Morgunblaðið - 18.02.2007, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 18.02.2007, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 33 Hjá Jónum Transport er aðalmarkmiðið að varan komist til skila á réttan stað, í réttu magni og á réttum tíma. Við bjóðum heildarþjónustu í flutningum á sjó og í lofti, til og frá Íslandi. Nýttu þér trausta og persónulega þjónustu okkar. Það þurfa allir sinn Jón Reynir „Jón“ Haraldsson – Starfsmaður Jóna Transport Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000 www.terranova.is · Akureyri sími: 461 1099 Hafnarfjörður sími: 510 9500 Tallinn í Eistlandi Frá aðeins kr. 19.990 Beint flug 19. apríl - 4 nætur 23. apríl - 3 nætur 26. apríl - 3 nætur Frá kr. 19.990 Flugsæti með sköttum. Netverð á mann. 23. - 26. apríl. Takmarkaður sætafjöldi á þessu tilboði. Frá kr. 39.990 – flug & gisting í 3 nætur Flug, skattar og 3 nætur á Hotel Meriton Old Town **+ m/morgunverði. 23. - 26. apríl. Netverð á mann Frá kr. 49.990 – flug & gisting í 3 nátta helgarferð Flug, skattar og 3 nætur á Hotel Meriton Old Town **+ m/morgunverði. 26. - 29. apríl. Netverð á mann. E N N E M M / S IA / N M 26 0 87 Síðustu sætin – ótrúleg kjör Gamli bærinn í Tallinn er einn sá fallegasti í Evrópu enda á heimsminjaskrá UNESCO. Stemning miðalda og nútíminn blandast saman og skapa einstakt andrúmsloft. Við steinilagðar göturnar eru ótal kaffihús, veit- ingastaðir og sérverslanir en Tallinn er líka þekkt fyrir fjörugt og skemmtilegt næturlíf. Vor í Morgunverðarfundur á Grand hótel, miðvikudaginn 21. febrúar kl. 8.00 Morgunverðurinn kostar 1.400 kr. Örstutt erindi flytja Guðrún Jónsdóttir Stígamótum, Ása Ólafsdóttir lögfræðingur og Kristín Ástgeirsdóttir forstöðumaður RIKK. Pallborðsumræður með þátttöku fulltrúa stjórnmála- flokkanna. Fundarstjóri: Guðrún Agnarsdóttir læknir. KYNBUNDIÐ OFBELDI STEFNUMÓT VIÐ STJÓRNMÁLAFLOKKA Kvennaathvarfið, Samtök kvenna af erlendum uppruna Kvenréttindafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands Mannréttindaskrifstofa Íslands, UNIFEM á Íslandi Neyðarmóttaka vegna nauðgana, Feministafélagið Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við HÍ, Stígamót vaxandi. Rétt eftir að komið var yfir fylkismörkin til Utah, beygðum við til suðurs eftir mjóum sveitavegi út á sólbakaða eyðimörkina í stað þess að halda áfram hraðbrautina. Fórum eftir ábendingu heimamanna og gátum fyrir vikið skoðað ósvikinn „draugabæ“, Cisco, þar sem olía og gas er fyrir löngu uppurið og íbúarnir farnir sömu leiðina. Tilgangur lykkjunnar sem við tókum á leið okkar var þó mun háreistari og engin tilviljun, því nú nálguðumst við fyrstu vestraslóðirnar. Skömmu síðar vorum við enn komnir á bakka Colorado, hér hefur hún grafið sig niður á löngum kafla. Skjólsæll árdalurinn er rómaður fyrir náttúrufegurð með fjölbreyttan gróður á árbökkum og dökkgrænar greinar Mórberjatrjánna slúta út yfir drapplitaða móðuna. Ofan við veginnn varð gróðurinn kyrkingslegri eftir því sem fjær dró elfunni, síðan tóku við veðraðir hamraveggirnir með mikilúðlegum tindum og borgum, við vorum komnir á kúrekaslóðir. Dalurinn heitir Castle Valley og er leiksvið fjölda vestra, einn sá frægasti, Rio Grande (’50), er einmitt afrakstur Jónanna tveggja. Myndin þykir ein sú rómantískasta eftir meistara Ford, nafni hans leikur ofursta í herjum Norðanmanna og Maureen O’Hara, eftirlætis kvenstjarna leikstjórans fer með hlutverk eiginkonunnar. Klassískur vestri með fleiri, traustum Ford leikurum eins og Victor McLaglen og Ben Johnson, sem fer með aðalhlutverkið í Wagon Master, öðrum, nafntoguðum Ford vestra teknum í dalnum. Þriðja myndin sem Ford tók í Castle Valley er engin önnur en Cheyenne Autumn (’64), síðasti vestrinn á glæsilegum ferli leikstjórans. Um 20 kílómetra upp með fljótinu er Moab, stæsti bærinn í Archer þjóðgarðinum, með urmul mikivægra tökustaða í vestrasögunni. Þar gistum við að sjálfsögðu á The Apache Motel, þar voru fastagestir Jónarnir tveir, Henry Fonda og fleiri staffírugar vestrahetjur. Myndir af höfðingjunum og leikmunir úr frægum vestrum eru til skrauts, andi kúrekamyndanna liggur í loftinu. John Wayne-svítan var upptekin svo hún freistaði okkar ekki. Moab, sem er lítið meira en aðalgata við þjóðveg 191, með matsölustöðum, hótelum og ódæmi minjagripaverslana, og umhverfi, kemur við sögu einna 80 og ólíkra vestra. Þ.á m., Blue (’68), með Terence Stamp; hins ódauðlega The Comacheros (’61), eftir Michael Curtiz, með „The Duke“ og Lee Marvin, ansi skrautlegum, með hálft höfuðleðrið slugsandi niður með kinninni; Ford-klassíkarinnar My Darling Clementine (’46), með Henry Fonda og síðast en ekki síst She Wore a Yellow Ribbon (’46), með „Duke“ Wayne og Johnson. Náttúrufegurðin er hrífandi í kringum Moab, og hvarvetna í norðausturhluta Utah, sem gjarnan er kallaður Red Rock Canyon Country. Hér er m.a. Professor Valley, The Organ, The Fisher Towers, sem er tignarleg klettaborg upp með Colorado fljóti og sést óravegu að. Að ótöldum fjölda steinboganna sem þjóðgarðurinn dregur nafn sitt af. Bærinn sjálfur er auðgleymd túristagildra en útsýnið ógleymanlegt. DAGUR 4 Meistarasmíðin Monument Valley Við vorum árrisulir að venju, fyrir fáeinar spesíur tókum við hraustlega til matar okkar af svignandi gnægtaborðum sem minntu á „Kalda borðið í Gullfossi í den“. Enda beið okkar drjúgt dagsverk; Sjálfur Monument Valley og Grand Canyon, en næsti gististaður Flagstaff, Arizona, í rösklega 500 km fjarlægð. Bærinn er við hinn gamalfræga þjóðveg, Route 66. Fyrri helmingur leiðarinnar eru eyðimerkur með fagurri fjallasýn en næsta umhverfi gulleitir melar á milliþess sem við ókum fram hjá klettadröngum og steinbogum. Við fórum í gegnum fáeina smábæi og áðum í Bluff, þorpi sem stendur við þjóðveg 191, undir tígulegu hamrabelti sem það dregur nafn sitt af. Nú vorum við komnir á friðlendur Navajo indjána sem reka volduga minjagripaverslun á staðnum. Frumbyggjarnir hafa látið á sjá af kynnum sínum við vestræna menningu. Líkt og margt annað láglaunafólk, bera þeir merki ofneyslu ruslfæðis sem gjarnan er skolað niður með mjólkurhristingi, eða einhverju sterkara þegar komið er út fyrir landamæri mormónafylkisins. Minjagripaverslanir eru síst forvitnilegri á lendum frumbyggjanna en annars staðar í veröldinni. Fjöldaframleiddar örvar, bogar, fjaðrir og flautur innan um stríðsaxir, fjaðraskaut, sjöl, teppi, mokkasínur, öllu ægir saman sem hægt er að tengja magnaðri sögu Sígild John Wayne fór með aðalhlutverkið í kvikmyndinni the Searchers, sem John Ford leikstýrði árið 1956. Náttúrufegurð Nokkrir metrar af Miklagljúfri. »Engin tilviljun að þar voru teknir stórkostlegustu vestrar sögunnar og frægasti tökustaðurinn af þeim öllum og einn sá tignarlegasti er Monument Valley sem liggur á mörkum ríkjanna tveggja.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.