Morgunblaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 31
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 31
LAURA ASHLEY
Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 551-6646
Hellubúar fara ekki varhluta af veðrabrigðum
þessa lands frekar en aðrir þessa dagana. Hér
hefur verið kalt og vindasamt upp á síðkastið
eins og gjarnan á haustin. En ekki hefur komið
snjókorn úr lofti að heita má, sem er andstæða
við veðrið á dögunum þegar allt fór á kaf í snjó á
suðvesturhorninu og náði það allt austur á Sel-
foss en ekki austur fyrir Þjórsá.
Trölladeild var opnuð nýlega við leikskólann
Heklukot á Hellu. Þetta er ný deild í húsi sem
áður hýsti Tónlistarskólann sem aftur flutti í
húsnæði sem áður hýsti skrifstofur sveitarfé-
lagsins. Allir viðkomandi aðilar eru mjög
ánægðir með sínar nýju vistarverur. Þessi nýja
deild í leikskólanum bætti úr brýnni þörf fyrir
leikskólapláss í héraðinu en hún er viðbót fyrir
tæp 20 börn þannig að alls verða í skólanum um
70 nemendur.
Hamingjudagar í nóvember eru þemadagar í
Grunnskólanum á Hellu þar sem hefðbundið
skólastarf er brotið upp og nemendur vinna í
aldursblönduðum hópum að hinum ýmsu verk-
efnum. Í ár var þemað þjóðsögur og þjóðtrú
ásamt ýmsu öðru þjóðlegu. Góðir gestir komu í
heimsókn m.a. Steindór Andersen með rímna-
fróðleik, Guðrún Ásmundsdóttir í tilefni af Degi
íslenskrar tungu og Ómar Diðriksson með tón-
list. Í lokin fór fram trölladansleikur og síðan
tröllarölt um kauptúnið en þá fóru nemendur og
starfsfólk skólans um í búningum með hljóðfæri
af ýmsu tagi og létu til sín heyra.
Komið hefur fram í fréttum að íbúum 9 húsa hér
á Hellu hafi ekki litist á blikuna þegar þeim
barst bréf inn um lúguna hjá sér um að rýma
þyrfti húsnæðið hið fyrsta. Allt var þetta leigu-
húsnæði sem þetta fólk bjó í og taldi allt eðlilegt
um framtíðina í góðri trú um að það hefði tryggt
húsnæði meðan staðið væri í skilum. Í ljós kom
að Íbúðalánasjóður hafði keypt þessar eignir á
nauðungaruppboði til að fá upp í skuldir verk-
taka sem fengið hafði full lán út á húsin til rekst-
urs félagslegra leiguíbúða en ekki greitt af lán-
unum. Að auki hafði hann ekki fullklárað húsin
og má leiða að því líkum að hann hafi fengið
hærri lán en hann notaði í byggingu íbúðanna
og horfið frá þessu verkefni með illa fengið fé ef
svo má að orði komast. Mun álíka slóð eftir hann
liggja víða um land á nokkrum kennitölum. Það
er með ólíkindum að menn geti spilað svona á
annars gott kerfi að öðru leyti, aftur og aftur.
Íbúðalánasjóður hefur ekki heimild til að reka
leiguíbúðir og sagði því fólkinu upp húsnæðinu.
Í þessu tilfelli skarst sveitarfélagið í leikinn og
kom í veg fyrir að fólk væri borið út og er nú
unnið að lausn málsins.
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Tröllabörn Frá þemadögum grunnskólans.
HELLA
Eftir Óla Má Aronsson fréttaritara
Fjallaljónshvolpurinn Baron er
tveggja mánaða gamall. Hann leik-
ur sér gjarnan við jafnaldra sinn,
hvolpinn Basya eins og sést á þess-
ari mynd þar sem þeir eru að bítast
um tuskudýr.
Vinirnir Barona og Basya hafa
verið saman frá fæðingu því tíkin
sem á hvolpinn var líka með ljóns-
hvolpinn Baron á spena þar sem
ljónynjan afneitaði honum.
Skemmtileg
vinátta
Reuters
Kristbjörg F. Steingrímsdóttiryrkir afhendingu um tíðina að
undanförnu:
Þegar skafla háa hleður hríðin freka
þá er eina ráðið reka.
Og bætir við að menn beri sig
samt misvel:
Þó að vetur sanni sig og sýni hrekki
Sunnlendingum ógnar ekki.
Hvað varðar Framsóknar-
maddömuna yrkir Kristbjörg:
Sleggju Framsókn fær ei beitt af fullum
krafti
hausinn missti hún af skafti.
Vilji daman vörnum landsins
vammlaust sinna
verður önnur vopn að finna.
Hreiðar Karlsson yrkir í
framhaldi af prófkjörum:
Frúna gömlu gleður það
glati hún hvoru tveggja.
Löngum fylgjast alveg að
Axarskaft og Sleggja.
pebl@mbl.is
Af tíð og
prófkjörum
VÍSNAHORNIÐ
dýr