Morgunblaðið - 28.02.2007, Síða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
The Number 23 kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
Ghost Rider kl. 8 og 10.15 B.i. 12 ára
Notes on a Scandal kl. 6
The Number 23 kl. 5.45, 8 og 10.15 B.i. 16 ára
The Last King of Scotland kl. 5.20, 8 og 10.35 B.i. 16 ára
The Last King of Scotland LÚXUS kl. 5.20, 8 og 10.35
Ghost Rider kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
The Pursuit of Happyness 8 og 10.30
Anna og skapsveiflurnar m/ísl. tali kl. 4 og 4.45 STUTTMYND
Vefurinn hennar Karlottu m/ísl. tali kl. 3.40
Night at the Museum kl. 5.40
eee
S.V. - MBL
SVALASTA
SPENNUM
YND
ÁRSINS
NICOLAS CAGE EVA MENDES
TOPPMYNDIN Á
ÍSLANDI Í DAG
Mynd eftir
Joel Schumacher
JIM CARREY
Þú flýrð ekki sannleikann
eeee
D.Ö.J. - KVIKMYNDIR.COM
„Stórfengleg mynd,
sannkölluð perla nútíma
kvikmyndagerðar“
B.S. - FRÉTTABLAÐIÐ
“Forrest Whitaker er hreint
út sagt magnaður í hlutver-
ki harðstjórans og sýnir svo
að ekki verður um villst að
hér fer einn fremsti leikari
samtímans.”
ÓSKARSVERÐLAUN
besti leikari í aðalhlutverki
eee
M.M.J
- Kvikmyndir.com
eee
S.V. - MBL
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Í Ljósmynda-safni Reykja-
víkur er nú sýn-
ingin Sund &
gufa, en þar sýn-
ir Damien Peyret
polaroid-myndir
af fólki í Sund-
laug Kópavogs ásamt stuttmyndinni
A Taxi for Reykjavik frá árinu 2001.
Frá árinu 1997 hefur hann beint
kröftum sínum að framleiðslu og
ljósmyndun, t.d. gert auglýsingar og
stuttmyndir fyrir sjónvarpsstöðv-
arnar Arte og Canal +. Kvikmynd
hans A Taxi for Reykjavik hefur
verið valin á margar af helstu al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðunum og
ljósmyndaverk hans eru reglulega
til sýnis í Spree Gallery í París.
Ljósmyndasýningu Rafns Hafnfjörð – Flæðarmálið, sem nú stendur yfirí Café Mílanó lýkur nú um helgina, 4. mars.
Rafn hefur unnið til verðlauna í ljósmyndasamkeppnum og árið 1979
hélt hann einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Íslandsdeildin á heimssýning-
unni í Montreal 1967 var að mestu byggð upp á ljósmyndum eftir Rafn.
Tónlist
Norræna húsið | Á háskólatónleikum í
dag, miðvikudag kl. 12.30, flytja Dean
Ferrell, kontrabassi, Emil Friðfinnsson,
horn, og Martin Frewer, fiðla, verk í tali
og tónum eftir Johannes Sperger, Adolf
Müller, Leopold Mozart og Johann Joac-
him Quantz. Aðgangseyrir 1000 kr., 500
kr. fyrir eldri borgara og öryrkja, ókeypis
f. nemendur HÍ.
Myndlist
Auga fyrir auga | á horni Klapparstígs
og Hverfisgötu. Anna Lind Sævarsdóttir
myndlistarmaður sýnir unnar ljósmyndir.
Ólga, fiðringur og frelsi eru lögð til
grundvallar í framhaldi af hennar fyrri
verkum. Til 11. mars. Opið miðv. og fös.
kl. 15–18, lau. og sun. kl. 14–17.
Café Karólína | Sýning Kristínar Guð-
mundsdóttur samanstendur af texta-
verkum á glasamottur og veggi.
Café Mílanó | Faxafeni 11. Flæðarmálið –
Ljósmyndasýning Rafns Hafnfjörð. Opið
kl. 8–23.30 virka daga, kl. 8–18 laug-
ardaga og kl. 12–18 sunnudaga.
Energia | Haf og Land. Málverkasýning
Steinþór Marinó Gunnarsson. Sýningin er
opin frá kl. 8– 20 og stendur til 1. mars.
Gallerí 100° | í höfuðstöðvum Orkuveit-
unnar, Bæjarhálsi 1. Samkeppni um úti-
listaverk. Sýning á innsendum tillögum
um gerð útilistaverks við Hellisheið-
arvirkjun. Opið alla virka daga frá kl.
8.30–16. Sjá nánar www.or.is/gallery
Gallerí Fold | Haukur Dór hélt sína
fyrstu sýningu á Mokka 1962 eftir nám í
Myndlistaskólanum í Reykjavík. Þá hélt
hann utan til frekara náms í myndlist,
fyrst til Edinborgar og síðan til Kaup-
mannahafnar.
Gallery Turpentine | The Kodak Mo-
ments – Myndaflokkur um fjölskyldulíf –
elskendur, foreldra, börn og barning
kynja. Hallgrímur Helgason sýnir 110
grafíkverk, unnin á árunum 2004–2007.
Gerðuberg | RÚRÍ: Tími-Afstæði-Gildi.
Sýning frá glæstum listferli. Opin virka
daga frá kl. 11–17 og um helgar frá kl. 13–
16. Sýningin stendur til 15. apríl.
Hafnarborg | Hrafnhildur Inga Sigurð-
ardóttir sýnir tæplega 40 olíumálverk.
Til 4. mars.
Yfirlit yfir listferil. Dröfn Friðfinnsdóttir
(1946–2000). Til 4. mars.
Hallgrímskirkja | Mynd mín af Hallgrími.
28 íslenskir myndlistarmenn sýna út-
færslur sínar á hinni alkunnu mynd
Hjalta Þorsteinssonar af Hallgrími Pét-
urssyni.
Hrafnista Hafnarfirði | Olga Steinunn
Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 2.
mars.
Karólína Restaurant | Listagilinu á Ak-
ureyri. Jónas Viðar sýnir málverk. Sýn-
ingin stendur til 4. maí. Nánar á
www.jvd.is
Kling og Bang gallerí | Helgi Hjaltalín og
Pétur Örn sýna tvær einkasýningar í
samvinnu. Þar fara saman ný verk og
verk sem eru endurgerð svo að þau
verða jafnný og ógerðu verkin sem
kvikna með byggingavörubæklingnum.
Þar verður sýningin sjálf endurgerðin
frekar en verkin sjálf.
Listasafn ASÍ | Live sucks! Utopia and
last blah-blah before you go er heiti sýn-
ingar franska listamannsins Etienne de
France í Arinstofu Listasafns ASÍ. Sýn-
ingin fjallar um sýndarheima Netsins og
er hluti af frönsku listahátíðinni „Pour-
quoi Pas?“ Til 25. mars. Aðgangur
ókeypis.
Listasafnið á Akureyri | Sýning á verk-
um Jóns Óskars – Les Yeux de L’ombre
Jaune og Adam Batemans – Tyrfingar.
Opið alla daga nema mánudaga kl. 12–17.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Efri
hæð: Ljósmyndasýning Blaðaljósmynd-
arafélags Íslands. Neðri hæð: Kára-
hnjúkar. Ljósmyndir eftir: Ragnar Ax-
elsson, Pál Stefánsson, Þorvald Örn
Kristmundsson, Brynjar Gauta Sveins-
son, Kristin Ingvarsson og Vilhelm Gunn-
arsson. Til 18. mars. Safnbúð og kaffi-
stofa.
Listasafn Reykjanesbæjar | Duushúsum.
Sýning Hlaðgerðar Írisar Björnsdóttur og
Arons Reyrs Sverrissonar. Sýningin ber
heitið Tvísýna og um er að ræða mál-
verk í anda raunsæisstefnu af börnum,
húsum og umhverfi.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró
– Gleymd framtíð. Sýningin sam-
anstendur af 100 vatnslitamyndum sem
voru málaðar á árunum 1981–2005.
Myndirnar eru flestar í eigu Errós og
hafa ekki verið sýndar hér á landi áður.
Myndefnið er fjölbreytt og byggist á
klippimyndum. Sýningarstjóri er Þorbjörg
Br. Gunnarsdóttir.
D er ný sýningaröð sem nefnd er eftir
einum sýningarsal hússins og er hugsuð
sem framtíðarverkefni safnsins. Með
henni vill safnið vekja athygli á efnileg-
um myndlistamönnum. Fyrst til að sýna
verk sín í sýningaröðinni er Birta Guð-
jónsdóttir.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Á sýningunni Foss eru tengsl listar og
náttúru rannsökuð í gegnum verk fjög-
urra listamanna sem nálgast viðfangs-
efnið á afar ólíkan máta. Listamennirnir
eru: Hekla Dögg Jónsdóttir, Ólafur Elías-
son, bandaríska listakonan Pat Steir og
Rúrí. Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.
K-þátturinn. Á sýningunni eru verk og
ferill Kjarvals skoðuð út frá hugarheimi
Kjarvals í því skyni að varpa nýju ljósi á
verk hans fyrir samtímann. Sýning-
arstjóri er myndlistarmaðurinn Einar
Garibaldi Eiríksson.
Kjarval og bernskan. Sýning í norð-
ursalnum fyrir börn þar sem varpað er
ljósi á ýmsa forvitnilega snertifleti Kjar-
vals við æskuna. Verkin á sýningunni
varpa ljósi á og eru uppspretta hugleið-
inga um ólíkar aðstæður barna fyrr og
nú.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Safnið
og kaffistofan opin laugardaga og sunnu-
daga kl. 14–17. Nánar á Netinu.
Listasalur Mosfellsbæjar | Kjarna, Þver-
holti 2 í Bókasafni Mosfellsbæjar. List-
bókband – Bóklist á vegg og myndlist á
bók. Ragnar G. Einarsson og Guðlaug
Friðriksd. sýna Bóklist til 24. mars. Þau
vinna saman að listbókbandi – einnig
sýnir Guðlaug málverk tengd bóklistinni.
Opið virka daga kl. 12–19, laugard. 12–15.
Listhús Ófeigs | Skólavörðustíg 5. Bjarni
H. Þórarinsson, Ómar Stefánsson og
Guðmundur Oddur Magnússon sam-
starfsverkefnið Cosmosis–Cosmobile.
Guðmundur Oddur bræðir saman á sinn
hátt myndheima þessara tveggja lista-
mannna. Þetta er sölusýning og stendur
til 28. feb. Opið á verslunartíma.
ReykjavíkurAkademían | Hringbraut 121,
4. hæð. Bókalíf. Unnur Guðrún Óttars-
dóttir sýnir bókverk. Opið virka daga kl.
9–17. Aðgangur ókeypis. Nánar á
www.akademia.is/?s=frett357.
Reykjavíkurborg | Ólátagarðurinn í Kart-
öflugeymslunni Ártúnsbrekku geymir
verk listamanna sem eiga rætur sínar að
rekja til graffiti-listar. Sýningin er opin
daglega kl. 17–20 og lýkur nk. föstudag.
Þjóðarbókhlaðan | Sigurborg Stef-
ánsdóttir sýnir bókverk til 28. febrúar.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið
alla daga nema mánudaga kl. 10–17.
Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, sænsku
og þýsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is. Sími 586 8066.
Iðnaðarsafnið á Akureyri | Vissir þú að
meðal þess sem framleitt var í Iðn-
aðarbænum Akureyri var súkkulaði,
skinnkápur, skór, húsgögn og málning? Á
Iðnaðarsafninu á Akureyri gefur á að líta
þá framleiðslu sem fram fór á Akureyri
á síðustu öld auk véla, verkfæra, auglýs-
inga og sveinsstykkja. Opið á laug-
ardögum kl. 14–16.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Aðalstræti 16, er lokuð. Opnað að nýju 3.
mars.
Landsbókasafn Íslands, Háskóla-
bókasafn | Spari bækur. Sýning Sig-
urborgar Stefánsdóttur Bókverk eru
myndverk í formi bókar. Í bókverki eru
eiginleikar bókarinnar, svo sem umfang,
band, síður, og svo framvegis notaðir í
myndlistarlegum tilgangi. Bókverkin eru
einstök verk eða framleiddar í takmörk-
uðu upplagi.
Sýning Upp á Sigurhæðir – Matthías
Jochumsson Matthías Jochumsson var
lykilmaður í „þjóðbyggingu“ 19. aldar.
Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn
og Skugga-Svein en skáldpresturinn
skildi eftir sig 28 bækur, þar af 15 frum-
samdar. Sýningin stendur út febrúar.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Á sýning-
unni Sund & Gufa sýnir Damien Peyret
Polaroid myndir af fólki í Sundlaug
Kópavogs ásamt stuttmyndinni A Taxi
for Reykjavik frá árinu 2001. Myndin var
gerð fyrir fransk-þýsku sjónvarpsstöðina
Arte og var valin á kvikmyndahátíðina í
Locarno.
Jo Duchene – Marglitt útlit: Made in Ice-
land. Á sýningunni gefur að líta ljós-
myndir af húsum á Íslandi. Sýningin er
ferðalag inn í ýmsa menningarkima hér
og þar á landinu og vekur ekki bara
spurningar um sérkenni og eðli húsanna
heldur varpar einnig ljósi á menningar-
sögulega hlið þeirra.
Minjasafnið á Akureyri | Minjasafnið á
Akureyri sýnir nú 70 óþekktar myndir og
biður almenning um aðstoð við að setja
nafn á andlit og heiti á hús. Hefur þú
séð annað eins? Nokkrir sjaldséðir gripir
sem gestir geta spreytt sig á að þekkja.
Aðrar sýningar: Akureyri – bærinn við
Pollinn & Eyjafjörður frá öndverðu.
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminja-
safns | Í húsnæði Seðlabankans að Kalk-
ofnsvegi 1 hefur verið sett upp yfirlits-
sýning á íslenskum gjaldmiðli og öðru
efni í eigu safnsins. Þar er einnig kynn-
ingarefni á margmiðlunarformi um hlut-
verk og starfsemi Seðlabanka Íslands.
Opið mán.–föst. kl. 13.30–15.30. Gengið
inn um aðaldyr bankans frá Arnarhóli.
Aðgangur er ókeypis.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl.
12–17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum
leikmyndir sem segja söguna frá land-
námi til 1550. www.sagamuseum.is
Þjóðmenningarhúsið | Á sýningunni
Handritin eru sýnd nokkur merkustu
skinnhandrit miðalda, svo sem Konungs-
bækur Eddukvæða og Snorra Eddu, Flat-
eyjarbók og valin handrit lagabóka,
kristilegra texta og Íslendingasagna, og
auk þess nokkur mikilvæg pappírshandrit
frá seinni öldum. Leiðsögn fyrir hópa og
nemendur.
Dans
Magadanshúsið | Magadanshúsið, sem
hefur haft aðsetur í Ármúla 18, flytur sig
um set um næstu mánaðamót í Skeifuna
3. Ný námskeið fyrir byrjendur og fram-
haldshópa hefjast á nýjum stað hinn 5.
mars nk. Uppl. á www.magadans.is eða í
s: 581 1800.
Skemmtanir
Hótel Borg | Tangóævintýraklúbburinn
www.tangoadventure.com stendur fyrir
milongu sunnud. 4. mars kl. 21.15–23.30.
Luca Lamberti heldur námskeið á undan.
Uppákomur
Bókasafn Kópavogs | Fimmtud. 1. mars
kl. 17.15 flytur Þórhallur Guðmundsson
erindi í Bókasafni Kópavogs um reynslu
sína og hæfileika sem miðill. Einnig fyr-
irspurnir og umræður. Þetta er liður í er-
indaröðinni Furður sem haldin er á safn-
inu þessar vikurnar. Enginn aðgangseyrir,
allir velkomnir, heitt á könnunni.
Fyrirlestrar og fundir
Askja – Náttúrufræðihús Háskóla Ís-
lands | Í kvöld kl. 19.30 lýsa Jón Geir
Pétursson skógfræðingur og Ragnhildur
Freysteinsdóttir landfræðingur skemmti-
legri hópferð Skógræktarfélags Íslands
um skóga og borgir Rússlands, sl. haust,
í máli og myndum. Þetta er liður í
fræðslusamstarfi Skógræktarfélags Ís-
lands og Kaupþings. Ókeypis og öllum
opið.
Hátíðarsalur Háskóla Íslands | Sam-
félagið, félag framhaldsnema í fé-
lagsvísindadeild HÍ stendur fyrir hádeg-
isfundi í dag, miðvikudag, kl. 12–13 í
Hátíðarsal HÍ. Fundurinn ber titilinn:
Stuðningur við fjölskyldur barna með
sérþarfir. Fundurinn er opinn öllum og
svigrúm gefst til spurninga. Nánar á
www.samfelagid.hi.is
Íþróttamiðstöð Álftaness | Ráðstefna
um verndun Skerjafjarðar föstud. 2.
mars kl. 13. Dagskrá ráðstefnunnar hefst
með ávarpi forseta Íslands og umhverf-
isráðherra. Ýmsir aðilar sem hafa sér-
fræðiþekkingu á málinu flytja erindi.
Fundarstjóri er Gunnar Einarsson bæj-
arstjóri Garðabæjar. Ráðstefnan er öllum
opin.
Krabbameinsfélagið | Stuðningshópur
kvenna sem fengið hafa krabbamein í
eggjastokka heldur rabbfund í húsi
Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í
Reykjavík, í dag miðvikudag. Fundurinn
hefst kl. 17. Kaffiveitingar. Konur sem
fengið hafa krabbamein í eggjastokka
eru hvattar til að mæta.
Lesblindusetrið | Akureyri. 1. mars kl.
20. Kolbeinn Sigurjónsson, Davis-
ráðgjafi hjá Lesblindusetrinu, heldur fyr-
irlestur um lesblindu og Davis aðferða-
fræðina. Davis viðtöl í boði 1. og 2. mars.
kolbeinn@lesblindusetrid.is, s: 566
6664.
Orkugarður | Í dag kl. 13. Þorsteinn Þor-
staðurstund
Myndlist
Ljósmyndir og
stuttmynd
Myndlist
Flæðarmálið – síðasta
sýningarvika