Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðný Páls-dóttir fæddist á Húsavík 18. júlí 1924. Hún lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Hlíð hinn 23. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Páll Ein- arsson og Þóra Steingrímsdóttir. Systkini Guðnýjar eru 1) Einar f. 5. febrúar 1926, maki Halldóra Bern- harðsdóttir, 2) Steingrímur f. þeirra eru: 1) Ingvar, f. 16. júní 1952, maki Guðrún Baldursdóttir, börn þeirra eru a) Þóroddur, maki Aðalheiður Jóhannesdóttir, börn þeirra Ingvar og Ester Helga, b) Baldur Helgi, c) Páll Þór, sambýliskona Hildur Arna Magnúsdóttir og d) Þuríður Helga. 2) Þóra Ingibjörg, f. 14. júlí 1954, maki Martin Næs, börn þeirra eru a) Flóvin Þór, maki Birgitte Krag Nygaard Næs, b) Guðný Brynhild, sambýlismaður Róar Akralíð og c) Jónas Þór, sambýliskona Inga Katrin Wint- her. 3) Hólmfríður, f. 7. nóvember 1966, maki Darri Mikaelsson, börn þeirra eru Heiða og Gústaf. Guðný verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30 13.janúar 1927, maki Ingibjörg Pála Jóns- dóttir, 3) María f. 26. maí 1928, maki Jón Árni Jónsson og 4) Sólveig f. 14. maí 1930, maki Jóhann Ævar Jakobsson. Guðný giftist 23. ágúst 1951 Þóroddi Jónassyni frá Græna- vatni í Mývatnssveit, f. 7. október 1919, d. 27. ágúst 1994. Þau bjuggu fyrst á Breiðamýri í Reykja- dal og frá 1969 á Akureyri. Börn Amma í Ásabyggðinni er dáin. Það er eins og ég eigi mörg hundruð ömmur. Nöfnin duga ekki til að að- greina þær, það þarf götunöfn. Svo er nú ekki, ég átti tvær yndislegar ömmur og nú á ég eina. Amma Gullý verður í mínum huga alltaf amma í Ásabyggðinni. Hún varð reyndar um tíma amma í Einó, svo amma í Bakkahlíð og loks amma á Hlíð en þar var hún ekki lengi. Ég komst aðeins einu sinni til ömmu á Hlíð. Það var á konudaginn með börnum mínum, langömmu- börnunum hennar Ingvari og Ester. Við færðum henni lítinn blómvönd. Allar konur eiga skilið blóm á konu- daginn og ekki síst amma. Amma starfaði um ævina fyrst og fremst við þjónustu við aðra og það af miklum myndarskap, óeigingirni og þolin- mæði. Fyrst við að hjálpa til á heim- ili foreldra sinna og ömmu og afa, sem var þá sýslumaður á Akureyri, og seinna meðal annars sem þjón- ustustúlka í íslenska sendiráðinu í Bandaríkjunum. Lengstum starfaði hún sem húsmóðir á Breiðumýri og í Ásabyggðinni. Nú í dag er þetta starf í þjóðfélaginu mjög vanmetið en ef aðeins er staldrað við og að gáð þá er þetta mikilvægasta starf sem unnið er og það leysti hún amma mín óaðfinnanlega. Hún hélt glæsilegt heimili og afi kom alltaf heim í há- degismat er hann vann á Akureyri. Ég naut góðs af því. Úr Gagnfræða- skóla Akureyrar var stutt að fara upp í Ásabyggð og einstaklega gott hádegishlé. Þegar afi Þóroddur lést hélt ég áfram að mæta í hádeginu, þá úr MA, og áfram hafði amma tilbú- inn mat. Þetta er ekkert annað en dekur á hæsta stigi. Við ræddum um daginn og veginn og fjölskylduna og náðum í dagbækurnar hans afa þeg- ar minni okkar brast. Ég skrifaði sjálfur dagbók á þessum árum til að vera eins og afi og nú fletti ég upp í þeim og rifja upp stundir með ömmu í nákvæmum dagbókarlýsingum sem hófust alltaf á veðrinu og innihéldu meira að segja hvað ég borðaði á hverjum degi, já það veit fólk sem þekkir mig hvar leiðin að hjartanu liggur. Ég á margt að þakka ömmu minni og fjöldann allan af fallegum minn- ingum. „Hoppa yfir lækinn“ var ferð sem var farin margoft, hinum megin í Eyjafirðinum þar sem hún hafði óskað þess að búa þegar hún var barn, því sólin skein svo miklu leng- ur á Vaðlaheiðina en á bernskuheim- ilið hennar á Akureyri. Hún kenndi mér að spila fjöldann allan af spilum og klukkustundirnar eru margar þar sem hún sat og spilaði við okkur barnabörnin. Þolinmæðin við okkur var óendanleg og við máttum allt. Amma fékk heilabilunarsjúkdóm sem sótti á hægt og sígandi en þó að minnið og ýmislegt breyttist þá var hún samt áfram sú amma sem ég þekkti. Alltaf fín, þakklát því fólki sem annaðist hana, þolinmóð og já- kvæð, meira að segja flugvélar urðu huggulegar. Síðasta minning mín um ömmu var á konudaginn þegar við heim- sóttum hana á Hlíð. Hún lá þennan dag í rúmi sínu, mjög falleg og fín eins og hennar var von og vísa. Hún sagði ekkert en brosti með augun- um. Þegar við kvöddum hana lyfti ég Ester upp í rúm til hennar, þá setti amma stút á munninn og kyssti hana bless. Lítið atriði en ógleymanleg, falleg síðasta minning um einstaka konu og ömmu. Þóroddur Ingvarsson. Ég kynntist Gullý fyrir 10 árum, þegar ég fór að hitta Þórodd, son- arson hennar. Hún var þá orðin ekkja, hafði misst eiginmann sinn rúmu ári áður og var flutt úr Ása- byggðinni, þaðan sem margar gleði- legar minningar eru reglulega rifj- aðar upp. Ég sá Gullý í fyrsta skipti keyrandi um á gráa Subaru Justy- inum sínum sem gekk undir nafninu ömmu Justy. Mér þótti hún mögnuð að keyra ennþá, sér í lagi eftir að hafa sjálf keyrt ömmu Justy og sannreynt að það var enginn barna- leikur að stíga stífa kúplinguna niður í gólf. En fljótlega fór Gullý allra sinna ferða fótgangandi. Þráðbein í baki og rösk var hún þegar hún stik- aði um Lundarhverfið og fór ekki hægt yfir. Á meðgöngu frumburðar okkar Dodda, prjónaði ég heiðgulan kjól sem í var saumaður sérstakur prjónasaumur sem Gullý kenndi mér. Við sátum í Einilundinum og saumuðum og Gullý sagði mér sögur og sýndi mér ótal myndir. Frá því hún var ung stúlka hjá sendiherra- hjónunum í Washington og tók á móti símtölum frá John F. Kennedy. Frá ömmu sinni og afa, sýslumanns- hjónunum, dönskunni sem töluð var á sunnudögum og ég skildi af hverju hún var svona mikil dama. Einnig frá árunum á Breiðumýri og sam- sveitungum. Frumburður okkar og fyrsta langömmubarn Gullýjar reyndist svo vera drengur og kjóll- inn mátti bíða. Drengurinn fékk nafnið Ingvar og Gullý lét okkur vita í skírninni hversu vænt henni þótti um það. Seinna fékk ég afdrep á kontórnum í Einilundinum til að læra. Þá kom Gullý alveg eins og klukka og náði í mig í hádegismat og kaffi og þótt ég væri eini matargest- urinn var lagt á borð eins og von væri á fyrirmennum, enda Gullý dama fram í fingurgóma. Hún lét mig líka vita í kurteisislegum um- vöndunartón þegar henni fannst ég ekki hafa setið nóg við lesturinn, enda grunar mig að hennar börn hafi sett há viðmið í þeim efnum. Í lær- dómspásunum var talað um Ingvar, Þóru og Fríðu, tengdabörnin og öll barnabörnin. Hún hafði mikla þol- inmæði í að leika við barnabörnin sín og mikið var spilað og púslað. Án þess að halla á nokkurn er óhætt að segja að Þuríður Helga hafi verið augasteinninn hennar. Hún veitti henni mikla gleði síðustu árin enda aðdáunarvert hvað hún var góð við ömmu sína og dugleg að heimsækja hana. Við Gullý fórum báðar á sjúkrahús hinn 24.10.04. Ég að eiga dóttur mína en Gullý hafði hrasað og mjaðmarbrotnað. Ekki voru til nein gögn um hana á sjúkrahúsinu né var hún á neinum lyfjum, enda hafði hún aldrei á sjúkrahús komið, þá áttræð í líkamlegu ástandi þrítugrar konu. Það var því sorglegt þegar sögurnar gleymdust og enn sorglegra þegar fólkið gleymdist en þessi sjúkdómur spyr einskis og er miskunnarlaus. Ég er þakklát fyrir síðasta aðfanga- dagskvöld þegar litla stýrið sem fæddist þennan slysadag opnaði jólakort og jólagjafir fyrir lang- ömmu sína og augljóst var hve gam- an hún hafði af þessu litla barni sem hún þekkti þó ekki. Sjúkdómurinn hefur nú sigrað og Gullý kvatt þenn- an heim. Ég þakka kærlega fyrir mig og fjölskyldu mína og hennar þátt í því gæðafólki sem að mér stendur. Nánustu aðstandendum votta ég samúð mína. Aðalheiður Rósa. Á kveðjustund kemur upp í hug- ann ein fyrsta minning stráklings er hann kom í heimsókn að sumarlagi í læknishúsið á Breiðumýri og Gullý fylgdi mér niður í gestaherbergi þar Guðný Pálsdóttir Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson ✝ Elskulegur faðir minn, bróðir okkar, mágur og frændi, GYLFI KARLSSON, Hofteigi 22, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 1. mars kl. 15.00. Rakel Ósk Gylfadóttir, Hilmar Karlsson, Mem Karlsson, R. Hrönn Harðardóttir, Sævar Björnsson, Guðný J. Karlsdóttir, Eyjólfur Ólafsson, H. Jóhanna Hrafnkelsdóttir, Gígja Karlsdóttir, Anton Sigurðsson. ✝ Okkar elskulegi, STEINAR ÞÓRÐARSON, Bergþórugötu 15, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtu- daginn 1. mars kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Steinars er bent á KFUM. Fyrir hönd aðstandenda, María Guðmundsdóttir. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA BJARNADÓTTIR, Norðurbrún 1, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 2. mars kl. 15.00. Margrét Kjartansdóttir, Björg Kjartansdóttir, Freysteinn G. Jónsson, Sæunn Kjartansdóttir, Guðmundur Jónsson, Ásta Kjartansdóttir, Vigfús Erlendsson og barnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORVALDUR SIGURJÓNSSON frá Núpakoti, sem lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, aðfaranótt fimmtudagsins 22. febrúar verður jarðsunginn frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 3. mars kl. 14.00. Hafdís Þorvaldsdóttir, Matthías Jón Björnsson, Guðlaug Þorvaldsdóttir, Árni Gunnarsson, Kolbrún Magga, Þorvaldur Björn, Ingibjörg, Sæmundur Örn, Ásta Alda, Jóna Þórey, Elín, Lára Guðrún, Vigdís Hlíf og Jón Sigmar. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma RÓSBJÖRG JÓNATANSDÓTTIR Hjúkrunarheimilinu Skjóli lést 21. febrúar. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. mars kl. 15.00. Einar Geir Friðgeirsson Margrét Eiríksdóttir Nanna K. Friðgeirsdóttir Hjörtur Gunnarsson Guðrún Friðgeirsdóttir Birna Friðgeirsdóttir barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARÍA JÓNÍNA ADOLFSDÓTTIR, dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík, áður Munkaþverárstræti 29, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstu- daginn 23. febrúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 2. mars kl. 13.30. Friðrik Adolf Stefánsson, Stefán Már Stefánsson, Ása Sverrisdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MÓSES B.G. GUÐMUNDSSON, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, sem lést á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði aðfara- nótt miðvikudagsins 21. febrúar, verður jarðsung- inn frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 1. mars kl. 13.00. Ólafía Guðbjörnsdóttir Lilja S. Mósesdóttir, Halldór Ó. Bergsson, Þórdís S. Mósesdóttir, Andrés Ingi Vigfússon, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.