Morgunblaðið - 28.02.2007, Qupperneq 41
staðurstund
Steinunn Sigurðardóttir skrifar
frá París um gatnagerð á Ís-
landi sem henni þykir lítið til
koma. » 42
pistill
Terem-kvartettinn frá Rúss-
landi hélt tónleika í Salnum þar
sem Sigrún Hjálmtýsdóttir var
gestasöngvari. » 43
dómur
Birta Björnsdóttir skrifar um
Herramannabækur Rogers
Hardgreaves sem notið hafa
mikilla vinsælda hér á landi. » 43
af listum
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
rakaði af sér allt hárið fyrir Kill-
er Joe og er kominn inn í skóla í
New York. » 49
leiklist
Angelina Jolie er komin í póli-
tíkina í Washington, Sigur Rós
spilaði í New York og Eddie
Murphy er tapsár. » 48
fólk
Incubus hefur alltaf veriðnokkuð sér á parti í rokk-heimum. Hún hóf ferilinnsem eins slags fönkrokksveit,
undir þó nokkrum áhrifum frá Faith
No More og Red Hot Chili Peppers,
eins og glöggt má heyra á fyrstu
plötunni „Fungus Amongus“ (1995).
Þegar S.C.I.E.N.C.E. kom út árið
1997 hafði sveitin hins vegar gert
samning við Immortal/Epic. Plata
sú olli því að Incubus var slengt í
hóp með vinsælustu nýþungarokks-
sveitum þess tíma, Korn og Defto-
nes. Incubus pössuðu þó ekkert of
vel í þann hóp og var það undir-
strikað með Make Yourself (1999),
plötu þar sem hinn sérstæði hljómur
Incubus var tekinn að vaxa og
dafna. Incubus var orðin „hugsandi“
rokksveit, eitthvað sem varð enn
ljósara á Morning View (2001), plata
sem varð nokkuð umdeild fyrst þeg-
ar hún kom út. Morning View er
fjölbreytt plata og slatti af rólynd-
islegum, melódískum smíðum olli
því að eldri aðdáendur urðu sumir
hverjir hvumsa. Engu að síður var
auðheyrt að meðlimir Incubus voru
ákveðnir í þróa sig áfram og þrosk-
ast og skítt með allar tískubylgjur.
Næsta plata, A Crow Left of the
Murder … (2004) var þá ekki síðra
verk að þessu leytinu til.
Styrkur Incubus felst í þessum
óútreiknanleika, í bland við aðgengi-
leg útvarpslög er sýrubundin til-
raunastarfsemi og stundum fer
þetta tvennt sama í einu og sama
laginu.
Kippur
Nýjasta plata Incubus, Light
Grenades, kom út í nóvember í fyrra
og fór beint í fyrsta sæti bandaríska
Billboard-listans, en þetta er í
fyrsta skipti sem Incubus nær þeim
árangri. Light Grenades fylgir svip-
aðri forskrift og tvær síðustu plötur,
en tvær smáskífur hafa nú komið út,
„Anna Molly“ (með einkennilegu,
svartþungarokkslegu riffi) og „Dig“,
sem best er lýst sem dramatískum
smelli. Já, það er erfitt að átta sig á
Incubus. Kannski Einziger geti gef-
ið einhverja innýn í þessi mál, en
hann stofnaði sveitina ásamt æsku-
vinum sínum, Brandon Boyd söngv-
ara og Jose Pasillas trymbli, en þá
voru þeir fimmtán ára.
– Þetta er stórmerkilegt lag
Mike, „Anna Molly“ …
„Ó, takk.“
– Gítarriffið minnir á það sem
svartþungarokkhljómsveitir eru að
gera …
„(Símasambandið er ekki ýkja
gott og Einziger heyrir ekki þetta
með svartþungarokkið og svarar því
með almennum hætti.) Já, þetta er
athyglisvert lag, það er mikið af
skiptingum og það er svona í hress-
ara lagi, finnst mér. Við vorum
snöggir að semja það, lagið varð til
áreynslulaust. Þetta var síðasta lag-
ið sem við sömdum fyrir plötuna og
ég verð að segja að við furðum okk-
ur á þessum svakalegu viðtökum.“
– En er lagið undir áhrifum frá
svartþungarokki?
„Uuu …(hissa)… nei! (hlær
hrossahlátri). Ég held ekki a.m.k.“
– En hvernig gekk að vinna alla
plötuna?
„Við höfum aldrei eytt meiri tíma
í nokkra plötu en þessa. Vinnuferlið
var hægara og eðlilegra, myndi ég
segja, því að vanalega vinnum við
þessa hluti mjög, mjög hratt.“
– Voruð þið nokkuð taugaóstyrkir
yfir því að standast ekki væntingar?
„Nei, alls ekki, við höfum bara
alltaf unnið svo hratt, plöturnar
hafa verið teknar upp á tveimur,
þremur vikum. Síðasta plata var
tekin upp á tveimur vikum t.d..
Núna ákváðum við að semja lögin í
kippum, kannski þrjú, fjögur í einu
og hljóðrita þau síðan í stað þess að
hljóðrita allt í einu. Þetta gaf manni
tíma á milli til að semja meira, og
lifa aðeins með því sem þegar var
komið. Við gátum þá pælt aðeins í
því efni.“
Mannleg snerting
– Incubus er hljómsveit sem nær
listavel að samþætta hlustunarvæna
tónlist og tilraunakennda. Hvað seg-
ir þú um þessa staðhæfingu?
„Ja … fyrir mitt leyti þá fíla ég í
aðra röndina mjög einfalda tónlist
en í hina mjög glundroðakennda og
afstæða tónlist. Tilraunakennda
tónlist, eins og þú myndir kalla það.
Ég hef aldrei komist upp á lagið
með að semja öðruvísi tónlist en þá
þar sem þessir hlutir fara saman.“
– Og fólki virðist geðjast þessi
vinna þín ...
„Já, aðdáendur hafa t.d. tekið
mjög vel í nýju plötuna. Við höfum
aldrei fengið sérstaka athygli frá
gagnrýnendum eða fjölmiðlum en
aðdáendur standa alltaf með okkur.
Það er auðvitað það sem skiptir
mestu.“
– Hafa starfsmenn frá útgáfunni
ykkar aldrei reynt að grípa í taum-
ana og stýra ykkur inn í söluvæn-
legri áttir?
„Nei, aldrei. Útgáfan hefur aldrei
skipt sér af nótu. Hún hefur reynst
okkur mjög vel. Maður hefur auðvit-
að heyrt hrikalegar sögur af hinum
og þessum samskiptum útgáfna og
hljómsveita en blessunarlega höfum
við sloppið við allt slíkt.“
– Nú er Incubus mikil tónleika-
sveit. Hversu mikilvægt er það fyrir
ykkur að spila á tónleikum?
„Fyrir mig persónulega er það
aðalmálið. Þannig er best að upplifa
Incubus að mínu mati. Stundum
komast ákveðnir hlutir ekki jafn vel
til skila á plötu og þeir gera á sviði.
Plötur geta blekkt, því að í dag er
hægt að klippa allt til og umbreyta
því svo í tölvum. Þannig að hljóðin
sem þú heyrir eru ekki frá fimm
manns sem eru í herbergi að spila
tónlist saman. Þegar við búum til
plötur gerum við þær eins og við
séum í bílskúr. Við spilum samtímis
og þannig hljóðritum við. Sumir
gera sér ekki grein fyrir því að
svona eru Incubus-lögin – við fimm
að spila saman. Það er ekkert verið
að splæsa einhverju saman, né að ég
taki upp mína parta sér o.s.frv.“
– Það er tímana tákn að þú þurfir
að taka það sérstaklega fram að þið
spilið saman sem hljómsveit.
„Já (hlær). Flestar hljómsveitir
vinna ekki svona lengur. Útkoman
er því oft vélræn, það er eins og vél-
menni séu að spila. Það vantar hina
„mannlegu snertingu“ ef svo mætti
segja (hlær).“
Nánd
– Sérð þú einhverja línulega þró-
un í ferli Incubus eða er þetta bara
slatti af tónlist á nokkrum plötum?
„Að einhverju leyti hefur þetta
þróast eðlilega en mestan part er
þetta líklega bara slatti af tónlist.
Ég veit það ekki … hver plata er
einhvers konar mynd af okkur á
mismunandi tímum. Og það er eðli-
legt að áhugi manna og áherslur
breyttist í tímans rás.“
– En það hefur aldrei verið freist-
andi þegar einhver ein plata hefur
gengið vel að endurtaka formúluna
á þeirri næstu?
„Nei. Mest selda platan okkar til
þessa er Morning View (2,7 millj-
ónir eintaka) og við höfum aldrei
reynt að gera plötu sem hljómar
svipað. Við hefðum getað gert það,
en það er bara ekki rétt. Plöturnar
verða að vera spennandi fyrir okkur
og þegar við leggjum í næstu plötu
þá má hún ekki hljóma eins og sú
síðasta.“
– Hvernig er með sjálfa hljóm-
sveitina. Eruð þið vinagengi eða
komið þið bara saman til að búa til
tónlist?
„Við erum tvímælalaust gengi
(hlær). Þrír af okkur hafa verið vinir
frá barnæsku og hinir tveir hafa
verið í bandinu nokkuð lengi. Og við
erum allir mjög góðir vinir. Við hitt-
umst þegar við erum ekki á túr og
ég hékk t.d. með tveimur úr hljóm-
sveitinni í gærkvöldi. Það er mikil
nánd í sveitinni.“
Fimm í
fjársjóðsleit
Fjölhæfir Styrkur Incubus felst í þessum óútreiknanleika, í bland við aðgengileg útvarpslög er sýrubundin til-
raunastarfssemi og stundum fer þetta tvennt sama í einu og sama laginu. Mike Einziger er lengst til vinstri.
Tónlist | Incubus spilar í Laugardalshöll næstu helgi
Á laugardagskvöldið
heldur bandaríska
rokksveitin Incubus
tónleika í Laugardals-
höll. Arnar Eggert
Thoroddsen ræddi
við Mike Einziger
gítarleikara af þessu
tilefni
Það er Mínus sem hitar upp fyrir
Incubus. Miðasala á tónleikana fer
fram í verslunum Skífunnar
(Laugavegi 26, Kringlunni og
Smáralind), BT Egilsstöðum, Ak-
ureyri og Selfossi og á midi.is.
Miðaverð er 4.500 krónur í stæði
og 5.500 í sæti – og er miðagjald
innifalið í miðaverðinu.
Fyrsti konsert er frír SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.ISí boði FL Group og Sinfóníuhljómsveitarinnar
FIMMTUDAGINN 1. MARS KL. 19.30
Hljómsveitarstjóri ::: Lawrence Renes
Einsöngvari ::: Lilli Paasikivi
gul tónleikaröð í háskólabíói
Ludwig van Beethoven ::: Egmont, forleikur
Richard Wagner ::: Wesendonck Lieder
Ludwig van Beethoven ::: Sinfónía nr. 3 „Eroica“
Eroica
Sinfóníuhljómsveit Íslands er komin
heim eftir sigurför um Mið-Evrópu til
að flytja hetjusinfóníu Beethovens,
stórvirkið sem var brúin milli klassísku
og rómantísku sinfóníunnar.
Fyrirhuguð tónleikakynning Vinafélagsins á fimmtu-
daginn fellur niður vegna breytinga á efnisskrá.