Morgunblaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 64
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 4. MARS 63. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. Samtök sprota- fyrirtækja Samtök íslenskra líftæknifyrirtækja Samtök upplýsinga- tæknifyrirtækja Ráðstefna 9. mars um samskipti fjárfesta og frumkvöðla: Sjá nánari upplýsingar, dagskrá og skráningu á www.si.is Framtíðin er í okkar höndum Iðnþing Samtaka iðnaðarins fer fram föstudaginn 16. mars á Grand Hótel Reykjavík Sjá dagskrá á www.si.is Er uppskeran eins og til var sáð? 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: auglysingar@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Hæg suðlæg átt víðast en A 5–10 m/s syðst. Bjart- viðri N- og A-lands en smáskúrir SV til. Vax- andi A-átt síðdegis. » 8 Heitast Kaldast 5°C -2°C Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is UMFERÐARLJÓS á 40 gatnamótum í Reykjavík verða tengd sameiginlegri stjórntölvu í næsta mán- uði og stefnt er að því að árið 2010 verði sameiginleg stýring á öllum umferðarljósum í borginni. Þá verð- ur hægt að stýra umferðarljósunum eftir umferðar- þunganum hverju sinni, en það skilar sér í styttri aksturstíma og biðtíma á ljósum. Talið er að það leiði af sér árlegan sparnað fyrir ökumenn, á bilinu 125 milljónir kr. til 933 milljónir kr. Unnið hefur verið að verkefninu frá árinu 2002 á vegum Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar, en rannsókn sem þá var gerð leiddi í ljós að ná mætti fram umtalsverðum sparnaði í ferðatíma í borginni væri stýring umferðarljósanna sveigjanlegri en hún er nú. Allar breytingar á núver- andi kerfi eru mjög óþjálar og tímafrekar, auk þess sem kerfið lætur ekki vita sjálfkrafa af bil- unum umferðarljósa, eins og nýja kerfið mun gera. Þannig verður hægt að bregðast strax við bilunum og minnka líkur á slysum af þeim sökum. Umferðarljós á 116 gatnamótum Fjallað er um verkefnið á framkvæmdavef Reykjavíkurborgar, en þar kemur fram að nú í árs- byrjun var 116 gatnamótum stýrt með umferðar- ljósum. Þau eru öll tímastillt og stór hluti þeirra er samtengdur í „grænum bylgjum“ til þess að auð- velda umferðarflæði. Í nýja kerfinu er gengið út frá sömu skiptingu í bylgjur en í stað fastákveðinnar tímastillingar tekur við miðlæg stýring sem tekur tillit til umferðar og velur þau stýriforrit sem ná bestum árangri fyrir umferðina á svæðinu í heild. Kerfið safnar jafnframt umfangsmiklum upplýsing- um um umferðina, eins og hún er á hverjum tíma, með umferðarskynjurum sem eru við gatnamótin og fara samskiptin fram um ljósleiðara. Miðlæg stýring umferðarljósanna gerir kleift að hafa still- ingu þeirra eins og best verður á kosið í hverju til- felli með tilliti til umferðar, en það skilar sér í um- talsverðri styttingu aksturstíma og auk fjár- hagslegs ávinnings dregur það úr mengun vegna útblásturs bifreiða, auk þess sem kerfið býður upp á þann möguleika að veita strætisvögnum forgang á umferðarljósum. Sameiginleg stýring á öllum umferðarljósum 2010 Sveigjanleg stýring gefur möguleika á að stýra ljósunum eftir umferðinni TÆPLEGA fimmtugur karlmaður fannst liggjandi í blóði sínu undir berum himni við Bæjarlind í Kópa- vogi í gærmorgun og var lögregla kölluð til. Manninum var komið und- ir læknishendur á slysadeild Land- spítalans í Fossvogi. Var hann þá meðvitundarlítill og hafði misst mik- ið blóð að sögn lögreglu. Hafði hann hlotið áverka á höfði og víðar á lík- amanum. Lögreglan telur að maður- inn hafi verið búinn að liggja í nokk- urn tíma áður en hann fannst. Vegfarandi kom auga á hann og hringdi í lögregluna. Rannsóknarlögreglumenn voru sendir á vettvang og leikur grunur á að líkamsárás hafi átt sér stað, þótt ekki sé vitað hver eða hverjir hafi komið þar við sögu. Staðurinn þar sem maðurinn fannst var girtur af til að verja möguleg sönnunargögn og heldur rannsókn málsins áfram hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Morgunblaðið/Júlíus Árás rannsökuð Lögreglan girti af svæðið og skoðaði aðstæður þar sem maðurinn fannst í Bæjarlind í gærmorgun. Fannst liggjandi í blóði sínu Leit Lögreglan rannsakaði sönnunargögn á vettvangi. Hlaut nafn- ið BYR – sparisjóður NÝR sparisjóður sem orðinn er til við samruna Sparisjóðs Hafnar- fjarðar og Sparisjóðs vélstjóra hef- ur hlotið nafnið BYR – sparisjóður. Mun hið nýja fyrirtæki starfa undir þessu nafni frá og með þessari helgi. Spurðir hvort sameiningin muni skila sér í lægri viðskiptakostnaði og jafnvel lægri vöxtum segjast sparisjóðsstjórarnir Magnús Ægir Magnússon og Ragnar Z. Guðjóns- son bjartsýnir á það. „Þegar tímar líða mun þetta örugglega þýða að við getum boðið betra verð, fræðin segja að fjármögnunarkostnaður okkar ætti að lækka eftir því sem við verðum stærri, sérstaklega er- lendi fjármagnskostnaðurinn en hluti af okkar starfsemi er fjár- magnaður í útlöndum. Þar erum við á sömu hringekjunni og viðskipta- bankarnir,“ segir Magnús. | 30 MIKIL umræða hefur undanfarið átt sér stað um stærð fyrirsætna eða öllu heldur um litla stærð þeirra. Fyrirsæturnar eru hávaxn- ar en þær eru afar grannar. Nýtt viðmið hjá mörgum fyrirsætum og leikkonum er „size zero“ eða stærð núll. Raddir um viðmiðunarreglur sem þessar hafa orðið háværari eftir að tvær suður-amerískar fyrirsætur létust úr anorexíu á síðasta ári. Reglurnar gera að verkum að fyrirsætunum finnst þær að mörgu leyti vera enn meiri söluvara en áð- ur, að þurfa að sæta vigtun og mæl- ingum eins og hver önnur kjöt- stykki. | 16 Eins og hvert annað kjötstykki AP Kröfur Fyrirsæta í stærra lagi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.