Morgunblaðið - 28.02.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 58. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
HR. HERRAMENN
UPPÁHALDSHERRA BIRTU BJÖRNSDÓTTUR
ER BÆÐI GLEYMINN OG LATUR >> 43
ROÐLAUST OG BEIN-
LAUST Í ÁRATUG
HLJÓMSVEIT
Í FRYSTITOGARA >> 22
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
HLUTABRÉFAMARKAÐIR voru í töluverðu
uppnámi allan gærdag, en helstu hlutabréfavísi-
tölur heims lækkuðu allar, mismikið þó. Upp-
hafið má rekja til Kína, en kínverska Shanghai-
vísitalan (SCI) lækkaði um tæp níu prósent
vegna yfirvofandi aðgerða kínverskra stjórn-
valda til að auka eftirlit með markaðnum og
markaðsaðilum.
Kínverski markaðurinn hefur vaxið hratt og
mikið undanfarin ár og er fjöldi vestrænna fyr-
irtækja orðinn háður kínverska markaðnum.
Áhyggjur fjárfesta af hugsanlegum afleiðingum
áðurnefndra aðgerða stjórnvalda þar í landi á
markaðinn og hagvöxt í landinu ollu svo þeirri
keðjuverkun sem varð á hlutabréfamörkuðum
heimsins.
Japanska Nikkei-vísitalan lækkaði um 0,52%,
Hang Seng-vísitalan í Hong Kong um 1,76%,
þýska DAX-vísitalan um 2,96%, franska CAC40
um 3,02% og breska FTSE 100-vísitalan um
2,31%.
Bandarísku vísitölurnar lækkuðu einnig, Dow
Jones um 3,29%, Nasdaq um 3,86% og S&P500
um 3,47%. Var ástandið svo slæmt að settar
voru hömlur á hlutabréfaviðskipti í kauphöllinni
í New York, en þau komu ekki í veg fyrir mikla
lækkun á hlutabréfaverði.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Ís-
lands, segir erfitt að spá um þróun mála á mörk-
uðum. „Það eru hins vegar engar ákveðnar vís-
bendingar um að um varanlega niðursveiflu sé
að ræða, heldur er líklegra að taugatitringur
hafi ráðið för í gær,“ segir Þórður.
Taugatitringur á mörkuðum
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
HVÍTASUNNUDAGUR, málverk
eftir Jóhannes Kjarval, var sleg-
inn á 1,3 milljónir danskra króna
(DKR), 15,2 milljónir íslenskra
króna, á uppboði hjá Bruun Ras-
mussen í Kaupmannahöfn síðdeg-
is í gær. Jóhann Ágúst Hansen,
listmunasali hjá Galleríi Fold,
keypti málverkið fyrir hönd
ónefnds íslensks einstaklings.
Heildarkostnaður við verkið kom-
ið til Íslands er um 25 milljónir.
Jóhann telur, líkt og fleiri, að
þetta sé hæsta verð sem greitt
hefur verið fyrir íslenskt málverk.
Við söluverðið bætast 20% upp-
boðslaun og 5% höfundarrétt-
argjald. Verkið kostar því rúmar
20 milljónir þegar uppboðshúsið
afhendir það. Verði það flutt til Ís-
lands bætist við 24,5% virðis-
aukaskattur, eða um fimm millj-
ónir. En mun þessi sala hafa áhrif
á verð Kjarvalsverka?
„Ég held að þetta sé svolítið
sérstakt atvik. Allt síðasta ár hafa
verk verið að hækka mjög mikið,
þó kannski sérstaklega eftir aðra
höfunda en Kjarval. Það væri
mjög ánægjulegt ef verkin hans
færu að fylgja þeim hækkunum,“
sagði Jóhann.
„Það eru ákveðin tímamót þeg-
ar verk eftir íslenskan listamann
selst á uppboði á svo háu verði,“
sagði Ólafur Kvaran, safnstjóri
Listasafns Íslands. „Kjarval átti
langan feril og hann var nýkom-
inn úr skóla þegar hann gerði
þessa mynd. Hún hefur sérstöðu á
ferli hans og sýnir vel næmi hans
gagnvart hreyfingum í samtím-
anum. Myndin er samt ekki frá
blómaskeiði hans síðar á ferlinum.
Því er erfitt að meta hverjar afleið-
ingar þessa verða, en tvímælalaust
verða þær einhverjar,“ sagði Ólaf-
ur.
Hafþór Yngvason, forstöðu-
maður Listasafns Reykjavíkur,
sagði að safnið hefði tekið þátt í
uppboðinu framan af en ekki haft
fjármuni til að keppa við þá sem
best buðu. „Það hefði verið gaman
að geta sýnt þetta verk með safn-
eigninni og sýnt betur hvernig
ferill Kjarvals var. Ef kaupandinn
er íslenskur vonumst við til að
geta unnið með honum og sýnt
verkið í framtíðinni.“
Ætti að vera meira metinn
Kristján Steingrímur Jónsson,
deildarforseti myndlistardeildar
Listaháskóla Íslands, sagði Kjar-
val vera einn af stærstu lista-
mönnum þjóðarinnar og verk hans
ættu að vera meira metin en verið
hefur. „Ef við miðum Kjarval við
sambærilega listamenn á Norð-
urlöndum ætti að bæta að minnsta
kosti einu núlli aftan við verðið á
myndum hans, eins og það var.“
Hilmar Einarsson í Morkin-
skinnu vissi ekki til þess að Kjar-
valsverk hefði farið áður á jafnháu
verði og Hvítasunnudagur. Fram-
reikna þyrfti verð frá fyrri árum
til að hafa raunhæfan samanburð
og nefndi hann í því sambandi
tímamótaverk Svavars Guðnason-
ar, Gullfjöllin, sem Listasafn Ís-
lands keypti á sínum tíma. Hilmar
sagði þetta vekja spurningar um
hvað fengist fyrir virkilega fínt
hefðbundið málverk eftir Kjarval
og hvort þetta hefði áhrif á mál-
verkamarkaðinn almennt.
Tímamótasala á Kjarval
Hvítasunnudagur
sleginn á 15,2
milljónir króna
UPPBOÐSHÚS Bruun Rasmussen hafði
metið verk Kjarvals á 100–150 þúsund
danskar krónur, sem Jóhann Á. Hansen
listmunasali telur að hafi verið vanmat.
Boð hafi eiginlega byrjað á 300–400 þús-
undum DKR og farið skjótt í 800.000.
Fyrsta boð Jóhanns var 900.000 DKR,
en var hann reiðubúinn að fara miklu
hærra en endanlegt kaupverð reyndist?
„Nei, ég held þetta hafi verið hámark-
ið. Margir voru tilbúnir að borga um
milljón og a.m.k. fimm að bjóða á því
stigi og þrír fóru yfir milljón. Spennan
var magnþrungin á lokasprettinum. Þá
vorum við tveir að bjóða í,“ sagði Jó-
hann. Hann vissi ekki hver hinn var en
sá bauð í gegnum síma. Segir Jóhann að
sér hafi létt mjög þegar verkið var sleg-
ið honum á 1.300.000 DKR.
Spennan var
magnþrungin
Bjóðandinn Jóhann bauð
fyrir ónefndan Íslending.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
ÞÓTT hækkun Moody’s á lánshæfismati ís-
lensku bankanna hafi komið mönnum þægi-
lega á óvart hér heima fer því þó víðsfjarri að
hún mælist alls
staðar jafnvel
fyrir; sérfræð-
ingar hjá Royal
Bank of Scot-
land, Dresdner
Kleinwort og
Société Génér-
ale hafa þannig
gagnrýnt
Moody’s og
segja hækk-
unina ganga
þvert á mat
markaðarins og fjárfesta á íslensku bönk-
unum sem krefjist umtalsvert hærri ávöxt-
unar þegar þeir kaupi skuldabréf íslensku
bankanna en annarra banka með sömu láns-
hæfiseinkunn.
Einnig er minnt á að svokallað skulda-
tryggingarálag, sem er óbeinn kvarði á
áhættuna á að banki geti ekki staðið við
skuldbindingar sínar, sýni að markaðurinn
telji skuldabréf íslensku bankanna áhættu-
samari fjárfestingu en bréf banka með svip-
aðar lánshæfiseinkunnir.
Þetta er auðvitað rétt svo langt sem það
nær en meginspurningin og hinn endanlegi
prófsteinn er hvort markaðurinn færi sig í
átt að mati Moody’s eða ekki. Og það er líka
rétt að hafa í huga að þetta er ekki í fyrsta
sinn sem markaðurinn metur stöðuna öðru-
vísi en Moody’s sem á auðvitað allt sitt undir
trúverðugleika sínum og orðspori. Þannig
má minna á að fyrir tæpu ári þegar fjöl-
margar neikvæðar skýrslur erlendra grein-
ingardeilda birtust og óróinn í kringum ís-
lensku bankana og íslenskt efnahagslíf var
sem mestur hélt Moody’s í öllum grunnatrið-
um fast við mat sitt á þeim.
Tekið tillit til beggja einkunna
Lynn Valkenaar, sérfræðingur hjá
Moody’s, vildi ekki tjá sig sérstaklega um
gagnrýni þessara greiningardeilda, er
Morgunblaðið náði tali af henni. Hún lagði
áherslu á að mikilvægt væri að hafa í huga
bæði lánshæfiseinkunn og einkunn fyrir
fjárhagslegan styrkleika íslensku bankanna;
allir íslensku bankarnir hefðu þannig fengið
C í einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika
en Aaa í lánshæfiseinkunn. Fjárfestar tækju
auðvitað tillit til beggja þessara einkunna.
Valkenaar segir að með hinni nýju að-
ferðafræði Moody’s sé tekið meira mið af
hugsanlegum stuðningi eigenda banka eða
hins opinbera; staðreyndin sé sú að nær eng-
inn stærri banki hafi orðið gjaldþrota í Evr-
ópu á undanförnum áratugum þannig að í
reynd hafi lánhæfiseinkunnir í mörgum til-
vikum verið of lágar. Moody’s hafi m.a. verið
að bregðast við þeirri staðreynd og hækkun
einkunna íslensku bankanna beri að skoða í
því ljósi.
Hækkun
lánshæfis-
mats
gagnrýnd
Morgunblaðið/P. Aldís
Metverð Hæsta boðið í málverk Kjarvals reyndist vera um tífalt hærra en verkið hafði verið metið af uppboðshaldaranum fyrir uppboðið.