Morgunblaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 34
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
E
ldhúsið er staðsett á efri
hæð hússins í björtu og
opnu rými ásamt stofu
og litlu aflokuðu skrif-
stofuherbergi. Þannig
hefur það þó ekki alltaf verið. „Húsið
var teiknað þannig að svefnherbergið
okkar hjóna átti að vera uppi og
barnaherbergin niðri,“ segir Guðný
þegar hún tekur á móti blaðamanni
og ljósmyndara á köldum nóvem-
berdegi. „Mér fannst það ekki nógu
gott og þá byrjaði þetta brölt á mér.
Þar sem við keyptum húsið rétt áður
en við fengum það afhent varð ég að
vera mjög snögg að segja til um
hvernig ég vildi breyta skipulaginu.“
Niðurstaðan varð sú að halda eld-
húsinu á efri hæðinni en flytja sjón-
varpsherbergi, sem gert var ráð fyrir
á neðri hæðinni, upp. Til að svo mætti
verða var ákveðið að flytja eldhúsið
þannig að innréttingin stóð L-laga á
miðri efri hæðinni. „Það fór þó alltaf í
taugarnar á mér að hafa risa-eldhús-
vegg sem blasti við þegar fólk kom
upp stigann á efri hæðina. Þess vegna
ákvað ég síðar að færa hann og þar
með eldhúsið aðeins til.“ Guðný sýnir
hvernig veggurinn færðist í þremur
áföngum nær núverandi eldhússtæði
og í síðustu breytingunum, sem urðu
á þessu ári hvarf hann alveg. „Þegar
dóttir mín fór að heiman losnaði her-
bergi þannig að við gátum fært sjón-
varpsherbergið niður og breytt
skipulaginu hér uppi. Upphaflega
vildi ég hafa eldhúsið þar sem það er
núna en mér var sagt að það væri
ekki hægt því búið væri að leggja raf-
magnið þannig að það kæmi upp úr
gólfinu og inn í vegginn. Rafmagns-
taflan var staðsett á veggnum og
hana mátti ekki færa. En svo eign-
aðist ég tengdason sem kom eins og
himnasending. Hann er rafvirki og
fannst nú ekki mikið tiltökumál að
breyta þessu.“
Fólki fundist ég klikk
Þrátt fyrir mismunandi staðsetn-
ingu eldhússins í gegnum tíðina hefur
Guðný ekki skipt um innréttingu fyrr
en nýlega heldur færði þá sem fyrir
var einfaldlega til. „Ég var alltaf að
reyna að gera þetta eins ódýrt og
hægt var og notaði því sömu skápana
enda var mjög skemmtilegt að púsla
þessu saman á nýjan og nýjan hátt –
athuga hvar 80 sentímetra skápurinn
kæmist fyrir og svo framvegis. Á sín-
um tíma var þetta reyndar bráða-
birgðainnrétting því við smíðuðum
neðri skápana en efri hlutinn var hvít-
ur skápur sem ég hafði tekið í sundur
og hengt upp á vegg.“
Í ár keypti Guðný svo nýja innrétt-
ingu, í IKEA því, eins og hún útskýrir
hlæjandi, „þá hef ég alltaf reynt að
fara frekar ódýrar leiðir því ég skipti
frekar auðveldlega um skoðun. Ég er
þó nokkuð viss um að nú sé ég komin
með endanlega lausn þótt sennilega
sé enginn annar sannfærður um það.“
Hún hefur enda þurft að sitja undir
stöðugum glósum vina og vanda-
manna um framkvæmdagleðina í
gegn um tíðina. „Fólki hefur hrein-
lega fundist ég klikk og spurt hví í
ósköpunum við flytjum ekki bara í
stað þess að vera að þessu endalausa
veseni. Svo fluttum við til Bretlands
og vorum þar í eitt og hálft ár og þá
var eins og ég öðlaðist uppreisn æru
því Bretar eru á kafi í alls kyns heim-
ilisþáttum, þar sem veggir eru mölv-
aðir niður í stríðum straumum. Ég
kom fílelfd til baka í febrúar síðast-
liðnum og tók eldhúsið aftur í gegn.“
Vildi horfa á sjónvarpið
Guðný viðurkennir að maðurinn
hennar sé löngu hættur að kippa sér
upp við það þótt veggir séu mölvaðir
niður rétt á meðan hann skreppur í
vinnunna. „Í eldhúsi númer tvö opn-
aði ég á milli sjónvarpsherbergisins
og eldhússins því mér datt í hug að
það gæti verið sniðugt að horfa á
sjónvarpið á meðan ég væri að elda.
Ég fæ svona hugmyndir og á til að
framkvæma þær áður en ég leiði hug-
ann að afleiðingunum. Sem betur fer
á ég góða að sem koma og bjarga mér
þegar ég lendi í ógöngum með fram-
kvæmdirnar.“
Hún segir rafmagnsmálin senni-
legustu skýringuna á því hversu seint
gekk að koma eldhúsinu í endanlegt
horf. „Og svo er maður náttúrulega
enginn arkitekt,“ bætir hún hógvær
við. Engu að síður fengu vinahjón
Fjölskyldurými „Ég hafði svolitlar áhyggjur af því að vera með eldhúsið svona opið en það
myndast mjög skemmtileg stemning í kring um eldhúseyjuna. Þegar matur eru allir að spyrja
hvort þeir geti hjálpað til og þannig verður meiri samvera en ella.“
Miðpunktur Fjölskyldan borðar oftast bæði morgun- og kvöldverð við eyjuna en stólar eru við
tvær hliðar hennar. „Ég ætlaði að hafa eyjuna lengri en maðurinn minn gat ekki hugsað sér að
við sætjum öll í beinni röð við matinn.“ Hilmir, 5 ára notar eyjuna þá sem tölvuborð.
Gamalt „Ég fæ svolitla útrás fyrir nýjungagirnina í Góða hirðinum,“ segir
Guðný sem keypti hægindastólinn þar á 3.000 krónur. „Feðgarnir á heim-
ilinu rífast um þennan stól og svo passaði áklæðið svo vel við sófann.“
Eins og
skemmtilegt
púsluspil
Þegar Hrafn Loftsson kemur heim úr vinnu lætur
hann sér ekki bregða þótt einn veggurinn í húsi hans
sé horfinn. Hann er orðinn vanur þessu enda konan
hans, Guðný Eysteinsdóttir listmálari vön að fram-
kvæma hlutina um leið og henni detta þeir í hug. Frá
því að húsið var byggt árið 1999 hefur hún breytt eld-
húsi þeirra hjóna fjórum sinnum.
Í eldhúsi númer tvö opnaði
ég á milli sjónvarps-
herbergisins og eldhúss-
ins því mér datt í hug að
það gæti verið sniðugt að
horfa á sjónvarpið á með-
an ég væri að elda.
lifun
34 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ