Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn LÍSA, ÉG ER MJÖG HRIFINN AF ÞÉR ÉG ER LÍKA MJÖG HRIFIN AF ÞÉR ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ KOMINN TÍMI TIL ÞESS AÐ VIÐ FÆRUM SAMBANDIÐ OKKAR Á NÆSTA STIG Ó? POLKA OG KARAÓKÍ KVÖLD VELKOMIN Í OKKAR HEIM ELSKAN HEFUR ÞÚ HUGLEITT AÐ SKÍTA PÉSI GÆTI VERIÐ MEÐ ÆVA- FORNAN SKÍT Á SÉR SJÁÐU HVERNIG RYKIÐ FESTIST VIÐ HANN HANN GÆTI VERIÐ MEÐ SKÍT Á SÉR FRÁ HINNI FORNU BABÝLON FÆR ÞAÐ YKKUR EKKI TIL ÞESS AÐ VILJA KOMA BETUR FRAM VIÐ MIG? ROSALEGA ER FALLEGT VEÐUR ÚTI! ÞVÍ MIÐUR GETUR ÞÚ EKKI VERIÐ HEIMA TIL AÐ NJÓTA ÞESS ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐINN GAMALL ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ SJÁ EFTIR ÞVÍ AÐ HAFA EKKI GEFIÐ ÞÉR TÍMA TIL ÞESS AÐ NJÓTA ÞESSARA DAGA. EN ÞANGAÐ TIL ER MIKILL TÍMI OG MIKIL VINNA ÞÚ ÆTTIR AÐ DRÍFA ÞIG Í VINNUNA! SKEMMTU ÞÉR VEL Í ALLRI UMFERÐINNI Á LEIÐINNI! ÞEGAR ÞÚ KEMUR HEIM ÞÁ GETUR ÞÚ SETIÐ OG HORFT Á SÓLSETRIÐ... EF ÞÚ NÆRÐ AÐ VAKA SVO LENGI! ÞEGAR ÉG EIGNAST BÖRN, VONA ÉG AÐ ÞAU VERÐI EKKI EINS OG ÉG HVERNIG SKEMMTIR ÞÚ ÞÉR Í PARÍS? BARA SVIPAÐ VEL OG SÍÐAST SÍÐAST ÞEGAR ÞÚ FÓRST ÞÁ TÓK ÞAÐ ÞIG VIKU AÐ KOMAST AFTUR Í SAMT LAG ALLT Í LAGI... ÉG SKEMMTI MÉR KONUNG- LEGA ÚPS! HUNDAR AÐ SPILA PÓKER Á NETINU HEH HEH... HÆ MAMMA ADDA? HVAÐ ÁTTI KIDDA VIÐ MEÐ ÞVÍ AÐ ÞÚ HEFÐIR KALLAÐ MIG BELJU? EN SÚ VITLEYSA! ÉG VEIT EKKI UM HVAÐ HÚN ER AÐ TALA HEH... EÐA ÉG MEINA... ...HÚN TÓK ÞAÐ ALGJÖRLEGA ÚR SAMHENGI Ó... ÉG SKIL JONAH JAMESON HÉR! TALAÐU HRATT! ÉG ER UPPTEKINN MAÐUR HVAÐ? ER HANN AÐ FARA HVERT? VAR ÞETTA EITTHVAÐ ALVARLEGT MJÖG! PETER PARKER ER AÐ FARA Á SPÍTALA OG ÉG Á EFTIR AÐ ÞURFA AÐ BORGA FYRIR ÞAÐ Ámorgun, fimmtudag, kl.12.15 býður Rann-sóknastofa í kvenna- ogkynjafræðum við Há- skóla Íslands til fyrirlestrar í stofu 132 í Öskju. Þar mun Hildigunnur Ólafsdóttir afbrotafræðingur halda erindið „Kynjabilið sem hverfur ekki – um kynferði, menningu og áfengisneyslu“. „Í fyrirlestrinum greini ég frá niðurstöðum rannsóknar sem fram fór á áfengisneyslu karla og kvenna í 14 löndum Suður-, Mið- og Norð- ur-Evrópu,“ segir Hildigunnur en svissneska áfengis- og vímuvarna- stofnunin SIPA hafði umsjón með samræmingu rannsóknar- gagnanna. „Niðurstöður staðfesta það sem aðrar rannsóknir hafa gef- ið til kynna, að áfengisneyslu- mynstur kvenna og karla eru tölu- vert ólík, karlar oftar áfengisneytendur og vandamál áfengisneyslu algengari hjá körl- um.“ Hildigunnur segir áfengisneyslu- mynstur karla og kvenna vera lík- ara í löndum þar sem meira jafn- ræði er milli kynjanna, eins og á Norðurlöndunum: „Það skýrist meðal annars af því að sú aðgrein- ing sem víða hefur verið á „heimi karla“ og „heimi kvenna“ er óðum að hverfa: konur hafa í auknum mæli farið út á vinnumarkað, og karlar og konur skemmta sér sam- an, svo hegðun og lífsstíll verður líkari,“ segir Hildigunnur. Áður mátti draga nokkuð skýr mörk á milli svæða Evrópu eftir mörkum víndrykkju, bjórdrykkju og drykkju sterkra drykkja: „Þessi mörk hafa nú bjagast og neyslu- mynstur milli þjóða þróast í átt að því að verða einsleitara. Þetta er í samræmi við aðrar breytingar á neysluvenjum og lífsstíl Evrópubúa sem hnattvæðingin hefur gert kleift að njóta hversdags sama varnings og býðst í öðrum löndum, hvort heldur það er ítalskt pasta eða íslenskur fiskur,“ segir Hildi- gunnur. „Neyslumynstur karla endurspeglar þó betur hina hefð- bundnu skiptingu vín-, bjór- og brennivínsdrykkjusvæða. T.d. eru franskir og spænskir karlmenn enn mjög hrifnir af víni en miðevr- ópskir karlmenn drekka bjór um- fram aðra áfenga drykki.“ Að mati Hildigunnar vekur aukin samleitni í áfengisneysluvenjum í Evrópu spurningar um samræmda áfengisstefnu: „Á meðan Norð- urlandaþjóðirnar hafa nokkuð stranga áfengisstefnu hafa margar þjóðir Mið- og Suður-Evrópu enga heildstæða stefnu í áfengismálum. Neysla áfengis getur ekki aðeins valdið heilsufarslegum vanda- málum, heldur einnig félagslegum, en félagslega byrðin af áfeng- isvandanum er iðulega borin á herðum kvenna sem oft bera meiri ábyrgð á börnum og fjölskyldulífi.“ Fyrirlestrar Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Há- skóla Íslands eru öllum opnir og að- gangur ókeypis. Nánari upplýs- ingar um fyrirlestra og viðburði RIKK á vormisseri má finna á slóð- inni rikk.hi.is. Heilsa | Fyrirlestur á vegum RIKK á fimmtudag um áfengisneyslu í Evrópu Kynferði, menn- ing og áfengi  Hildigunnur Ólafsdóttir fædd- ist í Reykjavík 1944. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1964, cand. polit. frá Osló- arháskóla 1972 og doktorsgráðu í afbrotafræði frá sama skóla 1998. Hildigunnur hefur starfað við áfengisrannsóknir og rannsóknir í afbrotafræði með starfsaðstöðu í Reykjavík- urakademíunni. Hún situr nú í rannsóknaráði NAD – norrænu nefndarinnar um áfengis- og vímu- efnarannsóknir. Hildigunnur er gift Jóni Skúlasyni verkfræðingi og eiga þau eina dóttur. TVÆR mannverur ræðast við í stigagangi raun- og hugvísindastofnunar- innar sem kennd er við Brandenburg í Berlín. Svona mætti hugsa sér að menntavegurinn margumtalaði liti út þegar efsta þrepinu er náð. Reuters Menntavegurinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.