Morgunblaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 59. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Framtíðin er í okkar höndum
Samtök upplýsinga-
tæknifyrirtækja
Samstarfsaðilar um:
ÚTVISTUN - allra hagur
Ráðstefna í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal fimmtudaginn 1. mars frá 13:00 til 15:00:
Árni M. Mathiesen Þórólfur Árnason Júlíus S. Ólafsson
Í samvinnu við Ríkiskaup og ráðuneyti fjármála, iðnaðar
og viðskipta er efnt til ráðstefnu um ávinning að útvistun
verkefna og þróun opinberra innkaupa. Ráðstefnan fer fram
fimmtudaginn 1. mars frá 13:00 til 15:00 í Íþrótta- og sýningar-
höllinni í Laugardal. Hún er opin og aðgangur ókeypis en tekið
er við skráningum á www.si.is.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Hæg breytileg
eða norðlæg átt.
Smáél við norður-
ströndina en ann-
ars léttskýjað. 2 stiga hiti
niður í 5 stiga frost. » 8
Heitast Kaldast
2°C -5°C
„ÞETTA er alveg fáránlegt,“ sagði Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri
hjá lögreglunni í Reykjavík, spurður út í frágang á farmi þessa bíls sem ók
eftir Vesturlandsvegi í gær. Myndina tók vegfarandi sem ofbauð frágang-
urinn. „Þetta er gróft brot á umferðarlögum,“ sagði Guðbrandur. Trén
væru ekki bundin og hæð þeirra langt fyrir ofan heimila hámarkshæð.
„Þetta er fáránlegt“
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
FRAMUNDAN er gósentíð hjá
stjörnuáhugafólki. Sjálft tunglið er
að verða fullt og í kvöld ætti „karl-
inn í tunglinu“ að sjást ef vel er að
gáð. Á fullu tungli á laugardags-
kvöldið verður almyrkvi á tungli
þegar jörðin varpar skugga sínum á
það.
Tunglið er að vaxa og við skilyrði
eins og verða í kvöld eiga dökku díl-
arnir á tunglinu, svonefnd höf, sem
mynda andlitsdrætti „karlsins“, að
sjást vel ef veður verður hagstætt.
Stjörnufræðivefurinn, sem þrír ung-
ir menn halda úti á slóðinni stjornu-
skodun.is, ætlar að auðvelda áhuga-
sömu fólki að sjá þessi fyrirbæri í
svokölluðu stjörnuteiti í Minjasafni
Orkuveitu Reykjavíkur í kvöld.
Sverrir Guðmundsson segir að einn-
ig eigi að vera hægt að sjá hringi
Satúrnusar í litlum stjörnusjónauka
en þeir félagarnir verða með nokkra
slíka í Elliðaárdalnum. Stóri atburð-
urinn verður síðan á laugardags-
kvöldið þegar jörðin er stödd milli
sólar og tungls og almyrkvi á tungli
verður. Slíkt gerist aðeins þegar
tunglið er fullt. Almyrkvinn er sá
eini sem sést frá Íslandi á þessu ári
en slíkt fyrirbæri sást síðast 28.
október 2004.
Ef hagstætt veður verður á laug-
ardagskvöldið geta menn búist við
að rekast á áhugamenn með stjörnu-
sjónauka eða myndavélar víða fyrir
utan borgarljósin og sjónarspilinu
lýkur ekki endanlega fyrr en nokkuð
er liðið á nóttina. Klukkan hálftíu
um kvöldið á að byrja að sjást rönd á
tunglinu en þá hefst deildarmyrkvi
og almyrkvi, sem hefst klukkan
22.44, stendur í 73 mínútur.
Tunglið hverfur ekki alveg í al-
myrkvanum.
Undir lok mánaðarins ættu menn
enn að huga að tunglinu. Þá verður
Satúrnusarmyrkvi er tunglið geng-
ur fyrir reikistjörnuna.
Vonast til að sjá karlinn í tunglinu
6 5
# !""
!" #
$% %
&
#$ !""
%
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
Almyrkvi Fallegur litur kemur á
tunglið þegar almyrkvi gengur yfir.
Í HNOTSKURN
»Tunglmyrkvi verður laug-ardaginn 3. mars.
»Deildarmyrkvi hefst kl.21.30.
»Almyrkvi hefst klukkan22.44.
»Miður myrkvi verður kl.23.21.
»Almyrkva lýkur kl. 23.57.»Deildarmyrkva lýkur kl.01.12.
GUNNAR Halldórsson, eigandi Pela-
stikks ehf., hefur höfðað skaðabóta-
mál á hendur íslenska ríkinu vegna
tjóns sem hann telur sig hafa beðið af
afgreiðslu umhverfisráðuneytisins á
útflutningsleyfi fyrir hrefnukjöti. Fer
Gunnar fram á skaðabætur er nema
26 milljónum króna og má rekja til
tapaðs hagnaðar af sölu sel- og hval-
kjöts og tapaðrar viðskiptavildar og
viðskiptasambanda.
Sel- og hvalkjöt til Kína
Forsaga málsins er sú að árið 2003
hóf fyrirtæki Gunnars útflutning á sel-
kjöti til Kína eftir að hafa fengið til-
skilin leyfi hjá kínverskum yfirvöldum
og vilyrði frá þeim íslensku. Kínverj-
arnir sem Gunnar átti í viðskiptum við
heyrðu af því að Íslendingar hefðu haf-
ið veiðar á hrefnu að nýju og inntu
Gunnar eftir því hvort hann gæti flutt
hrefnukjöt til landsins.
Hann sótti um leyfi til útflutnings á
hrefnukjöti hjá umhverfisráðuneyt-
inu og fékk leyfið eftir nokkurt hark í
febrúar 2004. Í kjölfarið keypti fyr-
irtæki hans 24 tonn af hrefnukjöti. Í
apríl sama ár afturkallaði umhverfis-
ráðuneytið útflutningsleyfið og synj-
aði fyrirtæki Gunnars um útgáfu ann-
ars útflutningsleyfis. Viðskiptamenn
hans í Kína spurðu hvaða lagalegu
forsendur lægju að baki afturköllun-
inni, en því segist Gunnar ekki hafa
getað svarað. Að svo búnu lýstu Kín-
verjarnir því yfir að þeir vildu ekki
standa í viðskiptum sem reist væru á
svo vafasömum og ótraustum papp-
írum og sögðu upp áðurgerðum
samningum við fyrirtæki Gunnars um
kaup á sel- og hvalkjöti.
Hann leitaði næst til umhverfis-
ráðuneytisins og krafðist þess að
rúmlega tveggja ára starf hans við út-
flutninginn yrði bætt. Engin svör
fengust hjá ráðuneytinu og leitaði
Gunnar að lokum til umboðsmanns
Alþingis sem komst að þeirri niður-
stöðu að ráðuneytið hefði við af-
greiðslu á erindum Gunnars brotið
ýmsar reglur stjórnsýsluréttarins,
m.a. hvað varðar leiðbeiningaskyldu,
andmælarétt og málshraða.
Krefur ríkið
um 26 milljónir
NÚ Í VIKUNNI losuðu innlán á Ice-
save, innlánsreikningi Landsbank-
ans í Bretlandi, tvo milljarða punda
eða jafngildi um 260 milljarða ís-
lenskra króna. Icesave-innlánsreikn-
ingurinn er aðeins tæpra fimm mán-
aða en um áramótin var komið inn á
hann jafngildi um 110 milljarða ís-
lenskra króna. Greinilegt er að
pundin hafa haldið áfram að streyma
inn á reikninginn sem býður upp á
einna bestu vaxtakjör á óbundnum
innlánsreikningi í Bretlandi.
Sigurjón Árnason, bankastjóri
Landsbankans, segir viðskiptavini
bankans í gegnum Icesave nú losa
um 60 þúsund og allt stefni í að við-
skiptavinir bankans í Bretlandi verði
orðnir fleiri en viðskiptavinir hans á
Íslandi áður en árið er úti.
Breskur reikningur Lands-
banka með 260 milljarða
NÝSKÖPUNARVERÐLAUN for-
seta Íslands verða veitt á Bessa-
stöðum í dag. Eitt þeirra er verk-
efnið „Geo-Breeze“ en tveir
verkfræðinemar við Háskóla Ís-
lands hönnuðu og bjuggu til hand-
þurrku sem gengur að hluta fyrir
heitu vatni í stað rafmagns.
Önnur verkefni sem voru til-
nefnd eru gervigreindarlíkan,
rannsókn á áhrifum aldurs á ut-
angenamengi mannsins, búnaður til
að draga víra og leiðslur í gegnum
lagnir og tæki til þráðlausrar mæl-
ingar stökkkrafts. | 12–13
Hendur
þurrkaðar
með vatni
MIKIL eftirspurn er eftir miðum á
uppfærslu Þjóðleikhússins á Pétri
Gaut sem verður frumsýnd í
Barbican-menningarmiðstöðinni í
Lundúnum í kvöld. Verkið verður
sýnt tíu sinnum á ellefu dögum og
er uppselt á allar sýningar. Baltas-
ar Kormákur, leikstjóri verksins,
segir í viðtali við Morgunblaðið í
dag að góð umfjöllun breskra fjöl-
miðla um Pétur Gaut gæti m.a. átt
þátt í þessum mikla áhuga. | 18
Mikil aðsókn
að Pétri Gaut
„ÞETTA er svo sjálfsagt mál. Þetta
er mannréttindamál,“ sagði Sig-
urlín Margrét Sigurðardóttir, óháð-
ur þingmaður, um frumvarp þess
efnis að táknmál verði viðurkennt
sem fyrsta mál heyrnarlausra,
heyrnarskertra og daufblindra.
Sigurlín, sem situr á þingi í fjar-
veru Gunnars Örlygssonar, talaði
fyrir frumvarpinu í þriðja sinn á Al-
þingi í gær. | 10
Sjálfsagt mann-
réttindamál
SPARISJÓÐUR Svarfdæla hyggst
byggja og gefa íbúum Dalvík-
urbyggðar 700 fermetra menning-
arhús. „Þetta er afar jákvætt.
Fréttin kom kannski mörgum á
óvart en þeir sem hafa náð að melta
hana eru alveg í skýjunum. Húsið
er líka fallegt og styrkir ímynd
miðbæjarins,“ sagði Júlíus Júl-
íusson, menningarfrömuður á Dal-
vík, þegar leitað var álits hans á
áformum Sparisjóðsins. | 26
Mynd/Fanney Hauksdóttir
Dalvíkingar
í skýjunum