Morgunblaðið - 10.02.2007, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LANDIÐ
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Ísafjarðardjúp | „Ég er heimamað-
ur, fæddur og upp alinn hér í
Vatnsfirði og þetta er gamli hér-
aðsskólinn minn,“ segir Guðbrand-
ur Vatnsfjörð Baldursson sem tek-
ið hefur við starfi staðarhaldara í
Reykjanesi við Ísafjarðardjúp,
þegar hann var spurður um ástæð-
ur þess að hann hefði tekið að sér
starfið á þessum stað sem ekki er í
alfaraleið.
Einfaldur samningur
Guðbrandur hefur unnið talsvert
við ferðaþjónustuna í Reykjanesi á
undanförnum árum, undir stjórn
staðarhaldara sem stoppað hafa
misjafnlega lengi við. „Ég hef frá
því sagt að ráðningarsamningur
minn sé einfaldur og hann megi
orða í gömlum vestfirskum máls-
hætti: Nýir vendir sópa best en
þeir gömlu þekkja hornin.“
Segir Guðbrandur að það sé nýtt
hjá eigendum eigna og reksturs að
leita til heimamanns og vonar að
það reynist ekki síðra en fá að-
komumenn. Þá segir hann að kröf-
urnar til sín séu nú ekki meiri en í
þessum orðum felist.
Ferðaþjónusta allt árið
Mikið húspláss er í Reykjanesi
þar sem áður var rekinn barnaskóli
og héraðsskóli en það hafi ekki ver-
ið að fullu nýtt síðustu árin. Nú er
þar rekin ferðaþjónusta sem opin
er allt árið, boðin er gisting og veit-
ingar og aðalafþreyingin er göngu-
ferðir og sund í einni af stærstu
sundlaugum landsins.
Að öllu jöfnu er lítið að gera yfir
vetrarmánuðina enda er Reykja-
nes töluvert utan alfaraleiðar.
Breytingar eru þó framundan.
Vegur um bæjarhlaðið
Hafnar eru framkvæmdir við
endurbætur á veginum um Ísa-
fjarðardjúp á þessum slóðum.
Vegagerðin hefur samið við tvö
verktakafyrirtæki, KNH ehf. og
Vestfirska verktaka, um að leggja
nýjan 14,5 km veg sem í stað þess
að fara um Eyrarfjall mun liggja
með ströndinni fram hjá Reykja-
nesi og yfir Mjóafjörð á vegfyllingu
og brú. Þegar vegurinn verður full-
gerður rennur umferðin nánast um
hlaðið í Reykjanesi. Framkvæmd-
um á að ljúka undir lok næsta árs.
Guðbrandur segir að í þessu felist
miklir möguleikar fyrir staðinn.
Hann á þó von á því að áfram verði
lögð áhersla á móttöku hópa, ekki
lausaumferðina, því fólki liggi orðið
svo mikið á að það megi ekki vera
að því að stoppa.
Framkvæmdinni fylgja töluverð
verkefni því starfsmenn verktak-
anna eru kostgangarar í Reykja-
nesi og gista þar einnig. Þeir eru
nú um fimmtán en verða tuttugu til
þrjátíu þegar líður að vori, að sögn
Guðbrands. Með honum vinna
tvær pólskar stúlkur við fyrirtæk-
ið.
Nýr staðarhaldari í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp hefur nóg að gera
„Nýir vendir sópa best en
þeir gömlu þekkja hornin“
Reykjanes Miklar húseignir eru í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp, þar
sem áður voru skólar. Þær eru nú notaðar við rekstur ferðaþjónustu.
Í HNOTSKURN
»Reykjanes kemst í al-faraleið undir lok næsta
árs þegar þjóðvegurinn
verður lagður út fyrir nesið.
»Það mun skapa miklamöguleika fyrir ferða-
þjónustuna sem rekin er á
staðnum.
»Þá fylgja framkvæmd-unum umsvif yfir
dauðasta tíma ársins.
"$ 8. -$
! .
,
.* .
3 #
2 '
#)
Mývatnssveit | Orkugangan 2007 verður
haldin í Mývatnssveit 24. mars næstkom-
andi. Mývetningar standa fyrir atburð-
inum í samvinnu við Landsvirkjun.
Orkugangan er 50 til 60 km fjallaskíða-
ganga milli Kröflu í Mývatnssveit og
Bakka við Húsavík. Leiðin liggur um
Kröflu, Gjástykki, Þeistareyki og Reykja-
heiði sem er sú leið sem orkan í fyrirhugað
álver mun fara eftir. Gengið er um ósnort-
ið land í stórkostlegu landslagi.
Framkvæmd göngunnar er í höndum
heimamanna og mun þar mæða mest á
Ungmennafélaginu Mývetningi og Björg-
unarsveitinni Stefáni. Upplýsingamiðstöð
staðarins leggur líka hönd á plóginn og
þar er unnt að leita upplýsinga.
Gengið á skíðum á
slóðum orkunnar
Ísafjörður | Ísafjarðarbær hefur gert
þjónustusamning við Snerpu á Ísafirði.
Samningurinn gildir um þjónustu við
tölvubúnað
stofnana sveit-
arfélagsins og
hefur í för með
sér hagræði
fyrir Ísafjarð-
arbæ sem fær
faglega ráðgjöf og þjónustu á bestu kjör-
um, segir í tilkynningu.
Í Snerpu vinna níu starfsmenn, hver
með sérfræðiþekkingu á sínu sviði. Þar af
þrír tölvumenn í fyrirtækja- og þjón-
ustudeild, vel þjálfaðir og menntaðir í öllu
sem við kemur rekstri, uppfærslum og
viðgerðum á hvers konar tölvum og al-
mennum tölvukerfum. Fyrirtækið rekur
einnig öfluga netþjónustu- og vefhönn-
unardeild. Þetta þýðir að Snerpa er vel í
stakk búin til að veita Ísafjarðarbæ
örugga og fljóta þjónustu, segir í frétta-
tilkynningu.
Snerpa tekur að
sér þjónustu fyrir
Ísafjarðarbæ
LJÓSMYNDADEILD Minjasafnsins
á Akureyri státar af safnkosti upp á
tvær og hálfa milljónir mynda. Um
margar er ekk-
ert vitað, en í dag
verður opnuð
sýningin Þekkir
þú ... híbýli
mannanna? þar
sem almenningur
er beðinn um
hjálp við að bera
kennsl á hús og
fólk.
Mikið er um
myndir af húsum, m.a. úr safni
Hallgríms Einarssonar og Arthur
Gook, flestar frá Akureyri og úr
Eyjafirði en líka úr öðrum lands-
hlutum, að því talið er, að sögn
Harðar Geirssonar, safnvarðar og
umsjónarmanns ljósmyndadeildar.
Þá verður hægt að skoða myndir af
óþekktu fólki auk möppu með
mannamyndum úr eigu Minjasafn-
ins sem birtust í Degi á árunum
1990 – 2000.
Hörður segir að þegar sé búið að
skrá 90.000 myndir úr safninu,
þannig að mikið verk er enn óunn-
ið. „Við höfum ekki leitað til fólks
áður með þessum hætti en fengum
mjög góð viðbrögð við myndunum
sem birtust í Degi á sínum tíma og
hafa birst í Vikudegi undanfarin
ár,“ sagði Hörður. „Af myndunum
sem birtust í Degi þekktust um 75%
og við erum að fá upplýsingar um
90% þeirra mynda sem nú eru að
birtast í Vikudegi. Þetta er mjög
góð aðferð og ekki síður skemmti-
leg. Ég er líka sannfærður um að
fólk hefur gaman af þessu; ég fór á
svona greiningarsýningu í Þjóð-
minjasafninu í haust og sá þá mynd
af Borgarbíói nýju, mynd sem ég
hafði aldrei séð áður og það var
ótrúlega skemmtilegt.“
Sýningin hefst kl. 14 í dag og
stendur til 28. apríl.
Almenningur beri
kennsl á fólk og hús
Hörður
Geirsson
MÁLÞING verður
haldið í dag í Ak-
ureyrarAkademí-
unni til þess að
halda upp á tvö-
föld tímamót í
sögu kvennabar-
áttunnar á Ís-
landi; 150 ára
fæðingarafmæli
Bríetar Bjarnhéð-
insdóttur og 100
ára afmæli Kvenréttindafélags Ís-
lands. Málþingið, sem stendur frá
kl. 14 til 17, er haldið í samstarfi við
Rannsóknastofu í kvenna- og kynja-
fræðum, Kvennasögusafn Íslands
og Kvenréttindafélag Íslands.
Margvísleg erindi verða flutt á
málþinginu sem verður í gamla
Húsmæðraskólanum, Þórunn-
arstræti. Það er öllum opið og að-
gangur ókeypis.
Veisla og vísindi
HÁTÍÐIN Veisla og vísindi verður
haldin í dag í Háskólanum á Ak-
ureyri kl. 11–16 á Sólborg og í
rannsóknarhúsinu Borgum. Bæði
verður kynnt hið margvíslega
framboð á námi í skólanum og auk
þess er hátíðin fyrsti liður í afmæl-
isdagskrá skólans, sem verður 20
ára í september. Þorsteinn Gunn-
arsson rektor mun kynna afmæl-
isdagskrána nánar í anddyri Borga
kl. 11 en hún stendur allt árið
Allir eru velkomnir og foreldrar
sérstaklega hvattir til að koma með
börn sín og leyfa þeim að fara í
könnunarleiðangur um háskólann.
Bæjarráði líst
vel á Norðurveg
BÆJARRÁÐ Akureyrar fagnar
hugmyndum sem kynntar voru í
vikunni um Norðurveg. „Fram-
kvæmdin sem slík styttir vega-
lengdir milli tveggja stærstu og
fjölmennustu svæða landsins frá
50–150 km eftir því við hvaða
staði er miðað. Þessi stytting á
leiðinni þýðir mun minni olíu-
eyðslu, minni mengun og þar með
minna útstreymi gróðurhúsa-
lofttegunda. Þar sem Kjalvegur er
hugsaður sem verkefni í einka-
framkvæmd mun það ekki hafa
áhrif á röð annarra brýnna fram-
kvæmda í samgöngumálum. Ef af
verður er áríðandi að endurbygg-
ing á veginum um Kjöl verði fram-
kvæmd með þeim hætti að raski
verði haldið í algjöru lágmarki og
að við hönnun vegarins verði um-
hverfisvernd höfð að leiðarljósi,“
segir í bókun bæjarráðs.
Kammersöngur
KAMMERKÓR Akraness heldur
tónleika í Akureyrarkirkju í dag
kl. 16. Kórinn, sem skipaður er 14
manns, var stofnaður í ársbyrjun
2004 og eru flestir meðlimir einn-
ig félagar í Kór Akraneskirkju.
Á efnisskrá tónleikanna í Ak-
ureyrarkirkju eru veraldleg lög
frá Norðurlöndunum og Bret-
landseyjum í aðgengilegum,
áheyrilegum og laglegum útsetn-
ingum.
Stjórnandi kórsins er Sveinn
Arnar Sæmundsson, organisti
Akraneskirkju. Aðgangseyrir er
kr. 1000.
112-dagurinn
UM HÁDEGISBIL á morgun
fylkja slökkviliðsmenn, lögregla,
björgunarsveitarmenn og sjúkra-
flutningamenn á Akureyri liði í
bíla- og tækjalest í tilefni 112-
dagsins. Bílalestin staðnæmist við
Slökkvistöð Akureyrar um kl. 13
og verður þar opið hús til kl. 16.
Þar munu viðbragðsaðilar kynna
starfsemi sína og tækjabúnaður
verður til sýnis. Fólk er hvatt til
að koma og kynna sér þá starf-
semi sem fram fer á vegum þess-
ara aðila.
Vetrarleikar
á Leirutjörn
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Léttir
heldur Vetrarleika á Leirutjörn í
dag og hefjast þeir kl. 14. Nokkur
ár eru síðan mótið var haldið síðast
en það hefur ekki náðst að halda á
ís frá árinu 2002 en nú er frost á
Fróni og tjörnin vel búin undir
bæði hesta og menn. Keppt verður
í tölti unglinga og fullorðinna og í
skeiði.
Fundur um
eldri borgara
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð heldur fund um málefni
eldri borgara á morgun, sunnu-
daginn, kl. 16.00 á Hótel KEA. Þur-
íður Backman, alþingiskona og
nefndarmaður í heilbrigðis- og
trygginganefnd Alþingis, mun
ávarpa fundinn en auk hennar mun
Benedikt Davíðsson, fyrrverandi
formaður Landssambands eldri
borgara ræða um lífeyris- og
kjaramál eldri borgara og Brit
Biltvedt, félagsráðgjafi og for-
stöðumaður á Hlíð á Akureyri,
mun fjalla um þjónustu Akureyr-
arbæjar við eldri borgara. Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna, mun einnig ræða
áherslumál flokksins í málefnum
aldraðra og stöðu eldri borgara í
aðdraganda kosninga.
Samgöngur
RÁÐSTEFNA um sjálfbærar sam-
göngur verður á vegum Norður-
landsdeilda Verkfræðinga-,
Tæknifræðinga- og Arkitekta-
félags Íslands í Ketilhúsinu í dag,
kl. 10-16.
Arfur Bríetar
Mynd úr bókinni
Fólk í fjötrum