Morgunblaðið - 18.02.2007, Page 24
|sunnudagur|18. 2. 2007| mbl.is
Pétur Ósk-
arsson er tals-
maður sól-
arinnar. » 36
nafnið Unique. Götutískan er líka leiðandi í
London og getur af sér ýmsa strauma og
stefnur sem breiðast út á alþjóðavettvangi í
gegnum tískublöðin. Nýjasti staðurinn af þessu
tagi er Boombox við Hoxton Square í austur-
hluta borgarinnar. Þar keppist fólk um að
klæða sig og mála á hugmyndaríkari hátt en
næsti maður.
Anna Wintour, hinn áhrifamikli ritstjóri
bandaríska Vogue, lét sig ekki vanta á tísku-
vikuna. „Ég fer ekki til London til að sjá
klæðileg föt. Ég fer til að fá nýja sýn á hlut-
ina, sjá fólk sem hugsar út fyrir rammann.
Við þurfum á því að halda,“ sagði hún við
áðurnefnda Alexander.
Á nýliðinni tískuviku vakti Christopher
Kane hvað mesta athygli. Til dæmis gengu
bæði Telegraph og Style.com svo langt að
segja að ný stjarna hefði skotist upp á tísku-
himininn. Kane er 24 ára og útskrifaðist fyrir
aðeins sjö mánuðum úr hinum virta skóla Cent-
ral Saint Martin’s. Hann náði til dæmis að vekja at-
hygli Donatellu Versace meðan hann var í námi. Þetta
var einungis önnur sýning hans á tískuviku í borginni og
var hennar beðið með mikilli eftirvæntingu. Hún stóðst
þessar miklu væntingar og þótti vönduð, flókin og fág-
uð. Innblásturinn var ástarsamband milli Scarlett O’H-
ara og Rambo.
Meðfylgjandi myndir bera vott um þennan mikla sköp-
unarkraft sem býr í borginni en bæði snið og litaval er al-
mennt djarfara en á nýafstaðinni tískuviku í New York.
ingarun@mbl.is
L
ondon hefur iðað af lífi síðustu
viku. Borgin var undirlögð af tísku-
sýningum á komandi vetrartísku
og til viðbótar fóru fram hátíðir í
kvikmynda- og tónlistarheiminum,
Bafta- og Brit-verðlaunin.
„London framleiðir þrjá fjórðu
af tískuhugmyndum heimsins.
Tískan væri ekki söm án borgarinnar,“ hefur Hilary Al-
exander, tískuritstjóri The Daily Telegraph, eftir koll-
ega sínum hjá Vanity Fair, Michael Roberts.
London er gjarnan talin vera ákveðin uppeldisstöð,
gróðrarstía hugmynda þar sem hráir hæfileikar fá að
njóta sín. Hugmyndirnar eru ekki alltaf fínpússaðar en
þær hafa áhrif víða um heim.
Borgin hefur getið af sér marga helstu hönnuði
heims, sem nú eru starfandi, eins og John Galliano, Al-
exander McQueen, Hussein Chalayan og Sophiu Ko-
kosalaki.
Bransinn snýst þó alls ekki um einhverja sýnd-
armennsku því fata- og textíliðnaðurinn í Bretlandi er
virði meira en níu milljarða punda á ári, eða um 1.190
milljarða króna. Alls starfa 165.000 manns í iðnaðinum
og eru 70% þeirra konur.
Haldnar eru 49 tískusýningar á tískuvikunni, sem lað-
ar til sín meira en 5.000 kaupendur verslana auk fjölda
fréttafólks og er fréttaflutningur á heimsvísu metinn að
andvirði 50 milljónir punda, eða um 6,6 milljarðar króna.
Götutískan áhrifamikil
Annað sem tengir London meira við ungæðislegan
kraft er að hin vinsæla tískuvöruverslun Topshop styrk-
ir fjöldamarga hönnuði og sýnir líka eigin línu, sem ber
Noir Fatnaðurinn fer vel við lit-
arhaft fyrirsætunnar Lily Cole.
Jasper Conran Kjóllinn er fallega
sniðinn og fallegur á litinn.
Christopher Kane Heppnað hjóna-
band flauels og leðurs.
Heillandi
hugmyndir
Nýsköpun er einkennismerki London, þar sem ungir
hönnuðir fá tækifæri til að sanna sig í meira mæli en
annars staðar. Inga Rún Sigurðardóttir skoðaði brot
af því besta á nýliðinni tískuviku borgarinnar.
Manish Arora
Litadýrðin á sér
engin takmörk.
PPQ Flott út-
færsla á vösunum
á stuttbuxunum.
Spijkers en Spij-
kers Skemmtileg
vídd í þessari kápu.
Eley Kishimoto Að vanda gætir
japanskra áhrifa í hönnuninni.
AP
daglegtlíf
ferðalag
Tveir kúrekar norðursins fóru á
vestraslóðir Jónanna tveggja
Wayne og Ford og annara hetja
kúrekakvikmyndanna. » 32
umhverfið
Vanessa Basañez Escobar og
Stefán Svavarsson halda uppi
merkjum mexíkóskrar menn-
ingar. » 28
mannlíf