Morgunblaðið - 18.02.2007, Qupperneq 36
umhverfið
36 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
H
ann gengur glaðbeittur
til móts við mig og ég
hef orð á því að hann
hljóti að vera svona
ánægður með nýja
skoðanakönnun Blaðsins, sem sýnir
að meirihluti landsmanna er andvígur
stækkun í Straumsvík. „Já, já. Ég er
auðvitað glaður með það,“ segir hann.
„En það er svo merkilegt að Fjarð-
arpósturinn er líka með frétt um málið
sem gengur í hina áttina. Samkvæmt
henni er meirihlutinn með stækkun og
prósenturnar eru nánast þær sömu og
hjá Blaðinu, bara með öfugum for-
merkjum. En niðurstöður Blaðsins
eru á sama veg og skoðanakönnun
Alcan í desember. Hún var reyndar
bundin við Hafnarfjörð og þar kom
fram að Hafnfirðingar eru ekki á móti
álverinu en þeir vilja ekki stækkun
þess.“
– Af hverju eruð þið á móti stækk-
un?
„Við fórnum svo miklum hags-
munum fyrir svo lítinn ávinning að
það er ekki verjandi að leyfa Alcan að
stækka álverið.
Þarna er framtíðarbyggingarland
bæjarins og stækkun framlengir líf ál-
versins um 50–60 ár. Þótt ekkert
kreppi að okkur með byggingarland í
dag er ekki forsvaranlegt að binda
þetta svæði í svo langan tíma. Auk
þessa verðum við að hafa í huga sjón-
mengun, hávaðamengun og loftmeng-
un. Þegar öll þessi atriði eru tekin
með í reikninginn er útkoman stækk-
un álversins í óhag.“
– En hvað um auknar tekjur?
„Því er haldið fram að tekjur bæj-
arsjóðs muni aukast um 5–7%. Nú eru
tekjur af álverinu um 1% af tekjum
bæjarsjóðs. Þetta er ekki sá fjárhags-
legi ávinningur að miklu sé fórnandi
fyrir hann.
Hafnarfjörður er blómlegur bær í
örum vexti. Það er gott að búa í Hafn-
arfirði eins og Gunnar Birgisson segir
um sinn bæ. Í Hafnarfirði stendur allt
í blóma; þar eru 7.300 fjölskyldur,
9.000 störf og þeim fjölgar um 240 á
ári. Og ef marka má bæjarstjórann
stendur bæjarsjóður vel. Það er ekk-
ert í kortunum fyrir Hafnfirðinga sem
kallar á stækkun álversins.“
Á vitlausum stað
á vitlausum tíma
– Hvað með þá Hafnfirðinga sem
starfa hjá álverinu?
„Þeir eru 216 og munu að öllu for-
fallalausu starfa þar næstu 15–20 árin.
Það er nefnilega ekkert sem bendir til
þess að álverið hætti þótt ekki verði af
stækkun.
Við skulum hafa það á hreinu að
Hafnfirðingum er vel ljóst að á sínum
tíma var álverið í Straumsvík lyfti-
stöng fyrir bæinn og Ísland allt. Það
breytti bænum úr fátækum útgerð-
arbæ í nokkuð efnalega sjálfstæðan
bæ og það breytti efnahagslífi þjóð-
arinnar líka til hins betra.
En nú eru breyttir tímar. Hafn-
arfjörður er mjög öflugt bæjarfélag
og ekki lengur upp á álverið kominn
um afkomu sína. Og viðhorfin til stór-
iðju eru að breytast. Nú finnst fólki
komið nóg. Eins kærkomið og álverið
kann að hafa verið í Straumsvík á sín-
um tíma er þreföldun þess tíma-
skekkja núna.
Ég upplifi þessar breytingar sem
ótrúlega skemmtilega tíma. Reyndar
er ég jafngamall álverinu í Straums-
vík; varð fertugur í fyrra og vona svo
innilega að ég fái að lifa það.“
– Fertugur! Gafstu einhverjum
geisladisk?
„Ég skilaði þeim sem Alcan sendi
mér, en gaf engum geisladisk. Reynd-
ar er fyrirtækið mitt 10 ára um þessar
mundir. Hver veit nema ég splæsi
geisladisk á starfsmennina!“
– Þú segist vonast til að lifa álverið.
Hvað sérðu fyrir þér ef ekki verður af
stækkun?
„Ef! Þú meinar þegar! Ég sé fyrir
mér að þegar raforkusamningarnir
renna endanlega út 2024 verði hugs-
anlega einhver tímapunktur.
Það er einfaldlega þannig að ef af
stækkun verður framlengist líf álvers-
ins um 50–60 ár og þegar viðbótin
verður komin kemst endurnýjun
gömlu skálanna vafalaust á dagskrá;
það verður óhentugt að reka fyr-
irtækið með tvenns konar tækni. Sú
endurnýjun kallar svo á enn lengri líf-
daga og eigendur álversins munu ekki
þurfa að spyrja Hafnfirðinga leyfis til
að endurnýja eldri framleiðslubúnað.
Já, nú er því ekki einasta samþykki
við stækkun, heldur og endurnýjun
kerskála 1, 2 og 3.“
– Þið hafið ekkert verið að flagga
þessu?
„Við bendum á þetta en þeir neita
því auðvitað núna. Þessi endurnýjun
er ekki aðkallandi í dag en þegar nýja
verksmiðjan kemur mun hún kalla á
hana. Það er bara heilbrigð hagfræði
að eigendur álversins muni teygja sig
eftir auknum tekjum sem verða innan
seilingar eftir stækkunina.
Álverið í Straumsvík er fyrirtæki,
ekki hugsjón. Nema þá að við köllum
það hugsjón að gefa eigendum sínum
sem mestan arð. Það er auðvitað ekk-
ert við það að athuga. En til þess að
stækka er álverið á vitlausum stað á
vitlausum tíma.“
– Sól í Straumi. Hvers vegna það
nafn?
„Við vildum fá jákvæðan tón. Ekki
Samtökin sem eru á móti … Samtökin
Sól í Hvalfirði voru á sínum tíma
stofnuð gegn álverinu á Grundartanga
og það var Ásgrímur Sverrisson kvik-
myndagerðarmaður sem átti hug-
myndina að því að sækja nafnið þang-
að.“
– Það hefur ekkert fælt frá að álver
reis á Grundartanga?
„Nei, nei. Landslagið er svo breytt
síðan þá. Fólk veit svo miklu meira og
er óhræddara við að taka afstöðu.
Hugsaðu þér; ég er alinn upp og
gekk í skóla að heita má í göngufæri
við álverið í Straumsvík en aldrei var
mér kennt neitt um álframleiðslu. Ég
lærði ekkert um boxít, yfirborðs-
námur, vítissóta eða rauðu drulluna.
Af hverju vissi ég ekkert um þetta?
Það er eins og að sá sem fæddur er í
svissnesku Ölpunum viti ekki að
mjólkin kemur úr kúnum!“
– Hvað er rauða drullan?
„Við Íslendingar erum svo heppnir,
innan gæsalappa, að við sitjum bara
uppi með sjálfa álbræðsluna. En þar
sem boxítnámurnar eru sitja menn
uppi með vítissótann og rauðu drull-
una; hún verður til þegar boxítið er
skolað með vítissóda. Menn tala um
súrálið sem rjómann og rauða drullan
er undanrennan.
En þótt bara álbræðslan sé okkar
megin og önnur starfsemi fjarri okk-
ur, liggur ábyrgð okkar þar líka.“
– Og undanrennan til einskis?
„Sum fyrirtæki hafa reynt að fá á
sig einhvern virðuleika með flísafram-
leiðslu úr rauðu drullunni. En það eru
bara einhver prómill sem fara í þá
framleiðslu. Afganginn sitja menn
uppi með.“
– Hvað opnaði augu þín?
„Ég las Draumaland Andra Snæs!
Reyndar bjó ég í 13 ár í Þýzkalandi og
kom þaðan smitaður af þýzkum um-
hverfis- og náttúruverndarhug-
myndum. En Andri Snær færði mér
lykilinn.“
Heiðarleikinn verði sett-
ur ofar hagsmununum
– Hvað varstu að gera í Þýzkalandi?
„Ég nam rekstrarhagfræði með
ferðaþjónustu í München og starfaði
þar. 1997 stofnaði ég ferðaskrifstofuna
Katla Travel GmbH ásamt skólasyst-
ur minni, Bjarnheiði Hallsdóttur.“
– GmbH?
„Það er þýzkt ehf.! Við seljum Aust-
urríkismönnum, Svisslendingum og
Þjóðverjum Íslandsferðir.“
– Var ferðaþjónustan alltaf á dag-
skrá hjá þér?
„Nei, nei. Ég ætlaði að verða flug-
maður. En 19 ára fór ég sem skipti-
nemi til Austurríkis og tók þar að mér
leiðsögu fyrir Icelandair. Þannig datt
ég inn í ferðaþjónustuna, sem hlóð ut-
an á sig og endaði með námi í Münc-
hen.“
– Og flugið datt upp fyrir!
„Ég lærði nóg til að verða flugfær
og tek kannski þráðinn upp síðar.“
– Himinninn bíður. Hann fer ekki
neitt!
„Nei. Ekki nema við önum fyr-
irhyggjulaus áfram í loftmenguninni.“
Þegar fjölskyldan flutti til Íslands
2002, settist hún að í Áslandshverfi í
Hafnarfirði. Pétur segir annan bæ
ekki hafa komið til greina. Og er þó
eiginkonan; Kristín Dóra Sigurjóns-
dóttir sjónfræðingur fædd Garðbæ-
ingur. „Já, en hún er fædd Hafn-
arfjarðarmegin í Garðabænum,“ segir
hann og ber ótt á.
„Þegar við komum heim var ég satt
að segja með það inni á mér að hvern
daginn sem væri kæmi sólarlags-
yfirlýsing úr Straumsvík um ákveðið
ártal fyrir lokun fyrirtækisins. Það
kom mér algjörlega í opna skjöldu að
menn skyldu þess í stað vera að ræða
möguleikann á stækkun.
Ég er bæði sjálfstæður maður og
sjálfstæðismaður og hef vanið mig á
að skoða hlutina áður en ég geri upp
hug minn. Það kom mér á óvart hvað
Hafnfirðingar hafa í raun fengið lítið
fyrir sinn snúð hin síðari ár og hvað
þessar stækkunarhugmyndir eru
vondar fyrir vöxt og viðgang bæjarins.
Með þetta í höndunum og innblás-
inn af Draumalandinu skrifaði ég
grein í Morgunblaðið. Ég átti svo sem
von á einhverjum skoðanasystkinum
en viðbrögðin komu mér satt að segja
á óvart. Þeir voru svo margir sem
höfðu samband og upp úr því kynntist
ég fólki í öllum stjórnmálaflokkum,
boltinn rúllaði og 23. október var Sól í
Straumi stofnuð.“
Segja má að þjóðin sé ennþá undir
áhrifum HM í handbolta. Er ekki
handboltagen í öllum Hafnfirðingum?
„Ekki mér alla vega! Ég var aldrei í
boltaíþróttum. Ég stundaði skíðin
með Fram og hélt því áfram í Aust-
urríki.
Nú stundum við hestamennskuna í
Hafnarfirði og fyrir vikið þykir okkur
ennþá vænna um útivistarsvæði Hafn-
firðinga.“
– Aftur að álverinu! Nú er komið að
endasprettinum fyrir atkvæðagreiðsl-
una. Hvernig leggst hann í þig?
„Ég hlakka til. Ég vona bara að
baráttan verði heiðarleg. Ég hef svo
sem verið varaður við því að það verði
reynt að draga trúverðugleika minn í
efa. Ég trúi því þegar ég tek á því. Það
yrði miður ef menn færu að grípa til
óvandaðra meðala. Ég undanskil ekki
okkur Sólarfólkið þegar ég segi það.
Það eru miklir hagsmunir í húfi. Og
þá getur mönnum orðið það á að setja
hagsmunina ofar heiðarleikanum. Mín
heitasta ósk á endasprettinum er að
sjá það ekki gerast.“
– Þið hafið gert athugasemdir við
málflutning Alcan og bæjarstjórans í
Hafnarfirði.
„Já, því miður hafa menn borið
rangfærslur á borð fyrir Hafnfirðinga,
einkum hvað varðar fjárhagslegan
ávinning af stækkun álversins. Það er
eins og menn vilji láta söluprísinn fyr-
ir framtíð Hafnarfjarðar vera sem
mest lokkandi. Þessi málflutningur er
ekki heiðarlegur.
En við treystum Hafnfirðingum.
Fái þeir að byggja afstöðu sína á rétt-
um upplýsingum þarf enginn að velkj-
ast í vafa um útkomuna.“
– Þið hafið líka gagnrýnt Hafn-
arfjarðarbæ fyrir að velja Capacent
Gallup til að sjá um kynningarmálin.
„Já. Í sporum bæjarstjórans hefði
ég ekki fengið það til kynningarstarfs-
ins. Fyrirtækið hefur unnið fyrir Alc-
an í stækkunarmálinu og er því ekki
hafið yfir gagnrýni en það má hlutlaus
kynningaraðili ekki vera. Ég ætla
Capacent Gallup ekki óvönduð vinnu-
brögð en finnst þessi aðkoma þess að
málinu óheppileg.
Við erum þeirrar skoðunar að mikið
velti á því hlutlausa kynningarstarfi
sem framundan er. Okkar áherzlur
eru að vera ekki með neinar flug-
eldasýningar eða berja fast á tromm-
urnar. Ef málið verður lagt heiðarlega
fyrir Hafnfirðinga erum við þess full-
viss að þeir muni hafna stækkuninni
með meiri mun en nú virðist vera.“
– Upplifið þið ykkur að einhverju
leyti sem Davíð gegn Golíat?
„Ekki get ég nú sagt það. En allir
muna hvernig þeirri viðureign lauk!
Okkur er sagt að Alcan hafi varið 80–
100 milljónum króna í stækk-
unarkynningu sína til áramóta. Þá
höfðum við eytt 60 þúsund krónum.
Þeir eiga allt nema góðan málstað
en við ekkert nema góðan málstað.“
Ábyrgð Hafnfirðinga nær
út fyrir bæjarmörkin
– Hvað heldur þú að hafi breytt
málstað ykkar til hins betra?
„Það er enginn vafi á því að algjör
hugarfarsbreyting hefur orðið hjá
þjóðinni hvað varðar framkvæmdir og
stóriðju í landinu. Kárahnjúkaand-
staðan kristallaðist kannski of seint til
að hafa áhrif á þær framkvæmdir en
hún þjappaði mönnum saman og vakti
almenning til vitundar um náttúruna
og málstað hennar. Sú vakning fékk
svo byr undir báða vængi í Drauma-
landinu.
Munur sést til dæmis í þeim við-
tökum sem nýjasta skýrslan um lofts-
lagsbreytingar hefur fengið. Í stað
þess að höfða aðeins til útvaldra og
vera lokað umræðuefni þeirra hefur
hún vakið almenna athygli og orðið
umræðuefni allra. Fólk gerir sér nú
grein fyrir því að það sem er gert í
Hafnarfirði hefur víðtæk áhrif. Þetta
er spurningin um að líta í eigin barm.
Til þess að hugsa um heiminn verðum
við að líta okkur nær.
Hafnfirðingar geta ekki sagt já í
Straumsvík og firrt sig um leið allri
ábyrgð af afleiðingunum annars stað-
ar; línumannvirki í gegnum átta sveit-
arfélög og virkjanir við neðanverða
Þjórsá svo dæmi séu tekin. Ábyrgð
Hafnfirðinga í þessu máli nær út fyrir
bæjarmörkin.
Það er þessi ábyrgð sem fólk er far-
Eigum ekkert nema góðan málstað
Morgunblaðið/Sverrir
Sólarmegin Pétur Óskarsson talsmaður Sólar í Straumi segir stundaglas stóriðjustefnunnar að tæmast og því verði ekki snúið við.
Síðasta dag marzmán-
aðar ganga Hafnfirð-
ingar til atkvæða um
stækkun álversins í
Straumsvík. Andstaðan
gegn stækkun hefur
myndað samtökin Sól í
Straumi. Freysteinn
Jóhannsson ræddi við
talsmann sólarinnar;
Pétur Óskarsson.