Morgunblaðið - 28.02.2007, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dugnaður Pólverjarnir voru glaðir í bragði og létu ekki kuldann á sig fá.
Í HNOTSKURN
»Reykingafólk á meðferð-arheimili Götusmiðjunnar
hefur hingað til þurft að fara
út í öll veður til að reykja.
»Pólskur arkitekt og sam-landar hans brugðust við
vandanum með því að reisa at-
hvarf fyrir þau ungmenni sem
reykja við mikinn fögnuð vist-
manna Götusmiðjunnar.
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
UNGMENNUM á meðferðarheimili
Götusmiðjunnar að Akurhóli á Rang-
árvöllum barst á dögunum hjálp úr
óvæntri átt. Þannig er mál með vexti
að reykingar eru bannaðar innanhúss
á öllum meðferðarheimilum landsins
og hafa ungmennin í Götusmiðjunni
því þurft að reykja utan dyra í öllum
veðrum. Fiann Pawel, pólskur arki-
tekt sem starfar við ljósmyndun,
frétti af aðstöðuleysinu og hélt austur
á Rangárvelli ásamt fríðu föruneyti
sjö samlanda sinna sem hér starfa
tímabundið sem verkamenn. Unnu
þeir baki brotnu um síðustu helgi að
smíði athvarfs fyrir þá vistmenn
Götusmiðjunnar sem reykja. Vinnu
sína gáfu þeir allir en verktakafyr-
irtækið VA verktakar, sem verka-
mennirnir vinna hjá, gaf allt efni sem
þurfti til verksins. Þá veitti Byko
hópnum veglegan afslátt af efni. Ætl-
unin er að halda aftur austur um
helgina og ljúka við verkið, setja gólf í
skálann og gera veggi vatnshelda.
Móttökurnar frábærar
„Ég hef lengi unnið við hvers kyns
sjálfboðastarf í þágu ungs fólks og
eftir sjö mánaða dvöl hér á landi lang-
aði mig að láta eitthvað gott af mér
leiða,“ segir Fiann og bætir við að því
starfi sem hann hafi unnið á árum áð-
ur svipi mjög til þess sem Gummi í
Götusmiðjunni vinni. „Ég leitaði til
barnaverndaryfirvalda til þess að
komast að því hvar neyðin væri mest
og Bragi [Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu] benti okkur á
Götusmiðjuna. Ég sótti Götusmiðj-
una heim ásamt eiganda verktakafyr-
irtækisins og við athuguðum hvað við
gætum gert fyrir krakkana. Nið-
urstaðan varð sú að reisa þar kofa
fyrir reykingafólk og skjóta þar með
skjólshúsi yfir þau ungmenni sem þar
reykja.“ Móttökurnar voru frábærar
og unglingarnir hrósuðu hópnum í
hástert fyrir framtakið. „Þau notuðu
mikið slangur og ég þurfti að þýða
hvert einasta orð fyrir verkamennina,
þar sem þeir skilja hvorki íslensku né
ensku,“ segir Fiann. „En þakklætið
skein í gegn og ég held að það hafi
verið gott fyrir samlanda mína að
finna fyrir því að verk þeirra væru
mikils metin þar sem pólskir verka-
menn sem koma til Íslands upplifa sig
oft á tíðum sem minnihlutahóp.“
Enn stærra verkefni
í burðarliðnum
Fiann heldur af landi brott í byrjun
mars til þess að sinna starfi sínu sem
ljósmyndari í Bandaríkjunum. Hann
snýr þó aftur til landsins í sumar þar
sem hann mun annast framkvæmd
stuðningsverkefnis fyrir íslensk börn.
Ætlunin er að birta stærðar andlits-
myndir af íslenskum börnum við
Hverfisgötu. „Allur ágóði verkefn-
isins mun renna til verðugs málefnis í
þágu barna og ég mun ráðfæra mig
við Braga á ný um það hvert best sé
að beina fjármununum,“ segir hinn
pólski hugsjónamaður að lokum.
Skjóta skjólshúsi yfir reyk-
ingafólk í Götusmiðjunni
Pólskur arkitekt
vildi láta gott af
sér leiða eftir
dvöl hér á landi
Sjálfboðaliðar Verkamennirnir gengu vaskir til verks um helgina. VA
verktakar og Byko lögðu jafnframt sitt af mörkum.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„ÞETTA var eina helgin sem var
laus sem var nægilega löngu fyrir
kosningar,“ segir Skúli Helgason,
framkvæmdastjóri Samfylkingar-
innar, en landsfundur flokksins
verður haldinn í Egilshöll dagana
13.–14. apríl næstkomandi. Það er
sama helgin og sjálfstæðismenn
efna til landsfundar í Laugardals-
höll, en sá fundur stendur 12.–15.
apríl, að sögn framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins.
Tveir mismunandi hópar
Að sögn Skúla hefur það legið
fyrir í nokkrar vikur að fundur
Samfylkingarinnar yrði á þessum
tíma. Samfylkingin hafi viljað halda
fundinn í Egilshöll. Ekki hafi verið
hægt að velja úr öllum helgum þar,
en að auki hafi helgin 13.–14. apríl
verið talinn heppilegur tími út frá
þingkosningunum sem fara fram 12.
þeim tíma hafi enginn annar flokk-
ur verið búinn að tilkynna funda-
höld þessa helgi.
Heppilegt að vera ekki
á sama tíma og aðrir flokkar
Framsóknarmenn hyggja einnig
á flokksþing en það mun fara fram
á Hótel Sögu um næstu helgi. Þing-
ið um helgina er framhald flokks-
þings sem haldið var í ágúst í fyrra.
Efnt var til þess þá vegna þeirrar
ákvörðunar Halldórs Ásgrímssonar
að hætta þátttöku í stjórnmálum,
en venjulega eru flokksþingin hald-
in um þetta leyti árs. Sigfús segir
að flokkurinn telji heppilegt að eng-
ir aðrir flokkar haldi þing sín á
sama tíma og Framsóknarflokkur-
inn. „Auðvitað viljum við að fjöl-
miðlar veiti þessu athygli,“ segir
Sigfús Ingi um væntanlegt flokks-
þing.
Vinstri græn héldu sinn lands-
fund um síðustu helgi og Frjáls-
lyndir héldu landsþing í janúar.
„Var eina helgin
sem var laus“
Landsfundir Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks á sama tíma
maí í vor. Skúli segir að Samfylk-
ingin velti því ekki fyrir sér þegar
landsfundir eru ákveðnir hvort aðr-
ir flokkar séu með sína landsfundi á
sama tíma. „Þetta eru bara tveir
mismunandi hópar. Þeir gera sitt
og við okkar,“ segir Skúli.
Ákveðið í fyrrahaust
Andri Óttarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, segir að
landsfundartími sjálfstæðismanna
hafi verið ákveðinn í fyrrahaust. Á
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Geir H.
Haarde
HEIMILISFAÐIR í Reykjavík varð
illilega fyrir barðinu á grófri fjársvika-
starfsemi í þessum mánuði þegar af-
greiðslumanni í söluturni tókst að
taka niður númer greiðslukorts hans
og misnota upplýsingarnar í eigin
þágu. Eigandi kortsins hafði notað
það til að kaupa strætisvagnamið-
akort í söluturni síðla í janúar en í
kjölfarið fóru margítrekaðar grun-
samlegar færslur á kortið að vekja at-
hygli hjá Visa Ísland sem hafði sam-
band við kortaeigandann og var
kortinu lokað í framhaldinu. Á einu
greiðslukortatímabili hafði svikaran-
um þá tekist að eyða um 300 þúsund
krónum með kortaupplýsingunum svo
reikningurinn varð ríflega 400 þúsund
krónur, þar átti kortaeigandinn ekki
nema fjórðung. Svikarinn hafði komið
víða við, spilað póker á Netinu með
kortinu, keypt sér klám og fleira.
Stimplaði kortanúmerið
margoft inn
Málið er nú í athugun hjá Visa Ís-
landi og Strætó bs. þar sem svikarinn
hafði stimplað kortanúmerið margoft
í gegnum posa verslunarinnar undir
því yfirskini að hann væri að kaupa
vörur hjá Strætó bs. hvort sem þar
var um að ræða strætisvagnamiða
eða sælgæti.
Samkvæmt upplýsingum Höllu
Leifsdóttur, deildarstjóra hjá endur-
kröfum og áhættustýringu hjá Visa,
þurfa svikarar raunverulega ekki
annað í sumum tilvikum en korta-
númer af afritum greiðslukorta til að
geta farið á Netið með kortið og hafið
eyðslu.
Kortanúmer nægir sumum
Kortanúmer og gildistími nægir hjá
sumum söluaðilum á Netinu en aðrir
krefjast auðkennisnúmers aftan á
sjálfu kortinu. Halla segir þetta þó
ekki algengt og fari þetta minnkandi.
Kortaeigandinn sem um ræðir í þessu
tilviki þarf ekki að bera hið 300 þúsund
króna tjón. Halla beinir þeim tilmæl-
um til fólks sem er að versla að taka
alltaf afrit og fylgjast með hvað er ver-
ið að rukka fyrir á yfirliti reikninga.
Staðreynd er að fæstir hirða um að
þiggja afrit þegar þeim er boðið slíkt
að loknum viðskiptum á kassa í versl-
unum.
Eyddi 300 þúsund
kr. á þrem vikum
Svikari hafði spilað póker, keypt sér klám
og fleira með stolnu greiðslukortanúmeri
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu er þessa dagana að kanna
hvort eitthvað sé um að ökumenn
noti litaða olíu í óleyfi, en sú olía
er mun ódýrari en venjuleg dísil-
olía. Í gær stoppuðu lögreglumenn
í samvinnu við starfsmenn Vega-
gerðarinnar um 38 ökutæki á
Reykjanesbraut og Sæbraut. Að
sögn Guðbrands Sigurðssonar að-
alvarðstjóra voru allir með réttu
olíuna í tanknum.
Samkvæmt lögum er aðeins
heimilt að nota litaða olíu á vinnu-
vélar og steypubíla. Venjulegir
fólksbílar og sendibílar eiga hins
vegar að nota venjulega dísilolíu.
Guðbrandur sagði að það gengju
sögusagnir um að mikið væri um
að menn notuðu litaða olíu í óleyfi.
Hann sagði að eftirlit lögreglu
hefði ekki staðfest þessar sögur.
Engu að síður ætlaði lögreglan að
fylgjast með þessu öðru hverju á
næstu vikum og mánuðum.
Eftirlit lögreglu og Vegagerð-
arinnar gengur einnig út á það að
fylgjast með öxulþunga bíla og
frágangi á farmi, og svo almennt
umferðareftirlit. Í gær var einn
ökumaður kærður vegna brots á
reglum um öxulþunga.
Morgunblaðið/Júlíus
Leita að litaðri olíu
hjá bílum í umferð