Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LINARES-ofurmótið á Spáni hef-
ur verið haldið á hverju ári í nokkra
áratugi. Garry Kasparov vann þar
ófáa sigra en hann tefldi sína síðustu
kappskák sem atvinnumaður í skák
hinn 10. mars 2005 á móti þar sem
hann varð hlutskarpastur. Lokaskák
þessa mesta meistara allra tíma lauk
með ósigri hans gegn Búlgaranum
Veselin Topalov sem varð síðar það ár
heimsmeistari FIDE. Þó að Kasp-
arov hafi horfið á braut hefur mótið
haldið göngu sinni áfram og bæði í ár
og í fyrra hefur því verið skipt á milli
borgarinnar Morelia í Mexíkó og Lin-
ares á Spáni. Fyrri helmingur móts-
ins hefur farið fram í Morelia en sá
síðari í Linares.
Síðastliðinn sunnudag lauk fyrri
hálfleik í þessu geysisterka átta
manna skákmóti. Norska undrabarn-
ið Magnus Carlsen hefur farið á kost-
um á mótinu hingað til. Hann hefur
lagt Morozevich, Ivansjúk og Topalov
að velli en eingöngu lotið í lægra haldi
fyrir indverska stórstirninu Visw-
anathan Anand. Síðastliðinn sunnu-
daginn hafði hann svart gegn Peter
Svidler í sjöundu og lokaumferð fyrri
hlutans og hélt örugglega jöfnu. Öðr-
um viðureignum lyktaði á þá lund að
Anand vann Leko, Ivansjúk lagði Ar-
onjan að velli og Topalov vann sína
fyrstu skák á mótinu gegn Alexander
Morozevich. Þessi úrslit höfðu þá
þýðingu að fyrri hlutanum loknum
eru Anand og Carlsen efstir og jafnir:
1.–2. Viswanathan Anand (2.779) og Magnus
Carlsen (2.690) 4½ vinning af 7 mögulegum.
3. Vassily Ivansjúk (2.750) 4 v.
4.–5. Levon Aronjan (2.744) og Peter Svidler
(2.728) 3½ v.
6.–7. Peter Leko (2.749) og Veselin Topalov
(2.783) 3 v.
8. Alexander Morozevich (2.741) 2 v.
Síðari hluti mótsins fer fram í Lin-
ares á Spáni sem hefst föstudaginn 2.
mars og lýkur sunnudaginn 10. mars
næstkomandi. Gengi stigahæsta
skákmanns heims, Topalovs, hefur
verið slakt í fyrri hlutanum rétt eins
og á síðasta ári. Sigrar í nokkrum um-
ferðum í röð í seinni hlutanum fleytti
honum í 2.–3. sætið á meðan Armen-
inn Aronjan hélt sjó og tryggði sér
sigur. Það er aldrei að vita nema að
sagan endurtaki sig og að Búlgarinn
sterki nái eins og galdramaður að
hrista fram nokkrar kanínur úr hatti
sínum. Vonir Norðmanna og annarra
Norðurlandabúa standa og falla hins-
vegar með undrabarninu ótrúlega,
Magnusi Carlsen. Það yrði stórkost-
leg afrek ef honum tækist að halda
áfram á sigurbraut sinni og skrá nafn
sitt í sögubækur sem einn sigurveg-
ara á ofurmótinu í Linares á Spáni.
Gyfli skákmeistari Akureyrar
Enn á ný sýndi Gylfi Þórhallsson
hvers hann er megnugur í norðlensku
skáklífi þegar hann varð hlutskarp-
astur á Skákþingi Akureyrar sem er
nýlokið. Lokastaða efstu þriggja
keppendanna varð þessi:
1. Gylfi Þórhallsson (2.199) 6 v. af 7 mögu-
legum.
2. Sigurður Arnarsson (1.825) 5 v.
3. Tómas Veigar Sigurðsson (2.048) 4½ v.
Alls voru 16 keppendur á mótinu og
fyrir utan sigur Gylfa vakti athygli
hversu Gestur Baldursson (1.490)
stóð sig vel en hann lauk keppni með
fjóra vinninga og lenti í 4.–9. sæti.
Gestur sem er á sextánda ári gerði
jafntefli við marga skákmenn sem eru
mun stigahærri en hann. Nánari upp-
lýsingar um mótið er að finna á
heimasíðu Skákfélags Akureyrar,
www.skakfelag.is.
Sævari gekk vel í Moskvu
Alþjóðlegi meistarinn Sævar
Bjarnason (2.230) og kvennastór-
meistarinn Lenka Ptácníková (2.308)
fengu bæði helming vinninga á hinu
sterka Aeroflot-móti sem er nýlokið í
Moskvu. Alls voru tefldar níu umferð-
ir á mótinu og atti Sævar kappi við
marga stigahærri skákmenn svo að
hann mun hækka um 14 stig vegna
frammistöðu sinnar en stigatala
Lenku mun hinsvegar lækka. Þau
lentu í 73.–100. sæti af 168 keppend-
um á meðan eiginmaður Lenku, Om-
ar Salama (2.183), lenti í 123.–138.
sæti með 3½ vinning. Alþjóðlegi skák-
dómarinn Ólafur S. Ásgrímsson
(1.655) tefldi í C-flokki skákhátíðar-
innar og fékk 4 vinninga af 9 mögu-
legum og lenti í 117.–144. sæti af 199
keppendum. Ólafur hefur ekki alþjóð-
leg skákstig en árangur hans sam-
svaraði 2.022 skákstigum.
Carlsen og Anand efstir í hálfleik
SKÁK
Morelia í Mexíkó
MORELIA/LINARES OFURMÓTIÐ
17. febrúar – 10. mars 2007
Helgi Áss Grétarsson
Undrabarnið Hinn 16 ára Magnus Carlsen.
daggi@internet.is
HJÁ Kópavogsdeild Rauða kross-
ins sér hópur sjálfboðaliða um að
prjóna, hekla og sauma ung-
barnaföt fyrir börn í neyð. Hóp-
urinn sem kallast Föt sem fram-
lag samanstendur aðallega af
konum en nokkrum körlum þó
sem flest hafa látið gott af sér
leiða með þessum hætti í mörg ár.
Sjálfboðaliðarnir stunda handa-
vinnuna mest megnis heima hjá
sér hver á sínum hraða en síðan
taka nokkrir þeirra að sér að hitt-
ast og raða flíkunum í pakka. Nú
er þörf á fleiri sjálfboðaliðum og
eru áhugasamir hvattir til að
koma og kynna sér verkefnið mið-
vikudaginn 28. febrúar kl. 16–18 í
sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg
11. Prjónar og garn verða á
staðnum en velkomið er að taka
með sér eigið prjónadót og prjóna
með hópnum og spjalla saman.
Kaffi verður á könnunni og með
því.
Áhugasamir eru því eindregið
hvattir til að kíkja í prjónakaffið.
Einnig er hægt að fá nánari upp-
lýsingar hjá Kópavogsdeild Rauða
krossins í síma 554 6626.
Prjónakaffi Ungbarnaföt frá sjálfboðaliðum í verkefninu Föt sem framlag
koma sér vel í Malaví og víðar.
Sjálfboðaliðar prjóna
og sauma til góðs
Í MIÐVIKUDAGSERINDI Orku-
garðs í dag, miðvikudag, fjalla Þor-
steinn Þorsteinsson, jöklafræð-
ingur á Vatnamælingum Orku-
stofnunar og samstarfsmenn hans
um rannsóknarverkefni í Vestari-
Skaftárkötlum.
Í fyrirlestrinum mun Þorsteinn
greina frá leiðangrinum til Skaft-
árkatla, og segja frá gangi verkefn-
isins við borunina. Eftirtaldir vís-
indamenn munu síðan greina
stuttlega frá einstökum þáttum
rannsóknarinnar:
Tómas Jóhannesson (Veðurstofu
Íslands) – Mæling hita og vatns-
borðs í lóninu.
Andri Stefánsson (Jarðvís-
indastofnun HÍ) – Efnasamsetning
sýnis úr lóninu.
Viggó Marteinsson (Umhverf-
isstofnun) – Örverulíf í sýninu.
Nánar um erindi Þorsteins og fé-
laga: http://www.os.is/page/
midv_280207.
Erindið verður haldið milli kl. 13
og 14 í Víðgelmi, sal Orkustofnunar
og ÍSOR á 1. hæð Orkugarðs við
Grensásveg 9.
Ókeypis aðgangur og allir vel-
komnir.
Rannsókn-
arleiðangur í
Skaftárkatla
FYRSTA „Opna hús skógrækt-
arfélaganna“ á þessu ári verður
í kvöld, miðvikudagskvöldið 28.
febrúar, kl. 19.30–22.00, í Öskju,
náttúrufræðahúsi Háskóla Ís-
lands.
Þar segja Jón Geir Pétursson
skógfræðingur og Ragnhildur
Freysteinsdóttir landfræðingur
frá, í máli og með myndum, hóp-
ferð sem Skógræktarfélag Ís-
lands stóð fyrir til Rússlands á
síðasta ári. Einnig verður kynnt
fyrirhuguð ferð Skógrækt-
arfélags Íslands til Sviss í sum-
ar.
Opnu húsin eru hluti af
fræðslusamstarfi Kaupþings og
Skógræktarfélags Íslands.
Ókeypis er á Opnu húsin og allir
velkomnir.
Opið hús
skógrækt-
arfélaganna
STOFNUÐ hafa verið lands-
samtökin Vonin, hagsmunasamtök
krabbameinsgreindra, sem munu
starfa á landsvísu. Vonin eru fyrstu
samtök krabbameinsgreindra sem
hafa að markmiði að berjast fyrir
bættum hag og aðstöðu innan ís-
lenska heilbrigðiskerfisins til handa
krabbameinsgreindum, segir í til-
kynningu.
Tilgangurinn er að leita jafnræðis
við aðra þegna íslensks samfélags
varðandi félagsleg réttindi, kjör,
vitneskju um lagaleg réttindi og
skyldur samfélagsins við krabba-
meinsgreinda.
Á næstunni mun verða sett upp
heimasíða vonin.is sem er í smíðum
þessa dagana þar sem áhugasamir
geta skráð sig inn sem félaga.
Ennfremur hyggur stjórn félags-
ins á kynningarfundi hringinn í
kringum landið á næstunni sem
verða auglýstir sérstaklega.
Krabbameinsgreindir
stofna Vonina
VEGNA fréttar Morgunblaðsins sl.
laugardag um rykbindibíl sem not-
aður er til að hefta svifryk í Reykja-
vík, skal áréttað að Hreinsitækni
ehf. á bílinn, hefur séð um alla
hönnun og breytingar á honum og
borið allan kostnað við þróun hans.
Árétting
♦♦♦
FORSÆTIS- og fjármálaráðuneyti
standa að undirbúningi UT-dags-
ins sem haldinn verður 8. mars nk.
Lögð verður áhersla á mikilvægi
upplýsingatækninnar sem verk-
færis til að minnka skriffinnsku,
spara tíma og auka hagræði. Ým-
islegt er á döfinni í tengslum við
UT-daginn.
Á ráðstefnu sem haldin verður í
Salnum í Kópavogi í tilefni dagsins
verða kynnt nokkur af stærstu
verkefnum ríkis og sveitarfélaga í
rafrænni stjórnsýslu. Yfirskrift
ráðstefnunnar er „Nýtum tímann –
Notum tæknina,“ og verður þar
fjallað meðal annars um rafræn
skilríki, vefinn Ísland.is og rafræn
innkaup. Hinn 3. mars verður gef-
ið út efnismikið blað, UT-blaðið,
þar sem einnig verður fjallað um
nokkur mikilvæg verkefni í raf-
rænni stjórnsýslu.
Þjónustuvefurinn Ísland.is,
verður opnaður almenningi 7.
mars. Ísland.is er þjónustuveita
með heildstæðum upplýsingum um
þjónustu ríkis og sveitarfélaga og
verður þar hægt að nálgast nánast
alla þá gagnvirku þjónustu sem í
boði er á vegum opinberra aðila.
Vefurinn verður kynntur á ráð-
stefnu UT-dagsins.
Þetta er í annað skipti sem UT-
dagurinn er haldinn, en sá fyrsti
fór fram 24. janúar 2006. UT-dag-
urinn verður að þessu sinni hald-
inn í tengslum við sýninguna
Tækni og vit 2007, fagsýningu
tækni- og þekkingariðnaðarins,
sem mun fara fram í Fífunni í
Kópavogi dagana 8.–11. mars.
Gestum ráðstefnunnar í Salnum er
jafnframt boðið á opnun Tækni og
vits, sem hefst kl. 17. Ráðstefnan
er öllum opin en tilkynna þarf
þátttöku á skraning@appr.is. Dag-
skrá UT-dagsins verður jafnframt
send út beint á Netinu á vefnum
www.ut.is.
Nýtum tímann –
notum tæknina
Fjallað verður um rafræna
stjórnsýslu á UT-deginum
STOFNFUNDUR Félags umhverf-
isfræðinga var haldinn 24. febrúar
sl. Á fundinum voru kosnir í stjórn
félagsins: Guðmundur Ingi Guð-
brandsson (formaður), Anna Rósa
Böðvarsdóttir, Björn H. Barkarson,
Kjartan Due Nielsen og María J.
Gunnarsdóttir.
Félaginu er ætlað að vera fagleg-
ur vettvangur fyrir umhverfis- og
auðlindafræðinga og aðra fræði-
menn á sviði umhverfismála sem
með starfa sínum eða öðru framlagi,
styrkja félagið með þátttöku sinni.
Markmið félagsins eru að efla fag-
lega og vísindalega þekkingu fé-
lagsmanna, stuðla að umræðu og
fræðslu um umhverfismál og auka
innlent og alþjóðlegt samstarf á
þeim vettvangi. Félaginu er einnig
ætlað að auka þekkingu og skilning
á starfi umhverfisfræðinga og þeirri
þverfaglegu nálgun sem þeir þurfa
oft að beita í starfi sínu.
Félagið mun standa fyrir fræðslu
svo sem með málþingum og er-
indaflutningi sem tengjast náttúru-
og umhverfismálum og nota fjöl-
breytta miðla nútímasamfélags til að
koma á framfæri þekkingu og upp-
lýsingum um þennan málaflokk, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Félag umhverfis-
fræðinga stofnað