Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 60
60 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Sótsvartar hvalveiðar
SÍÐUSTU daga hafa loftlags-
breytingar af mannavöldum verið
mjög til umræðu víða um heim
sérstaklega eftir útgáfu Stern-
skýrslunnar svokölluðu.
Í ljósi þessa er athyglisvert að
sjá í Morgunblaðinu sunnudaginn
5. nóvember á bls. 55 mynd sem
getur kallast táknræn fyrir stefnu
íslenskra stjórnvalda í loftslags-
málum. Myndin er skýr og einföld
túlkun þessarar stefnu. Myndin
sýnir Hval 9 við bryggju í Hval-
firði spúandi svörtum reyk upp í
veðurblíðuna. Þessi gamli gufu-
dallur brennir um 30 tonnum af ol-
íu á sólarhring til að knýja gufu-
vélar sínar. Hver langreyður gefur
af sér um 30 tonn af kjöti. Hver
veiðiferð í haust hefur varað í um
það bil tvo sólarhringa, svo gera
má ráð fyrir að til að koma einum
hval til hafnar hafi dallurinn þurft
að brenna um 60 tonnum af olíu.
Já, um 60 tonn af olíu til að sækja
um 30 tonn af hvalkjöti.
Nú má gera ráð fyrir út frá ein-
földum brunaformúlum kolvatns-
efna (C-H sambanda) að við bruna
eins kg af olíu myndist um 3 kg af
koldíoxíði. Það þýðir að fyrir hvert
kg af langreyðarkjöti hafi Hvalur
9 losað um 6 kg af koldíoxíði út í
andrúmsloftið. Þessar veiðar eru
kallaðar sjálfbærar. Það kann að
vera að hvalastofnarnir við Ísland
þoli einhverja veiði, en frá orku-
og mengunarsjónarmiði geta þær
aldrei talist umhverfisvænar.
Valgeir Bjarnason
Jólin koma
NÚ ER jólastressið byrjað að
plaga marga. Ég vil benda fólki á
að vera ekki of stressað. Ekki vilj-
um við gleyma hinum sanna jóla-
anda. Sjálf hef ég aldrei séð anda
en tilvist hans er þó raunveruleg.
Þegar ég verð stressuð finnst mér
gott að anda í bréfpoka. Þess
vegna er ég alltaf með einn slíkan
með mér þegar ég kaupi í jólamat-
inn og í jólaumferðinni. Vil ég ráð-
leggja öðrum að gera slíkt hið
sama. Að lokum vil ég taka undir
það sjónarmið Víkverja sem birtist
í blaðinu 12. ágúst á þessu ári um
að ostur er of dýr á Íslandi.
Amma Karlotta.
Hvað er þetta?
NÚ ER mikið sótt að þeim Baugs-
feðgum Jóhannesi og Jóni Ásgeiri.
En það virðist gleymast í um-
ræðunni að þeir færa okkur jóla-
matinn. Eða ætlar fólk að svelta á
sjálfum jólunum? Það styttist í að
þau gangi í garð. En kannski er
ríkissaksóknari og handbendi hans
bara jólasveinar. Hvað er þetta?
Maður spyr sig.
Fyrrum bóndi
Dýrahald
PJAKKUR er 4 mánaða kis-
ustrákur sem hvarf að heiman á
mánudagsmorgun. Hann er hvítur
með svart skott, ómerktur en með
bláa ól með bjöllu. Hann hvarf við
Freyjugötu í miðbænum. Hans er
sárt saknað. Ef þú finnur hann
vinsamlega hringdu í síma 822-
4451.
Tapað/fundið
GULLKROSS fannst í Lækjasm-
ára í Kópavogi.
Upplýsingar í síma 564 5861,
eða 6595861.
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90ára af-mæli.
Mánudaginn 20.
nóvember næst-
komandi verður
níræður Halldór
Jónsson frá
Garpsdal, Álfa-
skeiði 64 E5,
Hafnarfirði. Í
tilefni þessara
tímamóta bjóða Halldór og stjúpbörn
hans ættingjum og vinum til afmæl-
isfagnaðar í hátíðarsal íþróttahússins á
Álftanesi laugardaginn 18. nóvember
nk. frá kl. 15–18.
90ára af-mæli. Í
dag, 16. nóv-
ember, verður
níræð Jórunn
Andrésdóttir,
(Lóa í Hellu-
koti). Af því til-
efni tekur hún á
móti gestum á
heimili dóttur
sinnar, Suðurhólum 6, frá kl.16 föstu-
daginn 17. nóvember.
Víkverji er nýkom-inn erlendis frá,
það er svo sem ekki í
frásögur færandi nema
Víkverji var minntur
þar á hvað þjónusta á
kaffihúsum, skemmti-
og veitingastöðum er
yfirhöfuð léleg á Ís-
landi.
Á öllum kaffihúsum
sem Víkverji fór á er-
lendis var meðalaldur
þjónanna líklega um
þrjátíu ár og mátti sjá
hann eldri á mörgum
stöðum. Á fínum sem
ófínum stöðum voru
þjónar klæddir í svart-
ar buxur, skyrtu og með hreina
svuntu. Þjónustan var síðan af-
skaplega góð og vingjarnleg og metn-
aður lagður í allt sem borið var á
borð.
Hér á landi er þjónustuleysi á
mörgum stöðum. Þjónar hafa yfirleitt
lítinn áhuga á starfi sínu, eru í galla-
buxum og jafnvel með bert á milli eða
í slitnum strigaskóm, bjóða varla góð-
an daginn, eru oft og iðurlega jórtr-
andi tyggjó og sjaldan yfir tuttugu
ára. Viðskiptavinir fá oft á tilfinn-
inguna að þeir séu að trufla þjóninn
með því að biðja um aðstoð og að
þjónar mundi borðtusku og þurrka
almennilega af borði er orðin sjald-
gæf sjón. Þjónar sjást líka oft taka
spjall við annan þjón
fram yfir að sinna starfi
sínu. Þetta eiga staðir
hér á landi sameiginlegt
hvort sem þeir eru dýrir
eða ódýrir.
Víkverji þolir líka
ekki þegar hann fer út
að skemmta sér hvað
það er lítill metnaður
lagður í að laga drykki,
áfenga sem óáfenga.
Það er eins og gert sé
ráð fyrir að það séu
hvort sem er allir orðnir
það drukknir að þeim sé
alveg sama hvernig
drykkurinn sé lagaður á
meðan hann sé áfengur.
Síðan þarf að borga okurverð fyrir
ósköpin.
Góð þjónusta á Íslandi er orðin svo
sjaldgæf að Víkverji verður stundum
undrandi þegar hún á sér stað.
Það gerðist reyndar um daginn
þegar Víkverji fór á Grillhús Guð-
mundar í Tryggvagötu, þar var tekið
vel á móti honum af snyrtilegum
þjóni sem var í senn hress, kurteis og
tyggjólaus. Víkverji varð svo ánægð-
ur með þjónustuna að hann hefur
mælt með Grillhúsinu við marga síð-
an.
Staðir ættu að hugsa út í það að
hver og einn þjónn er ímynd út á við
og getur haft mikil áhrif á aðsókn og
innkomu.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er fimmtudagur
16. nóvember, 320. dag-
ur ársins 2006
Orð dagsins : En hann frelsar hinn bágstadda með
bágindum hans og opnar eyru þeirra með þreng-
ingunni. (Jobsbók 36, 15.)
WWW.HASKOLABIO.ISSTÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS HAGATORGI • S. 530 1919
BESTA MYND
MARTINS SCORSESE
TIL ÞESSA
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL
Varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
eeee
Davíð Örn Jónsson – Kvikmyndir.com
eeeee
Hallgrímur Helgason
– Kastljósið
eeee
H.S. – Morgunblaðið
eeee
DV
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
MÝRIN kl. 7 - 9 - 10:15 B.i. 12.ára.
FLUGSTRÁKAR kl. 6 - 9 B.i. 12.ára.
HINIR FRÁFÖLLNU kl. 10 B.i. 16.ára.
SÍÐASTI KOSSINN kl. 8 B.i. 12.ára
DROTTNINGIN kl. 5:50 B.i. 12.ára.
BÖRN kl. 6 - 8 B.i.12.ára.
BJÖRGUNARSVEITIN kl. 10:30 B.i. 12.ára.
INNIHELDUR
MAGNAÐAR
ÁTAKASENUR Í
HÁLOFTUNUM
SEM OG
FRÁBÆRAR
TÆKNIBRELLUR.
FRÁ FRAMLEIÐANDA „THE PATRIOT“ OG „INDEPENDENCE DAY“ MEÐ ÞEIM JAMES
FRANCO ÚR „SPIDERMAN“ MYNDUNUM OG JEAN RENO („THE DA VINCI CODE“).
BÖRN
eee
V.J.V. Topp5.is
eeee
EMPIRE MAGAZINE
eee
L.I.B. Topp5.is
HINIR
RÁFÖLLNUFflugstrákar
Drottninginsíðasti kossinnBJÖRGUNARSVEITIN
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með tveggja
daga fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100 eða sent
á netfangið ritstjorn@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
David Beck-ham hefur
varið miklum
tíma utanvallar í
auglýsinga-
mennsku. Hann
getur líka leyft
sér að brosa út í
annað þegar
hann kannar
stöðuna á bankareikningum sínum á
Netinu. Á þessu ári hefur Beckham
nú þegar fengið um 2,1 milljarð ÍSK
einungis út á andlit sitt. Beckham
hefur auglýst fyrir fyrirtækin Adi-
das, Gillette, Pepsi og Police-
gleraugnaframleiðandann. Þar að
auki hefur síðasta bók Beckhams,
sem gefin er út af hans eigin forlagi,
Brand Beckham, skilað honum væn-
um fúlgum inn á reikninginn. Þrátt
fyrir gott ár hjá fótboltasnillingnum
enska vantar ennþá um 200 milljónir
ÍSK upp á að tekjurnar af auglýs-
ingum séu jafnháar og allt árið í
fyrra.
Fólk folk@mbl.is
Kevin Federline er nú sagðurreyna allt til að fá eiginkonu
sína Britney Spears til að gefa sam-
bandi þeirra annað tækifæri en Spe-
ars sótti nýlega um skilnað.
„Kevin varði
síðustu viku í það
að grátbiðja Brit-
ney um að taka
við honum aftur“,
segir ónefndur
heimildarmaður
breska tímarits-
ins Grazia. „Hon-
um er mjög
brugðið og hann hefur grátið. Hann
segist gera hvað sem er til að fá
Britney aftur. Hann veit að hann er
ekki neitt án hennar og gerir sér
grein fyrir því að hann hefur gert
mikil mistök.“
Kevin er m.a. sagður hafa sungið
ástarsöngva inn á símsvara hennar,
sent henni ástarljóð, konfekt og
blóm. Britney hefur hins vegar ekki
svarað símtölum hans og sagt starfs-
fólki sínu að láta sendingar hans þar
sem hún þurfi ekki að horfa á þær.
Áður höfðu sögusagnir verið í
gangi um að Kevin hefði reynt að
beita Britney fjárkúgun með því að
hóta að birta myndband af þeim
tveimur í kynlífsathöfnum gengi hún
ekki að fjárkröfum hans. Þá hefur
hann sótt um fullt forræði yfir son-
um þeirra tveimur.
O. J. Simpson, sá er sýknaður varaf því að hafa myrt fyrrverandi
eiginkonu sína Nicole og vin hennar
Ron Goldman árið 1994, lýsir því í
viðtali sem Fox-sjónvarpsstöðin á eft-
ir að birta hvernig
hann hefði framið
morðin ef hann
hefði framið þau.
Simpson hefur
alla tíð haldið
fram sakleysi
sínu.
Viðtalið við
Simpson verður
sýnt í tvennu lagi á Fox í þætti sem
ber heitið ,,OJ Simpson: Ef ég hefði
framið það (morðið) hefði ég gert það
svona.“ Ný bók eftir Simpson sem
ber heitið, Ef ég hefði framið það, (If
I Did It), og hefst sala á henni í
Bandaríkjunum 30. nóvember næst-
komandi. Það er útgefandi bók-
arinnar sem tók viðtalið við Simpson.