Morgunblaðið - 28.02.2007, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 43
menning
EINBÝLI OG RAÐHÚS ÓSKAST Í FOSSVOGI
Traustir kaupendur hafa óskað eftir því að við útvegum
einbýlis- og raðhús í Fossvoginum.
Traustar greiðslur eru í boði og rúmur afhendingartími.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
lögg. fasteignasali.
Sverrir
Kristinsson
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSKAST
500-800 fm skrifstofuhúsnæði óskast sem fyrst til kaups.
Staðsetning mætti gjarnan vera Múlahverfi eða Borgartún.
Fleiri staðsetningar koma jafnvel til greina.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Hákon Jónsson lögg. fasteignasali.
Ámínu heimili teljast Herra-mannabækur Rogers Hard-greaves til heimsbók-
menntanna enda þessir litlu
litskrúðugu kallar hvers manns
hugljúfi og bera góðan boðskap til
lesenda á öllum aldri.
Fyrsti Herramaðurinn leit dags-ins ljós árið 1971. Það var
Herra Kitli en hann varð til eftir að
sonur Hardgreaves, Adam, spurði
föður sinn hvernig kitlari liti út. Úr
varð hinn appelsínuguli Kitli með
sínar ógnarlöngu hendur.
Í kjölfarið komu svo Herra Sæll,
Herra Hávær, Herra Kjaftaskur,
Herra Lítill, Herra Gleyminn og all-
ir hinir.
Litlar Ungfrúr fóru svo að koma
út tíu árum síðar, meðal annars
Ungfrú Ráðrík, Ungfrú Feimin og
Ungfrú Frábær. Ungfrú Tvíburar
skrifaði höfundurinn svo fyrir dæt-
ur sínar, Amelia og Sophie.
Vinsældir Herramannanna urðu
slíkar að Hardgreaves gat hætt í
starfi sínu sem auglýsingagerð-
armaður til að einbeita sér að skrif-
unum heimafyrir.
Svo vel gekk að Hardgreaves er
orðinn einn söluhæsti rithöfundur
Breta fyrr og síðar, að J.K. Rowling
undanskilinni en bækur hans hafa
selst í yfir 100 milljónum eintaka á
22 tungumálum.
Herramennirnir eru nú orðnir43 talsins og enn fjölgar í
hópnum þó svo að skaparinn Hard-
greaves hafi látist langt fyrir aldur
fram fyrir 19 árum síðan. Sonur
hans Adam tók nefnilega við af
honum og hefur sjálfur skrifað sög-
ur af nýjum Herramönnum og
frúm, meðal annars Herra Svalan,
Herra Rudda og Ungfrú Skell.
Roger hafði þó skapað 52 Herra-
menn og 39 Ungfrúr þegar hann
lést og enn hafa ekki allir í þeim
hópi fengið um sig sjálfstæða sögu.
Allir hljóta að eiga sinn uppá-
halds Herramann innst inni. Minn
er Herra Gleyminn þó að Herra
Latur eigi líka taug í hjarta mínu.
Sjálfur hélt Roger að sögn mest
uppá Herra Kjána en uppáhald
Adams er Herra Skellur.
Adam þakkar einfaldleika sagn-anna vinsældir þeirra.
„Pabbi var flinkur í að fanga
mannlega hegðun og umbreyta
henni í fyndinn söguþráð í Herra-
bókunum,“ sagði Adam í viðtali við
BBC þegar Herramennirnir fögn-
uðu 30 ára afmæli sínu árið 2001.
„Fólk á líka auðvelt með að tengj-
ast bókunum og söguhetjunum. Það
þekkja allir einhvern sem líkist
Herra Sælum, Herra Gleymnum
eða Herra Subba.“
Sögurnar um Herramenninaflytja einfaldan boðskap. Herra
Kjaftaskur lærir að tala ekki enda-
laust í belg og biðu, Herra Hávær
lærir að hafa hemil á þrumuraust
sinni og Herra Sæll nær að gleðja
hinn afar dapra Herra Vansælan.
Sögurnar gerast flestar á upp-
diktuðum stöðum, eins og í Syfju-
landi, en einhverjir Herramannana
hafa þó komið við á þekktari stöð-
um á borð við Afríku og Ástralíu.
Íslenskar þýðingar Herramann-anna litu dagsins ljós hér á landi
fyrir rúmum aldarfjórðungi og á
stórskemmtileg þýðing þeirra
Þrándar Thoroddsen og Guðna
Kolbeinssonar sinn hluta í vinsæld-
um bókanna hér á landi.
JPV forlag hóf fyrir nokkrum ár-um að gefa Herrabækurnar út
aftur og lesendur á öllum aldri eiga
því auðveldara með að rifja upp
gömul kynni við góða vini.
Allir þekkja einhvern Herra Gleyminn
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
»Herra Hávær lærirað hafa hemil á
þrumuraust sinni og
Herra Sæll nær að
gleðja hinn afar dapra
Herra Vansælan.
birtab@mbl.is
TEREM-kvartettinn var stofnaður
í Pétursborg árið 1986 og hefur frá
upphafi einbeitt sér að því að út-
setja hvers kyns tónlist, klassík
sem alþýðutónlist fyrir rússnesk
þjóðlaga hljóðfæri. Sérstaða Terem
er einna helst fólgin í að ná með
fjölbreytilegum útsetningum að
laða fram aragrúa ólíkra verka á
sannfærandi máta, jafnvel tón-
smíðar sem undir venjulegum
kringumstæðum krefjast heillar
sinfóníuhljómsveitar. En sköp-
unargleði og lifandi sviðsframkoma
kvartettsins, auk kímni og ástríðu í
spilamennskunni, hafa átt ríkan
þátt í áratuga langri velgengni hans
og vinsældum.
Það var óneitanlega mikil upp-
lifun að sjá Terem-kvartettinn spila
í Salnum 15. febrúar síðastliðinn.
Færni meðlima hans á hljóðfærin
var hreint með ólíkindum og nándin
við áhorfendur órjúfanleg. Prúð-
mennska þeirra og kurteisi kall-
aðist skemmtilega á við grófan
hamaganginn í sumum af kraft-
meiri númerunum, sem gerir kvart-
ettinn illskilgreinanlegan sam-
kvæmt almennum hugmyndum um
flokkun tónlistar og tónlistarmanna.
En markmið félaganna í Terem
virtist einfalt og blátt áfram, að
flytja fólki margbreytilega tónlist af
einskæru ástríki, með lifandi og
auðskiljanlegum hætti. Meðlimir
kvartettsins virðast enda hafnir yfir
allar skilgreiningar og óskrifaðar
reglur um hvað fer saman og hvað
ekki, eins og kemur skýrt fram í út-
setningum þeirra og tónsmíðum,
þar sem alls kyns kunnuglegum
stefjum og klisjum ægir oftar en
ekki saman og allir útúrdúrar virð-
ast vera leyfilegir, sem vekur
gjarnan eftirvæntingu og kátínu hjá
hlustandanum.
Skömmu eftir hlé bættist hin vin-
sæla sópransöngkona Sigrún
Hjálmtýsdóttir, í hópinn. Þátttaka
hennar átti tvímælalaust sinn hlut í
að gera tónleikana eftirminnilega,
frjálslegt fas hennar, hlýja og frá-
sagnarlist gaf hlustendunum færi á
að komast einu skrefinu nær hinum
rússnesku virtúósum. Frammistaða
Diddúar var að vanda með ágætum,
en þó örlaði fyrir eilítilli raddþreytu
sem virtist þó hverfa eftir sem leið
á. Það var áhugavert að heyra með-
ferð Terem á íslensku lögunum
Dagný og Sveitin milli sanda, en
þar gat hlustandinn í raun glöggvað
sig betur á einkennandi stíl kvart-
ettsins, að gefnum samanburði við
vanalegu útsetningarnar.
Eins og við var að búast var
listamönnunum klappað lof í lófa og
tileinkuðu þeir uppklappslagið kon-
unum í salnum, en það var lagið
Bessa me mucho, eða Kysstu mig
ákaft, sem vakti mikla lukku. Af
undirtektunum að dæma munu tón-
leikar Terem-kvartettsins verða
lengi í minnum hafðir og væri því
óskandi að heimsóknir þeirra yrðu
að föstum lið í tónleikaflórunni hér
á landi.
Veisla fyrir augu og eyru
Morgunblaðið/Jim Smart
Sópran Sigrún Hjálmtýsdóttir var sérstakur gestur á tónleikunum.
Tónlist
Tónleikar
Terem-kvartettinn flutti tónlist eftir ýmsa
höfunda, að mestu í eigin útsetningum
auk eigin tónsmíða. Terem-kvartettinn
skipa: Andrey Konstantinov sópran-
dorma, Alexey Barshchev alt-domra,
Andrey Smirnov bayan-harmónika og
Mikhail Dzyudze balalaika. Sérstakur
gestur var Sigrún Hjálmtýsdóttir sópr-
ansöngkona.
Tíbrá – Terem-kvartettinn frá Rússlandi
Ólöf Helga Einarsdóttir
Fréttir í tölvupósti