Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag miðvikudagur 28. 2. 2007 íþróttir mbl.isíþróttir Aðstoðarkona Stensons er þekktari en sænski kylfingurinn>> 4 ÓSKABYRJUN UNITED „ÁTTUM FRÁBÆRA ENDURKOMU,“ SAGÐI BRYNJAR BJÖRN GUNNARSSON, LEIKMAÐUR READING >> 2 Rajcomar, sem er framherji, verður 22 ára en hefur samt spilað yfir 100 leiki í tveimur efstu deildunum í Hollandi. Mest í 1. deild, með Fortuna Sittard og Den Bosch, en hann á einnig að baki 20 leiki í úrvalsdeildinni með Utrecht. Rajcomar var jafnframt fastamaður yngri landsliðum Hollands, síðast með U20 ára landsliðinu fyrir tveimur árum. Hann hef- ur ekkert getað spilað í vetur, því samningur hans við lið í næstefstu deild í Belgíu, Lom- mel, fór út um þúfur í lok ágúst og þar með gat hann ekki skipt um félag fyrr en eftir ára- mót. Podzemsky ekki með Blikum Alls verða fimm erlendir leikmenn með Breiðabliki í sumar. Serbarnir Srdjan Gasic og Nenad Zivanovic leika áfram með liðinu, em og norski bakvörðurinn Stig Krohn Haa- and. Þá er Nenad Petrovic frá Serbíu vænt- anlegur en beðið er eftir atvinnuleyfi fyrir hann. Tékkinn Petr Podzemsky verður hins- vegar ekki áfram í röðum Breiðabliks, honum var ekki boðinn nýr samningur og hann spilar nú í 3. deildinni í heimalandi sínu. Blikar sömdu við Raj- comar BREIÐABLIK gekk í gær frá eins árs samn- ngi við hollenska knattspyrnumanninn Prince Rajcomar, sem var til reynslu hjá fé- aginu fyrr í þessum mánuði. Hann er vænt- anlegur til landsins um næstu helgi og getur því væntanlega spilað með Kópavogsliðinu frá og með næsta leik í deildabikarnum sem er gegn Þrótti þann 11. mars. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson eth@mbl.is Þetta eru bestu fréttir sem ég hef engið s.l. 12 mánuði og þýski sér- ræðingurinn telur að ég þurfi ekki að fara í viðamikla aðgerð á nára til þess að ná bata,“ sagði Jóhannes Harðarson leikmaður norska knatt- pyrnuliðsins Start í gær við Morg- unblaðið. Jóhannes fékk aðgang að þekktum þýskum sérfræðingi í íþrótta- meiðslum, Hans-Wilhelm - Müller- Wohlfahrt, en hann er í læknateymi þýska landsliðsins og stórliðsins Bay- „Sjúkraþjálfari okkar hjá Start gat komið mér að hjá þessum lækni í gegnum „klíku“ og ég var himinlif- andi að fá niðurstöður úr fyrstu rann- sókn. Ég hef verið meiddur á nára í rúmt ár og ekkert getað leikið. Við fyrstu sýn virðist sem að vandamálið sé í hryggnum á mér en ekki í nára eins og aðrir læknar hafa talið á und- anförnum misserum. Fyrir atvinnu- knattspyrnumann eru þetta frábær- ar fréttir því næsta skref hjá mér var að fara í rannsókn og stóra aðgerð hjá sænskum sérfræðingi,“ sagði Jó- hannes. Startliðið er í æfingabúðum á La Manga og var Jóhannes í eina hann að æfa „þokkalega“ eins og hann orðar það sjálfur. „Ég hef nán- ast bara æft á þrekhjóli undanfarið ár en á La Manga var ég að gera hluti sem ég hef ekki getað gert lengi. Sparkað í bolta og ýmislegt fleira. Vonandi verður framhald á þessu hjá mér. Þjóðverjarnir ætla að skoða hrygginn á mér betur og ég fæ sér- smíðuð innlegg í skóna þar sem að hryggurinn er eitthvað skakkur og þeir halda jafnvel að um brjósklos sé að ræða. Þeir eru samt sem áður bjartsýnir á að með réttum æfingum og meðferð sjúkraþjálfara eigi ég að ná fullum bata á næstu vikum og „Bestu fréttir sem ég fengið í rúmt ár“ Í HNOTSKURN »Jóhannes Harðarson hefurvarla æft knattspyrnu frá því í apríl á síðasta ári vegna meiðsla í nára. »Samningur hans við Startrennur út eftir tæplega tvö ár en Jóhannes var atvinnu- maður í Hollandi 2001-2004. »Tvívegis hefur Jóhannesverið valinn í A-landsliðið en hann lék með ÍA á Akranesi áður en hann gerði atvinnu-Scanpix LEMGO vann í gærkvöld stórsigur á Wilhelmshavener, 33:20, í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Eins og tölurnar gefa til kynna hafði Lemgo mikla yfirburði í leiknum sem fram fór í Lipperland höllinni. Staðan í hálfleik var 17:10, og munurinn jókst jafnt og þétt í síðari hálfleik. Logi Geirsson skoraði 1 mark fyrir Lemgo og Ásgeir Örn Hall- grímsson, sem á dögunum gekk frá samningi við danska liðið GOG, skoraði 2 mörk. Tékkinn Filip Jicha var markahæstur í liði Lemgo með 8 mörk og þeir Florian Kehrmann og Daniel Stephan skor- uðu 5 mörk hver. Þetta var fyrsti leikur Stephan eftir langt hlé. „Ég þurfti að sætta mig við að dúsa á bekknum megnið af leikn- um. Ég lék síðasta korterið og úr- slitin voru löngu ráðin þegar ég kom inná. Til að létta lundina ákvað ég að snúa mér einn hring á vítalínunni áður en ég skoraði mitt eina mark í leiknum,“ sagði Logi við Morgunblaðið í gær. Lemgo er í 7.-8. sæti deild- arinnar ásamt Göppingen með 25 stig en Flensburg trónir á toppnum með 35 stig. Í kvöld er sannkallaður stór- leikur þegar Íslendingaliðið Gum- mersbach tekur á móti Flensburg í Köln Arena að viðstöddum 15-20 þúsund áhorfendum. Gummers- bach verður að sigra til að blanda sér í baráttuna um titilinn en liðið er í fjórða sæti deildarinnar, fjór- um stigum á eftir Flensburg.  Ólafur Stefánsson skoraði 6 mörk fyrir Ciudad Real í sigri á Valladolid, 31:27, í spænsku 1. deildinni í gærkvöld. Ciudad Real hefur 35 stig í efsta sæti, stigi meira en Portland San Antonio, sem á leik til góða. Ljómynd/Günther Schröder Gegnumbrot Ásgeir Örn brýst í gegnum vörn Wilhelmshavener og skorar fyrir Lemgo í gær. Logi sneri sér í hring Y f i r l i t                                  ! " # $ %       &         '() * +,,,                      Í dag Sigmund 8 Viðhorf 28 Staksteinar 8 Umræðan 28/32 Veður 8 Bréf 32 Alþingi 10 Minningar 33/35 Viðskipti 15/6 Skák 36 Úr verinu 16 Menning 41/43 Erlent 17 Leikhús 42 Menning 18 Myndasögur 44 Höfuðborgin 20 Staður og stund 46 Akureyri 20 Bíó 46/49 Suðurnes 21 Víkverji 48 Landið 21 Velvakandi 48 Daglegt líf 22/25 Stjörnuspá 49 Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50 * * *  Gengi hlutabréfa lækkaði í gær um heim allan í kjölfar mikilla lækkana á gengi kínverskra hluta- bréfa. Væntanlegar aðgerðir kín- verskra stjórnvalda til að auka eftirlit með markaði og markaðs- aðilum valda þessum viðbrögðum. Allar helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu í gær, en forstjóri Kaup- hallar Íslands segir þó engin teikn á lofti um að um varanlega nið- ursveiflu sé að ræða. »Forsíða  Hvítasunnudagur, málverk eftir Jóhannes Kjarval, var sleginn á 1,3 milljónir danskra króna (DKR), 15,2 milljónir íslenskra króna, á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Kaup- mannahöfn síðdegis í gær. Heild- arkostnaður við verkið komið til Ís- lands er um 25 milljónir. »Forsíða  Þótt hækkun Moody’s á lánshæf- ismati íslensku bankanna hafi komið mönnum þægilega á óvart hér heima fer því þó víðsfjarri að hún mælist alls staðar jafn vel fyrir. »Forsíða  Gunnar Halldórsson, eigandi Pelastikks ehf., hefur höfðað skaða- bótamál á hendur íslenska ríkinu vegna tjóns sem hann telur sig hafa beðið af afgreiðslu umhverfisráðu- neytisins á útflutningsleyfi fyrir hrefnukjöti. Fer Gunnar fram á skaðabætur er nema 26 milljónum króna. »Baksíða  Framundan er gósentíð hjá stjörnuáhugafólki. Sjálft tunglið er að verða fullt og í kvöld ætti „karlinn í tunglinu“ að sjást ef vel er að gáð. Á fullu tungli á laugardags- kvöldið verður almyrkvi á tungli þegar jörðin varpar skugga sínum á það. »Baksíða  Nkosazana Dlamini Zuma, utan- ríkisráðherra Suður-Afríku, til- kynnti á fundi með Valgerði Sverr- isdóttur, utanríkisráðherra, í Pretoria í gær, að Suður-Afríka styddi ósk Íslands um sæti í örygg- isráði Sameinuðu þjóðanna starfs- árin 2009–2010. »10 Erlent  Stjórn Íraks náði í gær sam- komulagi um lög sem kveða á um skiptingu tekna af olíulindum lands- ins eftir íbúafjölda en fá málefni hafa valdið jafn miklum deilum og taugaspennu í stjórnmálum landsins eftir fall stjórnar Saddams Husseins 2003. »17 BRUNAMÁLASKÓLINN hefur fengið aðstöðu á Miðnesheiði á svæði sem slökkvilið varnarliðsins notaði áður til æfinga. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra mun taka aðstöð- una formlega í notkun á morgun. „Þetta er mikil framför,“ sagði Björn Karlsson brunamálastjóri um nýju aðstöðuna. Hann sagði að á Miðnesheiði væri fyrir hendi góð að- staða fyrir Brunamálaskólann. Þarna væri hægt að æfa reykköfun og leit að fólki. Gamla sorphreinsi- stöðin nýttist vel til að æfa leit. Þarna væri stór olíupyttur þar sem hægt væri að æfa það að slökkva eld. Á svæðinu væri ennfremur aðstaða til að æfa björgun úr bílflökum. Auk þess væri á Miðnesheiði mikið af húsnæði sem hægt væri að nýta sem kennsluaðstöðu. Björn sagði að Brunamálaskólinn hefði fram að þessu ekki haft fasta aðstöðu. Skólinn hefði haldið nám- skeið víða um land en þegar komið hefði að kennslu atvinnuslökkviliðs- manna hefði skólinn þurft að fá lánað húsnæði. „Það er mjög mikilvægt að þjálfun slökkviliðsmanna sé góð. Þetta tel ég vera mikilvægt skref í áttina að betri þjálfun. Það þarf að hafa í huga að verksvið slökkviliðsmanna hefur verið að víkka út. Þetta snýst ekki bara um að slökkva eld. Slökkvi- liðsmenn fást einnig við vatnstjón, að bjarga fólki út úr bílflökum og raunar fleiri atvik þar sem þegnarn- ir og atvinnulífið lenda í vandræðum. Námskeiðin hjá okkur hafa tekið mið af þessum breytingum,“ sagði Björn. „Þetta er mikil framför“ Brunamálaskólinn hefur fengið aðstöðu á Miðnesheiði til æfinga og kennslu Morgunblaðið/Brynjar Gauti Æfing Slökkviliðsmenn héldu fyrir nokkrum árum æfingu í Hvalfjarðar- göngum. Skólinn hefur nú fengið aðstöðu til framtíðar á Miðnesheiði. Eftir Rúnar Pálmason og Helga Snæ Sigurðsson ÖLLUM fastráðnum starfsmönnum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, fimm manns, var sagt upp á mánu- dag. Anna Kristinsdóttir, formaður Bláfjallanefndar sem fer með rekst- ur skíðasvæðanna og Bláfjallafólk- vangs, segir að þetta sé gert vegna nauðsynlegra skipulagsbreytinga á rekstri skíðasvæðanna. Fyrir stuttu lá fyrir skýrsla um rekstur skíðasvæðanna og sagði Anna að skýrslan hefði orðið til þess að mönnum þætti ljóst að breyta þyrfti skipulagi rekstursins. „Við höfum verið að skoða hversu mikil þörf væri fyrir fasta starfsmenn og annað í þeim dúr,“ sagði hún. Ákveð- ið hefði verið að segja upp starfs- mönnum til að allir sætu við sama borð þegar nýtt skipulag liti dagsins ljós. Það myndi gerast innan þeirra þriggja mánaða sem uppsagnar- fresturinn tekur til. Ekki væri ljóst hvort föst stöðugildi yrðu fjögur eða fimm en ólíklegt væri að þau yrðu færri. Ellefu sveitarfélög standa að rekstri skíðasvæðanna en rekstrar- samningurinn rennur út um áramót. Anna sagði að ein af ástæðunum fyr- ir því að ákveðið var að taka rekst- urinn út hefði verið óskir sveitarfé- laga um skýrari stefnu í rekstri svæðanna. Skýrslan sýndi að auka þyrfti framlög til rekstrar skíða- svæðanna en þá væri spurning hversu langt sveitarfélögin væru tilbúin til að ganga. Stutt er síðan fjárfest var í nýrri stólalyftu í Kóngsgili. Anna sagði að nú stæðu sveitarfélögin frammi fyrir því að hafa fjárfest í því að koma fólki upp fjallið og nú þyrfti að fjárfesta í að koma því niður aftur. Aðspurð hvort það þyrfti að fjárfesta í snjóbyssum sagði hún að það væri sveitarfélag- anna að ákveða það. Kom starfsmönnum á óvart Grétar Hallur Þórisson, forstöðu- maður skíðasvæðanna, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að uppsagnirn- ar hefðu komið starfsmönnum á óvart. Þeir hefðu vitað að reksturinn var þungur en hefðu frekar búist við að skipulagi yrði breytt, t.d. með því að loka einhverjum lyftum eða leggja minni áherslu á tiltekin svæði. Í vet- ur hefðu 13 lausráðnir starfsmenn og fimm fastráðnir starfað fyrir skíða- svæðin en í fyrra hefðu fastráðnir starfsmenn verið átta. „Auðvitað kemur eitthvert rót á starfsmenn sem sagt er upp þar sem engu var svarað og ekkert boðið,“ sagði hann. „Það er ákveðin sérþekking sem fólkið býr yfir og það væri mjög slæmt að tapa henni af svæðinu.“ Óskað var eftir fyrrnefndri skýrslu hjá íþrótta- og tómstunda- ráði Reykjavíkur en þar fengust þau svör að hún yrði ekki gerð opinber fyrr en á mánudag, að loknum fundi með fulltrúum sveitarfélaganna. Starfsmönnum skíða- svæðanna sagt upp Í HNOTSKURN »Bláfjöll hafa verið opin al-menningi í fjóra daga í vetur og skíðafélög æft í 10– 12 daga til viðbótar. »Framlög sveitarfélagannahafa verið um 70 milljónir á ári en tekjur hafa brugðist. Morgunblaðið/ÞÖK Snjóleysi Bláfjöll hafa aðeins verið opin almenningi fjórum sinnum í vetur sökum snjóleysis. Skálafell hefur hins vegar ekkert verið opnað. DANIR og Íslendingar hafa fullan vilja til þess að þróa og koma á sam- komulagi um varnarmál, að sögn Grétars Más Sigurðssonar, ráðu- neytisstjóra í utanríkisráðuneytinu, í kjölfar annars embættismannafund- ar um málið í gær. Fyrsti fundur íslenskra og danskra embættismanna um varnar- og öryggismál var haldinn í Kaup- mannahöfn skömmu fyrir jól og í gær áttu þeir annan fund um sam- starf þjóðanna um öryggismál. Fundurinn fór fram í Reykjavík og var áfram fjallað um leiðir til að auka samstarf á sviði öryggismála og auk þess ákveðið að hefja vinnu við nán- ari útfærslu þess. Ennfremur var ör- yggissvæðið á Keflavíkurflugvelli heimsótt og aðstæður þar skoðaðar. Grétar Már segir að á þessum fundum hafi verið unnið að því að kortleggja starfsemi Íslendinga og Dana á þessu sviði og því starfi yrði haldið áfram. Vilja þróa samstarfið Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is LÚÐVÍK Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, vill láta á það reyna hvort ekki sé hægt að leysa kjaradeilu Fé- lags grunnskólakennara og Launa- nefndar sveitarfélaga um endurskoð- un á launalið kjarasamninga kennara með því að koma á nokkurs konar kjaradómi og úrskurður hans yrði endanlegur. Viðræður deilenda hófust síðsum- ars og hafa ekki enn skilað neinum ár- angri. Lúðvík Geirsson segir ljóst að menn komist hvorki lönd né strönd og deilan sé augljóslega í hnút. Búið sé að reyna samningaleiðina frá því í haust án árangurs og samstarf við sáttasemjara hafi heldur ekki skilað árangri. Hann hafi því viðrað þá hug- mynd, síðast á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði í gær, hvort ekki sé ástæða til að skoða það í fullri alvöru að setja þriggja manna úrskurðar- nefnd í verkefnið. Hún yrði skipuð fulltrúum frá samningsaðilum og oddamanni og úrskurður hennar yrði endanlegur. Þannig yrði málið tekið út úr beinum samningsfarvegi og sett í nokkurs konar kjaradóm. Lúðvík Geirsson segir að orðalagið í bókuninni, sem um sé deilt, sé svo opið og loðið að hver og einn geti túlk- að það að vild. Hægt sé að halda áfram mánuðum saman að reyna að togast á um það, ekki verði samið, og því þurfi einhvern til að úrskurða í málinu. Kjaradómur leysi deiluna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.