Morgunblaðið - 28.02.2007, Qupperneq 22
græjum og síðan hef ég verið part-
ur af þessu bandi og þrír diskar
eru komnir út, Bráðabirgðalög,
Brælublús og Sjómannssöngvar.“
Allur ágóði af sölu diskanna renn-
ur til björgunar- og slysavarna sjó-
manna. „Við erum búnir að gefa
fjórar milljónir og það gerir þetta
allt saman ennþá skemmtilegra að
láta gott af sér leiða.“
Heimildarmynd í vinnslu
Hljómsveitarmeðlimir eru á
aldrinum 18–47 ára en aðeins tveir
í hljómsveitinni eru ekki sjómenn,
þeir Magnús og Gulli Helga sem
er í háskólanámi á Akureyri.
„Við höfum fengið marga til að
spila með okkur og allir sem hafa
Hljómsveit um borð í togara
Landkrabbarnir Magnús og Gulli Helga undirbúa sig fyrir tónleika.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Að vera í þessari hljóm-sveit er það skemmtileg-asta sem ég hef gert ítengslum við tónlist og
hef ég þó starfað með mörgum
hljómsveitum og tónlistarfólki í
gegnum tíðina,“ segir Magnús
Ólafsson, tónlistarskólastjóri á
Ólafsfirði, en hann er meðlimur í
hljómsveitinni Roðlaust og bein-
laust. Hljómsveit þessi hefur þó-
nokkra sérstöðu því hún er að
stórum hluta skipuð áhöfn á frysti-
togaranum Kleifarbergi ÓF-2 frá
Ólafsfirði.
„Hljómsveitin er búin að vera
starfandi í um það bil tíu ár en
þetta byrjaði allt vegna þess að
strákarnir á Kleifarberginu eru
söngglaðir og megnið af þeim var í
Kleifakórnum. Kórinn þróaðist síð-
an í hljómsveitina Roðlaust og
beinlaust því þeir vildu gera eitt-
hvað skemmtilegt um borð. Þessi
áhöfn er vön að fara alltaf í Vagla-
skóg á sumrin þegar hún kom í
land og þar var einmitt fyrsta
giggið hennar.“
Fjórar millur til góðra mála
Björn Valur Gíslason er for-
sprakkinn í hópnum og hann fær
margar skemmtilegar hugmyndir
og ein þeirra var að gefa út disk
með bandinu. „Félagar hans hlógu
bara að honum en Bjössi gafst
ekki upp, heldur hafði samband
við mig og ég kom mér upp
einhvern tímann gert það eru um-
svifalaust munstraðir í hljómsveit-
ina. Þess vegna er þetta eiginlega
fimmtíu manna hljómsveit, þó svo
að harðasti kjarninn sé ekki nema
fimmtán menn. Það er mjög gam-
an þegar strák-
arnir koma heim af sjónum með
mátulega sjóriðu eftir mánaðar
langan túr á sjónum. Ég reyni að
vera með allt klárt þannig að þeir
geti sungið inn á sem stystum
tíma, því það er margt að gera í
landi þegar menn eru bara í fjög-
urra daga stoppi,“ segir Magnús
sem leikur á gítar í bandinu og sér
um að útsetja, taka upp og fram-
leiða.
Magnús segir lítið um grúpppíur
sem elti Roðlaust og beinlaust.
„En flestum finnst þetta frábært
framtak þó einhverjum finnist ekk-
ert sniðugt að sjómenn séu að
syngja sig hása á opinberum tón-
leikum. Eðli málsins samkvæmt
komum við aðallega fram í
tengslum við sjómannadaginn og
eins höfum við komið fram nokkr-
um sinnum á Hátíð hafsins í
Reykjavík. Við höfum líka spilað á
fiskideginum mikla á Dalvík og
Síldarævintýrinu á Siglufirði. Svo
tökum við á því á þorrablótum og
öðrum innanbæjarsamkomum.
Þannig að það er stanslaust fjör
hjá Roðlausum og beinlausum og
nú er verið að gera heimild-
armynd um þessa einstöku
hljómsveit.“
Á Kleifarbergi Bjössi, sérlegur
hljómsveitarstjóri, leiðbeinir
þar sem lagst er að landi,
ásamt Ómari og Ólafi og
tveimur messaguttum.
Ljósmynd/Magnús Sveinsson
|miðvikudagur|28. 2. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Boðið er upp á ráðgjöf fyrir fólk
sem vill hætta að reykja, minnka
notkun nikótínlyfja eða hætta að
nota munntóbak. » 25
heilsa
Einkenni flensunnar eru al-
mennur lasleiki, hiti, vöðva-
verkir, hálssærindi og stundum
hósti og höfuðverkur. » 24
flensa
Rannsóknir Heklu Sigmunds-
dóttur vísindamanns benda til
þess að sólarljós geti styrkt
ónæmiskerfi húðarinnar. » 25
rannsókn
Ef verndandi og skaðlegir þætt-
ir áfengis eru bornir saman
kemur í ljós að þeir skaðlegu
eru fleiri en verndandi. » 24
áfengi
Rúnar Kristjánsson fylgist meðfréttum á Skagaströnd þar
sem „má sjá þau Ingibjörgu Pálma
og Jón Ásgeir á stöðugum ferðum
úr og í dómsal, því enn virðist
nokkuð þar til Baugsmálum lýkur“.
Saman þau ganga um sali til loka,
sýnast þar stundum á mikilli ferð.
Ingibjörg heldur á Hagkaupspoka
en herrann á öðrum af Bónus gerð.
Þar er á ferðinni auglýsing ærin,
enda eru bæði í framgöngu sperrt.
Til kynningarmála skal fullnýta færin,
það fer ekki hjá því að svo virðist gert.
Og Rúnar horfir út fyrir
landsteinana:
Alþjóðasamfélags þegnskapur þarfur
þykir víst bæta margt heiminum í.
En morðaldan grimma sem geisar í
Darfur
geisar þar áfram og jafnt fyrir því!
Loks leggur Rúnar út af aug-
lýsingu og skilur hana á sinn hátt:
Eflir hugar stöðugt starf,
steypir öllum leiða í hvarf.
Vaxtar þjóðar valinn arf,
VÍSA er allt sem þarf!
pebl@mbl.is
Auglýsingar
og morðalda
VÍSNAHORN
HUNDARNIR þurfa ekki síður en
mannfólkið að vera stundum vel til
fara. Að minnsta kosti kjölturakk-
arnir sem fylgja eigendum sínum í
hvívetna. Þessir hundar sem sýndu
fatnað fyrir ferfætlinga tóku sig
allavega vel út á hundatískusýning-
unni sem haldin var í Yokohama í
nágrenni Tókýó fyrir skemmstu.
Rauðhetta Chihuahua-hundurinn
Cookie í rauðum kjól.
Hátískuhvuttar
Fínir Miniature schnauzer-hund-
arnir Miu og Ray í gallafatnaði.
AP
Bleik blómarós Tíkin Churaku tók
sig vel út á sýningunni.