Morgunblaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Bíldudalskirkja 100 ára
Í TILEFNI af aldarafmæli Bíldu-
dalskirkju verður messa í Bíldu-
dalskirkju kl. 13 sunnudaginn 26.
nóvember. Biskup Íslands Karl
Sigurbjörnsson heimsækir söfnuð-
inn af því tilefni og prédikar í mess-
unni. Sr. Sveinn Valgeirsson sókn-
arprestur þjónar fyrir altari ásamt
gestkomandi prestum. Organistinn
Marion Worthmann leiðir söng
samkórs kirknanna í Bíldudals- og
Tálknafjarðarprestakalli og Pat-
reksprestakalli.
Að messunni lokinni verður há-
tíðarsamkoma í félagsheimilinu
Baldurshaga í boði sóknarnefndar
sem nýtur tilstyrks kvenfélagsins
Framsóknar og Kvennadeildar
SVFÍ. Formaður sóknarnefndar er
Páll Ágústsson.
Minnt er á söfnunarreikning
vegna afmælisins: Bíldudalskirkja –
Samtaka nú 1118-05-402339, kt.
460169-1439.
Taize-messa Hvalsnes-
og Útskálasafnaða
SUNNUDAGINN 26. nóvember kl.
20:30 verður sameiginleg Taize-
messa Hvalsnes- og Útskálasafnaða
í Safnaðarheimilinu í Sandgerði.
Sungnir verða Taize-söngvar og
flutt hugljúf tónlist á fiðlu og píanó,
einnig verður gengið til altaris.
Fram koma kórar Hvalsneskirkju
og Útskálakirkju. Kjartan Már
Kjartansson leikur á fiðlu og org-
anisti er Steinar Guðmundsson.
Meðhjálparar Sylvía Hallsdóttir og
Helga Magnea Birkisdóttir. Allir
velkomnir og er fólk hvatt til að
mæta og eiga notalega kvöldstund í
skammdeginu við kertaljós og fal-
lega tónlist.
Björn Sveinn Björnsson,
sóknarprestur.
Vivaldi tónleikar í
Fella- og Hólakirkju
NÚ á sunnudaginn, 26. nóvember
kl. 17 heldur kór Fella- og Hóla-
kirkju tónleika í kirkjunni. Með
kórnum leikur kammersveit og ein-
söngvararnir Viera Manasek, Sól-
veig Samúelsdóttir, Guðrún Finn-
bjarnardóttir og Stefán Ólafsson
koma fram. Stjórnandi er kantór
kirkjunnar, Lenka Mátéová.
Á þessum tónleikum mun lista-
fólkið flytja tvö verk eftir ítalska
tónskáldið Antonio Vivaldi. Annars
vegar Magnificat og hins vegar
Gloríu í D-dúr. Bæði þessi verk eru
sérlega falleg og endurspegla vel
fegurð og tign tónverka þessa tón-
listarmanns. Feneyjarbúinn Vivaldi
skildi eftir sig mörg kirkjuleg og
trúarleg tónverk. Sagt hefur verið
um þessi tvö verk sem flutt verða á
sunnudaginn að þau séu í senn
kraftmikil og glæsileg. Þau endur-
spegla gleði og tignarlegan hátíð-
leika og hafa notið vinsælda víða
um heim.
Bæði þessi verk eiga vel við á
þessum árstíma þegar við horfum
fram til aðventunnar. Aðventan á
að búa hug okkar og hjarta undir
komu frelsarans, íhugunartími
undir gleðiboðskap heilagra jóla.
Kór Fella- og Hólakirkju ásamt
hljóðfæraleikurum, einsöngvurum
og stjórnandanum vilja leggja sitt
af mörkum til að bjóða okkur upp á
að hlýða á svo yndisleg tónverk sem
þessi tvö eftir Vivaldi. Með því má
segja að við hefjum gönguna saman
inn í aðventu og rökkur þessa árs-
tíma, tendruð af fegurð og glæsi-
leik tónlistar sem nú og ætíð mun
lyfta hug í hæðir.
Verið innilega velkomin á tón-
leikana í Fella- og Hólakirkju á
sunnudaginn kl. 17. Aðgangseyrir
er kr. 1.000 og verða miðar seldir
við innganginn. Eftir tónleikana
býður kórinn tónleikagestum upp á
kaffi og konfekt í safnaðarhúsinu.
Helgihald í Kolaportinu
HELGIHALD verður sunnudaginn
26. nóvember í Kolaportinu í „Kaffi
Port“. Frá kl. 13.30 syngur og spil-
ar Þorvaldur Halldórsson ýmis
þekkt lög bæði eigin og annarra.
Hann annast einnig tónlistina í
helgihaldinu. Sr. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir prédikar og sr. Bjarni
Karlsson leiðir samveruna. Að
venju er boðið upp á að koma með
fyrirbænarefni og munu Margrét
Scheving og sr. Bjarni Karlsson
biðja með og fyrir fólki.
Í gegnum tíðina hefur skapast
andrúmsloft tilbeiðslu í þessu helgi-
haldi. Þó margt sé um að vera í
Kolaportinu eru ávallt margir þátt-
takendur sem gjarnan fá sér kaffi-
sopa, syngja, biðja og hlusta. Í lok
stundarinnar er gengið um með ol-
íu og krossmark gert í lófa þeirra
sem vilja. Um leið eru flutt bless-
unarorðin: „Drottinn blessi þig og
varðveiti þig.“ Allir eru velkomnir,
Miðborgarstarfið.
Minningartónleikar sr.
Árna í Áskirkju
MINNINGARTÓNLEIKAR Sr.
Árna Bergs Sigurbjörnssonar í Ás-
kirkju á sunnudaginn, 26. nóvem-
ber kl. 17.00. Kór Áskirkju syngur
undir stjórn organista Kára Þor-
mars. Einsöngvari er: Jóhann Frið-
geirsson. Allur ágóði rennur í
gluggasjóð Áskirkju.
Lífsreynsluerindi
í Áskirkju
Í ÁSKIRKJU, síðasta þriðjudaginn í
þessum mánuði 28. nóvember, segja
Brynja Arthúrsdóttir og Ragnar R.
Magnússon frá reynslu sinni af því
að missa sjónina og hvernig á að að-
stoða og umgangast blinda og sjón-
skerta. Erindið hefst kl. 13.00 í
neðri safnaðarsal, eftir hádegisbæn
og súpu sem hefst kl. 12.00. Allir
velkomnir.
Jólahlaðborð Safnaðar-
félags Áskirkju
JÓLAHLAÐBORÐ Safnaðarfélags
Áskirkju verður í efri safnaðarsal
30. nóvember kl. 19.00. Vinsamleg-
ast tilkynnið þátttöku í jólahlað-
borðið í síma Áskirkju: 588 8870
fyrir 28. nóvember.
Gospelmessa og
gospeltónleikar
í Vídalínskirkju
GOSPELMESSA verður í Vídalíns-
kirkju sunnudaginn 26. nóvember
kl. 11. Nýstofnaður gospelkór ungs
fólks sem ber heitið „Gospelkór
Jóns Vídalíns“ kemur fram í fyrsta
skipti. En kórinn er samstarfsverk-
efni FG og Garðaprestakalls. Kór-
stjóri er Þóra Gísladóttir. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir alt-
ari og predikar. Það er einnig
sunnudagaskóli í Vídalínskirkju á
sama tíma undir stjórn Ármanns H.
Gunnarssonar æskulýðsfulltrúa.
Tónleikar gospelkórsins verða
svo í hátíðarsal FG þennan sama
dag kl. 17. Þar mun kórinn koma
fram með hljómsveit. Aðgangur er
ókeypis á tónleikana en áheyrend-
um sem það vilja gefst kostur á að
styrkja kórinn í lok tónleikanna.
Hjóna- og sambúðarmessa verð-
ur þennan sama dag kl. 20 í Bessa-
staðakirkju. Þar munu dr. Berglind
Guðmundsdóttir og dr. Erla Grét-
arsdóttir fjalla um samskipti. Gunn-
ar Gunnarsson leikur á píanó, Tóm-
as R. Einarsson á bassa en Þorvald-
ur Þorvaldsson leiðir sönginn.
Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir
og Friðrik J. Hjartar þjóna fyrir
altari.
Menningarvaka
í Seljakirkju
HIN mánaðarlega menningarvaka
eldri borgara í Seljakirkju verður
þriðjudagskvöldið 28. nóvember kl.
18. Helgistund og léttur málsverð-
ur. Kór Seljakirkju syngur undir
stjórn Jóns Bjarnasonar tónlistar-
stjóra. Dóra Ingvarsdóttir flytur
erindi. Skráning í síma kirkjunnar
567 0110. Sjá heimasíðu kirkjunn-
ar: seljakirkja.is. Allir velkomnir.
Æðruleysismessa
í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
ÆÐRULEYSISMESSA verður í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði annað
kvöld, sunnudagskvöldið 26. nóv-
ember, kl.20 en æðruleysimessur
eru haldnar í kirkjunni einu sinni í
mánuði og alltaf vel sóttar. Þeir
sem standa að æðruleysismessum
eru fulltrúar AA-samtakanna, Al
Anon-samtakanna og einnig fólk
sem tekur þátt í verkefninu And-
legt ferðalag – Sporin 12. Og annað
kvöld bætast við ný samtök OA-
samtökin og sjá um messuna að
þessu sinni.
Um OA-samtökin segir á heima-
síðu samtakanna: „OA-félagar eru
karlar og konur á öllum aldri um
allan heim sem eiga sér þá ósk að
halda sér frá matarfíkn og vilja
bera boðskap samtakanna um bata
áfram til þeirra sem enn þjást. OA
er ekki megrunarklúbbur og setur
engin skilyrði um þyngdartap. Með
því að viðurkenna vanmátt okkar
gagnvart mat, og að kasta frá sér
þeirri hugsun að maður þurfi á
„viljastyrk“ að halda til að stjórna
áti sínu, verður maður fær um að
halda sig frá ofáti – einn dag í
einu.“
Að lokinni góðri stund í kirkjunni
verður boðið upp á kaffi í safn-
aðarheimilinu.
Jafnrétti menntunar
á Fræðslumorgni
í Hallgrímskirkju
Á FRÆÐSLUMORGNI í Hallgríms-
kirkju nk. sunnudag, 26. nóvember,
verður flutt erindi undir yfirskrift-
inni: 95 ár frá jafnrétti til náms,
námsstyrkja og embætta. Þar mun
Valborg Sigurðardóttir lýsa að-
draganda þess að íslenskar konur
fengu jafnan rétt á við karla til
náms, styrkja og embætta árið
1911. Valborg er uppeldis- og
menntunarfræðingur, fyrrum
skólastjóri Fósturskóla Íslands og
höfundur bókarinnar „Íslenska
menntakonan verður til“ sem kom
út á fyrra ári. Allt áhugafólk um
fræðslumál og jafnrétti er velkomið
á Fræðslumorgun í suðursal Hall-
grímskirkju, en þetta er sá síðasti á
þessu misseri. Erindið hefst kl. 10
og því lýkur með molasopa fyrir
barnastarf og messu kl. 11.
Þar predikar sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson og þjónar ásamt sr. Birgi
Ásgeirssyni og hópi messuþjóna.
Sönginn leiða félagar úr Mótettu-
kórnum.
Ensk messa er í kirkjunni kl. 14 í
umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar
og organisti í báðum messum er
Björn Steinar Sólbergsson.
Tómasarmessa
í Breiðholtskirkju
ÞRIÐJA Tómasarmessan á þessu
hausti verður í Breiðholtskirkju í
Mjódd sunnudagskvöldið 26.
nóvember kl. 20.
Tómasarmessan hefur unnið sér
fastan sess í kirkjulífi borgarinnar,
en slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu níu árin og verður
sami háttur hafður á í vetur.
Framkvæmdaaðilar að þessu
messuhaldi eru Breiðholtskirkja,
Kristilega skólahreyfingin, Félag
guðfræðinema og hópur presta og
djákna.
Tómasarmessan einkennist af
fjölbreytilegum söng og tónlist,
mikil áhersla er lögð á fyrirbæna-
þjónustu og sömuleiðis á virka þátt-
töku leikmanna. Stór hópur fólks
tekur jafnan þátt í undirbúningi og
framkvæmd Tómasarmessunnar,
bæði leikmenn, djáknar og prestar.
Sr. Garðars Svavars-
sonar minnst
í Laugarneskirkju
FIMMTUDAGINN 30. nóvember kl.
14:00 verður samvera eldri borgara
í Laugarneskirkju helguð minningu
sr. Garðars Svavarssonar fyrrum
sóknarprests, en hann hefði orðið
100 ára 8. september sl.
Af þessu tilefni mun Þorsteinn
Ólafsson, fyrrum yfirkennari og
sóknarnefndarmaður, flytja ræðu
auk þess sem varpað verður upp
gömlum ljósmyndum frá lífi og
starfi Laugarnessafnaðar á sínum
fyrstu árum. Minning sr. Garðars
er mjög vakandi í huga allra sem
nutu þjónustu hans, jafnt börn sem
fullorðnir, og er þessi samvera opin
fólki á öllum aldri þar sem einnig
gefst gott tækifæri til að rifja upp
hina merku sögu frumherjanna
sem stofnuðu söfnuðinn og reistu
kirkjuna.
Sr. Bjarni Karlsson sóknarprest-
ur mun stýra samkomunni, Gunnar
Gunnarsson mun leika á píanó, en
kaffiveitingar og allur viðbúnaður
er í höndum þjónustuhóps og Gunn-
hildar Einarsdóttur kirkjuvarðar.
Mannréttindi og
náungakærleikur í Frí-
kirkjunni í Reykjavík
Í GUÐSÞJÓNUSTUNNI kl 14:00
skipa fermingarbörn næsta vors
sérstakan sess, þegar þau flytja eig-
in bænir og lesa upp úr Mannrétt-
indasáttmála Sameinuðu þjóðanna
ásamt ritningarlestrum dagsins.
Einnig taka þau á móti kirkjugest-
um í anddyri.
Prestar safnaðarins, Hjörtur
Magni og Ása Björk, þjóna fyrir
altari, en Ása Björk prédikar. Að
venju leiða þau Anna Sigga og Carl
Möller almennan safnaðarsöng, en
sértakir gestir eru systkinin Ágústa
Ebba og Magnús Jóhann sem leika
munu á flygilinn. Andabrauðið er á
sínum stað í lokin.
Ensk messa
í Hallgrímskirkju
Á MORGUN, sunnudag, verður
ensk messa í Hallgrímskirkju kl. 14.
Prestur er sr. Bjarni Þór Bjarna-
son. Organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson. Guðrún Finnbjarnar-
dóttir leiðir almennan safnaðar-
söng.Fimm ára afmæli þessa
helgihalds í kirkjunni, 2001–2006.
Kaffiveitingar að messu lokinni í
suðursal kirkjunnar.
Service in English
SERVICE in English in Hallgríms-
kirkja at 2 pm. Holy Communion.
Celebrant and Preacher: The Revd
Bjarni Þór Bjarnason. Organist:
Björn Steinar Sólbergsson. Lead-
ing Singer: Guðrún Finnbjarnar-
dóttir. Refreshments after the
Service.
Gullna reglan krufin í
Hafnarfjarðarkirkju
GULLNA reglan svokallaða er ein
megin undirstaða kristinnar sið-
fræði og þar með Vestrænnar sið-
fæði. Jesús Kristur setti hana fram í
fjallræðunni er hann sá eini sem
sett hefur hana fram í því formi
sem þar birtist. Með þessari ein-
földu reglu gerði Jesús umhyggj-
una fyrir náunganum að kjarn-
anum í lífi hvers kristins manns.
Í guðsþjónustu næsta sunnudags
í Hafnarfjarðarkirkju verður sér-
staklega fjallað um þessa reglu
Jesú og áhrif hennar á vestræna
menningu. Einnig verður talað um
aðrar útgáfur Gullnu reglunnar og
það sem gerir útgáfu Jesú einstaka
í veraldarsögunni. Prestur er sr.
Þórhallur Heimisson. Við guðsþjón-
ustuna leikur Jóhannes Þorleifsson
á trompet en Antonia Hevesi leikur
á orgel og stjórnar kór kirkjunnar.
Guðsþjónustan hefst kl. 11.
Morgunblaðið/ÓmarBíldudalskirkja