Morgunblaðið - 16.11.2006, Qupperneq 64
ÍSLENSKRI eldflaug verður skotið á loft frá
Vigdísarvöllum skammt frá Krísuvík á laug-
ardaginn kemur klukkan 13.
Eldflaugin er 2,05 metrar á lengd og er
gert ráð fyrir að hún geti náð 1200 metra
hæð. Það eru þrír ungir menn sem standa
fyrir framtakinu, en þeir heita Smári Freyr
Smárason, Steinn Hlíðar Jónsson og Magnús
Már Guðnason.
Íslenskri eldflaug
skotið á loft
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 320. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
N 18–23 m/s
við A-ströndina,
annars 10–15. Él
norðan- og aust-
anlands, bjartviðri að mestu
í öðrum landshlutum. » 8
Heitast Kaldast
-4°C -15°C
Er sátt í sjónmáli?
Í ljósi nýrrar skýrslu auðlindanefndar efna Samtök iðnaðarins til opins framhaldsfundar
um vernd og nýtingu náttúruauðlinda á Grand Hótel þriðjudaginn 21. nóv. nk.
Sjá dagskrá
á www.si.is
STEFNT er að skráningu Icelandair Group
á Aðallista Kauphallar Íslands fljótlega eftir
næstu mánaðamót.
Skráningarlýsing fyrir félagið verður birt
á fréttavef Kauphallar Íslands næstkomandi
miðvikudag, hinn 22. nóvember. Síðar í
þessum mánuði verður auglýst útboð þar
sem til sölu verða um 18,5% af heildar-
hlutafé Icelandair Group, og verður almenn-
ingi gefinn kostur á að taka þátt í því. Verð-
ið í útboðinu verður hið sama og fjárfestar
og stjórnendur fyrirtækisins hafa greitt í
þeim viðskiptum sem þegar hafa farið fram
með hlutabréf félagsins, sem er 27 krónur á
hlut.
Að sögn Jóns Karls Ólafssonar, forstjóra
Icelandair Group, hefur nú þegar verið
gengið frá sölu um 80% af hlutafé félagsins,
en FL Group seldi allt hlutafé sitt í félaginu
um miðjan síðasta mánuð. Þrír hópar fjár-
festa keyptu þá 50,5% hlut í félaginu og
Glitnir banki ábyrgðist sölu á því sem eftir
var. | Viðskipti
Icelandair á
markað í byrj-
un desember
„WANNABE“, „surf“, „fusion“ og „trendsett-
er“ eru meðal þeirra orða sem Námsgagna-
stofnun auglýsir þessa dagana eftir nýyrðum
fyrir, en í dag er Dagur íslenskrar tungu. En
hvernig verða ný íslensk orð til og hvaðan
koma tillögurnar?
Ágústa Þorbergsdóttir hjá Málstöðinni
segir að íslensk tunga sé mjög frjó og auðvelt
sé að búa til íslensk nýyrði. Og fólki virðist
alls ekki sama um íslenskuna því talsverður
fjöldi nýyrðatillagna berst Málstöðinni. „Þeg-
ar eitthvert nýtt fyrirbæri kemur í sam-
félagið eru miklar vangaveltur um hvaða
nafn skuli gefa því, eins og til dæmis þegar
farsímar komu til sögunnar hér á landi,“ seg-
ir Ágústa og nefnir hvutta, gaspra og örsíma
sem dæmi um þær tillögur sem bárust. | 24
Hvernig „surfar“
fólk á íslensku?
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
BYRJA á að dreifa posum, sem
lesa greiðslukort með örgjörvum,
til íslenskra fyrirtækja á næstu
vikum. Örgjörvavæðing íslenskra
kreditkorta er langt komin, og er
stefnt að því að endurnýja öll deb-
etkort á næsta ári, með það að
markmiði að öll greiðslukort verði
með örgjörva í lok árs 2007.
Kort með örgjörvum eru mun
öruggari en kort þar sem upplýs-
ingar eru geymdar á segulrönd.
Örgjörvakortin eru komin í kast-
ljósið eftir að tveir menn voru
staðnir að verki í síðustu viku þar
sem þeir höfðu komið fyrir búnaði
á hraðbönkum til að lesa upplýs-
ingar um kort.
Slíkir glæpir eru þekktir erlend-
is, en hafa ekki verið algengir hér á
landi. Fyrsta skipti sem búnaður
fannst til að setja á hraðbanka hér
á landi var í janúar sl., og hafa sam-
tals þrjú slík tilvik komið upp hér á
landi.
„Ég tel allar líkur á því að þetta
sé alþjóðleg skipulögð glæpastarf-
semi, ekki einhverjir smákrimmar.
Þeir líta til Íslands eins og annarra
landa. Þetta er búið að vera lengi
erlendis, en við höfum verið bless-
unarlega laus við þetta. En nú er sú
tíð liðin, og við erum bara komin á
kortið,“ segir Bergþóra Karen
Ketilsdóttir, forstöðumaður upp-
lýsingatækni hjá Kreditkorti hf.
Gegnsæ hulsa eykur öryggi
Íslenskir bankar eru farnir að
bregðast við þessari vá, m.a. með
örgjörvavæðingu, en einnig með
því að gera hraðbanka þannig úr
garði að erfiðara sé að koma ólög-
legum búnaði fyrir á þeim. Nú hef-
ur verið sett grænleit, gegnsæ
hulsa framan á kortaraufar margra
íslenskra hraðbanka en hún gerir
svindlurum erfitt fyrir að setja upp
lesara á þeim hraðbanka. Þetta er
aðferð sem hefur verið mikið notuð
erlendis, segir Guðjón Rúnarsson,
framkvæmdastjóri Samtaka banka
og verðbréfafyrirtækja.
Ísland | Miðopna
Brugðist hart við
hraðbankasvindli
Örgjörvakort og búnaður á hraðbönkum gera þrjótum erfiðara fyrir
Í HNOTSKURN
»Þrjú tilvik hafa komiðupp á árinu þar sem
settur hefur verið upp bún-
aður til að lesa segulrendur
og leyninúmer korta í hrað-
bönkum.
»Hægt er að kaupa hlutaaf búnaðinum, sem not-
aður er við svindlið, á Net-
inu, en smíða þarf hluta sér-
staklega fyrir hverja
tegund hraðbanka.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öryggi Þessi búnaður á hrað-
bönkum á að auka öryggi.
♦♦♦
ÞAU létu fimbulfrost og skafrenning ekki á
sig fá, krakkarnir í 4. bekk Grunnskólans á
Ísafirði, þegar þeir mættu á túnið við gamla
sjúkrahúsið á Ísafirði til að prófa gönguskíði.
Leiðbeinandi var Åshild Sporsheim sem er
yfirþjálfari Skíðafélags Ísfirðinga í skíða-
göngu. Harðjaxlarnir í fjórða bekk voru þeir
einu sem brugðu sér á skíði, því almennt
héldu Ísfirðingar sig í hlýjunni innandyra.
Vetrarríki fyrir vestan
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson