Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 25 ari og miklu fleiri veikjast.“ Bóluefnisstofnar sem settir eru á markað áður en árstíðabundna flensan kemur byggjast á því sem verið hefur í gangi hinum megin á hnettinum árið áður. „Inflúensan fer hringinn um jörðina,“ segir Har- aldur, „hún byrjar á suðurhvelinu, það sem er í gangi þegar vetur ríkir þar kemur upp á norðurhvelinu þegar vetur er þar. Þannig höfum við alltaf smáfyrirvara og stundum tekst vel til, eins og fréttir virðast benda til í ár.“ Inflúensulyf er til Fólk smitar mest rétt áður en það veikist og í nokkra daga á eftir. Eftir því sem líður á veikindin minnkar smithættan. „Vandamálið með flensuna er að fólk smitar áður en það veikist,“ segir Haraldur. „Við hvetjum alltaf fólk sem er 60 ára og eldra eða í sérstökum áhættuhópum til að láta bólusetja sig á haustin, það er besta aðferðin, en svo er til inflúensulyf,“ upplýsir hann. „Tvö lyf eru á markaðnum, en við hvetjum fólk ekkert sérstaklega til að nota þau, flestir ráða við þetta sjálfir, en það er hægt að stytta veikindatímann og draga verulega úr því að veiran fjölgi sér í lík- amanum og þar með minnka smit- líkurnar. Þessi lyf munu skipta meira máli ef það kemur heimsfar- aldur. Þá munum við ekki eiga neitt bóluefni fyrst í stað, en það höfum við núna og hvetjum þess vegna fólk til að nota það.“ Lyfin sem virka á inflúensuna þarf að taka innan tveggja sólarhringa eftir að hún gerir vart við sig og því fyrr því betra, annars skila þau litlu sem engu, því þá eru veikindin búin að toppa. „Þau eru nokkuð virk, þessi lyf, þó að hiti sé áfram í nokkra daga draga þau úr vanlíðan og öllu því sem flensunni fylgir.“ Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is RANNSÓKNIR íslensku vís- indakonunnar Heklu Sigmunds- dóttur við Stan- ford-háskóla í Kaliforníu hafa vakið athygli er- lendis. Nýlega birtist grein í vís- indatímaritinu Nature Imm- unology um rannsóknir Heklu sem benda til þess að sólarljós geti haft áhrif á og styrkt ónæmiskerfi húð- arinnar. Grein þessi var valin „grein mánaðarins“ af tímaritinu og birtist hún í marshefti þess. Rannsóknin var unnin af dr. Heklu Sigmundsdóttur og sam- starfsmönnum undir handleiðslu prófessors Eugene Butcher við Stanford-háskóla. Leita uppi sýkla og bakteríur „Varnarkerfi líkamans er flókið og ónæmiskerfið gegnir þar lykil- hlutverki. Svokallaðar T-eitil- frumur eru mikilvægur hluti af ónæmiskerfinu og hlutverk þeirra er m.a. að leita uppi sýkla og bakt- eríur, sem geta valdið sýkingum og útrýma þeim. Til þess að T-eitil- frumur geti gegnt hlutverki sínu þurfa þær að vita af aðsteðjandi hættu og það er hlutverk anga- langra fruma, sem á ensku kallast „dendritic cells“, að leita uppi sýkla, gleypa þá og „sýna“ T-frumunum búta af sýklunum. T-frumurnar „kanna“ bútinn og þær verða um leið sérhæfðar til að þekkja sýkilinn. T-frumurnar meta hversu alvarlegt ástandið er og hvort senda þurfi fleiri T-frumur á árásarstaðinn. Ef svo er fjölga þær sér og fara af stað til að berjast gegn sýklinum. Líkaminn er hinsvegar stór og því er um umfangsmikið svæði að ræða sem ónæmiskerfið þarf að verja. Vísindamenn hafa lengi velt því fyrir sér hvort T-eitilfrumur fái hjálp til að finna árásarstaðinn fljótt og einnig hvar hjálpar er helst þörf. Rannsóknir á ónæmiskerfi meltingarvegar benda til þess að angalangar frumur geti nýtt sér A- vítamín, sem kemur úr fæðunni, og gefi frá sér efni, sem hvetur T- frumur til að fara inn í melting- arveginn, t.d. til að kanna ástandið þar,“ segir Hekla Sigmundsdóttir í samtali við Daglegt líf. Húðfrumur og sólarljós Eugene Butcher og samstarfs- menn við Stanford-háskóla veltu því fyrir sér hvort svipað ferli ætti sér stað í húðinni. Húðfrumur fram- leiða D-vítamín þegar þær verða fyrir áhrifum sólarljóss. D- vítamínið sjálft er ekki nýtanlegt og þarf að virkja það. Vitað er að D- vítamín er flutt til lifrar og nýrna þar sem hið virka D-vítamín er framleitt. Í rannsókninni, sem lýst er í Nature Immonology, kom hins- vegar í ljós að angalangar frumur í húðinni geta búið til hið virka D- vítamín og líklegt er að það eigi sér stað í húðinni sjálfri. Þegar T- frumur ónæmiskerfisins verða fyrir áhrifum frá þessu virka D-vítamíni fara þær að tjá viðtaka, sem hvetur þær til að fara til húðarinnar. Á vissan hátt má segja að hið virka D- vítamín geti „ýtt“ T-frumum út í húðina. Þetta er því mögulega ein leið, sem ónæmiskerfið getur nýtt sér til að hvetja T-frumur til að fara til húðarinnar og verja hana gegn sýklum,“ að sögn Heklu Sigmunds- dóttur. Morgunblaðið/Jim Smart Sólarljósið Oft er því haldið fram að sólarljós skaði húðina, en nýjar rann- sóknir Heklu Sigmundsdóttur benda til að það geti styrkt varnir líkamans. Dr. Hekla Sigmundsdóttir Sólarljós styrkir ónæmis- kerfi húðarinnar www.nature.com www.the-scientist.com www.sciencenow.sciencemag.org HARALDUR bendir á að kvefveir- an sé minna smitandi en inflúensan og erfiðara sé að eiga við flensuna af því að hún geti borist lengra en kvefveiran, t.d. um loftræstikerfi. Merkilegt nokk segir hann flug- vélar ekki vera gróðrarstíu fyrir inflúensu og kvefveiru. „Þær eru góður staður til að vera á,“ segir hann. „Loftræstikerfi flugvéla er eins og á skurðstofu, það fer úr loft- inu og niður í gólfið og streymir alltaf þannig. Til er frægt dæmi um að bilað hafi loftræstikerfi í flugvél og þá veiktust allir sem voru um borð en þeir sem fóru frá borði áð- ur en kerfið bilaði sluppu,“ segir hann glettnislega. Loftræstikerfi flugvéla eins og á skurðstofu  Þeim sem eru með flens- una bendir Haraldur á að hafa hægt um sig heima, þeirra sjálfra vegna og þess að þannig minnka þeir hætt- una á að smita aðra.  Gott hreinlæti, sem felst t.d. í að þvo hendurnar oft, hjálpar.  Öðrum fjölskyldu- meðlimum, sem ekki hafa veikst, er bent á að halda ákveðinni fjarlægð frá hin- um sjúka, um tveimur metrum, svo þeir fái ekki á sig stóran smitskammt þegar hinn sjúki hnerrar eða hóstar. Rétt viðbrögð Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur thuridur@mbl.is Íapótekum Lyfja og heilsu um alltland er nú boðið upp á sérhæfðaráðgjöf fyrir fólk sem vill hætta að reykja, en það er einnig ætlað þeim sem vilja hætta að nota munntóbak og minnka eða hætta að nota nikótínlyf og er um einkaviðtöl að ræða. Tóbakið sigrað heitir verkefnið og hefur hvert viðtal ákveðið þema, s.s. áhrif tóbaks á líkamann og hvernig hægt sé að ná árangri í reykbindindi. Sigríður P. Arnardóttir, lyfjafræð- ingur og leyfishafi í Lyfjum og heilsu í Firði, var spurð út í verkefnið sem hefur að leiðarljósi markmið Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar (WHO) um reyklausa veröld. „Nýj- ungin er sú að þetta er árs- prógramm og einstaklingar geta pantað sér ráðgjöf yfir langan tíma. Við viljum helst að fólk komi með viku millibili í átta vikur en ef það vill koma sjaldnar er það í lagi. Ráðgjöfin er einstaklingsmiðuð. Tóbakið er ein helsta ógn við heil- brigði fólks í heiminum og því er for- varnarstarfið mikilvægt. Verkefnið er samstarfsverkefni heilbrigðisstétta en við höfum kynnt það landlækni, Lýðheilsustöð og Krabbameinsfélag- inu og þau tóku vel í þetta framtak. Við viljum fá alla á námskeiðin, líka þá sem eru rétt farnir að hugsa um að hætta að reykja og eins fólk sem hef- ur fallið – að það sé ekki hrætt við að mæta aftur. Flestir þeir Íslendingar sem reykja vilja hætta af því að þeim er svolítið úthýst en þegar margir sjá auglýst námskeið komast þeir ekki á það eða eru ekki tilbúnir að fara. Með viðtölunum aukum við aðgengi að ráð- gjöf og við byggjum námskeiðið á góðri reynslu.“ Sigríður segir fyrirtækið eiga frumkvæði að verkefninu hérlendis og það sé þáttur í lyfjafræðilegri ráð- gjöf sem sé lögbundin, þetta sé þeirra innlegg. Hún undirstrikar mikilvægi samstarfsins við heilsugæslustöðvar. Á námskeiðunum séu sjúkdómar ekki meðhöndlaðir heldur vísi þau lösnu fólki til heilbrigðisþjónustunnar. Eins og að stíga á vigtina Að meðaltali deyr einn Íslendingur af völdum reykinga á dag. „Nikótínið er í sjálfu sér hættuminnst fyrir þá sem hafa vanið sig á það en er mjög vanabindandi, hættulegu efnin eru reykurinn og tjaran. Á námskeiðinu sýnum við fram á hve það eykur lífs- gæði að hætta reykingum og bætir vellíðan. Líkamlegri fíkn í nikótínið má líkja við fíkn í kókaín og heróín. Það er náttúrlega líka dýrt að nota nikótínlyf í langan tíma og örvunin er heldur ekki góð.“ Gerðar verða blóðþrýstings- og kolmónoxíðmælingar. „Kolmónoxíð er efni sem maður andar að sér þegar maður reykir og það binst blóðrauð- anum fastar en súrefni. Það eykur álag á hjarta- og æðakerfið og þegar maður hættir að reykja minnkar kolmónoxíðmagn í blóði mjög fljótt. Við mælum þetta magn í útöndun og það er eins og að stíga á vigtina því maður sér strax mælanlegan árang- ur. Það er gaman að sjá það.“ Sigríður á von á að fólk taki vel við sér. „Ég hef sjálf haldið námskeið þar sem fólk kom í hópviðtöl í apótekinu og það virkaði vel. Þema nýju viðtal- anna byggist á þessum námskeiðum. Þetta er samevrópskt verkefni, apó- tek í Evrópu halda verkefnum sem þessum ávallt gangandi og nið- urstöður eru birtar á alþjóðlegum ráðstefnum. Þetta er í raun það sem við eigum að gera hér á landi. Ef vel tekst til með þetta höldum við þessu áfram.“ Hægt er að panta viðtalstíma í næsta apóteki Lyfja og heilsu en hver tími tekur að jafnaði korter og kostar 500 kr. Morgunblaðið/Ásdís Tóbaksböl Sigríður P. Arnardóttir lyfjafræðingur líkir líkamlegri fíkn í nikótín við kókaínfíkn. Alþjóðlegt verkefni um reyklausa veröld Flestir þeir sem reykja vilja hætta Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar www.heimili.is Vönduð rúmgóð 95 fm útsýnisíbúð á 2. hæð og með- fylgandi 25 fm sérstandandi bílskúr. Tvö stór svefn- herbergi. Parket og flísar á gólfum, þvottahús innan íbúðar og suðursvalir með miklu útsýni. V. 25,9 m. Hlíðarhjalli - 3ja herb með bílskúr Bogi Molby Pétursson Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Sími 530 6500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.