hlotnast. Inga var mikill persónuleiki, sem hafði skoðanir á þeim málum sem hún kærði sig um. Og oftar en ekki voru skoðanir hennar frá öðru sjón- arhorni en flestir aðhylltust, svo hinir vísustu menn urðu tíðum klumsa við stutt skeyti frá henni. Hennar áhugasvið lágu oftar annars staðar en við dægurþrasið og póli- tíkina, sem pottfélagar eru hver öðrum snjallari í. Eiginlega merki- legt hversvegna margir ráðamenn þjóðarinnar gerðu þær vitleysur sem þeir gerðu þegar þeir gátu komið við hjá okkur og fengið leið- beiningar hjá okkur. Ekki er að efa, að Inga hefði getað sparað þeim margt gönuhlaupið, svo glöggt sem hún vissi marga þá hluti sem hún kærði sig um að vita. Inga var hinsvegar fremur rækt- unarkona með græna fingur heldur en höfuðsetin af þeirri áráttu að hafa sífellt vit fyrir öðrum. Hún tók hrjósturlönd í fóstur og skilaði þeim sem iðjagrænum skógarlundum. Hún fór eins að með börn. Margt stórmenni á henni skuldir að gjalda fyrir áhrifin af útgeislun hennar. Hún var forkur duglegur og ekkert var henni ómögulegt án þess að geta ausið út fé. Hún notaði eigin hendur og hugvit til að komast þangað sem hugur hennar stóð til. Til verka hennar Ingu Ólafsdóttur sér víða stað, svo sem í Laugarásn- um, við Elliðavatn og austur í Geld- ingaholti. Auk þess var hún óspör til kærleiksverka, sem vinir hennar gleymdu aldrei. Trygglyndi hennar og umhyggja fyrir hennar fólki, skyldu sem óskyldu, var ómæld. Hún gat rokið upp sem hvirfilbylur ef einhver talaði ekki nógu virðu- lega um „hennar fólk“. Og ekki tal- aði hún sjálf illa um fólk, hvar í flokki sem það stóð. Hún sá ávallt hið jákvæða hjá manneskjunni en þagði helst um það sem miður fór ef hún komst hjá því. Þetta er nokkuð sem mörgum pottverjum gengur fremur illa að halda, þó þeir séu all- ir af vilja gerðir þegar þeir halda að heiman. Hún tíndi gjarnan fram mannkosti þeirra pólitísku smala- manna, sem lágu best við höggi þeirra Hávarssona þá stundina. Þoldu sumir illa að heyra slíkt um svo bersynduga menn. Fyrir þetta staðsettu margir hana vinstramegin við miðju og má vera satt. Inga Ólafsdóttir var glæsileg kona og var víst leitun á hennar jafningjum í blóma lífsins. Í hærra meðallagi var hún og spengileg á velli og í framgöngu. Flest lék í hennar höndum sem hún var óspör að nota til að bæta heiminn. Hún var gæfukona í einkalífi sínu, átti góðan mann hann Stefán Björnsson í Mjólkursamsölunni og eignaðist börn og buru. Hún trúði á mátt sinn og megin og að hver skyldi sinnar gæfu smiður vera eftir því sem föng stæðu til. Hún var víðlesin og vel að sér. Ógleymanlegt er þeim, sem sóttu sjötugsafmæli hennar að heyra vitnisburði um hversu marga hennar kærleiksfaðmur hafði snort- ið um dagana. Síðustu árin var af henni dregið og strjáluðust þá sund- ferðir. Við hjónin þökkum Ingu Ólafsdóttur frá Geldingaholti fyrir áralanga tryggð og hlýju við okkar fólk. Sundfélagarnir sakna vinar í stað. Hún var í raun meiriháttar. Halldór Jónsson. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 47 ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs sonar míns, bóður okkar og mágs, PÁLS ÞÓRÐARSONAR, Flétturima 11, Reykjavík. Þórður Pálsson, Elín Þórðardóttir, Reinhold Kristjánsson, Steinunn Þórðardóttir, Hrafn Bachmann, Aðalsteinn Þórðarson, Guðrún Jóhannesdóttir, Kjartan Þórðarson, Helga Kristín Einarsdóttir, Gunnar Þórðarson, Hafdís Kjartansdóttir. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, LILJU ÁRNADÓTTUR, Smáratúni 19, Selfossi. Loftur Jóhannsson, Jónína Loftsdóttir, Haukur Stefánsson, Jóhann B. Loftsson, Elfa Eyþórsdóttir, Gíslunn Loftsdóttir, Hermann Bragason, Heimir S. Loftsson, Stefanía M. Sigurðardóttir Svana Sigtryggsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.