Morgunblaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 69 dægradvöl 30-70% AFSLÁTTUR af vönduðum dömufatnaði í dag, laugardag, í Rauðagerði 26 frá kl. 10-18 Rauðagerði 26, sími 588 1259 ÚTSALA – ÚTSALA Verið velkomin 1. g3 d5 2. Bg2 c6 3. Rf3 Bg4 4. 0-0 Rd7 5. d4 Rgf6 6. c3 e6 7. Bf4 Be7 8. Rbd2 0-0 9. h3 Bf5 10. b4 a5 11. a3 Db6 12. Rb3 axb4 13. axb4 Re4 14. Bd2 Db5 15. e3 Rb6 16. He1 Rc4 17. Bf1 Db6 18. Bxc4 dxc4 19. Ra5 Bxh3 20. Rxc4 Dc7 21. Rfe5 f6 22. Dh5 fxe5 23. Dxh3 Rg5 24. Dg4 Rf3+ 25. Kg2 Rxe1+ 26. Hxe1 Hf6 27. Rxe5 Ha2 28. Rf3 Dc8 29. Hh1 Staðan kom upp í Íslandsmóti kvenna sem lauk fyrir skömmu í húsa- kynnum Skáksambands Íslands. Hall- gerður Helga Þorsteinsdóttir (1.765) hafði svart gegn Tinnu Kristínu Finn- bogadóttur (1.370). 29. … Hxf3! 30. Dxf3 Hxd2 svartur er nú manni yfir og með unnið tafl. 31. Dh5 h6 32. Dg6 Bg5 33. He1 Dd7 34. Ha1 Dc8 35. Kf1 Kf8 36. e4 Hd3 37. f4 Be7 38. Hc1 De8 39. Dg4 Hd2 40. Dxe6 Dh5 41. Ke1 De2 mát. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Honolúlú. Norður ♠DG ♥G ♦G1087 ♣ÁK9652 Vestur Austur ♠10 ♠754 ♥108754 ♥K632 ♦KD642 ♦953 ♣104 ♣D83 Suður ♠ÁK98632 ♥ÁD9 ♦Á ♣G7 Suður spilar 7G og fær út tígulkóng. Haustleikar bandaríska bridssam- bandsins standa nú yfir í Honolúlú á Hawaii og er að vanda keppt í mörgum greinum. Fyrsta mót leikanna var kvennatvímenningur. Sigurparið, Rim- stedt og Sivelind frá Svíþjóð, keyrði alla leið í 7G í spili dagsins, sem Rim- stedt tókst að vinna. Hún spilaði laufi á ás í öðrum slag og svínaði strax hjarta- gosa. Það gaf tólfta slaginn og sá þrett- ándi kom með þvingun á austur í laufi og hjarta. Austur gat bjargað sér með því að leggja kónginn á gosann og láta vestur um hjartavaldið, en sú vörn er þung. Reyndar má standa 7G hjálpar- laust með því að bíða með hjartasvín- inguna allt til enda. Þá rennur upp tvö- föld þvingun í áföngum – austur þarf að valda laufið, vestur tígulinn, svo báðir verða að fara niður á tvö hjörtu. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 eftirtektar, 4 þurrka, 7 iðkun, 8 gerj- unin, 9 ferskur, 11 kven- mannsnafn, 13 fall, 14 út- limur, 15 skál, 17 guð, 20 uxi, 22 skvettir, 23 smá, 24 romsan, 25 kaka. Lóðrétt | 1 hagnast, 2 eyddur, 3 hérað í Noregi, 4 naut, 5 hug- laus, 6 hinn, 10 orðum aukinn, 12 kraftur, 13 lík, 15 fallegur, 16 sníkjudýr- ið, 18 er fær um, 19 kind, 20 klukkurnar, 21 slæmt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 hrævareld, 8 endar, 9 yndis, 10 lof, 11 skipa, 13 ilina, 15 lagða, 18 ögnin, 21 nón, 22 brand, 23 gaupu, 24 hirðulaus. Lóðrétt: 2 ruddi, 3 varla, 4 reyfi, 5 loddi, 6 vers, 7 assa, 12 puð, 14 lag, 15 labb, 16 glati, 17 andað, 18 öngul, 19 naumu, 20 naut. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 1 Björgólfur Thor og viðskipta-félagar hafa innleyst 80 millj- arða hagnað með sölu á símafélagi. Í hvaða landi? 2 Hvaða bók er efst á bóksölulistasem Morgunblaðið er byrjað að birta? 3 Gullkindin var afhent við hátíð-lega athöfn í fyrradag. Hvað var valið klúður ársins? 4 Eitt lögregluumdæmi landsinsþykir röggsamara en önnur í baráttunni við umferðalagabrot. Hvaða lögregluumdæmi er það? Svör við spurningum gærdagsins: 1. 110 erlendir fjárfestar hafa keypt hlut í Kaupþing banka í útboði. Hver er forstjóri Kaupþing banka? Svar: Hreiðar Már Sig- urðsson. 2. Ísland er í öðru sæti á lista Economist yfir ríki þar sem lýðræði þykir vera mest. Hvaða ríki er í fyrsta sæti? Svar: Svíþjóð. 3. Skipafélag hefur boðað að það hyggist hefja strandsiglingar eftir áramót. Hvaða félag er þetta? Svar: Atl- antsskip. 4. Nesútgáfa hefur gefið úr bók um færeyska málarann Mikines. Hver er höfundurinn? Svar: Aðalsteinn Ingólfs- son. Spurt er… ritstjorn@mbl.is  PÍANÓSÓNÖTUR Mozarts hafa hvað nýsköpun varðar staðið svolítið í skugganum á píanósónötum Beet- hovens, og ekki nema eðlilegt. Mozart fékkst aðeins við greinina í um 17 ár, helmingi skemur en Beethoven, og naut né heldur góðs af nýjungum rómantíkur. Það má m.a. heyra á hlutfallslega mikilli notkun hans á hefðbundnum herpluðum undirleiks- fígúrum og Alberti-bassa. Engu að síður er vitaskuld urmull af inn- blásnum stöðum í þessum perlum – „brúkunarmúsík af dolfellandi full- komnun“ eins og Christoph Rüger komst að orði. Þær glitra e.t.v. mest fyrir látlausa gegnsæi sitt, þar sem hver einasta feilnóta heyrist í þokka- bót skýrt og skilmerkilega, jafnvel í hröðustu tónarunum. Það er því ekki árennilegt einum manni að ráðast í heildarflutning á öllum 18 sónötum á aðeins tæpum mánuði eins og Miklós Dalmay gerði á mánudagskvöldið var með fyrstu tónleikum sínum af fjórum, enda ábyggilega langt síðan hérlendur pía- nisti færðist síðast það stórvirki í fang – hafi það á annað borð gerzt áður. Og með tilliti til þess hve mikið má læra um túlkun af þessum verkum, ekki sízt þökk sé áðurnefndu gegnsæi, þá gegndi enn meiri furðu að sjá aðeins um hálft hundrað áheyrendur, flesta komna á efri aldur, og varla aukatek- inn píanókennara eða nemanda. Fyrstu þrjár sónötur voru fyrir hlé, og bar þar nokkuð á óeirðarasa í flutningi, einkum í þeim skilningi að oft hressileg tempóin lágu að mestu blýföst fyrir án þess að leyfa músík- inni að „anda“. Gat það á köflum verkað mekanískt, að maður segi ekki svæfandi, t.a.m. í moto perpetuo- kenndum miðþætti F-dúr sónötunnar K280 og lokaþætti þeirrar í B K281. Upphitunarleysi fyrstu verka skilaði sér trúlega í staka loftnótu hér og þar, enda þótt áslátturinn væri í heild perlandi lipur við hæfi og dýnamíkin jafnan sveigjanleg. Syngjandin var frábær í kyrrlátum miðþætti 3. són- ötu (upphafið bar einkennilegan andblæ af miðþætti píanókonsertsins í A-dúr K488), enda fór þar tvímæla- laust hápunktur fyrri tónleikahlut- ans. Samt fannst manni s.s. vanta afger- andi herzlumun skáldskapar í fyrsta hálfleik. Það var því erfitt að trúa eig- in eyrum eftir hlé, og hefði sjónlaus hlustandi mátt halda að allt annar píanisti væri seztur við hljómborðið þegar Miklós hóf 4. sónötu í Es-dúr K282. Hér var nefnilega allt til staðar sem þurfti, og útkoman varð fyrir vik- ið virkilega spennandi þrátt fyrir óvenjuhægan cantabile upphafsþátt. Og þó að spilamennska afgangsins næði varla sömu dýrðardýpt, þá stirndi víða á eldsnarpri fimi í hröðu þáttunum – en ávallt af vammlausum skýrleika og viðeigandi afturheldni þess er kann að láta listina fela listina í anda höfundar. Hér var vel af stað farið, og aug- ljóslega eftir miklu að slægjast á næstkomandi mánudagstónleikum. Vonandi verður það líka til að spyrna fleiri Mozartunnendum upp úr sófa- værð heimilanna. Hin fullkomna brúkunarmúsík TÓNLIST Salurinn W. A. Mozart: Píanósónötur nr. 1–5 í C, F, B, Es & G, K279–83. Miklós Dalmay pí- anó. Mánudaginn 20. nóvember kl. 20. Píanótónleikar Ríkarður Ö. Pálsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.