Morgunblaðið - 18.02.2007, Page 10
10 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SÁLRÆNAR AFLEIÐINGAR KYNFERÐISOFBELDIS
»Börn treysta á fullorðið
fólk - þau eiga líka
að geta treyst því
að þeir fullorðnu
annist þau og séu góðir við þau«
V
igdís Erlendsdóttir sálfræðingur hef-
ur verið forstöðumaður Barnahúss
frá upphafi, frá því það tók til starfa í
nóvember 1998. Reyndar hóf hún
störf nokkrum mánuðum fyrr því
hún tók virkan þátt í undirbúningnum. Fáir
hafa því eins mikla reynslu að baki og hún í því
að vinna markvisst með börnum sem hafa orðið
fyrir kynferðisofbeldi. Hlutverk Barnahúss er
að sinna málefnum barna sem grunur leikur á
að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi,
m.a. með skýrslutöku og sálfræðimeðferð.
Hvernig er að vera í svona starfi?
„Í svona starfi stjórnar maður ekki aðstreymi
verkefnanna heldur koma þau eftir því sem
málin koma upp og þau geta komið upp hvar og
hvenær sem er. Við tökum eftir því að þegar
umræðan hefur verið mikil um þessi mál koma
bylgjur í kjölfarið. Fólk verður meira vakandi
og tilvísunum til barnaverndarnefndar fjölgar,
sem aftur fjölgar tilvísunum til okkar. Það virð-
ist vera fylgni þarna á milli,“ segir hún en það
hefur verið mikið að gera hjá starfsfólki Barna-
húss að undanförnu. Hún segir annríkið reynd-
ar hafa verið mikið síðasta árið en málum hefur
farið jafnt og þétt fjölgandi frá stofnun Barna-
húss. „Þau voru á þriðja hundrað á síðasta ári
en voru rétt rúmlega hundrað fyrstu árin hér.“
Hægt að takmarka umfang skaðans
Mikil umræða hefur verið um kynferðisof-
beldi og afleiðingar þess en eitt af markmiðum
Barnahúss er að tryggja barni viðeigandi grein-
ingu og meðferð. Hversu mikilvægt er að það
komist snemma upp um kynferðisofbeldi sem
börn verða fyrir?
„Það sýnir sig að það er hægt að takmarka
umfang skaðans ef gripið er inn í fljótt og vel
þegar grunur vaknar. Börn eru líklegri til að
segja frá kynferðisofbeldinu en þau voru fyrir
nokkrum árum. Meðal annars vegna aukinnar
umræðu. Það er gott til lengri tíma litið því það
fólk mun hugsanlega geta unnið í sínum málum
og lagt þetta að baki áður en það kemst á full-
orðinsár. Þetta er miklu erfiðara fyrir fólk sem
hefur þagað yfir kynferðisofbeldi um árabil og
VANLÍÐAN HEFUR MÖRG BIRTINGARFORM
Kynferðislegt ofbeldi hefur
verið í brennidepli í þjóð-
félaginu að undanförnu.
Sálfræðingur, geðlæknir og
þolandi velta fyrir sér sál-
rænum afleiðingum þess og
hvaða leiðir eru færar til að
vinna úr sársaukanum.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Fyrir börn Vigdís Erlendsdóttir sálfræðingur
í barnvænu umhverfi Barnahúss.
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur,
Orra Pál Ormarsson
og Guðrúnu Guðlaugsdóttur