Morgunblaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 47
DAGURINN í dag, 25. nóv-
ember, er markverður fyrir
tveggja hluta sakir. Alþjóðlegu
sextán daga átaki gegn kyn-
bundnu ofbeldi verður hrundið af
stað og stendur fram til alþjóðlega
mannréttindadagsins 10. desem-
ber. Átakið tengir á táknrænan
hátt kynbundið ofbeldi
og mannréttindi. Jafn-
framt er í dag liðinn
réttur aldarfjórðungur
frá því að allsherj-
arþing Sameinuðu
þjóðanna samþykkti yf-
irlýsingu þess efnis að
útrýma beri hvers kyns
mismunun og umburð-
arleysi á grundvelli
trúar. Í yfirlýsingunni
er sérstaklega tekið
fram að börn eigi að
vernda gegn hverskyns
misrétti og aðgreiningu
á grundvelli trúar – þau eigi að fá
að alast upp í anda skilnings, vin-
áttu, bræðralags og virðingar fyrir
trú annarra, vitandi að orku sinni
og hæfileikum eigi maðurinn að
verja í þjónustu við aðra. Þessar
hugsjónir bíða þess enn að verða
almennt að veruleika en bahá’íar
styðja þær eindregið og þær eru í
fullu samræmi við þær opinberuðu
kenningar sem Bahá’u’lláh, höf-
undur bahá’í trúarinnar, setti
fram fyrir 150 árum.
Hugmyndir um eflingu al-
mennra lýðréttinda, trúfrelsis og
jafnréttis eru óaðskiljanlegar
átakinu gegn kynbundnu ofbeldi.
Mannréttindi og ofbeldi gegn kon-
um og stúlkum í hvaða mynd sem
er, verða ekki aðgreind. Oft teng-
ist kynbundna ofbeldið trúar-
kreddum og fordómum sem hafa
þrifist í skjóli þeirrar þröngu sér-
trúarhyggju sem allt of oft skrum-
skælir ásýnd gömlu trúarbragð-
anna. Konur búa enn við bág kjör
í mörgum þjóðfélögum þar sem
hefðbundin forréttindi karla eru
varin af fullri hörku. Bahá’í trúin,
yngstu trúarbrögð heims, hefur
ekki farið varhluta af þessu harð-
ræði þar sem hún hefur meðal
annars boðað jafnrétti karla og
kvenna og lagt áherslu á að konur
komist til forystu á öllum sviðum
mannlífsins. Íranska skáldkonan
og bahá’íinn Tahirih, fyrsta konan
í islömsku samfélagi sem felldi
blæjuna opinberlega til að boða
þessi nýju trúarviðhorf, var líflátin
í almenningsgarði í Teheran árið
1848.
Í tilefni dagsins hefur al-
þjóðlega bahá’í samfélagið gefið út
yfirlýsingu sem nefnist: „Laga-
bætur einar nægja ekki: Hlutverk
menningar í baráttunni gegn kyn-
bundnu ofbeldi.“ Þar segir að þótt
staða kvenna að því er varðar læsi
og menntunarskilyrði hafi batnað
víða um heim síðustu 50 árin, hafi
ofbeldi gegn konum breiðst út
eins og faraldur víða um heim.
Þess megi meðal annars sjá merki
í félagslegu hegðunarmynstri, trú-
arofstæki og pólitískum og efna-
hagslegum aðstæðum sem stuðlað
hafa að barnaþrælkun, mansali og
vændi. Samhliða þessu örlar þó
fyrir öðru og uppbyggilegra ferli
sem rekja má til Mannréttinda-
yfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna
og sótt hefur styrk í starf og
aukna samstöðu kvenna. Þeim hef-
ur á síðustu tveimur áratugum
tekist að setja þessi málefni á
dagskrá heimssamfélagsins. Ný-
legar lagasetningar leiða berlega í
ljós hversu almennt
og víðtækt skeyting-
arleysi hefur ríkt
um málefni af þessu
tagi allt fram á síð-
ustu áratugi.
Í tímamótayfirlýs-
ingu SÞ frá 1993 er
kynbundið ofbeldi
skilgreint sem sér-
hver kynbundinn of-
beldisverknaður sem
leiðir til, eða kann
að leiða til, lík-
amlegs, kynferð-
islegs eða andlegs tjóns eða þján-
inga fyrir konur, þar á meðal
hótanir um slíkan verknað, þving-
un eða frelsissvipting, hvort held-
ur er opinberlega eða í einkalífi.
Með þessari skilgreiningu er því
alfarið hafnað að ofbeldi gegn
konum sé einkamál þeirra sem
fremja það eða verða fyrir því.
Heimilið, fjölskyldan, menningar-
aðstæður, hefðir og siðir, eru ekki
lengur nein réttlæting og hafa
ekkert úrskurðarvald í málefnum
sem varða kynbundið ofbeldi. Með
skipun sérstaks skýrslugjafa á
vegum SÞ var enn eitt skref stigið
í viðbót til að vekja athygli al-
þjóðasamfélagsins á margvíslegum
hliðum þessa alþjóðlega vanda-
máls.
Tilgangur og eðli hinna op-
inberuðu trúarbragða er að bæta
líf fólks með andlegum framförum
og trúarsamfélög hafa um allan
heim gegnt mikilvægu hlutverki í
að innræta fólki mikilvæg lífsgildi.
Trúin hefur þannig gegnt lyk-
ilhlutverki í lífi meginþorra alls
mannkyns og verið uppspretta
mestu afreka þess. En henni hefur
einnig verið misbeitt af leiðtogum
og stofnunum sem hafa tekið sér
vald sem þeim var aldrei ætlað.
Afleiðingin er sú að hin stóru
trúarbrögð heims standa sem löm-
uð á þröskuldi nýrrar aldar og
þurfa nú á gjörtækri endurnýjun
að halda. Eitt af lykilatriðum
slíkrar endurnýjunar er að trúar-
leiðtogar játi meginreglu jafn-
réttis fylgi og ljái henni stuðning í
verki.
Það hlutverk trúarbragða að
vinna að siðrænum og andlegum
framförum hefur aldrei verið
brýnna en einmitt nú. Þeirri
skyldu mega forsvarsmenn þeirra
ekki bregðast.
Samfélagsleg
ábyrgð trúfélaga
í baráttunni gegn
kynbundnu ofbeldi
Eðvarð T. Jónsson fjallar
í tilefni dagsins um kyn-
bundið ofbeldi
» Það hlutverk trúar-bragða að vinna að
siðrænum og andlegum
framförum hefur aldrei
verið brýnna en einmitt
nú. Þeirri skyldu mega
forsvarsmenn þeirra
ekki bregðast.
Eðvarð T. Jónsson
Höfundur er bahá’í.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sparisjóðurinn og viðskiptavinir hans sameinast nú um að styrkja samtök sem vinna
að úrbótum í geðheilbrigðismálum. Fjórði hver Íslendingur á við geðræn vandamál að
stríða einhvern tíma áævinni en með réttri meðhöndlun og stuðningi eru yfirgnæfandi
líkur á að fólk nái bata.
Við bjóðum viðskiptavinum Sparisjóðsins að velja eitt af þeim átta félögum sem við
höfum ákveðið að styrkja í ár. Þá mun Sparisjóðurinn greiða 1.000 kr. fyrir hvern þann
viðskiptavin sem tekur þátt. Auk þess geta allir, viðskiptavinir og aðrir, lagt málefninu
lið og bætt við upphæð að eigin vali. Farðu inn á www.spar.is eða komdu í næsta
Sparisjóð og gefðu þinn styrk.
Við erumöll ein stór
geðveik fjölskylda
Fréttir
í tölvupósti