Morgunblaðið - 18.02.2007, Page 12

Morgunblaðið - 18.02.2007, Page 12
12 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ segir frá í fyrsta skipti þegar það er þrítugt, fer- tugt eða fimmtugt. Heimurinn hefur batnað að þessu leyti,“ útskýrir Vigdís. „Nú veit maður ekki nógu mikið um þá þætti sem skipta mestu máli varðandi framtíð- arhorfur þeirra sem verða fyrir þessu. Þær breytur sem þó er vitað að spá fyrir um afleið- ingar eru: Hvernig brást umhverfið við þegar barnið sagði frá? Hversu lengi hafði ofbeldið staðið yfir? Hversu nákominn var gerandinn þolandanum? Var það einhver sem barnið lagði traust sitt á eða einhver utanaðkomandi? Hversu mikill aldursmunur var á milli geranda og þolanda. Þetta eru allt þættir sem rann- sóknir hafa leitt í ljós að skipti máli í því hvaða afleiðinga er að vænta. Svo skipta persónu- leikaþættir þolandans miklu máli um hvernig honum tekst að vinna úr þessu.“ Er hægt að fullyrða eitthvað um ákveðnar af- leiðingar? „Það er algjörlega útilokað að fullyrða um eitthvert heilkenni sem fólk sýni hafi það orðið fyrir kynferðisofbeldi. Sumir sýna engin ein- kenni af neinu tagi og eiga ekki í neinum vanda eftir það. Það má ekki gleyma því að sumir virð- ast komast nokkuð heilir í gegnum svona lífs- reynslu, jafnvel án þess að fá utanaðkomandi hjálp. En svo eru fleiri sem þurfa aðstoð til að jafna sig. Fólk er svo mismunandi, aðstæður ólíkar sem og eðli brotanna. Það er mjög erfitt að spá fyrir um afleiðingarnar en hægt er að leiða getum að því og segja hvað er algengt.“ Algengar afleiðingar Og hvaða afleiðingar eru algengar? „Átraskanir koma stundum fram hjá stelp- um, sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Alls konar hegðunarvandamál geta sést hjá þol- endum – svo sem erfiðleikar með að treysta öðru fólki og ýmis tilfinningaleg vandamál, þunglyndi og sjálfskaðandi hegðun. Kynferð- islegt hömluleysi sést stundum eða erfiðleikar í tengslum við kynlíf. Fullorðnar konur, sem hafa þolað kynferðisofbeldi annaðhvort sem ungling- ar eða börn, eiga stundum erfitt í tengslum við meðgöngur og fæðingar. Kvenskoðun getur verið mörgum erfið. Börn geta einangrað sig, til dæmis átt erfitt með að umgangast jafnaldra og vini, orðið ofbeldishneigð og reið, leið og hvað- eina. Vanlíðan hefur svo mörg birtingarform. Lítil börn, þessi yngstu, sýna oft kynferðislega hegðun, sem er óvenjuleg miðað við aldur og þroska. Börn geta fengið martraðir, byrjað aft- ur að væta rúmið eða misst tök á færni sem þau hafa verið búin að tileinka sér. Líkamlegar um- kvartanir sem ekki eiga sér læknisfræðilegar skýringar eru jafnframt algengar hjá börnum sem líður illa.“ Dæmi um alvarlegar afleiðingar kynferðisof- beldis og vanrækslu hafa sýnt sig í tengslum við meðferð drengja á barnaheimili í Breiðavík. „Breiðavíkurmálið ætti að geta leitt mönnum fyrir sjónir hversu alvarleg þessi mál eru og hversu djúp spor í líf fólks það getur markað að búa við slæman aðbúnað og misnotkun sem barn. Mér finnst umhugsunarefni fyrir allt fólk í sambandi við Breiðavíkurmálið að þarna stíga fram karlmenn á miðjum aldri, sem geta sagt frá harðræði og erfiðum lífskjörum og heimilis- aðstæðum en þegar þeir tala um kynferðisof- beldið þá fara þeir að gráta. Svona lífsreynsla virðist sitja mjög í fólki og það er ástæða til að átta sig á því.“ Nú virðist umræðan um kynferðisofbeldi vera að opnast og auðveldara að ræða þessi mál í samfélaginu. Er eitthvað sem þú getur ráðlagt til að opna umræðuna frekar? „Ég myndi ráðleggja sálfræðingum, kven- sjúkdómalæknum, geðlæknum og öðrum þeim sem vinna með börn og fullorðna, sem leita til þeirra vegna vanlíðunar, að spyrja fólk hvort það hafi orðið fyrir misnotkun. Almennt virðist það ekki vera gert. Mér finnst það sjálfsagður hlutur að þetta sé eðlileg spurning. Ég heyri það á skjólstæðingum mínum. Þegar ég spyr hvort þeir hafi hugleitt að segja frá misnotk- uninni áður segjast þeir aldrei hafa verið spurð- ir. Það þarf að skapa fólki vettvang til að segja frá því þetta er stór þröskuldur fyrir fólk að fara yfir.“ Kynferðisbrotamaður í hverju hverfi Kynferðisbrot geta átt sér stað hvar sem er. „Ef að er gáð gerist kynferðisofbeldi í flestum tilvikum á stöðum sem börn telja sig vera örugg, eins og á heimili þeirra. Fólk þarf að átta sig á því að svona hlutir geta gerst hvar sem er, alls staðar sem börn eru. Mér finnst þessi um- ræða sem komst á kreik í kjölfar Kompáss- þáttar ekki gagnleg. Fólk hrópar yfir því að hafa ekki verið upplýst um að það væri kynferð- isbrotamaður í hverfinu. Ég treysti mér til að upplýsa um það hér og nú að það er kynferð- isbrotamaður í hverju hverfi. Þannig að það þarf ekki neinn sjónvarpsþátt til að upplýsa fólk um það. Það að vita hvað hann heitir eða hvern- ig hann lítur út breytir litlu sem engu um hvern- ig fólk getur verndað börnin sín.“ Er það jafnvel falskt öryggi? „Já, það er það. Þeir eru þarna á ferðinni og það þurfa foreldrar að upplýsa börnin sín um. Það þarf að upplýsa börnin á hispurslausan og einfaldan hátt þannig að börnin viti hvað við sé átt. Börn þurfa að læra að bregðast við ef ein- hver fer inn fyrir landhelgi þeirra. Það þýðir ekki að vera með neinn tepruskap. Það þarf að nota þau orð sem börnin skilja en ekki eitthvert rósamál. Fræðslan þarf að vera skýr.“ Henni finnst að leggja mætti frekari áherslu á að fræða þá sem eru að mennta sig í því að sinna börnum. „Gera fólk í stakk búið að fjalla opinskátt um þessa hluti við börn. Það þykir eðlilegt og sjálfsagt í leikskólum að kenna börn- um umferðarreglunar. Ég hef ekki hitt það barn sem er orðið fjögurra ára og kemur hingað sem kann ekki umferðarreglunar. Þetta eru líka mjög mikilvægar umferðarreglur í þessari dagsdaglegu umferð.“ Byrgja heldur brunninn Vigdís vildi gjarnan leggja meiri áherslu á fyrirbyggjandi starf. „Eins og sakir standa er- um við að fást við mál sem er vísað hingað. Barnið er dottið í brunninn. Það væri verðugt verkefni og skemmtilegt að geta byrgt brunn- inn,“ segir hún en sem stendur er það ekki hlut- verk Barnahúss. „Mér sýnist vinnuálag þeirra sem vinna í barnaverndarmálum oft vera mikið. Ég velti fyrir mér hvort að það sé nægilegur mannafli í þessum málaflokki,“ svarar hún aðspurð um hvað sé hægt að gera betur. Hún hefur góða innsýn í barnaverndarmál en fyrsta starf hennar sem útskrifaður sálfræð- ingur var hjá barnaverndarnefnd Reykjanes- bæjar. „Þar fékk ég að kynnast því að vinna að barnavernd og það var mjög gagnlegur bak- grunnur fyrir starfið sem ég gegni nú,“ segir Vigdís, sem er einnig útskrifaður hjúkr- unarfræðingur og hefur starfað sem slíkur. Hlutverk Barnahúss er m.a. að aðstoða barnaverndarnefndir. „Við aðstoðum nefnd- irnar og erum líka dómstólum til aðstoðar við skýrslutöku á þolendum,“ segir hún og er það nokkuð stór hluti starfsins. Eitt af markmiðum Barnahúss er að skapa vettvang fyrir samstarf og samhæfingu stofn- ana sem bera ábyrgð á rannsókn og meðferð mála er varða kynferðisofbeldi gegn börnum. „Hugmyndin er fengin frá Bandaríkjunum en Norðurlöndin hafa verið að horfa til þessarar starfsemi í því skyni til að koma einhverju hlið- stæðu á laggirnar þar. Svíar hafa nú þegar komið af stað sex svipuðum húsum, sem eru til- raunaverkefni og eru ekki öll eins,“ segir hún. „Það sem við gerum líka í stórum stíl er að sinna meðferð barna sem hafa orðið fyrir kyn- ferðisbrotum. Það er stærsti hlutinn af okkar starfi. Svo erum við líka með ráðgjöf við bæði lærða og leikmenn.“ Geturðu lýst því hvernig meðferð fer fram? „Okkar nálgun er hugræn atferlismeðferð. Við ætlum okkur þrjú, fjögur viðtöl í að afla upplýsinga og sjá hvernig er ástatt fyrir barninu, leggja fyrir það ýmsa spurningalista og jafnvel einhver sálfræðileg próf ef það er mögulegt og meta hvað þarf að gera. Svo leggj- um við upp meðferð, miðum gjarnan við tíu tíma í venjulegu máli en að sjálfsögðu metum við það í hverju tilfelli fyrir sig.“ Þegar barnið í viðtalinu er jafnframt þolandi í máli sem sætir opinberri rannsókn þarf að gera sérstakar ráðstafanir. „Þá þarf sérfræðingurinn að vera viðbúinn því að mæta fyrir dóm og geta gert grein fyrir því sem hann varð vísari í með- ferðinni,“ segir hún en í því felst að greina frá greiningaraðferðum og meðhöndlun. „Það þarf sérfræðingurinn að geta gert á þann hátt að leikmenn skilji því dómarar, sak- sóknarar, verjendur og réttargæslumenn eru ekki sálfræðingar. Þetta kemur til ekki síst vegna bótakröfunnar því réttargæslumaður barnsins gerir kröfu um miskabætur barninu til handa úr ríkissjóði. Vegna þessarar miskabóta- kröfu er mikilvægt að það liggi fyrir vottorð um ástand barnsins.“ Vanda betur til rannsókna Almenningsálitið virðist vera á þann veg að dómar sem falla í kynferðisbrotamálum séu of vægir. Vigdís telur að það hafi með tíð og tíma einhver áhrif á dómaframkvæmdina. „En ég tel ekki að vægir dómar séu stærsta vandamálið. Mér finnst mikilvægt að vanda til lögreglurann- sókna í þessum málum. Ég tel að stundum líði þau fyrir að hafa ekki verið rannsökuð nægilega hratt og vel. Það getur hugsanlega leitt til þess að ekki sé ákært vegna þess að með rannsókn- inni sé ekki búið að afla nægilega mikilla og ít- arlega gagna. Í sumum tilvikum, og kannski oft- ar en er gert, þyrfti að gera húsleit til að athuga hvort það sé barnaklám í tölvum,“ segir Vigdís sem finnst jafnframt mikilvægt að börn eigi ekki að þurfa að bíða eftir skýrslutöku. „Mér finnst líka að það eigi að taka skýrslur af börnunum eins fljótt og auðið er og fyrr en nú er gert. Ég sá í einu máli um daginn að fimm ára barn beið í níu daga með að gefa skýrslu. Það er langur tími fyrir fimm ára barn. Ég hefði talið að það ætti að taka skýrslu af barninu sama dag og það segir frá. Því má heldur ekki gleyma að það er íþyngjandi fyrir barnið og að- standendur að bíða svo dögum skiptir eftir skýrslutökunni.“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Í HNOTSKURN »Barnahús hóf starfsemi 1. nóvember1998. Frá upphafi hafa meira en þús- und börn notið þjónustu Barnahúss, samkvæmt upplýsingum úr nýjustu árs- skýrslu Barnaverndarstofu, fyrir árin 2004–5. »Stúlkur eru í miklum meirihlutaþeirra barna sem koma í Barnahús, eða um 70%. »Talsverð fjölgun var á greiningar-og meðferðarviðtölum árið 2005, eða 44% aukning miðað við árið áður. Fjölgunin var aðallega hjá stúlkum á aldrinum 10–18 ára. »Flest börn sem komu í skýrslutökufyrir dómi í Barnahúsi greindu frá kynferðisofbeldi eða tæplega 90%. »Meintir gerendur í málum þeirrabarna sem greindu frá kynferðisof- beldi í skýrslutöku fyrir dómi voru á aldrinum 15–86 ára og var meðalaldur 34 ár. Alls voru sjö gerendur á aldrinum 15–18 ára, á árinu 2004. Tölurnar eru mjög svipaðar fyrir árið 2005. »Þegar skoðuð eru tengsl geranda ogþolanda kynferðisofbeldis árið 2004 kemur í ljós að í 85% tilvika þekkir ger- andi til barns, þ.e. annað hvort tengdur barninu fjölskylduböndum eða er því kunnugur á annan hátt. Árið 2005 var hlutfallið 87%. Mjög sjaldgæft er að ger- endur kynferðisbrota séu barninu ókunnugir með öllu. »Mér finnst umhugsunarefni fyrir allt fólk í sambandi við Breiðavíkurmálið að þarna stíga fram karlmenn á miðjum aldri, sem geta sagt frá harðræði og erfiðum lífskjörum og heim- ilisaðstæðum en þegar þeir tala um kynferðisofbeldið þá fara þeir að gráta. Svona lífsreynsla virðist sitja mjög í fólki og það er ástæða til að átta sig á því. SÁLRÆNAR AFLEIÐINGAR KYNFERÐISOFBELDIS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.