Morgunblaðið - 28.02.2007, Side 48
48 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
BREAKING AND ENTERING kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 16 ára
PERFUME kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
DREAMGIRLS kl. 5:30 - 8 LEYFÐ
BLOOD DIAMOND kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 6 LEYFÐ
BABEL kl. 10:40 B.i. 16 ára
BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 8 LEYFÐ
MAN OF THE YEAR kl. 10 B.i. 7 ára
ROCKY BALBOA kl. 8 B.i. 12 ára
PERFUME: THE STORY OF A MURDERER kl. 10:10 B.i. 16 ára
BREAKING AND ENTERING kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 6 LEYFÐ
ALPHA DOG kl. 8 B.i. 16 ára
HANNIBAL RISING kl. 10:10 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BREAKING AND ENTERING
JUDE LAW JULIETTE BINOCHE ROBIN WRIGHT
Með “Íslandsvininum og sjarminum Jude Law” ásamt óskarsverðlauna leikkonunni Juliette Binoche
Frá leikstjóra English Patient og Cold Mountain
FORELDRAR
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
FRÉTTABLAÐIÐ
BYGGÐ Á
METSÖLU
SKÁLDSÖGU
PATRICK
SÜSKIND
eee
VJV, TOPP5.IS
SÝND BÆÐI MEÐ ÍSL
OG ENSKU TALSÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Stærsta opnun á fjölskyldumynd í Bandaríkjunum í ár
Frá þeim sömu og færðu okkur
Chronicles Of Narnia
ÓSKARSVERÐLAUN
m.a. besta leikonan í aukahlutverki2
eeee
VJV, TOPP5.IS
eeee
S.V., MBL.
eee
S.V., MBL.
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Verkfræðilegt afrek
FYRIR skömmu var sýnd á sjón-
varpsstöðinni National Geographic
heimildarmynd um Kárahnjúka-
virkjun í þáttaröð sem fjallar um
verkfræðileg afrek hér á jörðu. Þessi
mynd var afar vönduð og sýndi vel
fram á það verkfræðilega afrek sem
Kárahnjúkavirkjun er burtséð frá
því hvort menn eru með eða á móti
virkjuninni sem slíkri.
Heimildarmyndin á National
Geographic sýnir svo ekki verður
um villst að til dæmis samræming
hinna boruðu ganga var ótrúlega ná-
kvæm og í raun einstök. Hér er ekki
ætlunin að rekja efni heimild-
armyndarinnar en aðeins minna á að
þegar sjónvarpsstöð á borð við Nat-
ional Geographic sér ástæðu til að
legga í afar mikinn kostnað og vinnu
við að fjalla um ákveðna framkvæmd
þá er þar um að ræða verkefni er
skarar fram úr á heimsvísu. Íslend-
ingshjartað sló ört í brjósti af stolti
þegar þessi mynd rann fyrir á skján-
um svona líkt og Egyptanum líður
e.t.v. þegar fjallað er um pýramíd-
ana. Verkfræðingar og verkamenn á
Kárahnjúkum geta borið höfuðið
hátt vegna þess verks sem þeir hafa
unnið og sleppum við þá að minnast
á hið pólitíska dægurþras.
Áhugamaður.
Gula og rauða spjaldið
í fótboltanum
ÉG hef stundum verið að velta því
fyrir mér hversu ósanngjarnt það er
fyrir leikmann í fótboltanum að fá
gula spjaldið kannski í upphafi leiks,
jafnvel fyrir smávægilega tæklingu
– og yfirþyrmandi leikaraskap and-
stæðingsins, þar sem allir helstu
leikarahæfileikar fá að njóta sín til
fullnustu. Þetta höfum við flestir
áhugamenn um fótbolta séð gerast
oft. Fyrir vikið er viðkomandi leik-
maður kominn á hættulista og getur
því ekki beitt sér nema svona 50%–
75% í leiknum. Að sama skapi hef ég
dáðst að reglum handboltans sem
ganga út á það að brjóti leikmaður af
sér fari hann í tveggja mínútna hvíld
(út af). Þessi regla finnst mér hreint
alveg frábær og afar sanngjörn. Ég
hef því velt því fyrir mér hvort ekki
sé hægt að taka þessa reglu upp í
fótboltanum. Að við brot sem að
venju gefa gult spjald komi tveggja
mínútna brottvísun, mætti þess
vegna vera fimm mínútna. Aftur á
móti séu brot þess eðlis að þau verð-
skuldi rautt spjald verði gefið rautt
spjald. Sum brot eru þess eðlis að
þau verðskulda það. En það að gera
leikmenn að nokkurs konar hálf-
drættingum í leik er í raun ekki bolt-
anum eða leikmönnum til fram-
dráttar. Að vísa mönnum út af í
einhvern tíma gæti t.d. gert leikina
enn skemmtilegri, með fleiri mörk-
um og beittari sóknum. Af hverju
ætti þetta ekki að vera hægt? Við
vitum svo sem að reglum í fótbolt-
anum er ekki breytt bara sí svona.
En orð eru til alls fyrst. Og ég er viss
um að þessi regla mundi verða fót-
boltanum til mikils framdráttar.
Þetta mundi líka örugglega létta á
dómurum því oft hefur maður séð þá
veigra sér við og jafnvel sleppa brot-
um ef viðkomandi leikmaður hefur
fengið gult spjald áður. Mér datt
þetta svona í hug.
Guðmundur R. Lúðvíksson,
form. Newcastle á Íslandi.
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
50ára af-mæli.
Fimmtugur er í
dag, 28. febrúar,
Sigurður P.
Sigmundsson,
forstöðumaður
rekstrarsviðs
Vinnu-
málastofnunar
og Íslands-
methafi í maraþonhlaupi. Hann er í
fríi erlendis ásamt eiginkonu sinni,
Valgerði Heimisdóttur. Hann hefði
gaman af að fá kveðju á netfangið: sig-
vala@visir.is.
40ára af-mæli.
Laufey Vil-
mundardóttir
er fertug í dag,
28. febrúar,
og er hún og
eiginmaður
hennar, Árni
Rúnar Ingason,
erlendis.
Gullbrúðkaup | Gullbrúðkaup eiga í
dag, 28. febrúar, hjónin Guðný Helga
Árnadóttir og Höskuldur Goði Karls-
son. Þau voru gefin saman 28. febrúar
1957 á útskálum í Garði af séra Guð-
mundi Guðmundssyni.
Fá fyrirtæki hafaslegið í gegn jafn
hratt á Íslandi og flat-
brauðsbakaríið Dom-
ino’s. Sennilega hafa
flestir Íslendingar
keypt sér pítsu í Dom-
ino’s, en fæstir þekkja
hins vegar sögu fyr-
irtækisins. Árið 1959
keyptu tveir bræður,
Tom og Jim Monaghan,
fyrirtækið DomiNick’s
Pizza í bænum Ypsil-
anti í Michigan og fjár-
mögnuðu kaupin með
900 dollara (60 þúsund
króna) láni. Nokkru
síðar leysti Tom Mo-
naghan hlut Jims út úr fyrirtækinu
með því að láta hann fá bílinn, sem
þeir höfðu notað til að senda píts-
urnar til viðskiptavina sinna. Monag-
han vann af kappi og er sagt að hann
hafi mælst útbúa 12 tomma pítsu með
pepperoni á 11 sekúndum. Brátt opn-
aði hann útibú og gaf þeim nafnið
Domino’s. Árið 1985 voru þrjú útibú
frá Domino’s opnuð á dag. Monaghan
græddi á tá og fingri og varð einn af
ríkustu mönnum Bandaríkjanna.
1983 keypti hann hafnaboltaliðið
Detroit Tigers. Ári síðar varð liðið
bandarískur meistari.
Monaghan hafði hins vegar aðra
köllun. Hann er guðhræddur kat-
ólikki og trúin á hug hans allan. Sama
ár og hann keypti
hafnaboltaliðið kom
hann á fót stofnun til að
styrkja katólsku kirkj-
una. Brátt var hann
kominn út í baráttuna
gegn fóstureyðingum
og farinn að leggja kat-
ólsku kirkjunni lið í
Mið-Ameríku.
Árið 1998 seldi Mo-
naghan fyrirtækið, sem
hann byggði upp, fyrir
einn milljarð dollara (66
milljarða króna).
Skömmu síðar tilkynnti
hann að hann hygðist
helga kirkjunni líf sitt
og auðæfi þegar séð
væri fyrir fjölskyldunni.
Hans helsta hugðarefni er að
stofna katólskan háskóla sem á að
sameina tvennt: skara fram úr í fræð-
unum og vera að sönnu katólskur.
Einn þekktasti katólski háskólinn í
Bandaríkjunum er Notre Dame, en
Monaghan þykir hann hafa slakað á
trúarlegum kröfum þótt hann stand-
ist akademískar kröfur. Hann fellst á
að í Bandaríkjunum væri urmull há-
skóla sem uppfylltu trúarleg skilyrði,
en þar skorti fræðilegan metnað.
Svar Monaghans er Ave Maria-
háskóli, sem á að rísa í Flórída og
peningar eru ekki fyrirstaða. „Ég vil
deyja auralaus,“ segir Tom Monag-
han.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er miðvikudagur
28. febrúar, 59. dagur
ársins 2007
Orð dagsins: Og eins og vér höfum borið mynd
hins jarðneska munum vér einnig bera mynd
hins himneska. (I. Kor. 4, 16.)
LeikkonunniAngelinu
Jolie hefur verið
boðið sæti í einu
virðulegasta sér-
fræðingaráði
Washington-ríkis.
Greint er frá því í
Financial Times
að þetta sé ráð ut-
anríkissamskipta sem í situr m.a.
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna Henry Kissinger.
Ráðið ákvað að bjóða Jolie sæti í
fimm ár til að ala upp nýja kynslóð í
utanríkismálum.
Jolie er ekki ókunn utanrík-
ismálum en hún hefur ferðast til tutt-
ugu landa sem sendiherra Samein-
uðu þjóðanna. Seta hennar í ráðinu
mun marka annað skref hjá leikkon-
unni inn í hinn pólitíska heim en um
þessar mundir virðist hún laðast
meira að honum en kvikmyndaheim-
inum.
Íslenska hljómsveitin Sigur Róskom fram á árlegri Tibet House-
góðgerðarsamkomu í New York á
mánudaginn. Önnur stór nöfn sem
komu fram á samkomunni voru
Deborah Harry og Ray Davies, Phil-
ip Glass, Lou Reed, Patti Smith,
REM-meðlimurinn Michael Stripe
og Ben Harper.
Ágóði tónleikanna í Carnegie Hall
dugar fyrir árlegum kostnaði sam-
takanna, Tibet House, sem voru
stofnuð 1987 til að varðveita tíbetska
menningu.
Robert Thurman, formaður Tibet
House og prófessor við Columbia-
háskólann, sagði að listamennirnir
yrðu að hafa einhverja tengingu til
Tíbet. „Sumir hafa pólitískari ástæðu
fyrir að vilja hjálpa Tíbet, kannski
með mannréttindi í huga en aðrir
hafa andlega tengingu við Tíbet,“
sagði Thurman sem hefur þekkt
Dalai Lama í fjörutíu ár.
„Listamennirnir sem koma fram
eru allir mjög uppteknir og þeir
koma fram á þessari samkomu
ókeypis. Þeir gera þetta með hags-
muni Tíbet í huga.“
Dóttir Önnu Nicole Smith, Dan-nielynn, verður enn um sinn í
umsjá Howards K. Sterns, fyrrver-
andi sambýlismanns Önnu, en dóm-
ari á Bahamaeyjum frestaði í gær úr-
skurði í barnsfaðernismálinu þar til í
næsta mánuði.
Bæði móðir Önnu og ljósmynd-
arinn Larry Birkhead gerðu tilkall
til umsjár með Dannielynn fyrir rétt-
inum í gær.
Á fæðingarvottorði stúlkunnar er
Stern sagður faðir hennar, en auk
hans hafa þrír menn lýst því yfir að
þeir séu faðirinn, og einnig hefur
fyrrverandi eiginmaður Önnu, sem
er látinn, verið sagður faðirinn þar
sem hún hafi notað fryst sæði úr hon-
um.
Hin sjarmerandi Katie Holmesneitaði að „pósa“ fyrir ljós-
myndara án eiginmanns síns, Toms
Fólk folk@mbl.is