Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING BANDARÍSKI rithöfundurinn Philip Roth hefur hlotið PEN/ Faulkner-verðlaunin fyrir skáld- söguna Every- man sem fjallar um veikindi og dauða. Er þetta í þriðja skiptið sem Roth hlýtur verðlaunin en þau féllu honum fyrst í skaut árið 1994 fyrir bók- ina Operation Shylock og aftur 2001 fyrir The Human Stain. Hef- ur enginn rithöfundur annar feng- ið verðlaunin svo oft. Árlega veitir PEN/Faulkner- stofnunin skáldsagnaverðlaun með sama nafni höfundi þeirrar bókar sem þykir hafa skarað fram úr á nýliðnu ári í Bandaríkjunum og nemur verðlaunaféð andvirði u.þ.b. einnar milljónar króna. Stofnunin ber annars vegar nafn alþjóðlegra samtaka rithöfunda, PEN, og hins vegar nóbelsskálds- ins Williams Faulkner sem notaði nóbelsverðlaunafé sitt, sem hann vann til árið 1949, til að koma á fót sjóði með það hlutverk að styðja nýja skáldsagnahöfunda og hvetja þá til dáða. Fyrstur til að hljóta verðlaunin var Walter Abish árið 1981. Roth slær nýtt met Hlýtur PEN/ Faulkner í 3. sinn Philip Roth MIKIÐ fjaðrafok hefur orðið í kringum nýja heimildarmynd þar sem haldið er fram að gröf Jesú, Maríu Magdalenu og sonar þeirra Judah hafi fund- ist í Jerúsalem. Myndin nefnist The Lost Tomb of Jesus og verður frumsýnd á Discovery-sjónvarpsstöðinni á sunnudag. Framleiðandi mynd- arinnar, James Cameron, fullyrðir að um gröf Jesú sé að ræða og vís- ar meðal annars til DNA-prófa sem staðfesta það Ísraelski fornleifafræðingurinn Amos Kloner, sem kannaði graf- hýsið fyrir rúmum tíu árum, er ekki á sama máli. „Það þyrfti að gera DNA-rannsókn til að athuga hvort erfðaefnið í beinunum sem fundust í hellinum, sem sagt er að séu úr syni Jesú, passi við erfða- efnið í Guði!“ sagði Kloner. Hann sagði jafnframt gröfina vera hvílustað efnaðrar gyðinga- fjölskyldu. Gröf Jesú fundin? James Cameron FEÐGININ Elfa Rún Krist- insdóttir fiðluleikari og Krist- inn Örn Kristinsson píanóleik- ari halda tónleika í TÍBRÁ, tónleikaröð Kópavogs í Salnum í kvöld klukkan 20. Á efnis- skránni eru verk eftir Bach, Schumann, Ysafe og Ravel. Mikið hefur kveðið að Elfu Rún síðustu misserin. Hún var valin bjartasta vonin á Ís- lensku tónlistarverðlaununum í síðasta mánuði og í júlímánuði síðastliðnum hlaut hún fyrstu verðlaun í hinni virtu alþjóðlegu keppni fyrir unga hljóðfæraleikara sem haldin var í Leipzig og kennd er við Johann Sebastian Bach. Tónleikar Elfa Rún með tónleika í Salnum Elfa Rún Kristinsdóttir AUKASÝNINGUM hefur ver- ið bætt við á leikritunum Mein Kampf og Alveg brilljant skiln- aði í Borgarleikhúsinu. Fyrsta aukasýningin á Mein Kamf er í kvöld og síðan verður sýning sunnudaginn 18. mars. Föstu- daginn 2. mars og þriðjudaginn 13. mars verða hins vegar aukasýningar á Alveg brilljant skilnaði sem hefur nú þegar verið sýnt í yfir 120 skipti. Mik- ið hefur því mætt á Eddu Björgvinsdóttur en hún er eini leikari verksins. Það er aftur á móti Bergur Þór Ingólfsson sem fer með hlutverk Hitlers í Mein Kampf. Leikhús Aukasýningar í Borgarleikhúsinu Edda Björgvinsdóttir FRANSKI gítarleikarinn Pierre Laniau leikur á tón- leikum í Hafnarborg klukkan 20 í kvöld. Laniau er heims- kunnur gítarleikari og hafa verk hans verið gefin út undir merkjum stærstu tónlistar- útgáfa heims, m.a. EMI og Universal. Tónleika sína hér á landi nefnir hann „Gullöld gít- arsins“, en á dagskránni er að finna ítölsk, spænsk og frönsk barrokverk frá 1630–1740. Tónleikarnir eru í samstarfi við frönsku menn- ingarhátíðina Pourquoi Pas? Franskt vor á Ís- landi. Tónleikar Gullinn gítar í Hafnarborg Pierre Laniau Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is UPPFÆRSLA Þjóðleikhússins á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen verður frumsýnd í Barbican-menningar- miðstöðinni í Lundúnum í kvöld. Verkið verður sett upp tíu sinnum á næstu ellefu dögum og er uppselt á allar sýningarnar. „Það er ekki einn einasti miði eftir og yfirmaður leik- hússins sagði að það hefði þurft fjór- falt stærra leikhús fyrir þetta því það væri svo rosaleg eftirspurn eftir mið- um,“ segir Baltasar Kormákur, leik- stjóri verksins, og bætir því við að þessi mikli áhugi á sýningunni hafi komið yfirmönnum leikhússins al- gjörlega í opna skjöldu. „Það var sýn- ing á Macbeth hérna á undan sem þótti ganga mjög vel og þeir voru mjög ánægðir þótt það hafi ekki verið uppselt á eina einustu sýningu,“ segir Baltasar, en á heimasíðu Barbican kemur fram að ekki sé uppselt á nein- ar aðrar sýningar í leikhúsinu um þessar mundir. „Við erum hins vegar í mestu vandræðum með að koma fólki inn,“ segir leikstjórinn. Frábærir í ensku Baltasar telur að góð umfjöllun fjölmiðla hafi trúlega haft sín áhrif á þennan mikla áhuga. „Það er búið að skrifa mjög vel um sýninguna, bæði í Time og í Guardian, og það hefur kannski hjálpað. Time var til dæmis með heilsíðuviðtal við mig. Þau sáu sýninguna og tóku svo viðtal við mig og þar var til dæmis sagt að þetta væri eitt erfiðasta leikrit til að eiga við, en þessi sýning réði við það. Þannig að þetta er mjög spennandi og þetta er mikið að standa undir þegar eftirvæntingin er svona mikil.“ Eins og fram hefur komið verður verkið flutt á ensku og leikararnir þurftu því allir að æfa textann upp á nýtt. „Sumir eru alveg frábærir í ensk- unni, yngra liðið á auðveldara með þetta en hinir eru allir að koma til. Það er svolítil áskorun að fara yfir á annað tungumál en við erum búin að vinna þetta vel. Við fengum til dæmis aðstoð frá raddþjálfara sem er meðal annars að vinna við Sweeney Todd með Johnny Depp. Hann hefur líka unnið með Vesturporti og hefur hjálpað okkur mikið,“ segir Baltasar. „Svo er Brynhildur [Guðjónsdóttir] náttúrlega lærð hérna og hefur líka verið að hjálpa hinum, þannig að hóp- urinn hefur tekið höndum saman og hjálpast að við þetta.“ Blogga frá Lundúnum Eins og áður segir verður verkið sett upp tíu sinnum á næstu ellefu dögum, en það tekur 160 mínútur í flutningi. „Þetta er mikil törn, þetta er bara eins og þegar menn fara í Smuguna. Vonandi komum við líka heim með eitthvað,“ segir Baltasar, sem ætlar að svara spurningum áhugasamra leikhúsgesta að lokinni annarri sýningu. Í gær var svo sett upp sérstök sýning fyrir fjölmiðla og að sögn Baltasars höfðu allir helstu fjölmiðlar boðað komu sína, auk þess sem hann fór í viðtal hjá breska rík- isútvarpinu BBC í gær. Þá segir Baltasar að von sé á nokkrum nafntoguðum ein- staklingum á frumsýninguna í kvöld. „Ég var nú búinn að bjóða Damon Albarn vini mínum, og svo veit ég að Jonathan Pryce var líka búinn að boða komu sína.“ Loks verða tvær kvikmyndir eftir Baltasar sýndar í Barbican, 101 Reykjavík og A Little Trip to Heav- en. „Það verður síðasta daginn, þá sýna þeir 101 og Little Trip. Svo svara ég spurningum á eftir,“ segir Baltasar, en Forest Whitaker, sem lék eitt af aðalhlutverkunum í Little Trip, fékk Óskarsverðlaun fyrir túlk- un sína á Idi Amin á sunnudaginn. „Það var frábært að sjá karlinn fá þetta, hann er svo heiðarlegur náungi og yndisleg manneskja.“ Þess má loks geta að leikarar og aðrir aðstandendur sýningarinnar ætla að blogga um ferðina meðan á henni stendur. Meira: leikhusid.blog.is. Uppselt á allar sýningar Gríðarlegur áhugi á Pétri Gaut sem verður frumsýndur í Lundúnum í kvöld Vertíð „Þetta er mikil törn, þetta er bara eins og þegar menn fara í Smug- una. Vonandi komum við líka heim með eitthvað,“ segir Baltasar. Í HNOTSKURN » Baltasar Kormákur segir aðaðstandendur sýningarinnar séu í vandræðum því ekki séu til miðar handa nánustu aðstand- endum. » Ekki er uppselt á neina aðrasýningu í Barbican-menn- ingarmiðstöðinni um þessar mundir. » Tónlistarmaðurinn DamonAlbarn og leikarinn Jonathan Pryce eru á meðal þeirra sem boðað hafa komu sína á sýn- inguna. Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is UNDIRGÖNGIN undir Miklu- braut, á mótum Lönguhlíðar, eru mikið átakasvæði. Þar hafa fulltrú- ar frá hreinsunardeild borgarinnar og graffarar háð þrásækna baráttu undanfarin ár. Vopnaðir úðabrús- um fara graffarar um veggi og loft ganganna en hreinsunardeildin gerir óðar gagnárás með hvíta málningu í penslum sínum. Og graffararnir svara … og aftur svar- ar hreinsunardeildin. „Ég á leið í gegnum þessi göng á hverjum degi og fannst athygl- isvert að fylgjast með þessum átökum og þessu síbreytilega ástandi. Mér datt í hug að skrá- setja það og koma á framfæri með einhverjum hætti við borgarbúa og þá í samvinnu við Vetrarhátíð,“ segir myndlistarkonan Rósa Sig- rún Jónsdóttir sem allan jan- úarmánuð sl. skrásetti umrædd átök með ljósmyndum. Afrakst- urinn var 31 ljósmynd og var þeim valinn nokkuð djarfur sýning- arstaður. „Ég fór að velta því fyrir mér hvernig og hvar ég ætti að sýna og fannst langeðlilegast að gera það í göngunum sjálfum; bæði að stíga inn í þetta ferli og vera um leið berskjölduð á sama hátt og bæði bæjarstarfsmennirnir og krass- ararnir og sjá hvernig þessu yrði tekið; hvernig sýningunni myndi reiða af. Sýning um sýningu á döfinni Myndirnar voru settar upp síð- degis fimmtudaginn 22. febrúar og fengu að hanga uppi óhreyfðar fyrst um sinn eða fram til aðfar- arnætur laugardagsins. „Maður gat svo sem séð það fyrir,“ segir Rósa Sigrún um örlög mynda sinna sem hefur nú mörgum verið stolið og aðrar skemmdar. „En það var áhugavert að fylgjast með ferlinu.“ Síðar mun almenningi gefast tækifæri til að fylgjast með þessu sama ferli þar sem Rósa Sigrún hefur einnig skráð það með ljós- myndum og mun í óráðinni framtíð sýna afraksturinn. Núverandi sýn- ing mun hins vegar hanga uppi þar til í kvöld. Myndir af reyk- vísku átakasvæði Ljósmynd/Rósa Sigrún Jónsdóttir Þakkað fyrir sig Hér hefur mynd eftir Rósu verið fjarlægð úr göngunum. Viðkomandi hefur þó sýnt þá sjálfsögðu kurteisi að þakka fyrir sig. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.