Morgunblaðið - 04.03.2007, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 04.03.2007, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 35 spara mætti ógrynni fjár með ærlegri tiltekt þar. Trúlega eigum við met í sendiherrafjölda miðað við fólksfjölda. Á örstuttu tímabili fyrrverandi for- sætisráðherra sem utanríkisráðherra gerði hann á annan tug afdankaðra gæðinga að sendiherrum. Af þeim voru flestir nálægt eftirlaunaaldri. Hér gildir að þeir embættis- og stjórn- málamenn sem losna þarf við eða „gera vel við“ (t.d. vegna fjárstuðn- ings) fá sendiherrastarf. Ekki blása ráðamenn úr nös yfir uppsögnum venjulegs fólks sem hvergi fær vinnu, sé því sagt upp, t.d. eftir fimmtugt. Ef það fólk neyðist til að þiggja atvinnu- leysisbætur er mikið rætt um „leti“ þess. Aðrar vestrænar þjóðir spara og sameina sendiráð sín í skrifstofu sem sinnir sendiráðsstörfum flestra sendi- ráða þeirra fljótt og vel vegna tækni- væðingar nútímans. Auk þess eru símafundir milli landa jafnauðveldir og að senda SMS. Við byggjum óþarfa sendiráð út og suður, kaupum lóðir á dýrustu stöðum í Berlín og Tokyo undir hálfmannlaus lúxussendiráð. Auðvitað er ráðið fólk á fínum launum og eytt ógrynni fjár í móttökur og „protocol“. Skattgreið- endur borga. Í virku lýðræði þykir rétt, eðlilegt og sjálfsagt að skipta um stjórnir með vissu millibili. Stjórnir sem sitja of lengi verða ekki „stjórnir fólksins“, frekar líkari einræðisstjórnum. Þær fara að telja almenning lítilfjörlega þjóna sína og sér óæðri. Svo mjög eru stjórnarflokkarnir firrtir af langri setu að staðreyndum um síaukinn ójöfnuð er harðneitað. Öll réttmæt gagnrýni er tekin sem „aðför og óvild“ í garð stjórnvalda. Það er sárt að sjá flokk sinn sem eitt sinn var flokkur jafnra lífskjara, mannúðar, (sbr. Sjúkrasamlagið okk- ar), flokkur sem setti í forgang gott heilbrigðiskerfi allra einstaklinga alla ævi, vera nú flokk sem við eigum ekki lengur samleið með. Þingflokkar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er harðlínufólk hreinnar markaðshyggju sem þekkir ekki til lífsbaráttu eldra fólks, öryrkja, ann- arra á hungurmörkum og leiðir ekki hugann að því. Sjálfstæðisflokkurinn er kominn gersamlega úr takti við gamla, góða Sjálfstæðisflokkinn okkar. Hræðsluáróður stjórnarflokkanna um að „þeir séu besti kosturinn“ því að hinir flokkarnir komi sér ekki saman um neitt er liðin tíð. Ójöfnuðurinn er nú þegar meira en óþolandi. Ætli „góðærisstjórninni“ í velsæld sinni brygði ekki við ef meiri hluti píndrar íslenskrar þjóðar byndist samtökum og kæmi stjórnvöldum frá ásamt „gæðingum þeim sem nú lifa flott á ólöglega fengnum eignum henn- ar? Spilltu íslensku stjórnkerfi þarf að skipta út og manna nýju fólki – stjórn- in verður að víkja og stjórnarandstöðutröllin líka. Fólk á öllum aldri – sýnum einhug og hittumst á fundi Baráttuhóps eldri borgara og öryrkja á Grand Hótel 4. mars kl.14. Við þurfum nýtt blóð í stjórn. Höfundur er formaður baráttu- samtaka eldri borgara og öryrkja. SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali. SUMARHÚS - HELLUSKÓGI Heilsárshús ca. 110 m2 á einni hæð við Helluskóg í landi Jarðlandsstaða í Borgarbyggð. Húsið stendur á 7000 fm eignarlandi. Steyptir sökklar og bot- nplata með hitalögnum. Burðarvirki hússins er timbur. Bjartir og stórir gluggar. Verðið miðast við að húsið sé fullfrágengið að utan með veröndum og fokhelt innan.Möguleiki er að fá húsið afhent á öðru byggingarstigi. SUMARHÚS - ÁSATÚN - FLÚÐIR Mjög vandað og nýtt 66 fm sumar-/heilsárshús í landi Ásatúns á frábærum útsýnisstað. Stendur á 5.000 fm lóð með mjög rúmt í kring. Fullbúið og vand- að hús með heitu og köldu vatni. Tvö herbergi ásamt svefnlofti. Verönd með einstöku útsýni til Langjökuls, Skálholts og víðar. V. 20,5 m. 6631 SUMARHÚS - HRUNAMANNAHREPPI EITT MEÐ ÖLLU! Glæsilegt, nýtt hús 72,4 fm með ca 200 fm verönd með hei- tum potti. Stórkostlegt útsýni til jökla og fjalla. Ljósar eikarinnréttingar og ljóst eikarparket. 3 herbergi og mjög vönduð tæki, allt í stíl. Uppþvottavél, ísskápur o.fl. Húsið stendur á 5.160 fm lóð. Rennandi heitt og kalt vatn. Heilsárshús. V. 22,5 m.6630 HÆÐARENDI GRÍMSNESI Um er að ræða rúmlega 80 fm heilsárshús sem stendur á eignalóð með glæsi- legu útsýni til suðurs.. Húsið er tilbúið til innréttinga. Stór verönd í kringum hús. Heitt, kalt vatn og rafmagn komið í hús. Hlutur í hitaveitu Selhóls fylgir bústað.Tilboð óskast. INDRIÐASTAÐIR - SKORRADAL Erum með í sölu þetta vandaða 45 fm heilsárshús ásamt rislofti og nýju gesta- húsi. Húsið stendur á 3.100 fm kjarrivöxnu eignarlandi með fallegu útsýni yfir Skorradalsvatn og víðar. Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni. Húsið er tengt við hitaveitu og er kynding með lokuðu frostfríu hringrásarkerfi. Mikil verönd umhverfis húsið og góð bílastæði. Hlutur í hitaveitunni fylgir með í kaupunum. V. 14,9 m. 6380 GLÆSIHÚS FYRIR OFAN SOGIÐ Glæsilegt heilsárshús í landi Ásgarðs. Stærð húss er 125 fm auk 25 fm. aukahús. Hús stendur á ca.7900 fm eignarlóð í 5 húsa botnlanga þannig að bílaumferð er í algjöru lágmarki. Einstök staðsettning með glæsilegu útsýni. Húsið skilast fullfrágengið að utan og tilbúið til innréttingar. SUMARHÚS - SVÍNHAGA, HEKLUBYGGÐ Um er að ræða 80 fm sumarhús auk 16 fm gestahús í Heklubyggð. Heildarfermetrar 96,7 fm, 130 fm verönd. Afhendist tilbúið til innréttinga, ásamt frágengnu rafmagni. V. 17,5 m. 6583 HEILSÁRSHÚS Í FRÍSTUNDABYGGÐ www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00 Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Nýkomið í sölu mikið endurnýjað endaraðhús á einni hæð innst í lok- aðri götu á frábærum stað miðsvæðis á Akranesi. Húsið er samt.165 fm m. viðbyggðum 29 fm bílsk., sem tengir húsið við næsta hús. Húsið er nánast allt endurnýjað á vandaðan hátt m.a. nýl. eldhús, parket, skápar, hurðir, endurn. bað, glæsil. suðvesturverönd m. vönduðum heitum potti og fl. Í göngufjarlægð er sundlaug, allir skólar, íþróttir, verslanir og þjónusta. Sjón er sögu ríkari. Verð 31,9 millj. Uppl. gefur Þórarinn Friðgeirsson sölumaður 899 1882 Sími 588 4477 Akranes - Glæsilegt endaraðhús á einni hæð á frábærum stað Nýkomin í einkasölu skemmtileg 112 fm efri sérh. á mjög góðum stað í Kleppsholti. 3-4 svefnherb., tvennar svalir, gott útsýni. Íbúðin er nokkuð upprunaleg að innan en mjög vel með farin. Innaf forstofu er gestasnyrting og sérherbergi áður en gengið er í sjálfa íbúðina. Verð 25,5 millj. Uppl. gefur Ingólfur í 896 5222. Kambsvegur - vel skipul. efri sérhæð Nýkomið 282 fm endaraðhús neð- an götu innst í lokaðri götu, stutt frá skólum og verslanamiðst. í Hverafold. Mjög vel skipulagt hús sem þarfnast þó smávægilegra lagfæringa. 4-5 rúmgóð svefnher- bergi, stórar stofur, glæsilegur ar- in í stofu, fallegt útsýni á Bláfjöll, Hengil og fl. Innbyggður rúmgóður bílskúr með góðu geymslulofti og fl. Til afhendingar s.t. strax. Verð 53,8 millj./tilboð. Uppl. gefur Ingólfur í 896 5222. Logafold - fallegt endaraðhús innst í lokaðri götu - Laust strax SKRIFSTOFU- OG ÞJÓNUSTUHÚSNÆÐI ÓSKAST – KAUP EÐA LEIGA – Eignamiðlun ehf. hefur verið beðið um að útvega viðskiptavin sínum ca 1.000 fm húsnæði. Eignin má skiptast á tvær hæðir en best væri ef allir fermetrarnir væru á einni hæð. Skilyrði er að eigninni fylgi 40-50 bílastæði. Hverfin sem koma til greina eru 101, 103, 105 og 108. Önnur hverfi koma ekki til greina. Nánari upplýsingar veitir Hákon Jónsson, lögg. fasteignasali. Glæsileg nýbygging við Laugaveg Húseignin er á fjórum hæðum, samtals að gólffleti um 3.300 fm og skiptist þannig: á götuhæð er um 800 fm verslunar- húsnæði, sem er í útleigu í dag með langtímaleigusamning- um. Á 2., 3. og 4. hæð eru 31 glæsilegar íbúðir samtals að gólffleti um 2.500 fm. Íbúðirnar eru 2ja, 3ja og 4ra herbergja frá 70 fm upp í 130 fm og eru allar fullbúnar, að frátöldum tveimur íbúðum á efstu hæð, á vandaðan og smekklegan hátt. Svalir eru út af hverri íbúð og bílastæði fylgir hverri íbúð. Allar nánari uppl. veittar á skrifstofu. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Laugavegur 86-94 - Heil húseign
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.