Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 6
ÞRÁTT fyrir um 100 skjálfta
undanfarinn sólarhring bendir ekk-
ert til eldvirkni suðvestur af
Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg.
Þórunn Skaftadóttir, jarðfræð-
ingur á eftirlitsdeild Veðurstofu Ís-
lands, segir að stærstu skjálftarnir
hafi verið 4 stig að stærð og á ann-
an tug hafi verið 3 stig eða stærri.
Ekki eldvirkni
6 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LEITARVÉL Icelandair hefur verið
breytt þannig að nú sést heildarverð
flugferðarinnar frá upphafi bókunar-
ferlisins, þ.e. að meðtöldum sköttum
og gjöldum. Sami háttur er á bók-
unarvél British Airways en hjá Ice-
land Express kemur heildarverðið
ekki fram fyrr en á öðru stigi bók-
unarinnar.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, sagði að breyt-
ingin hefði verið gerð í framhaldi af
umræðu í útlöndum um hvernig ætti
að greina frá sköttum og gjöldum
sem leggjast á flugferðir og nýlegum
tilmælum frá neytendastofu og tals-
manni neytenda um þetta efni. Að-
spurður sagði hann að í auglýsingum
Icelandair hefði heildarverðið alltaf
komið fram og eina breytingin, sem
nú væri gerð, lyti að bókunarvélinni.
Talsmaður British Airways á Ís-
landi, Bolli R. Valgarðsson, sagði að
heildarverð flugferða hefði verið til-
greint á vef félagsins frá því það hóf
að selja flugferðir til og frá Íslandi.
Á öðru stigi hjá
Iceland Express
Bókunarvél Iceland Express sker
sig því úr bókunarvélum keppinaut-
anna að því leyti að þar sjá viðskipta-
vinir ekki heildarverð flugferðarinn-
ar með sköttum og gjöldum fyrr en á
öðru stigi bókunarinnar, einu stigi
seinna en hjá Icelandair og British
Airways.
Matthías Imsland, framkvæmda-
stjóri Iceland Express, sagði þetta
samræmast tilmælum talsmanns
neytenda og sagði ennfremur að í öll-
um auglýsingum fyrirtækisins væri
heildarverðið tilgreint. „Eini staður-
inn þar sem þetta er aðskilið er í bók-
unarvélinni,“ sagði hann. Ekki hefði
verið rætt um að breyta því.
Gjöld innifalin
hjá Icelandair
BREYTINGARNAR á virðisaukaskatti og niður-
felling vörugjalda af öllum matvælum tekur gildi á
miðnætti. Raunar tóku nokkrar matvöruverslanir
forskot á sæluna sl. föstudag því að hjá bæði Bónus
og Krónunni var tekin sú ákvörðun að lækka virð-
isaukaskattinn af matvælum þá þegar í 7%.
Hjá Guðmundi Marteinssyni, framkvæmda-
stjóra Bónuss, fengust þær upplýsingar að ljóst
hefði þótt að almenningur myndi væntanlega halda
að sér höndum og versla eins lítið og hægt væri síð-
ustu daga fyrir breytinguna og því hefði verið
ákveðið að bregðast við því með fyrrgreindum
hætti.
Hjá bæði Guðmundi og Jóni Helga Guðmunds-
syni, starfandi forstjóra Norvik hf., sem er móð-
urfélag Nóatúns og Krónunnar, fengust þær upp-
lýsingar að eigendur búðanna þyrftu auðvitað eftir
sem áður að standa skil á virðisaukaskattinum til
hins opinbera og því myndu verslanirnar bera þann
kostnað sem fólst í því að lækka virðisaukaskattinn
fyrr til neytenda. Aðspurður hvað sá kostnaður
gæti orðið hár sagðist Guðmundur ekki geta áætlað
það á þessu stigi.
Að sögn Guðmundar var ekki breytt um verð-
merkingar í hillum við breytinguna sl. föstudag,
það yrði fyrst gert í kvöld. Bendir hann á að lækkun
virðisaukaskattsins hafi á síðustu dögum verið
reiknuð við kassann. Segir hann því mikla vinnu
framundan hjá starfsfólki Bónuss eftir lokun í
kvöld við það að skipta um verðmiða í öllum hillum.
Ljóst sé að skipta þurfi um verð á 1.500 til 2.000
vörutegundum og þá breytingu þurfi að gera hand-
virkt í öllum búðum nema þeim fjórum þar sem
verðmerkingar í hillum séu rafrænar.
Viðmælendur Morgunblaðsins voru flestir á því
að almenningur myndi fremur finna fyrir virðis-
aukaskattslækkuninni þegar um væri að ræða vöru
sem færi úr hæsta þrepi, þ.e. 24,5% í 7%, heldur en
þegar lækkunin væri úr 14% í 7%. Þannig töldu
margir að fólk myndi frekar taka eftir verðmun-
inum sem yrði á gosi og sælgæti heldur en á mjólk
og brauði, svo dæmi séu tekin.
Kattamatur og fæðubótarefni lækkar ekki
Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu, sagðist í samtali við Morg-
unblaðið hafa orðið var við þann misskilning meðal
almennings að allar vörur sem seldar væru í mat-
vörubúðum kæmu til með að lækka við breytinguna
og bera hér eftir 7% virðisaukaskatt. „Hið rétta er
auðvitað að það eru aðeins matvörur sem koma til
með að lækka,“ segir Sigurður og bendir í því sam-
hengi á að t.d. gæludýramatur komi ekki til með að
lækka og ekki heldur hin ýmsu fæðubótarefni.
Hjá bæði Alþýðusambandi Íslands (ASÍ) og
Neytendasamtökunum fengust þær upplýsingar að
líkt og síðustu vikur yrði á næstunni fylgst afar vel
með verðlagsþrónunni. Að mati Þuríðar Hjartar-
dóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna,
virðist aukinn áhugi meðal almennings á því að
fylgjast með útgjöldum heimilanna. Bendir hún á
að samtökin hafi nýverið gert heimilisbókhalds-
kerfi aðgengilegt öllum á vef sínum og fengið afar
góð viðbrögð við því.
Virðisaukaskattsbreyt-
ingin undirbúin í búðum
Í HNOTSKURN
»Ríkisstjórnin kynnti í október sl. að-gerðir til að lækka verð á matvælum
hér á landi sem taka gildi á morgun.
» Í því felst að öll matvara ber hér eftiraðeins 7% virðisaukaskatt. Auk þess
sem vörugjöld á matvælum eru felld niður.
»Stefnt er að því að matvælaverð verðisambærilegt við meðalverð á matvælum
á Norðurlöndunum eftir að breytingarnar
taka gildi.
»Á morgun lækkar virðisaukaskattureinnig á ýmissi þjónustu úr 14% í 7%.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Mikil vinna framundan Starfsfólks matvöruverslana bíður í kvöld mikil vinna við að breyta öllum verðmerkingum í hillum búða.
AÐ tilhlutan fræðsluráðs hefur ver-
ið settur á laggirnar vinnuhópur til
að undirbúa næsta grunnskóla í
Hafnarfirði og hefur vinnuhóp-
urinn hafið störf. Næsti grunnskóli
verður fyrir nemendur á Völlum og
Hamranesi sem er enn í skipulags-
ferli. Gert er ráð fyrir að hefja
þurfi starfrækslu nýs skóla eftir
3–4 ár. Áætlað er að nemendur í
fullbyggðum skóla verði um 700.
Skóli á Völlum
FUNDUR fulltrúa úr Átakshópi
fatlaðra, sem haldinn var í gær,
samþykkti að standa að stofnun
stjórnmálahreyfingar um framboð
aldraðra og öryrkja, svo fremi sem
um það næðist samstaða á fundi
Baráttuhóps eldri borgara og ör-
yrkja sem hefur verið boðaður nk.
sunnudag á Grand hóteli. Drög að
stefnuskrá voru einnig lögð fram til
kynningar á fundinum í gær.
Undir tilkynningu frá hópnum
rita Arnþór Helgason, Arnór Pét-
ursson og Hannes Sigurðsson, sem
segja að allt stefni í sameiginlegt
framboð eldri borgara og öryrkja
fyrir komandi þingkosningar.
Saman í framboði?
SETNING Bún-
aðarþings fer
fram í Súlnasal
Hótels Sögu á
sunnudaginn og
hefst kl. 13.30.
Haraldur
Benediktsson,
formaður
Bændasamtaka
Íslands, flytur
ávarp en yfir-
skrift setningarathafnarinnar verð-
ur „Sveit og borg – saman í starfi“.
Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra flytur ávarp og mun
einnig veita landbúnaðarverðlaun.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, flytur hátíðarræðu,
strengjakvartettinn Sellerí kemur
fram og Karlakór Hreppamanna
tekur lagið fyrir gesti.
Búnaðarþing
sett í Súlnasal
Haraldur
Benediktsson
SVEITARSTJÓRN Skaftárhrepps
hefur ákveðið að ganga til samn-
inga við Bjarna Daníelsson um að
hann taki við
stöðu sveitar-
stjóra. 19 sóttu
um stöðuna.
Bjarni gegnir í
dag starfi fram-
kvæmdastjóra Ís-
lensku óper-
unnar í Reykja-
vík. Hann mun
taka við stöðunni
í vor, þegar ráðn-
ingartíma hans hjá Óperunni lýkur.
Jóna Sigurbjartsdóttir oddviti
gegnir stöðunni fram að þeim tíma.
Sveitarstjóri
Skaftárhrepps
Bjarni Daníelsson
A
B
CD
E
FG OPQRSTU
ABC-kort
Þú sækir um ABC-kortið
hjá Netbankanum á www.nb.is
Hjálpaðu bágstöddum börnum og njóttu afsláttar í leiðinni
Með ABC-kortinu færðu 10% afslátt í verslunum
Hans Petersen um land allt og 1% af upphæðinni
rennur beint til ABC-barnahjálpar.