Morgunblaðið - 18.02.2007, Page 60

Morgunblaðið - 18.02.2007, Page 60
60 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson SÓLSTEINAR  Gæði  Góð þjónusta  Gott verð  Mikið úrval i j i i l Kársnesbraut 98, 200 Kópavogi – s: 564 4566 www.solsteinar.is – sol@solsteinar.is 15-50% afsláttur ✝ Okkar elskulega, SOFFÍA GUÐRÚN WATHNE andaðist í New York miðvikudaginn 7. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 21. febrúar kl. 14.00. Börn, barnabarn og fjölskylda ✝ Elskuleg sambýliskona mín, dóttir, móðir, tengda- móðir og amma, HREFNA HELGADÓTTIR, Huldugili 4, Akureyri, lést á heimili sínu mánudaginn 12. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðju- daginn 20. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar. Þorsteinn Friðriksson, Þuríður Guðmundsdóttir, Stefán Óskarsson, Ester Jóhannsdóttir, Hugrún Óskarsdóttir, Elva Óskarsdóttir, Jón Guðlaugsson og barnabörn. ✝ Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN VÍDALÍN SIGURÐSSON, Múlavegi 32, Seyðisfirði, lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar þriðjudaginn 6. febrúar. Útför hans verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju þriðjudaginn 20. febrúar kl. 14.00. Sigurbjörn Jónsson, Hugrún Ólafsdóttir, Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir, Hafsteinn Sigurjónsson, Anna G. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓHANNA S. HANSEN, lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn 13. febrúar. Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 22. febrúar kl. 13.00 Sigurður Anders Hansen, Brigitte Hansen, Richard Arne Hansen, Bjarney Ólafsdóttir, Magnús Axel Hansen, Paul Agnar Hansen, Alda Elfarsdóttir, Anna María Hansen, Ástvaldur Eydal Guðbergsson, barnabörn og langömmubarn. ✝ Sigríður Jak-obína Guðlaugs- dóttir, eða Sissý eins og hún var jafnan nefnd, fæddist á Siglufirði 5. ágúst 1929. Hún lést á Landspítalanum þann 31. janúar síð- astliðinn. Sigríður var dóttir Sig- urbjargar Jak- obsdóttur frá Húsa- bakka í Aðaldal, f. 1900, d. 1973, og Guðlaugs Sigurðs- sonar frá Kóngsstöðum í Skíðadal, f. 1899, d. 1936. Yngri bræður Sig- ríðar eru Ottó Rafn, f. 1931 og Stefnir, f. 1933, d. 1980. Sigríður giftist 26. desember 1954, Hilmari Þorkelssyni frá Siglu- firði, f. 13. október 1928. Hann er sonur Jóhönnu Guðríðar Kristjáns- dóttur, f. 1892, d. 1986, og Þorkels Kristins Sigurðssonar [Svarfdal], f. 1881, d. 1940. Þau bjuggu hjá móð- ur Sigríðar á Siglufirði fyrstu árin en fluttu síðar til Reykjavíkur og loks til Kópavogs. Synir Sigríðar og Hilmars eru: 1) Guðlaugur Ævar smiður, f. 1948. Dætur hans og Ragnhildar Hreiðarsdóttur eru Rósa Björg, f. 1971 og Sandra Dögg, f. 1977, maki Jim Tonny Skogvoll. Sonur Guðlaugs og Krist- jönu Hávarðardóttur er Brynjar Ævar, f. 1982. Guðlaugur er kvænt- ur Steinunni Aldísi Einarsdóttur leikskólakennara, f. 1960, en hún átti fyrir Jakob Einar Úlfarsson, f. 1979 og Kristínu Úlfarsdóttur, f. 1983. 2) Jóhannes Ævar múrari, f. 1954, kvæntur Berglindi Jóhanns- dóttur ræstingastjóra, f. 1958. Börn þeirra eru a) Hilmar Ævar, f. 1978 og b) Jóhanna Kristín, f. 1989. 3) Sverrir Ævar húsasmíðameistari, f. 1955. Dóttir Sverris og Sigríðar Sigurðardóttur er Stella Ingibjörg, f. 1975. Sonur Sverris og Maríu Ein- vann Hilmar við bakstur hjá varn- arliðinu í Keflavík en Sigríður dvaldi á sumrin á Siglufirði hjá móður sinni. Loks settust þau að í Reykjavík. Stuttu síðar fæddist Jó- hannes og síðan hinir drengirnir hver af öðrum. Sigríður var að mestu leyti heima að gæta bús og barna og vann einnig um tíma á smurbrauðsstofunni Birninum á Njálsgötu. Sigríði og Hilmar má telja til frumbyggja Kópavogs en þangað fluttu þau skömmu eftir 1960 og hafa búið þar alla tíð. Fyrst við Víg- hólastíg, síðan á Hraunbraut, og loks í Holtagerði. Seinna festu þau kaup á einbýlishúsi, Álfhólsvegi 37, þar sem þau bjuggu í tæpa þrjá ára- tugi. Síðustu árin hafa þau búið í Vogatungu 75. Sigríði voru málefni og hagsæld Kópavogs kær og hún var án efa einn af dyggustu stuðn- ingsmönnum þessa ört vaxandi bæj- arfélags. Á áttunda áratugnum hrjáði Sigríði nokkurt heilsuleysi og hún dvaldi í kjölfarið á Reykja- lundi og heilsuhæli Náttúrulækn- ingafélags Íslands í Hveragerði. Á báðum stöðunum eignaðist hún marga góða félaga. Þá tók hún virkan þátt í sjálfboðaliðastarfi á vegum Sjálfsbjargar og vann í mörg ár að hinum árlega jólabasar félagsins. Snemma á níunda ára- tugnum vann Sigríður um tíma á videóleigu efst á Skólavörðustígn- um og síðan á útsölumarkaði fyrir son sinn og tengdadóttur. Hilmar og Sigríður festu kaup á sumarbústað í landi Miðfells við Þingvallavatn árið 1984. Þar hafa þau dvalið hvenær sem færi hefur gefist allan ársins hring. Þessi stað- ur var paradís í augum Sigríðar og þar eignaðist hún stóran hóp vina og kunningja. Dyr þeirra hjóna í Kópavogi og í bústaðnum í Miðfells- landi stóðu öllum opnar, mönnum og málleysingjum. Þar hafa barna- börnin dvalist í skemmri og lengri tíma, jafnvel vikum saman, og notið umhyggju þeirra hjóna. Sigríður og Hilmar stefndu að hinni árlegu vor- ferð í bústaðinn þegar hún lést. Útför Sigríðar var gerð frá Digraneskirkju 8. febrúar, í kyrr- þey að hennar ósk. arsdóttur er Krist- mundur Ari, f. 1980. Sonur Maríu er Sæ- þór Helgi Jensson, f. 1975. Sverrir er kvæntur Steinunni Sigríði Jakobsdóttur jarðeðlisfræðingi, f. 1953. Fyrir átti hún dóttur, Sigríði Soffíu Sigurjónsdóttur, f. 1981. 4) Jakob Ævar lagermaður, f. 1956, kvæntur Kristínu Þorsteinsdóttur inn- heimtufulltrúa, f. 1956. Þau eiga fjögur börn, a) Mar- gréti, f. 1974, gift Bjarka Þór Clau- sen, b) Sigurbjörgu, f. 1977, gift Sævari Erni Gunnlaugssyni, c) Hreiðar Ævar, f. 1980, kvæntur Sól- veigu Reynisdóttur og d) Aron Æv- ar, f. 1988. 5) Hilmar Ævar kerf- isfræðingur, f. 1958, kvæntur Önnu Heiðu Pálsdóttur doktor í barna- bókmenntum, f. 1956. Börn þeirra eru Sigríður Ásta, f. 1983 og Hilmar Ævar, f. 1988. 6) Kristinn Ævar, f. 1960. Dætur hans og Önnu Krist- bjargar Hallgrímsdóttur eru Hafdís Ósk, f. 1982 og Eva Björk, f. 1984. Barnabarnabörnin eru átta. Sigríður gekk í barnaskóla á Siglufirði og sótti síðar húsmæðra- námskeið. Hún missti föður sinn sjö ára gömul en þá voru yngri bræður hennar Ottó Rafn og Stefnir innan við fimm ára. Stuttu seinna var hún farin að standa við hlið móður sinn- ar á síldarplaninu á Siglufirði að salta síld í tunnur. Á táningsárum á Siglufirði vann hún á Sjómanna- heimili Íslands og í Gildaskálanum við framreiðslu. Sigríður og Hilmar Þorkelsson hófu búskap í risinu hjá móður hennar á eftirstríðsárunum og elsti sonur þeirra, Guðlaugur fæddist árið 1948. Þá var Hilmar í bakaranámi en þegar því lauk 1949 fluttu þau til Akraness og bjuggu þar í tvö ár. Um margra ára skeið Sigríður Guðlaugsdóttir, eða Sissý (þannig skrifaði hún nafnið sitt þótt það væri borið fram Sísí) og ég áttum margt sameiginlegt fyrir utan það að elska sama manninn, Hilmar Ævar, son hennar og eiginmann minn. Við höfðum meðal annars áhuga á sömu sjónvarpsþáttunum og þá voru lækna- þættir eins og Bráðavaktin í mestu uppáhaldi, eftir að Dallas og Þyrni- fuglarnir voru allir. Við ræddum kosti og kalla persónanna, líf þeirra og dauða, ástir og yndi, vegna þess að báðar höfðum við áhuga á mannlegu eðli og mannlegum breyskleika. Við töluðum líka oft um minningargreinar sem við höfðum lesið og spekúleruðum fram og aftur um hvernig þær voru rit- aðar og hvað þær sögðu okkur um þann sem genginn var. Við létum það fara í taugarnar á okkur þegar sá er ritaði lagði spurningar fyrir hinn fram- liðna eða talaði meira um sig og sína sorg og missi en ævispor hins látna. Sissý vissi ætíð að ég myndi skrifa um hana minningargrein og ég ætla að fara eftir forskrift okkar, að beina kastljósinu að ævi þessarar litríku og einörðu konu sem spannar ein 78 ár. Hún veit að ég sakna hennar meira en fátæk orð fá lýst. Sissý er fædd og uppalin á Siglu- firði. Eitt sumar þegar hún var ung- lingur var hún send til frænda síns sem bjó á bænum Vík við Fáskrúðs- fjörð, til að gæta barna. Sissý, sem hafði saltað síld í tunnur frá átta ára aldri, leiddist aðgerðaleysið og fór að stokka upp og beita. Þá leitaði hún til frænda síns og bað um að fá alvöru vinnu við þetta. Fyrst fannst honum hugmyndin fáránleg, slíkt þótti ekki vinna fyrir stelpuskjátu, en hún fékk að sýna kunnáttu sína og kom sjó- mönnunum á óvart. Þannig að barna- gæslunni var lokið og hún vann við að stokka upp og beita þar til hún þurfti að snúa aftur heim til Siglufjarðar fyr- ir veturinn. Seinna, þegar Sissý var um það bil 17 ára, var hún að vinna hjá Konna í Gildaskálanum á Siglufirði en þangað komu verkamenn og smiðir sem unnu að uppbyggingu iðnaðarhúsa á þess- um uppgangsárum eftir stríðið. Hún var oft búin að segja körlunum að raða upp skónum sínum snyrtilega í and- dyrinu en þeir áttu það til að henda þeim upp að vegg út um allt hús. Einn daginn fékk Sissý nóg. Hún smalaði saman öllum skónum og henti í eina hrúgu út fyrir hús. Karlarnir komu sumir klukkutíma of seint í vinnuna eftir matinn, þeir þurftu að leita að skónum sínum í skóhaugnum. Henni tókst að kenna þeim lexíu og eftir þetta var skónum raðað snyrtilega í anddyrið. Þessar tvær stuttu sögur frá ung- lingsárum Sissýar varpa ljósi á per- sónu hennar eins og hún var þau sextíu ár sem eftir voru af ævi hennar. Hún var ákveðin, hún vissi hvað hún vildi og hvernig hún fengi því framgengt. Hún var sérstök, ekki bara karakterinn, heldur í útliti og framkomu. Flestir sem hafa hitt hana, gleyma því ekki, hún skildi eftir skýra mynd í huga þeirra, mynd af hnakkakerrtri konu með tinnusvart hár og svolítið skásett, flauelsbrún augu, svo dökk að þau virt- ust stundum svört, sem tindruðu af glettni þegar hún sagði sögur eins og þessar hér á undan. Þegar hún sat og talaði við fólk sem henni þótti vænt um, tók hún höndina á því og lagði hana milli sinna hlýju og mjúku handa og horfði beint í augun á viðmælanda sínum með þessum glitrandi brúnu stjörnum, fullum af alúð og mannleg- um skilningi. Tengdamóðir mín var stór mann- eskja þótt hún væri hvorki hærri né meiri um sig en flestar aðrar konur. Hún var með breiðan faðm sem náði utan um syni hennar, tengdadætur, börn þeirra og barnabörn. Og faðm- urinn náði lengra, hann umvafði þá sem tengdust hennar nánustu, beint eða óbeint: stjúpbörn sona hennar, kærustur og kærasta barnabarnanna, maka þeirra, vini og velunnara. Hjart- að var stórt sem rúmaði okkur öll og meira til, því þar áttu einnig pláss vinir hennar og ættingjar, og risastór systk- inahópur Hilmars, mannsins hennar, ásamt þeirra mökum og börnum. En hún var ekki allra. Svo ég víki aftur að lestri minningargreina, þá vorum við ósammála um eitt atriði. Henni fannst mikill mannkostur að vera ekki allra. Mér fannst það mann- kostur að vera hvers manns hugljúfi. Þannig væmni féll ekki að skapgerð Sigríður J. Guðlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.