Morgunblaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HRÓÐNÝ Valdimarsdóttir á Húsavík, dóttir Valdimars Hólm Hallstað sem er höfundur textans Við gengum tvö, segir að faðir sinn hafi samið textann við lag Friðriks Jónssonar að ósk Friðriks. Hún hafi sjálf fylgst með þeg- ar textinn var saminn og muni mjög vel eftir því þegar þeir tveir sátu heima hjá pabba hennar á meðan Valdimar samdi textann við lagið. Í Morgunblaðinu var á dögunum haft eftir Sigrúnu Björnsdóttur, ekkju Ragnars Björnssonar fyrrverandi dómorganista og skólastjóra Nýja tónlistarskólans, að hún væri þess fullviss að hann hefði samið lagið. Hróðný segir það ekki fá staðist. „Ég gleymi þessu aldrei, og hef reyndar oft sagt að ég myndi rifja þetta upp þegar ég kæmi á elliheimilið,“ segir Hróðný í samtali við Morgunblaðið. Hróðný er 68 ára, fædd um mitt ár 1938. Hún segir föð- ur sinn hafa samið textann einhvern tíma á árunum 1945, 46 eða 47 – þegar hún var sjö, átta eða níu ára. Hróðný segir Friðrik oft hafa komið í heimsókn, stundum með harmonikuna meðferðis og sú var einmitt raunin þegar textinn Við gengum tvö var saminn. „Pabbi las ekki nótur og það er ógleymanlegt þegar Fikki trallaði lagið fyrir hann og spilaði það á nikkuna þegar pabbi var að semja textann. Það var ekki daglegt brauð að einhver kæmi með nikku heim til okkar og ég man þetta því það var svo gaman þegar Frikki kom; al- veg stórkostlegt. Pabbi lét heldur aldrei frá sér texta nema honum þætti hann alveg fullkominn og félli algjörlega að laginu.“ Þetta lag Friðriks er í óvenjulegum takti og Hróðný segir föður sinn hafa gefið sér góðan tíma í að semja text- ann. Þeir hafi sennilega hist tvisvar eða þrisvar áður en textinn var fullbúinn frá höfundarins hendi. Valdimar samdi a.m.k. einn texta að auki við lag Friðriks, að sögn Hróðnýjar, lagið Gömul spor, og hún segir að hugs- anlega eigi þeir fleiri slík sam- an. „En það er að minnsta kosti alveg á hreinu að pabbi samdi textann við þetta margumtalaða lag Friðriks; það fer ekkert á milli mála,“ sagði Hróðný við Morgunblaðið. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Ógleymanlegt Hróðný Valdimarsdóttir segist hafa fylgst sjálf með því þegar faðir hennar samdi textann Við gengum tvö, að ósk Friðriks Jónssonar, lagasmiðsins sjálfs. ÁRLEG þingmannaveisla var haldin á Hótel Sögu á föstudagskvöld þar sem iðkaður var sá siður að tala ein- ungis í bundnu máli við gesti og var gerður góður róm- ur að mörgum kviðlingnum sem látinn var fjúka. Um er að ræða árshátíð þingmanna þar sem forseti Íslands og frú eru heiðursgestir. Tónlist var flutt og síðan stiginn dans. Meðal þeirra sem mættu til gildis voru samfylking- arþingkonurnar Jóhanna Sigurðardóttir og Katrín Júlíusdóttir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þingmannaveisla haldin á Hótel Sögu ARNA Schram, formaður Blaða- mannafélags Íslands, gagnrýnir málatilbúnað Þorgerðar K. Gunn- arsdóttur menntamálaráðherra vegna skipunar í sérfræðinganefnd NJC, Norræna blaðamannahá- skólans, um að það gæti leitt til hagsmunaáreksturs ef nefndar- fulltrúi væri starfsmaður fjölmiðla- deildar háskóla, nú þegar einn nefndarmanna, Ólafur Þ. Stephen- sen, er einn þriggja stjórnarmanna í Meistaranámsdeild í blaða- og fréttamennsku við HÍ. Er haft eftir Örnu á vef BÍ að ráðherra hljóti að krefjast þess að Ólafur segi sig úr stjórn námsins í fjölmiðlafræði við HÍ vilji ráðherra vera samkvæmur sjálfum sér. Blaðamannafélagið lagði til að Birgir Guðmundsson lektor við Háskólann á Akureyri og Svan- borg Sigmarsdóttir blaðamaður yrðu aðal- og varafulltrúar í NJC en því hafnaði ráðherra. Ekki náðist í menntamálaráð- herra vegna málsins í gær. BÍ gagn- rýnir ráð- herrann Staða Ólafs Þ. vekur tortryggni FRANSKI skurðlæknirinn og pró- fessorinn Jean-Michel Dubernard kom í gær til Íslands en heimsókn hans tengist franska menningar- vorinu á Íslandi, „Pourquoi pas?“ Dubernard starfar á Amiens-háskóla- sjúkrahúsinu og hefur verið frum- kvöðull í líffæraígræðslum, varð t.d. fyrstur manna til að græða hönd á mann. Hann varð einnig fyrsti skurð- læknirinn til þess að græða báðar hendur á handalausan mann árið 2000. Vakti heimsathygli árið 2005 En Dubernard vakti heimsathygli árið 2005 þegar hann fyrstur manna framkvæmdi andlitságræðslu á 38 ára gamla konu í kjölfar alvarlegs áverka sem hún hlaut er hundur beit hana illa. Missti hún nefið, varirnar og hök- una. Nýja andlitið fékkst af konu sem var heiladauð. Andlitsþeginn, Isabelle Dinoire, ræddi reynslu sína í nóvem- ber í fyrra og sagðist þá vera komin með tilfinningu í andlitið. Hún getur nú borðað og drukkið, einnig brosað og segist vera svo lík sjálfri sér eftir aðgerðina að hún geti nú vel horft í spegil. Ör lýta hana ennþá en ekki verr en svo að hún getur auðveldlega hulið þau með farða. Í frétt BBC var sagt að tekist hefði með lyfjagjöf að koma í veg fyrir erfiðleika sem oft koma upp við ígræðslur er líkaminn hafnar líffærum. En jafnframt segir í fréttinni að lyfjagjöfin sé talin auka líkur á krabbameini. Prófessor Dubernard hefur mikla reynslu af hefðbundnum líffæra- ígræðslum og hefur hlotið margvís- legar alþjóðlegar viðurkenningar. Flytur fyrirlestur Hann mun á morgun, mánudag 5. mars, flytja fyrirlestur á ensku í há- tíðarsal Háskóla Íslands og hefst hann kl 15:30. Fyrirlesturinn ber heit- ið „Transplantation: from myth to reality“ (Líffæraflutningar, goðsögn verður að veruleika). Við sama tæki- færi mun Runólfur Pálsson, yfirlækn- ir á nýrnalækningadeild LSH, fjalla um líffæraflutninga á Íslandi. Læknirinn Jean-Michel Dubernard, sem græddi nýtt andlit á konu, á Íslandi Bjargvættur Dinoire flytur fyrirlestur um líffæraflutninga Nýtt andlit Isabelle Dinoire HÉRAÐSDÓMUR Norður- lands eystra hefur dæmt karlmann í þriggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás gegn þáverandi sambýlis- konu sinni í Reykjahverfi og jafnframt dæmt hann til að greiða henni 133 þúsund kr. í bætur. Var bótakrafa henn- ar tekin til greina að fullu. Maðurinn viðurkenndi að hafa snúið upp á handlegg konunnar svo hún tognaði, auk þess sem hann sparkaði í hana. Þá framdi hann hús- brot með því að ryðjast tví- vegis inn í íbúð fyrrverandi eiginkonu sinnar á Húsavík þar sem hann neitaði að fara þótt konan skoraði á hann að gera það. Í seinna skiptið dvaldi hann þar þangað til lögreglan kom á staðinn og fjarlægði hann. Varðar slík háttsemi við hegningarlög þar sem hámarksrefsing er eins árs fangelsi. Játning mannsins þótti í samræmi við gögn málsins og voru brotin talin nægj- anlega sönnuð að mati dóms- ins. Ekki þótti hægt að skil- orðsbinda refsingu mannsins en fram kemur í dómi að hann hafi verið dæmdur til sex mánaða fangelsisrefs- ingar fyrir hegningar- og vopnalagabrot árið 1991. Ennfremur hefur hann verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot. Málið var dæmt 28. febr- úar sl. af Frey Ófeigssyni dómstjóra. Verjandi ákærða var Örlygur Hnefill Jónsson hrl. og sækjandi Svavar Pálsson, fulltrúi lögreglu- stjórans á Húsavík. „Ógleymanlegt þegar Fikki trallaði lagið fyrir hann“ Dóttir Valdimars Hólm Hallstað man eftir því þegar faðir hennar samdi textann Við gengum tvö að beiðni Friðriks Jónssonar Dæmdur fyrir árás og húsbrot
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.